24 stundir - 29.05.2008, Qupperneq 8
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Súpersól til
Búlgaríu
9. júní
frá kr. 39.995
Kr. 39.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn í hótelherbergi / íbúð í viku. Súpersól
tilboð, 9. júní. Aukavika kr. 15.000.
Kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í hótelherbergi /
íbúð í viku. Súpersól tilboð, 9. júní.
Aukavika kr. 15.000.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Aðeins örfá sæti í boði!
Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum.
Terra Nova býður nú síðustu sætin í júní á ótrúlegum kjörum. Gríptu
tækifærið og skelltu þér til þessa vinsæla sumarleyfisstaðar sem býður
þín með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmögu-
leika, fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf. Þú bókar sæti og 4
dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
KLASSÍSKIR
SUMARFRAKKAR
(með og án beltis)
8 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Leiðtogum ríkja heims hefur mis-
tekist að taka á mannréttindabrot-
um, ekki staðið við gefin loforð og
brugðist skyldum gagnvart þegn-
um sínum.
Í nýrri ársskýrslu mannréttinda-
samtakanna Amnesty Internatio-
nal kemur fram að fólk sæti pynt-
ingum eða illri meðferð í að
minnsta kosti 81 ríki, að fólk fái
ekki réttláta meðferð fyrir dómi í
74 ríkjum og að fólk búi við skert
tjáningarfrelsi í 77 ríkjum.
Skandall
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Íslandsdeildar Am-
nesty, segir það skandal að Am-
nesty skuli þurfa að gefa út um 400
síðna skýrslu um mannréttinda-
brot í heiminum. „Nú eru 60 ár
liðin frá því að ríkisstjórnir og
þjóðhöfðingjar um heim allan
samþykktu það að virða mannrétt-
indi borgara sinna. Að við þurfum
enn að segja frá svona skelfilegum
atburðum er bara skandall. Þetta
sýnir að ríkisstjórnir hafa algerlega
brugðist skyldum sínum gagnvart
borgurunum.“
Krefst afsökunarbeiðni
Jóhanna segir Amnesty hafa
skorað á þjóðhöfðingja heimsins
að biðjast afsökunar á mannrétt-
indabrotum síðustu sex áratuga, að
þeir snúi blaðinu við og vinni að
mannréttindum þeirra sem þeir
starfa í umboði fyrir.
Hún segir þó ýmislegt jákvætt
koma fram í skýrslunni. „Baráttan
gegn dauðarefsingum hefur skilað
mjög miklum árangri á síðustu ár-
um. Það eru æ fleiri ríki sem af-
nema dauðarefsinguna. Þeim hefur
til að mynda fækkað í Kína og and-
staða við dauðarefsingar hefur
aukist í Bandaríkjunum. Stærsta og
jákvæðasta skrefið á síðasta ári var
svo þegar 104 ríki innan Samein-
uðu þjóðanna samþykktu algert af-
tökustopp.“
Þörf á tafarlausum aðgerðum
Jóhanna segir árið 2007 hafa
einkennst af getuleysi vestrænna
ríkisstjórna og tvöfeldni eða tregðu
nývelda, svo sem Kína, til að fást
við ýmsar af verstu mannréttinda-
neyðum í heiminum.
Að sögn eru öll tilvik mannrétt-
indabrota alvarleg, en þörf sé á taf-
arlausum aðgerðum meðal annars
í Darfúr-héraði í Súdan, Simbabve,
Írak, Búrma og á Gasa-ströndinni.
„Það er alveg ljóst að almennt séð
eru þjóðarleiðtogar ekki að sinna
þeim verkefnum sem þeim er falið,
það er að tryggja fólki sínu mann-
réttindi og góð lífsskilyrði.“
© GRAPHIC NEWSHeimild: Amnesty International *Allar tölur eiga við árið 2007
Þrátt fyrir að 60 ár séu liðin frá því að Sameinuðu þjóðirnar
samþykktu mannréttindayfirlýsingu sína, standa stjórnir í tugum
ríkja enn fyrir pyntingum og misþyrmingum á þegnum
sínum, samkvæmt nýrri ársskýrslu Amnesty.
Fjöldi fólks sem var
tekið af lífi í 24 ríkjum árið 2007
eftir að hafa hlotið dauðadóm.
Fjöldi ríkja þar sem dæmi
eru um skráð tilfelli pyntinga og
illa og niðurlægjandi meðferð.
Fjöldi fólks í haldi í Guantanamo
fangabúðunum án ákæru.
Fjöldi
ísraelskra eftirlits-
stöðva sem hindra
eða takmarka
frjálsa för Pale-
stínumanna á
Vesturbakkanum.
Ríki sem hafa svokallaða
samviskufanga í haldi.
Ríki sem hafa takmarkað
tjáningarfrelsi þegna sinna.
