24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 22

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is Oftast samanstóð high tea af köldu kjöti, eggjum eða fiski, kökum og samlokum og var jafnan staðgóð máltíð verkamanna. Á seinni árum hefur það hins vegar þróast svo að high tea stendur nú fyrir viðamikið eftirmiðdagste þar sem stássstellið er dregið fram og listilega gerðar samlokur og kökur útbúnar. Á öllum fínni hótelum High Tea er vinsælt á fínni hót- elum víða um heim svo sem á Ritz- og Claridge’s-hótelunum í Lond- on. Íslendingar munu nú einnig fá tækifæri til að kynnast þessari hefð á Vox á Hilton Reykjavík Nordica. Þar verður high tea reitt fram á hverjum degi frá og með laug- ardeginum næstkomandi og sam- lokur, ávextir, breskar skonsur og sætmeti borið fram á þriggja hæða diski að hefðbundnum sið. Kampavín og te „Hjá okkur verða fjórar mis- munandi tegundir af samlokum sem verða síbreytilegar. Gúrku- samlokurnar má þó ekki vanta í einhverri mynd og eins ætlum við að leggja áherslu á íslenskt og nor- rænt hráefni eins og venjulega hjá okkur á Vox. Sætmetið verður heimatilbúnar sörur og litlar múff- ur svo og auðvitað skonsur með rjóma og sultu,“ segir Ólafur Örn yfirþjónn. Þá áréttar hann að high tea tengist ekkert endilega tei held- ur frekar að fá sér kampavínsglas með samlokunum en kaffi- eða te- bolla með sætmetinu. Skonsur 300 g hveiti, 2 tsk. lyftiduft, nip- salt, 50 g flórsykur, 80 g smjör, 1 egg, 125 ml mjólk. Egg eða mjólk til að pensla. Sigtið hveiti, lyftiduft, flórsykur og salt saman. Blandið smjöri saman við með fingrunum. Hellið mjólk út í og hrærið með gaffli. Deigið á að vera klístrað og mjúkt. Hellið deiginu á hveitistráð borð og hnoðið ekki of mikið. Fletjið deigið út þannig að það verði 2 cm þykkt og stingið út um það bil 5 cm kökur. Leggið á hvolf og bakið við 220°C í 10-12 mín. Borið fram með skonsurjóma og sultu. Salamíbrauð með eggjasalati Hvítt samlokubrauð, harðsoðið egg, 5 sneiðar danskt salami, 1 msk. gott majónes, karrí, túr- merik, nýmalaður pipar og salt. Eggið er tvískorið í eggjaskera, blandað út í majónesið og kryddað eftir smekk. Síðan er öllu smurt á brauðsneið og allt salamíið nema ein sneið sett ofan á. Skorpan er skorin burt, samlokan skorin í fernt og skreytt með salamísneið. High tea með samlokum, skonsum og kampavíni Ensk matarhefð kynnt fyrir Íslendingum ➤ Þessi uppskrift að rjóma meðskonsunum passar fyrir fjóra og má segja að fylli skarð hins enska „clotted cream“: ➤ Blandið saman 100 g afrjómaosti, 1 tsk. af sykri, nip- salti og einum bolla af þeytt- um rjóma. SKONSURJÓMI Áður fyrr var high tea borið á borð á milli klukkan fimm og sex á daginn og kom í stað eft- irmiðdagskaffis og kvöld- verðar. Nafnið er dregið af því að máltíðin var oft- ast borðuð við borðstofu- borðið eða high table. Gúmmelaði Samlokur, ávextir, heimabakaðar sörur og múffur. Upphaf hins breska eftirmið- dagstes er yfirleitt rakið aftur til Önnu, sjöundu hertogaynjunnar af Bedford, sem uppi var snemma á 19. öld. Anna borðaði yfirleitt hádegismat snemma og kvöldmat seint sem þýddi að seinnipartinn var hún orðin svöng og var henni þá fært snarl. Lundúnabúar kynntust tei fyrst seint á sextándu öld þegar það var flutt inn frá Kína. Framan af hafði aðeins há- stéttin efni á því að drekka te en árið 1784 voru háir tollar af te- innflutningi afnumdir og al- menn neysla hófst. Sex bollar að meðaltali „Ég hef drukkið te frá tánings- aldri og finnst best að drekka það með mjólk. Sjaldan drekk ég kaffi en þá helst cappuccino. Yfir dag- inn drekk ég að meðaltali sex bolla af tei og nota pokate á dag- inn meðan ég er í vinnunni, en finnst betra að hella upp á í te- katli þegar ég er heima og á kvöldin. Mest drekk ég af Earl Grey og það er gott til að koma sér í gang á morgnana þar sem það er dálítið sterkara en t.d. Darjeeling-teið sem ég drekk frekar seinnipartinn og á kvöldin. Við seljum orðið mun meira te í búðinni þannig að vinsældir þess hafa aukist. Eins hef ég tekið eftir því að fólk sækist eftir því að drekka frekar til skiptis te og kaffi frekar en eingöngu annað hvort,“ segir Paul Newton sem rekur verslunina Pipar og salt ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Þorvarð- ardóttur, en hann er borinn og barnfæddur í Englandi. maria@24stundir.is Te orðið vinsælla á Íslandi segir Paul Newton Earl Grey best á morgnana Paul finnst best Að hella upp á í tekatli. 24stundir/Árni Sæberg Ólafur Örn Ólafsson Yfirþjónn á VOX. 24stundir/Kristinn S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ... Blandarinn sem allir eru að tala um! Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er Hnoðar deig Býr til heita súpu og ís Hraðastillir Lífstíðareign! y g

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.