24 stundir


24 stundir - 24.05.2008, Qupperneq 37

24 stundir - 24.05.2008, Qupperneq 37
24stundir LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 37 Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur iris@24stundir.is Hvaða lifandi manneskju líturðu upp til og hvers vegna? Foreldrar mínir eiga hrós skilið fyrir að hafa gert mig að þeim manni sem ég er í dag. Það fóru nokkr- ir yfirvinnutímar í það. Ég hef líka alltaf haldið upp á Eika Hauks, rokkara Íslands. Hver er þín fyrsta minning? Erfitt að segja hver er sú fyrsta en ég man alltaf eftir því að þeysast með Heidda frænda á mót- orhjólinu fram í Steinhólaskála og þar var boðið upp á kók og prins, those where the days. Hver eru helstu vonbrigðin hingað til? Ég var níu eða tíu ára þegar mamma lét mig skila matchboxbíl sem ég stal í Sigga Gúmm-versluninni á Akureyri og biðjast afsökunar á hegðun minni. Niðurlægingin var algjör en þetta virkaði hjá gömlu. Hvað í samfélaginu gerir þig dapran? Auknar fréttir af glæpum og ofbeldi á Íslandi fara afar illa í mig. Öll dýrin í skóginum eiga að vera vin- ir. Leiðinlegasta vinnan? Það hlýtur að vera þegar ég vann í grænmet- isborðinu í NETTÓ sem unglingur, mikið svakalega leiddist mér þar. Uppáhaldsbókin þín? Ég les rosalega lítið, sofna alltaf strax en held að ævisaga Elvis sé klárlega skemmtilegasta bók sem ég hef lesið. Hvað eldarðu hversdags, ertu góður kokkur? Ég er alltof latur við að elda en er ágætiskokkur þegar á reynir. Ég sé reyndar yfirleitt um að grilla á heimilinu. Hver myndi leika þig í kvikmynd byggðri á ævi þinni? Það hlyti að vera Jack Black. Ég þyrfti samt kannski að kenna honum á skauta. Að frátalinni húseign, hvað er það dýrasta sem þú hefur fest kaup á? Ég keypti bíl í Danmörku og það kostar lágmark annan handlegginn. Mesta skammarstrikið? Þegar ég stal matchboxbílnum í Sigga Gúm- versluninni á Akureyri. Hvað er hamingja að þínu mati? Er ekki bara hamingja að eiga heilbrigða og góða fjölskyldu? Hvaða galla hefurðu? Alveg helling, kannski helst þrjósku og keppn- isskap, jú og hungur, ég er sísvangur. Ef þú byggir yfir ofurmannlegum hæfi- leikum hverjir væru þeir? Það hlýtur að tengjast mat á einhvern hátt. Ég veit ekki hvað það gæti verið en það myndi örugglega tengjast mat. Hvernig tilfinning er ástin? Mögnuð og flókin. Hvað grætir þig? Sonur minn kallar stundum fram gleðitár og svo setur kvikmyndatónlist mig óþarflega oft úr jafnvægi. Hefurðu einhvern tímann lent í lífshættu? Úff, ég var óttalegur klaufi í æsku, var reglu- legur gestur í höfninni. Ég rúllaði líka einu sinni niður gilið og á bíl í einni línuskautaferðinni, það kostaði einar þrjár vikur á sjúkrahúsi. Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest? Gítarana mína og litla AER-magnarann minn. Ég á einnig illa lyktandi hokkísokka sem mér þyk- ir voða vænt um. Þeir hafa fært mér mikla lukku gegnum tíðina. Hvað gerirðu til að láta þér líða vel? Elda naut og béarnaise og opna kaldan Erdin- ger eftir matinn. Hverjir eru styrkleikar þínir? Hressileiki og keppnisskap. Hvað langaði þig að verða þegar þú varst lít- ill? Atvinnumaður í íshokkíi og meðlimur í Kiss. Er gott að búa á Íslandi? Já, og maður gerir sér enn betur grein fyrir því hvað Ísland er magnaður staður þegar maður býr erlendis. Hefurðu einhvern tímann bjargað lífi ein- hvers? Nei, ekki nema í draumi en þar hef ég reyndar bjargað fullt af vinum og ættingjum úr klóm glæpamanna og þríhöfða eldspúandi dreka, nú eða öðrum eðlilegri háska. Hetjudraumar eru al- gengir hjá mér. Hvert er draumastarfið? Að geta lifað af tónlistinni. Það er markmiðið. Hvað ertu að gera núna? Ég er að vinna í texta sem ég var beðinn að semja fyrir brúðkaup sem verður í sumar. Ég var reyndar kominn með ritstíflu svo ég sneri mér að þessum spurningalista. 24spurningar Rúnar Eff Rúnar Eff tónlistarmaður sló ný- verið í gegn með gamla aha- slagaranum Take on me. Rúnar er gamall íshokkíkappi sem lagði kylfuna á hilluna og helgaði sig tónlistinni. Hann heldur úti vef- síðunni www.runar.is. FATAMARKAÐUR LAUGAVEGI 95 50-80% AFSLÁTTUR KOMDU OG GERÐU FRÁBÆR KAUP! OPIÐ ALLA HELGINA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.