24 stundir - 05.07.2008, Side 42
Þegar Telma Tómasson er
ekki að lesa fréttir á Stöð 2
veit hún ekkert betra en að
bregða sér á hestbak og
anda að sér fersku fjalla-
lofti. Eða storma um ís-
lenskar sveitir í útilegugalla
og baka lummur ofan í vin-
konurnar.
Hvernig tilfinning er ástin?
Ofboð.
Erfiðasta lífsreynslan hingað til?
Þegar besta vinkona mín kvaddi
þennan heim, langt um aldur fram.
Hefurðu einhvern tíma lent í lífs-
hættu?
Neibbs.
Hvaða hluti í eigu þinni met-
urðu mest?
Tölvan er frekar ómissandi.
Hverjir eru styrkleikar þín-
ir?
Ákveðin og þokkalega rösk.
Hvaða galla hefurðu?
Ofurnákvæm.
Ef þú byggir yfir ofur-
mannlegum hæfileik-
um, hverjir væru þeir?
Ég gæti talað við hest-
ana mína og séð í gegnum
holt og hæðir.
Uppáhaldsborg?
Amsterdam. Engin spurn-
ing.
Fallegasti staður á Íslandi?
Mýrarflákinn minn fyrir
austan.
Hvað gerirðu til að láta
þér líða vel?
Fer út og anda að mér
fersku íslensku fjalla-
lofti. Góðir reiðtúrar
eru líka mergjaðir.
Hefurðu ein-
hvern tíma bjarg-
að lífi einhvers?
Ekki svo ég viti.
Skrýtnasta
starfið?
Starfsstúlka hjá
sláturfélagi. Ég
plokkaði fituköggla
úr vömbum dagana
langa. Frekar vond vinna.
Hvað myndi ævisagan
þín heita?
Brokkað upp brekkur.
Hver myndi leika þig
í kvikmynd byggðri á
ævi þinni?
Natasha Kinski.
Mestu vonbrigði og stærsti sigur Telmu Tómasson
Brokkað upp
brekkur
Eftir Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur
heiddis@24stundir.is
Telma er jafnframt upplýsingafulltrúi
Landsmóts hestamanna sem nú
stendur yfir á Gaddstaðaflötum á
Hellu. Veðurspáin fyrir helgina er
óvenju góð og því má búast við því að
landsmenn flykkist á staðinn til að
dást að fögrum gæðingum í brakandi
sólskini.
Menntun?
Þokkalega menntuð í skóla lífsins en
er líka með eitthvert háskólanám í far-
teskinu.
Maki/börn?
Maki er Karl Óskarsson og börnin
eru tvö, Tanja, 22 ára, og Mikael, tólf
ára.
Hvert ætlarðu í sumarfríinu?
Í vinnu, úr vinnu. Fer líka í skottúr til
Skotlands og bregð mér á hestbak þegar
færi gefst.
Hver er þín fyrsta minning?
Mín fyrsta minning tengist gráum
smáhesti í Hollandi. Hann hafði afleitt
geðslag, blessaður.
Hvað langaði þig til að verða þegar
þú varst lítil?
Veðreiðaknapi á Ascott.
Mesta skammarstrikið fyrr og síð-
ar?
Það get ég bara ómögulega mun-
að …
Hvaða lifandi manneskju líturðu
upp til og hvers vegna?
Allra sem eru trúir og samkvæmir
sjálfum sér.
Stærsti sigurinn?
Að komast til vits og ára.
Mestu vonbrigðin?
Að hafa aldrei keppt á Landsmóti.
42 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 24stundir
„Ég gæti haldið
heilu ræðurnar
um Telmu,“ segir
Kristín Helga
Gunnarsdóttir,
vinkona Telmu.
„Telma er ofboðs-
lega góður vinur
vina sinna, trygg-
lynd og harðdugleg. Hún er ein af
þessum manneskjum sem ég
myndi velja með mér á eyðieyju.
Hún er líka mjúk og hlý. Við er-
um félagar í leynifélagi og systra-
lagi sex kvenna, Mósunum, en í
því eru, auk okkar, Helga Guðrún
Johnson, Hulda Gunnarsdóttir,
Katrín Lovísa Ingvadóttir og
Anna Katrín Guðmundsdóttir.
Myndi pluma
sig á eyðieyju
„Það er leitun að
glæsilegri konu
en Telmu,“ segir
Helga Guðrún
Johnson, vinkona
hennar. „Hún er
ævinlega mjög vel
klædd, ber sig
eins og hefð-
ardama og getur slegið um sig
með heilu einræðunum á
hollensku. En þegar hún er ekki
röltandi um götur stórborganna
á háum hælum þá stormar hún
um íslenskar sveitir í útilegubún-
ingi. Undir glæstu yfirborðinu
leynist svo risastórt hjarta og göf-
ug sál.“
Heldur einræður
á hollensku
„Telma er ynd-
isleg manneskja.
Frábær og
skemmtilegur fé-
lagi sem hugsar
vel um sína nán-
ustu,“ segir
Hulda Gunn-
arsdóttir, vin-
kona Telmu. „Hún er kröfuhörð,
bæði á sjálfa sig og aðra. Hún er
bara hrein og bein og kemur til
dyranna eins og hún er klædd.
Svo er hún mikil hestamanneskja.
Hún er líka ofboðslega góður
kokkur og mikil lummugerð-
arkona.“
Mikil lummu-
gerðarkona
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Ég plokkaði fituköggla úr
vömbum dagana langa.
Frekar vond vinna.
yfirheyrslan
Sumarblóm í miklu úrvali
Trjágróður af öllum gerðum
Ráðgjöf og tilboðagerð
F
A
B
R
IK
A
N