24 stundir - 24.05.2008, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
„Við erum óhræddir við að nota
grænmeti og ávexti í réttina okkar,“
segir Ingvar Helgi Guðmundsson,
matreiðslumeistari á Salatbarnum,
en þar á bæ er mikið lagt upp úr
léttum og hollum réttum. Ingvar
hefur rekið Salatbarinn frá árinu
2000 og segir hann að viðhorf til
staðarins og matargerðarinnar hafi
breyst mikið á þeim tíma.
„Þegar ég byrjaði var litið á þetta
sem kvennastað. Þá voru konur 70
prósent viðskiptavina en nú er
þetta orðið alveg jafnt og virkilega
gaman að sjá hvað karlmenn eru
duglegir að sækja staðinn,“ segir
Ingvar sem verður var við áhuga
fleiri þjóðfélagshópa á hollum mat.
Unglingar og ellilífeyrisþegar
„Það er líka aukning í tveimur
hópum sem ég er mjög ánægður
með. Það eru unglingar og ellilíf-
eyrisþegar. Þetta er bara eins og í
himnaríki. Maður gleðst yfir hverj-
um gömlum manni sem kemur
hingað að borða pasta,“ segir Ingv-
ar sem telur galdurinn meðal ann-
ars fólginn í því að bjóða upp á gott
úrval af réttum þannig að fólk fái
ekki leið á matnum.
„Ef það væru alltaf bara tómatar
og gúrkur og ein pastategund þá
kæmi ábyggilega enginn,“ segir
Ingvar sem telur einnig að breyt-
ingin sé í takt við tíðarandann.
Tónlist með matnum
Salatbarinn býður upp á meira
en mat því að þar hafa í gegnum
tíðina farið fram menningarvið-
burðir og uppákomur af ýmsu tagi
svo sem sýningar, upplestrar og
tónleikar. Þar hafa ekki verið nein
bílskúrsbönd á ferð heldur hljóm-
sveitir á borð við Írafár, Greifana,
Skítamóral og Baggalút. Einu sinni
tók meira að segja heill kvennakór
lagið á staðnum.
„Það er gaman að sjá hvernig
fólk hefur lagað sig að aðstæðum.
Þetta er náttúrlega ekki byggt sem
tónleikahöll,“ segir Ingvar um
húsakynnin. „Það er afskaplega
mikilvægt að brjóta upp hversdags-
leikann. Ég kalla það að skila til
baka. Þegar ég er búinn að taka við
peningum frá fólki í eitt ár kem ég
með eitthvað til baka,“ segir Ingvar
sem gefur lesendum uppskriftir að
þremur léttum og góðum réttum.
Matur og menning Ingvar á Sal-
atbarnum býður gestum sínum
gjarnan upp á meira en góðan mat.
Salatbarinn er ekki lengur kvennastaður
Körlum fjölgar
á Salatbarnum
Karlmenn sækja Salat-
barinn í auknum mæli og
er það í takt við tíðarand-
ann að mati eigandans.
Enn fremur hefur ung-
lingum og ellilífeyr-
isþegum fjölgað í hópi
viðskiptavina.
➤ Ingvar lærði á Kokkhúsinu íLækjargötu á sínum tíma.
➤ Hann var um tíma yfirkokkurá veitingastað í Noregi og á
Hótel Loftleiðum.
➤ Hann keypti Salatbarinn árið2000 en áður hét staðurinn
Salatbar Eika.
➤ Árið 2002 var staðurinn opn-aður í nýju húsnæði í Faxa-
feni.
➤ Salatbarinn hefur notið mik-illa vinsælda meðal hand-
boltafólks í gegnum tíðina.
INGVAR GUÐMUNDSSON
Fyrir 2
Hráefni:
400 g lambafillet (hryggvöðvi)
2 stk. bökunarkartöflur
2 stk. gulrætur
½ græn paprika
½ rauð paprika
1 stk. pera
10 stk. belgbaunir.
1 stk. lítið spergilkálshöfuð
2 rif hvítlaukur
Olía (hráefni):
salt og pipar
jurtakrydd
grillkrydd
BBQ-sósa
Aðferð:
Brúnið lambafilletið á pönnu í 3
mínútur á hvorri hlið og steikið
síðan í ofni í 12 mín. við 180°C.
Skrælið bökunarkartöflurnar,
penslið með olíu og kryddið
með grillkryddi. Bakið í ofni í 35
mín. við 180°C. Skerið grænmet-
ið í strimla og steikið í olíu á
pönnu í u.þ.b. 5 mínútur.
Kryddið með salti og pipar. Setj-
ið bökuðu kartöfluna á disk.
Raðið grænmetinu meðfram
henni og skerið lambafilletið í
sneiðar og setjið á grænmetið og
setjið nokkrar teskeiðar af
BBQ-sósu á diskinn.
AÐALRÉTTUR
Lambafillet með woksteiktu
grænmeti og bakaðri kartöflu
24stundir/hag
Elísabet Alba vínþjónn mælir með Tenuta Sant́Antonio Valpoli-
cella la Bandina 2001. Sólber, svört kirsuber, tjara og sítruspipar
eru áberandi í nefi. Þurrt veigamikið og ávaxtaríkt vín sem ein-
kennist aðallega af gljáðum plómum, dökku súkkulaði og mosa.
Mikil fylling og mjúk tannín fylgja löngum kryddlegnum endi.
Þrúgur: Corvina, Rondinella & Molinara. Land: Ítalía. Hérað: Ve-
neto. 2.390 kr.
LÍFSSTÍLLMATUR
matur@24stundir.is
Bolli er ekki bara bolli og rétta útlitið getur
breytt öllu. Smekkur manna er mismunandi
og bollarnir frá Kahla eru misstórir, mislitir
og fjölbreyttir í laginu svo flestir geta fundið
þann rétta fyrir sig. Spáðu í bollana hjá Kokku,
í verslun okkar eða á kokka.is
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Bollaleggingar