24 stundir - 24.05.2008, Side 47

24 stundir - 24.05.2008, Side 47
24stundir LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 47 a Ég var alltaf rosa- lega metnaðargjörn og framagjörn, en það er kannski ekki í fyrsta sæti lengur eftir að börnin komu. Það er ekki eins mikið forgangsatriði að meika það í vinnunni. HEYRNARÞJÓNUSTA Við bjóðum fullkomnustu heyrnartækin frá danska framleiðandanum ReSound Heyrnarþjónustan Heyrn ehf. Hlíðasmára 11. 201 Kópavogur. Sími 534 9600. netf: heyrn@heyrn.is * Hágæða heyrnartæki með vindvörn * Fyrstu hlaðanlegu heyrnartækin * Einföld og þægileg í notkun Tímapantanir í síma 534-9600 * Heyrnarþjónusta * Heyrnarmælingar * Heyrnartæki * Ráðgjöf Azure er nýjasta og háþróaðasta heyrnartæki sem ReSound framleiðir. Hugmyndin að baki Azure heyrnartækinu er að heyrn með því verði eins eðlileg og frekast er unnt. Kristaltær tónn án takmarkan og ama fyrir notandann - rétt eins og hann á að vera. Azure flokkar ekki það sem notandinn fær að heyra og takmörku stærð tölvuforrita afmarkar ekki hljóðvinnslu þess. Nánari upplýsingar á www.heyrn.is AZURE EFLIR HEYRN Á EÐLILEGAN HÁTT                                      Nánari upplýsingar í síma 893 5046 og á www.fjallaland.is og www.leirubakki.is Allir velkomnir að koma og skoða! Til sölu mjög fallegar lóðir við Ytri-Rangá í landi Leirubakka. Kjarri- og mosavaxið hraun. Sögufrægt hérað, mikil fjallasýn, veðursæld og hlý sumur. Miklir útivistarmöguleikar. Allt eignarlóðir sem seljast með vegi að lóðamörkum og vatni og rafmagni í götum. Hitaveita verður í boði. Golfvöllur í undirbúningi. Kaup á landi er ein öruggasta fjárfesting sem völ er á. Aðeins 100 km frá Reykjavík. Upplagt að fá sér bíltúr um helgina, skoða lóðirnar, fara á Heklusýninguna og kanna hið landsfræga kökuhlaðborð Leirubakka! Fjölbreytileg þjónusta er við lóðaeigendur heima á Leirubakka: Hótel, veitingahús, verslun, bensínstöð, Heklusetur með glæsilegri Heklusýningu, hestaleiga, reiðskóli, skipulagðar gönguferðir og margt fleira. Út í vorið! lengra til þess að fá sem mest út úr lífinu.“ Þegar kemur að því að ræða áhugamálin nefnir hún strax leik- hús og leiklist og játar fúslega að hjá henni séu vinnan og áhugamálin afar samtvinnuð. „Áhugamál mín tengjast mjög mikið vinnunni minni. Ég held að ég myndi ekki þrífast öðruvísi en að vinna við það sem mér finnst skemmtilegast. Mér finnst það forréttindi og ég er orðin svo dekruð að ég gæti ekki hugsað mér að fara í einhverja vinnu sem mér þætti ekki stórkostlega skemmtileg,“ segir hún. Gegnrýnandi gagnrýnendur Auk þess að leikstýra Gosa er Selma ein af aðalleikurum söng- leiksins Ástin er diskó, lífið er pönk, eftir Hallgrím Helgason, sem sýndur er í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Sýningin hefur hlotið góða aðsókn, en gagnrýn- endur hafa hins vegar farið fremur neikvæðum orðum um hana. „Mér finnst alveg frábært að Tinna Gunnlaugsdóttir skyldi fá Hallgrím Helgason til þess að semja íslenskan söngleik og fá Þorvald Bjarna til þess að gera tónlistina. Ástin er diskó, lífið er pönk eru kannski engin vísindi, en það leynir sér ekki í lok hverrar sýningar að áhorfendur skemmta sér vel. Þessu er ætlað að vera afþreying og skemmtun og að vissu leyti er þetta kannski hugsað sem markaðsleik- hús. Mér finnst það mjög mikil- vægur þáttur í litrófinu. Það er fullt af fólki sem vill koma í leikhús ein- göngu til þess að skemmta sér,“ seg- ir Selma og telur marga gagnrýn- endur misskilja þetta. „Kolbrún Bergþórsdóttir talaði um „ofurfullorðið“ fólk í pistli í 24 stundum og að það væru svo marg- ir orðnir ofurfullorðnir að það mætti ekkert vera skemmtilegt og létt lengur. Þetta er kannski dæmi um það. Auðvitað eru gagnrýnend- ur nauðsynlegir fyrir listalífið og umræðuna um leiklist í landinu, en mér finnst þeir stundum svolítið misskilja starfsheiti sitt og oft vera orðnir hálfgerðir „gegn-rýnendur“ ef svo má að orði komast. Mér finnst gott að lesa gagnrýni sem rýnir til gagns því þá getur maður kannski verið sammála og tekið gagnrýni á sjálfan sig til athugunar. En mér finnst vera að færast í vöxt að það er ofboðslega mikil rætni, virðingarleysi og persónulegt nið- urrif. Þegar slíkt er upp á teningn- um get ég ekki tekið mark á því og mér finnst það falla um sjálft sig.