24 stundir - 24.05.2008, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 24stundir
ekki endilega í daglegu sambandi.
Við tölum rækilega um öll mál
sem hugsanlega gæti orðið ágrein-
ingur um og reynum að leysa þau
fyrirfram. Samstarf okkar hefur
gengið mjög vel.“
Hefurðu stundum hugsað með
þér að kannski hefðirðu betur farið í
ríkisstjórn með Vinstri grænum?
„Ég hef velt því fyrir mér en
komist að þeirri niðurstöðu að
ákvörðunin sem var tekin í fyrra
var hárrétt. Ég hef átt gott samstarf
við forystumenn Vinstri grænna í
gegnum tíðina en því miður er
stefna þeirra í flestum málum víðs
fjarri okkar áherslum, eins og
komið hefur í ljós í þinginu í vetur.
Samstarfið við stjórnarand-
stöðuflokkana hefur að mörgu
leyti verið ágætt. Formenn stjórn-
málaflokkanna ræða oft saman.
Við kynntum til dæmis formönn-
um stjórnarandstöðuflokkanna
gjaldeyrisskiptasamninginn sem
nýlega var gerður. Þegar um slík
mál er að ræða er mjög mikilvægt
að stjórnmálaflokkarnir standi
saman út á við og verji hagsmuni
þjóðarinnar. Leiðtogar stjórnar-
andstöðunnar brugðust mjög vel
og skynsamlega við í þessu máli.“
Hvað er best fyrir Ísland?
Sumir segja að ágreiningur um
Evrópusambandið gæti klofið Sjálf-
stæðisflokkinn. Verður Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki að opna rækilega á
umræðuna um hugsanlega aðild að
Evrópusambandinu eins og Fram-
sóknarflokkurinn hefur gert?
„Umræðan er opin. Það er inn-
antómur áróður að halda því fram
að það sé bannað að ræða hugs-
anlega Evrópusambandsaðild í
Sjálfstæðisflokknum og að flokks-
forystan vilji ekki að málið sé rætt
í þjóðfélaginu. Spurningin í þessu
máli er: Hvað er best fyrir Ísland?
Þá verða menn að leggja á vog-
arskálar alla kosti og alla galla.
Mín niðurstaða er skýr. Ég tel að
gallarnir vegi þyngra en kostirnir.
Ég hef ekki nokkra trú á því að
ágreiningur um Evrópusambandið
muni kljúfa Sjálfstæðisflokkinn.
Ég er ekkert viss um að mál eins og
þetta skipi mönnum í stjórnmála-
flokka. Fólk velur sér flokka á
grundvelli heildarstefnu og kýs
samkvæmt því.“
Gæti skoðun þín á Evrópusam-
bandsaðild ekki breyst?
„Það er ekki hægt að útiloka að-
ild að Evrópusambandinu um ald-
ur og ævi en ég sé ekki að aðild
muni henta okkur í fyrirsjáanlegri
framtíð. Ég vil samt taka fram að
ég tel að Evrópusambandið hafi
verið mjög heilladrjúgt fyrir þjóð-
irnar á meginlandi Evrópu. Ég get
vel skilið þjóðirnar í Austur- og
Mið-Evrópu sem af ýmsum ástæð-
um lögðu ofurkapp á að komast
inn í Evrópusambandið, til dæmis
vegna þess að þær vildu skapa fjar-
lægð við Rússland. En þegar út-
lendingar spyrja mig um Ísland og
Evrópusambandið segi ég gjarnan
að það sé hægt að vera góður Evr-
ópubúi án þess að vera í Evrópu-
sambandinu.“
Varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, hefur komið með þá hugmynd að
breyta stjórnarskránni og hafa þjóð-
aratkvæðagreiðslu um aðildarum-
sókn? Hvað segirðu um þá hug-
mynd hennar?
„Ég tel öruggt að það þyrfti að
breyta stjórnarskránni ef við ætl-
uðum að ganga í Evrópusamband-
ið. Það er ekkert órökrétt í því sem
Þorgerður Katrín hefur sagt og
það er enginn skoðanaágreiningur
á milli okkar. Við Þorgerður Katr-
ín erum nánir samverkamenn og
sammála í þeirri afstöðu að aðild
að ESB þjóni ekki hagsmunum Ís-
lands.“
Skoðanakannanir sýna að meiri-
hluti þjóðarinnar vill ganga í Evr-
ópusambandið. Ef það er eindreg-
inn vilji þjóðarinnar verður
ríkisstjórnin þá ekki að setja málið á
dagskrá og hafa þjóðaratkvæða-
greiðslu um það hvort sækja eigi um
aðild?
