24 stundir - 29.05.2008, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2008 24stundir
„Kreppan kom í póstkassann í
formi greiðsluseðils. Bílalán tekið
í ágúst 2005. Ég er búin að borga
samviskusamlega einhvern
20.000 kall á mánuði sirka. Lánið
hefur lækkað um 104.000! Það
þýðir að u.þ.b. hálf milljón hefur
farið út um gluggann. Ég held ég
fari bara að grenja.“
Hafrún Kristjánsdóttir
habbakriss.eyjan.is
„Þuríður Backman var með sama
upphaf á ræðu sinni og Guðni
Ágústsson. Nákvæmlega sama er-
indi kvæðis Einars Ben. Ef hún
hefði verið að hlusta hefði hún
líklega getað komist hjá þessum
vandræðagangi, eða kannski er
þetta bara merki um samstillta
stjórnarandstöðu …“
Helga Vala Helgadóttir
eyjan.is/helgavala
Fyrr í vikunni keypti ég mér
harðfiskspoka. Í morgun sá ég
ekki harðfiskspokann og fór að-
eins að svipast um. Þegar út var
komið blasti harðfiskspakkinn
við á stéttinni og fiskurinn tættur
út um alla götu. Kettirnir í hverf-
inu eru sem sagt farnir að verða
kræfari en fyrr …“
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
BLOGGARINN
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
„Þetta er alveg dæmigert,“ segir
Orri Páll Dýrason, trommari Sigur
Rósar. „Við bjuggumst alveg við
einhverju svona. Það virðist vera
allt í lagi að sýna fáklæddar konur
að glenna sig, eins lengi og það er
einhver pjatla fyrir píkunni á þeim,
og að maður tali ekki um það of-
beldi sem er leyft að sýna. Þarna er
bara fallegt fólk að leika sér í sak-
leysi sínu, ekkert gróft.“
Eins og 24stundir greindi frá í
gær var myndband Sigur Rósar,
við nýja lagið Gobbledigook, sett á
netið í fyrradag á heimasíðu þeirra
og YouTube. Myndbandið er gert
af þeim Sigga Kjartans og Stefáni
Árna (kalla sig Árni&Kinski) eftir
ljósmyndum Ryans McGinleys sem
er þekktur fyrir listrænar nekt-
armyndir í saklausari kantinum.
Í myndbandinu má sjá hóp af
nöktu ungu fólki í leikjum í skógi, í
vatni og á strönd. Engar tilraunir
eru gerðar til þess að hylja kynfæri
og stangast það á við siðferð-
isreglur YouTube sem bannar nekt
með öllu. Sömu reglur gilda um
spilun myndbanda í sjónvarpi í
Bandaríkjunum.
Ekki í dagspilun á Skífan TV
Eina tónlistarsjónvarpsstöð
landsins, Skífan TV, treystir sér svo
ekki heldur til þess að sýna mynd-
bandið í dagspilun.
„Ég hef alveg séð grófari mynd-
bönd en þetta og það ætti ekki að
stuða neinn. Ég skil það samt vel
að fólk myndi ekki vilja bjóða
börnunum sínum að horfa upp á
þetta,“ segir Heiðar Austmann
fjölmiðlamaður sem er ábyrgur
fyrir því hvað fær spilun á stöðinni
og hvað ekki. „Þetta verður því
ekki sýnt fyrr en eftir klukkan níu á
kvöldin. Nekt er auðvitað það eðli-
legasta í heimi, en maður verður
einhvers staðar að draga mörkin.
Þannig að þeir sem hafa áhuga á
því að sjá þetta verða bara að bíða
fram til klukkan níu.“
Heiðar segir að Skífan TV sé í
gangi á mörgum almennings-
stöðum, svo sem í heilsuræktinni
og verslunarmiðstöðvum, og því sé
ekki við hæfi að bjóða upp á nátt-
úrubörn Sigur Rósar. „Þetta er ekki
flott myndband til þess að vera að
horfa á þegar þú ert að kaupa skó
eða borða matinn þinn á ein-
hverjum veitingastað.“
Nektarmyndband Sigur Rósar: Of gróft fyrir YouTube og Skífan TV
Typpi, brjóst og
píkur bönnuð
Vefsíðan YouTube, er tón-
listarmenn í dag stóla á
sem markaðstæki, hefur
lokað fyrir nýtt mynd-
band Sigur Rósar vegna
nektar. Skífan TV leyfir
einungis kvöldspilun.
Heiðar Austmann Ekki fyrir börnin.
Gobbledigook Nátt-
úrubörnin bönnuð.
Rappglennur leyfðar.