Konur sem voru drepnar
af eiginmönnum sínum í
Egyptalandi fyrri hluta árs 2007.
Fólk sem
hefur verið tekið til fanga
án dómsúrskurðar af alþjóðaherliðinu í
Írak. 600 til viðbótar eru í Afganistan.
Ríki með ósanngjörn réttarhöld.
Ríki sem hafa lög
þar sem konum er
sérstaklega mismunað.
Ríki sem hafa lög
þar sem flóttafólki er
sérstaklega mismunað.
Ríki sem hafa lög
þar sem minnihluta-
hópum er mismunað.
MANNRÉTTINDABROT Í HEIMINUM
Mannréttindi
fótum troðin
Amnesty International skorar á leiðtoga að biðjast afsökunar
og snúa blaðinu við Pyntingar viðgangast í 81 ríki heims
➤ Ársskýrsla Amnesty byggir áupplýsingum frá 150 ríkjum.
➤ Tölur Amnesty sýna að um800 einstaklingum hefur ver-
ið haldið í Guantanamo-
búðunum frá ársbyrjun 2002.
➤ Um 40 verkalýðsfrömuðirvoru myrtir í Kólumbíu í fyrra
og 22 fyrstu fjóra mánuði
þessa árs.
SKÝRSLA AMNESTY
Dómstóll í Frakklandi dæmdi í
gær hinn 66 ára gamla Michel Fo-
urniret í lífstíðarfangelsi fyrir að
myrða sjö ungar stúlkur og kon-
ur. Fourniret viðurkenndi að hafa
rænt, nauðgað og myrt stúlk-
urnar sjö á árunum 1987 til 2001.
Dómsmálið er eitt umfangsmesta
dómsmálið gegn raðmorðingja í
Frakklandi um árabil. Flest fórn-
arlömbin voru myrt í Ardennes-
héraði í Frakklandi og í Belgíu.
Eiginkona Fournirets, Monique
Olivier, var einnig dæmd í lífstíð-
arfangelsi fyrir aðild sína að
morðunum, en hún á að hafa
lokkað stúlkurnar, sem voru á
aldrinum tólf til 22 ára, upp í bíl
Fournirets. aí
Raðmorðingi
fær lífstíðardóm
Ehud Barak, varnarmálaráðherra
Ísraels, hefur krafist afsagnar for-
sætisráðherrans Ehuds Olmerts eða
að hann víki tímabundið úr starfi
vegna alvarlegra ásakana um spill-
ingu.
Barak sagðist í gær ætla að slíta
stjórnarsamstarfi Verkamanna-
flokksins og Kadima-flokks Olmerts
og vinna að því að boðað verði til
kosninga, ákveði Olmert að víkja
ekki til hliðar. „Forsætisráðherrann
verður að hverfa frá daglegri stjórn
ríkisstjórnarinnar.“
Olmert hefur verið sakaður um
að hafa þegið allt að 37 milljónir
króna í mútur eða ólöglega styrki á
meðan hann gegndi embætti borg-
arstjóra Jerúsalem.
Olmert neitar sjálfur sök í málinu
og vill meina að umræddar
greiðslur hafi verið fullkomlega lög-
legar. Hann hefur áður látið hafa
eftir sér að hann muni ekki segja af
sér nema hann verði ákærður.
Bandaríski kaupsýslumaðurinn
Morris Talansky bar vitni á þriðju-
daginn þar sem hann sagðist hafa
afhent Olmert 150.000 Bandaríkja-
dali til kosningabarátta hans, á
fimmtán ára tímabili. Talansky
sagðist oft hafa afhent Olmert pen-
inga í umslagi, en ekki vitað hvernig
þeim hafi verið ráðstafað. „Ég veit
bara að hann dáði dýra vindla,
penna og úr.“ atlii@24stundir.is
Í hremmingum
Olmert er sakaður
um mútuþægni.
Leiðtogi Ísraela vændur um spillingu
Barak fer fram á
afsögn Olmerts
Samkomulag hefur náðst um
að Munch-safnið og Stener-
sen-safnið flytjist í nýtt hús-
næði nærri Bjørvika-höfninni,
skammt frá aðallestarstöð-
inni. Byggingin verður við
hliðina á Óperuhúsinu, en
Deichmanske-bókasafnið
mun jafnframt flytjast í nýtt
húsnæði nærri nýja Munch-
safninu.
„Þetta verður menningarþorp
með besta bókasafn í heimi
við hliðina á bestu óperu í
heimi og með hið glæsilega
Munch-safn í næsta ná-
grenni,“ segir Erling Lae, for-
maður borgarráðs. Gert er ráð
fyrir að Munch-safnið verði
opnað á nýjum stað 2010 eða
2011. aí
Stokkað upp í Ósló
Munch-safnið
flutt til Bjørvika