„Skoðanakannanir eru sveiflu-
kenndar. Sá stjórnmálamaður er
skammsýnn sem ætlar að láta
skoðanakannanir ráða för sinni.
Ég geri ekki ráð fyrir að Sjálfstæð-
isflokkurinn myndi beita sér fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild-
arumsókn að Evrópusambandinu
nema flokkurinn hefði þá stefnu
að rétt væri að ganga inn í sam-
bandið. Eins og staðan er núna er
það ekki stefna flokksins.“
Verður Evrópusambandsaðild
kosningamál árið 2011?
„Það er ómögulegt að meta það
á þessari stundu. Alþingiskosning-
ar á Íslandi hafa aldrei snúist um
aðild að Evrópusambandinu. Það
var komist næst því með slagorði
Framsóknarflokksins í kosningun-
um 1991: xB ekki EB – sem kom
reyndar eins og skrattinn úr sauð-
arleggnum því enginn var að tala
um EB. Síðan hefur enginn stjórn-
málaflokkur gert Evrópusamband-
ið að kosningamáli.“
Erfiðleikar senn að baki
Staðan í borginni er sorgarsaga
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Getur Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson sest í stól
borgarstjóra á næsta ári?
„Ég ætla ekki að taka afstöðu til
þess hvaða einstaklingur sest í stól
borgarstjóra. Ég tel brýnt að sá
sem það gerir byggi upp Sjálfstæð-
isflokkinn í borginni og leiði hann
í gegnum prófkjör sjálfstæðis-
manna, sem verður væntanlega
haustið 2009, og í borgarstjórn-
arkosningum 2010 ef sá einstak-
lingur sigrar í því prófkjöri. Þarna
hafa verið vandamál og að hluta til
eru þau óleyst en ég treysti því að
erfiðleikatímabilið sé senn að baki.
Ástandið hefur verið óvenjulegt en
það er mikilvægt að menn standi
með Ólafi F. Magnússyni borgar-
stjóra og þeim meirihluta sem er
við völd. Borgarbúar mega ekki
við frekari uppákomum á þessum
vettvangi.“
Hafa þessi tvö ár þín sem for-
sætisráðherra, í tveimur ríkisstjórn-
um, verið erfiðari en þú bjóst við?
„Þau hafa ekki verið mikið
öðruvísi en ég átti von á vegna
þess að ég hef verið á bólakafi í
stjórnmálum svo lengi. Að mörgu
leyti er erfiðara að vera fjármála-
ráðherra en forsætisráðherra.
Þetta hefur gengið vel og ég hef
yndi og ánægju af þessu starfi.
Ríkisstjórnarsamstarfið gengur vel
og ég á ekki von á öðru en það
verði bæði langt og gjöfult.“
Stefnirðu að því að verða for-
sætisráðherra eftir kosningar árið
2011?
„Já, ég stefni að því.“
Evrópusambandsaðild
„Mín niðurstaða er skýr.
Ég tel að gallarnir vegi
þyngra en kostirnir.“
a
Ég geri ekki ráð
fyrir að Sjálf-
stæðisflokk-
urinn myndi beita sér fyr-
ir þjóðaratkvæðagreiðslu
um aðildarumsókn að
Evrópusambandinu
nema flokkurinn hefði þá
stefnu að rétt væri að
ganga inn í sambandið.
Eins og staðan er núna er
það ekki stefna flokksins.
a
Ég ætla ekki að
taka afstöðu til
þess hvaða ein-
staklingur sest í stól
borgarstjóra. Ég tel brýnt
að sá sem það gerir byggi
upp Sjálfstæðisflokkinn í
borginni og leiði hann í
gegnum prófkjör sjálf-
stæðismanna, sem verður
væntanlega haustið
2009, og í borgarstjórn-
arkosningum 2010 ef sá
einstaklingur sigrar í því
prófkjöri.
24stundir/Golli