HEYRST HEFUR …
Garðar Thór Cortes á miklum vinsældum að fagna
í Taívan. Frumraun hans kom þar út fyrir mánuði
og hefur nú náð toppsæti sölulistans þar í landi. Þá
skiptir engu hvort um er að ræða sölulista yfir
poppplötur eða klassískar, Cortes trónar á toppn-
um. Nýja platan hans, When You Say You Love Me,
kemur svo út 23. júní, sama dag og Sigur Rós gefur
út nýja skífu sína. bös
Barði Jóhannsson er þessa dagana staddur í Frakk-
landi og Belgíu að kynna nýju Bang Gang-plötuna
sem kemur einmitt út á morgun hér á landi, en um
miðjan næsta mánuð í Evrópu. Þar er hann er að-
allega í útvarpsviðtölum að spjalla um plötuna, sem
heitir Ghosts from the Past, og fá því hlustendur að
njóta einstakrar kímni Barða sem oftar en ekki
reynist erfiður viðmælandi. bös
Forsala er hafin á alþjóðlegu listahátíðina á Ak-
ureyri, eða AIM, og er dagskráin glæsileg. Þar koma
m.a. fram hollenska sveitin Hoodangers og tromp-
etsnillingurinn Sebastian Studnitzky. Af íslenskum
atriðum má nefna Mannakorn, Mugison, Retro
Stefson, Hvanndalsbræður, Jón Ólafsson og blús-
drottninguna Hrund Ósk Árnadóttur. Akureyri
mun því iða af tónlist dagana 12.-16. júní. bös
„Ég sendi öllum Hafnfirðingum
bréf sem eiga afmæli á sama degi
og ég. Við erum 85 talsins,“ segir
Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir sem
verður 48 ára á sunnudag, eða 1.
júní. Sama dag og Hafnarfjörður
fagnar 100 ára afmæli sínu.
„Ég er búin að bjóða þeim til
veislu á nýgerðu torgi hérna sem ég
er búin að nefna 1. júní torgið,
okkur til heiðurs. Ég vona að það
verði aldrei kallað neitt annað en
það.“ Torgið sem Eiríksína talar
um stendur við Byggðasafn Hafn-
arfjarðar og hún sér það út um
stofugluggann sinn.
Muffins handa gestum
Yngsta afmælisbarn Hafn-
arfjarðar, á sunnudag, verður eins
árs en það elsta 86 ára. Í bréfinu
biður Eiríksína afmælisbörnin um
aðstoð til að gera daginn þeirra
sem eftirminnilegastan.
„Afmælisdagurinn er eini dag-
urinn sem maður fær að vera svo-
lítið sjálfhverfur. Bæjarstjórinn
hefði átt að bjóða okkur í afmæli,
þar sem hann er nú bakarameistari
að mennt. En þar sem það varð
ekki ákvað ég að fara yfirum í sjálf-
hverfunni og auglýsa það að við
værum 85 sem ættum afmæli, og
bauð þeim. Í bréfinu mæli ég með
því að fólk taki með sér vini og
vandamenn þannig að það má
segja að ég sé að bjóða öllum bæn-
um. Ég ætla bjóða upp á muffins
og svo afmælisköku til eignar. Svo
verður kaffi á könnunni.“
Eiríksína vonast svo til að hægt
verði að raða afmælisbörnunum
upp í hópmyndatöku á torginu.
biggi@24stundir.is
Eiríksína fagnar afmæli sínu á sérstakan hátt
Býður öllum Hafn-
firðingum í veislu
Eiríksína Vonast til að nýja torgið verði
kallað 1. júní torgið.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
7 2 5 1 9 4 3 8 6
8 1 3 6 7 5 9 2 4
4 6 9 8 2 3 5 1 7
1 7 6 4 3 8 2 5 9
9 8 2 5 6 7 4 3 1
3 5 4 9 1 2 6 7 8
2 3 8 7 4 9 1 6 5
5 9 1 2 8 6 7 4 3
6 4 7 3 5 1 8 9 2
Er dóttir þín enn í sama herberginu?
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Nei nei, það er enginn hræddur
við nokkra „Rolling Stones“ …
Lýður, þurfti ekki að kalla út Vegagerðina?
Lýður Árnason læknir er meðlimur í hljómsveitinni Grjót-
hrun í Hólshreppi sem hélt tónleika á Óshlíðinni í gær,
veginum milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar, sem er þekkt
fyrir grjóthrun og snjóflóð.
Hugmyndarík
stúdentsgjöf
HUGMYNDABÓKIN
eflir ímyndunaraflið og
er kjörin fyrir þá sem
vilja öðlast nýtt sjónar-
horn og taka lífið með
trompi!
Ímyndunarafl
er mikilvægara
en þekking.
ALBERT EINSTEIN