24 stundir - 24.05.2008, Page 57
24stundir LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 57
Madonna hefur vakið mikla
hneykslan fyrir ummæli sín um
ættleiðingarferli sitt, sem hún
leggur að jöfnu við þær kvalir
sem konur ganga í gegnum við
barnsburð.
Þetta sagði Madonna í Cannes í
gær, við kynningu myndar sinn-
ar, I am Because we Are, sem
fjallar um munaðarleysingja í
Malawi.
Madonna er nú að reyna að ætt-
leiða þriggja ára dreng frá
Malawi, en hefur hvað eftir ann-
að rekist á veggi sökum skrifræð-
is, pólitíkur og þeirrar stað-
reyndar að sem flestir reyna að
seilast í djúpa vasa hennar.
En þó ættleiðingin gangi vissu-
lega erfiðlega og taki á taugarnar,
hefur Madonna kannski tekið
fulldjúpt í árinni með samlíking-
unni.
Líkir ættleiðingu
við barnsburð
Tölvuleikir viggo@24stundir.is
No More Heroes er vægt til orða
tekið stórfurðulegur leikur. Í leikn-
um fara menn í hlutverk manns að
nafni Travis Touchdown en tak-
mark hans í lífinu er að ná efsta
sætinu á lista yfir færustu laun-
morðingja heimsins. Til að færast
upp á listanum þarf Travis að
murka lífið úr þeim sem eru fyrir
ofan hann á fyrrnefndum lista og til
þess notar hann geislasverðið sitt.
En Travis gerir meira en að
myrða mann og annan. Hann þarf
einnig að sinna hinum og þessum
störfum, svo sem garðslætti og
kókoshnetutínslu, til að vinna sér
inn peninga. Peningana er svo
hægt að nota til að betrumbæta
vopn sitt, kaupa ný föt eða skora á
næsta andstæðing sinn.
Heimur No More Heroes er í
senn sjúkur og bráðfyndinn. Fram-
leiðendur leiksins hafa alls staðar
laumað inn sínum sérstaka húmor
og það sést til dæmis greinilega í
hvert skipti sem leikmenn vista
stöðu leiksins en sú aðgerð á sér
stað inni á salerni.
Bardagakerfi leiksins er einfalt í
notkun en verður þó aldrei leiði-
gjarnt því það er fjári gaman að fá
að sveifla geislasverðinu.
Hvað grafíkina varðar er leik-
urinn hreint einstakur. Meginþorri
leiksins er í hálfgerðum teikni-
myndastíl en reglulega bregður fyr-
ir pixluðum myndum sem minna
rækilega á hina gömlu klassísku
tölvuleiki sem voru vinsælir á ní-
unda áratug síðustu aldar. Raunar
er margt annað í leiknum sem
minnir á gamla tölvuleiki og því
má í raun segja að No More Hero-
es sé óður til klassískra tölvuleikja.
No More Heroes er leikur sem
klárlega höfðar ekki til allra. Leik-
urinn hefur þó töluverðan sjarma
og stíl og kemst býsna langt á því.
Tekið á því Travis Touchdown er banvænn með geislasverðið sitt og er fljótur að
ganga frá óvinum sínum.
Trítil-óður til klassískra tölvuleikja
Grafík: 83% Ending: 70%
Spilun: 80% Hljóð: 74%
No More Heroes Wii |16+
NIÐURSTAÐA: 77%
„Þrátt fyrir að myndin sé alls engin
Platoon, Full Metal Jacket eða
Apocalypse Now þá er hún samt ágætis
vitnisburður um þær hörmungar sem eiga
sér stað fyrir botni miðjarðarhafs í
þessum skrifuðu orðum.” tsk
Redacted
DÓMAR VIKUNNAR
KVIKMYNDIR
„Þessi mynd á best heima á leigunum,
eða sem stolinn fæll í fartölvu
fermingarkrakka.” tsk
Harold & Kumar Escape
from Guantanamo Bay
„Never back down er dæmigerð
menntaskólaformúlumynd með svipuðum
söguþræði og Karate Kid, Bloodsport og
allar hinar lélegu slagsmálamyndirnar.”
tsk
Never back down
„Myndin líður fyrir slæman leik Fords,
sem skilar línum sínum eins og hann
sé undir áhrifum sterkra verkalyfja, og
kauðslegs handrits. bös
Indiana Jones and the
Kingdom of the Crystal Skull
TÓNLIST
„Þessi plata er kannski helst sönnun
þess að það er löngu kominn tími á
nýja og ferska strauma í topp 20 poppið.
bös
Madonna: Hard Candy