24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 30

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir í dag  Mínus er nýkomin úr tónleika ferð um Bretlands- eyjar. Birta Björnsdóttir hitti sveitina í Camden í London. »Meira í Morgunblaðinu Mínus á netið Föstudagur 4. apríl 2008 Það er meira í Mogganum  Silja Hauksdóttir hefur lokið tökum á nýjum grín- þáttum í anda Little Britain. Þáttaröðin kallast Ríkið en verður að öllum líkindum sýnd á Stöð 2 í haust. »Meira í Morgunblaðinu Litla Ísland reykjavíkreykjavík  Mugison segist hafa millifært 4 milljónir á Davíð Þór Jónsson hljómborðsleikara. » Meira í Morgunblaðinu Örlátur Örn Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 „Mér dettur ekki annað í hug en mæta á þetta mót,“ segir Ragna Ingólfsdóttir, Íslandsmeistari í bad- minton, en hún er skráð til leiks á Meistaramóti Íslands í greininni sem fram fer um helgina þrátt fyrir að hafa ekki náð sér af meiðslum er hún hlaut á móti erlendis fyrir mánuði. Komu þau meiðsli í kjöl- far annarra meiðsla seint á síðasta ári þegar hún sleit krossbönd. Þá lék hún engu að síður í nokkrum mótum og segir að slíkt eigi að vera í lagi nú líka. „Það væri leiðinlegt að missa af þessu móti enda stærsta mótið hérlendis. Svo verður bara að koma í ljós hvort ég verð að draga mig í hlé.“ Ragna er annars í ágætum mál- um hvað varðar þátttöku á Ólympíuleikunum í Kína í ágúst. Aðeins er tæpur mánuður áður en formlega kemur í ljós hvaða bad- mintonleikmenn fara þangað og eins og staðan er núna er Ragna þar í vænlegri stöðu og heita má víst að þangað komist hún. „Ég er mjög spennt orðin að fá þetta stað- fest þó afar líklegt verði að teljast að ég komist. Framundan er svo einnig Evrópumótið um miðjan mánuðinn en svo ætla ég mér að hvíla mig vel fram til sumarloka, orðin helst til framlág eftir keyrslu núna um tveggja ára skeið.“ Ragna Ingólfsdóttir tekur þátt í Meistaramótinu í badminton Með þrátt fyrir meiðsli Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is „Heimsklassi er huglægur hverjum og einum,“ segir Edwin Roald Rögnvaldsson golfvallahönnuður. Hann hefur líkt og fleiri verið í út- rás um hríð. Hefur hann eytt nokkrum mánuðum í Austur-Evr- ópu þar sem áhugi á golfíþróttinni er að vakna og hefur Edwin verið þar til ráðgjafar í nokkrum löndum enda golf nánast með öllu óþekkt íþrótt þar um slóðir. Gamla kerfið enn við lýði Enn sem komið er er starf Edw- ins í fyrrverandi austantjaldslönd- um að mestu bundið við ráðgjöf og aðstoð fremur en hönnun en hann útilokar ekki að það verði einn góðan veðurdag. „Fyrst og fremst er um ráðgjöf að ræða enda hefð fyrir golfi lítil sem engin hér. Til að mynda er ekki einn golfvöllur í Úkraínu ennþá sem þó er tugmillj- ónaþjóð og í Rússlandi eru þeir enn aðeins fjórir eða fimm. Meg- inástæður fyrir þessum skorti eru erfitt lagaumhverfi og hversu ný íþróttin er fyrir mörgum hér. Áhuginn fer þó ört vaxandi og sést til að mynda á því að hér er til- tölulega nýbyrjað að sýna frá stór- mótum í golfi með rússnesku tali. Þá hefur það sýnt sig að erfitt er að kaupa land undir golfvöll. Það skýrist af gömlum reglum og lög- um sem meina bændum sem eiga landið að selja það. Hér eiga menn yfirleitt mjög litla skika og það er því flókið og sums staðar ómögu- legt með öllu að tryggja sér nógu stórt land undir golfvöll. Hjartað heima En Edwin er einnig með tvö stór verkefni hér heima sem hann hyggst leggjast í strax í sumar. Ann- ars vegar breytingar á Jaðarsvelli á Akureyri og svo í Golfborgum í Grímsnesi. „Þau eru bæði stór verkefni og skemmtileg, sem ég mun einbeita mér að og flakka þar á milli í sumar. Bæði svæðin bjóða upp á mikla möguleika og Golf- borgaverkefnið er vel á veg komið. Ég bind miklar vonir við þann völl og tel að þar sé mjög sérstakur og spennandi völlur í bígerð enda um- hverfið stórkostlegt.“ Ísland og markaðssetning Hvað varðar markaðssetningu íslenskra golfvalla fyrir ferðamenn telur Edwin að þar séu sóknarfæri fyrir hendi. „Ég tel að möguleikar okkar séu mun meiri en flestir þora að vona og á ég þá bæði við land- kynningu fyrir erlenda kylfinga og hvað gæði golfvalla okkar varðar. Landið okkar er frábært til golf- vallagerðar. Það þarf bara að vanda til verka. Falla ekki í þá gryfju að spara eyrinn en kasta krónunni, þó svo að mér finnist mikils misskiln- ings gæta um það hvað felst í orð- inu heimsklassi. Kostnaður kemur honum lítið við og margir þeirra golfvalla sem vakið hafa einna mesta athygli á heimsvísu síðustu ár hafa einnig verið meðal þeirra ódýrustu. Í því samhengi er mik- ilvægast að velja hentugt land. Við eigum nóg af því á Íslandi og því eru sóknarfæri mjög víða heima á Íslandi.“ Enginn tími fyrir golf Forgjöfin hef- ur haldist óbreytt síðan um aldamót enda aldrei tími til spilamennsku Heimsklassi er hugarástand  Edwin Rögnvaldsson golfvallahönnuður hefur farið í útrás aust- ur á bóginn til landa þar sem golfið er fyrst nú að gera strandhögg ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Svo ætla ég að hvíla mig vel enda orðin helst til framlág eftir keyrslu núna um tveggja ára skeið.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.