“ Krati í hjartanu Selma á ekki aðeins vini úr röð- um listafólks heldur eru nokkrir af mest áberandi stjórnmálamönnum landsins á meðal hennar bestu vina. Hún kveðst hins vegar ekki geta hugsað sér að reyna fyrir sér sjálf á þeim vettvangi. „Ég er ofboðslega barnsleg og rúðustrikuð í mínum pólitísku hugsunum og held að ég yrði hrika- legur stjórnmálamaður. Ég stend mig yfirleitt að því rétt fyrir kosn- ingar, þegar maður byrjar að fylgj- ast almennilega með, að enda brjál- uð og öskra á sjónvarpið og blöðin sem ég les,“ segir hún og kveðst sækja eitthvað úr öllum áttum í pólitískum skoðunum. „Ég vil temmilegt frelsi og ég vil að við séum ofboðslega góð við þá sem eru sjúkir og eiga bágt. Svo vil ég að við berum gamla fólkið á höndum okkar. Mér finnst skamm- arlegt hvað það er lítið eftirsókn- arvert að verða gamall. Það á að vera tilhlökkunarefni. Maðurinn minn segir að ég sé krati og ætli ég sé það ekki í hjarta mínu. Ég hef kosið þrjá flokka, en þá er það yf- irleitt vegna manna og málefna.“ Þrátt fyrir kratahjartað segist Selma alla tíð hafa stutt við bakið á sjálfstæðismönnunum Sigurði Kára Kristjánssyni og Gísla Marteini Baldurssyni, sem hún hefur þekkt frá því í menntaskóla. „Sigurður Kári og Gísli Marteinn eru báðir mjög heilsteyptir og góðir menn. Þó að við séum ekkert full- komlega sammála um allt í pólitík þá hvet ég þá til góðra verka og hef mikla trú á þeim. Ég mun alltaf gera það. Ég hjálpaði Gísla Marteini á sínum tíma þegar hann var í próf- kjöri, einfaldlega vegna þess að ég vildi sjá hann verða oddvita. Ég get þó ekki sagt að ég sé eitthvað inni í hans málum í dag. En þegar vinir manns leita til manns til einhverra góðra verka þá hjálpar maður þeim. Hvort sem það er þegar þeir eru að flytja eða ná frama í starfi.“ Móðurhlutverkið mikilvægast Selma er gift leikaranum og leik- stjóranum Rúnari Frey Gíslasyni og hafa þau verið saman í áratug, eða frá því að þau léku saman í söng- leiknum Grease árið 1998. Þau eiga saman sex ára strák og 16 mánaða stelpu. „Það er gaman að geta séð hvernig bæði kynin koma undan foreldrum sínum. Börnin okkar eru lík í útliti en mjög ólíkir karakt- erar. Strákurinn er mikill orkubolti og lífsglaður, hress og kátur, en stelpan er ofsalega ljúf, pælir mikið og setur í brýrnar. Hún er alveg svakalega róleg. Þau eru eins og svart og hvítt hvað orkustig varð- ar,“ segir Selma. Er svona orkumikill drengur ekki líklegur til að vilja feta í fót- spor foreldranna og hella sér í leik- listina þegar fram líða stundir? „Jú, hann elskar að vera í leikhúsi og ég gat tekið hann með á fullorðinssýn- ingar þegar hann var bara fjögurra ára. Það sem kemst að hjá honum er fótbolti, hjól og svo að vera í búningum. Það veit ekki á gott,“ segir Selma og hlær, en telur að starf þeirra foreldranna sé ekkert sem hún þurfi að vara börnin sín við að taka sér fyrir hendur. „Ef það er það sem hann langar til að gera þá er það bara frábært. Auðvitað styður maður börnin sín í að gera það sem þau vilja. Annað væri rangt.“ Selma hefur tekist á við fjölda hlutverka á ferlinum en vitaskuld er foreldrahlutverkið skemmtilegast og mest krefjandi. „Ég er nú ekkert hin fullkomna móðir. Ég held að maður eyði ævinni í að læra þetta og læra af mistökunum. Maður bara reynir sitt besta. Þetta er nátt- úrlega mikilvægasta hlutverkið, ef maður talar um hlutverk. Lífs- munstrið manns breytist algjörlega við að verða foreldri og í rauninni lífssýnin öll. Maður fer að for- gangsraða öðruvísi og hlutir sem skiptu mann gríðarlega miklu máli áður skipta ekki eins miklu máli nú. Ég var alltaf rosalega metnaðar- gjörn og framagjörn, en það er kannski ekki í fyrsta sæti lengur eft- ir að börnin komu. Það er ekki eins mikið forgangsatriði að meika það í vinnunni.“

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.