24 stundir - 05.07.2008, Page 46

24 stundir - 05.07.2008, Page 46
46 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 24stundir Sólveig Arnarsdóttir leikkona bjó lengi í Berlín og þar kviknaði áhugi hennar á umhverf- ismálum fyrir alvöru. „Þjóðverjar eru miklu meðvitaðri en Íslendingar um flokkun sorps og almenna umhverfisvernd. Þar þykir sjálfsagt að flokka rusl og við hvert einasta hús í Berlín eru yfirleitt fimm mismunandi ruslatunnur,“ bendir hún á. Sólveig er mikill náttúruvernd- arsinni og segist hafa lært að meta íslenska náttúru með því að búa erlendis. „Svo flutti ég heim og þá var náttúruverndarumræðan hér mikil vegna virkjanaáforma. Það lá dálítið beint við að ég reyndi að beita mér eitthvað í þeim málum.“ Sjálf segist Sólveig reyna að leggja sitt af mörkum, þótt hún sé kannski enginn fyrirmyndarborgari. „Ég keyrði bílinn okkar í klessu fyrir viku og við hjónin höfum ákveðið að vera bíllaus í vetur, enda spörum við líklega 50.000 kr. á mánuði með því móti. Við búum í Þingholtunum og reynum eftir fremsta megni að yf- irgefa þau aldrei. Síðan eiga allir á heimilinu hjól. Við erum að flytja í pínulítið nýtt hús og þar er garður og molta, þannig að ég ætla að koma öllum lífrænum úrgangi í hana. Ég sortera líka dósir og blöð en held að það geri eiginlega allir. Þetta er allt í áttina! Það mætti kannski vera með fleiri endurvinnslutunnur inni í hverfunum. Það er ákveðinn tvískinnungur fólg- inn í því að safna rusli – og keyra svo með það í Sorpu. Og þá er kannski lokað. Því einfaldari sem hlutirnir eru gerðir fyrir okkur þeim mun meiri líkur eru á að við tökum þátt.“ Sólveig Arnarsdóttir Leikkona. Þjóðverjar meðvitaðri en Íslendingar „Ég er alls ekki nógu græn og væn. Þó er reyndar sáluhjálparatriði fyrir mig að henda aldrei rusli nema í þar til gerð ílát. Ef ekkert slíkt er innan seilingar geymi ég ruslið þar til ég finn öskutunnu. Þetta er mér mikið hjart- ans mál og ég verð sjóðbullandi reið ef ég sé fólk nota götur og torg sem ruslafötur. Hvað þá guðsgræna náttúruna. Ég reyni líka að hafa í huga að íslenska vatn- ið er ómetanleg auðlind sem okkur ber að varðveita. Það er langt síðan ég hætti að láta vatn renna úr krananum á meðan ég tann- bursta mig. Ég bleyti burstann bara í upphafi og þríf hann í lokin – og spara þannig dýr- mæta dropa. Einnig spara ég vatn með því að eiga alltaf stóra könnu með kranavatni í ísskápnum. Þá þarf ég ekki að láta renna lengi til að fá kaldan svaladrykk. Og ekki hlaðast tómar gosflöskur upp í bílskúrnum. Áður henti ég gömlum dagblöðum í skottið á bílnum og þegar það var orðið smekkfullt leitaði ég uppi endurvinnslugám. En síðast- liðinn vetur pantaði ég bláa endur- vinnslutunnu og nú fyllist bíllinn ekki leng- ur af blöðum. Bílinn nota ég annars fremur lítið. Ég vinn heima hjá mér við skriftir og get því trítlað á inniskónum í vinnuna.“ Jónína Leósdóttir Rithöfundur. Grænar játningar Umhverfismál eru Óskari Jónassyni leik- stjóra mjög hugleikin. „Þetta ótrúlega magn af umbúðum fer mjög í taugarnar á mér. Það eru þrefaldar umbúðir utan um nánast allt. Við erum með endurvinnslutunnu, flokkum í hana og reynum þannig að sýna lit. En ég held að vandamálið sé rótgrónara. Allt þetta plast, pappír og drasl utan um vörurnar sem skiptir engu máli en skapar gríðarlega meng- un, bæði í framleiðslu og við förgun. Það þarf að endurhugsa hvernig við fáum vöruna í hendur. Hvort allt þurfi að vera svona mik- ið plastað og pakkað. Allar þessar litlu ein- ingar skapa svo mikið rusl. Hugsaðu þér t.d. hlutföllin á milli innihalds og umbúða í ein- um LGG-brúsa! Manni er ekki boðið upp á annað í verslunum,“ segir Óskar. Hann tekur hjólið yfirleitt fram yfir bílinn, sem er auðvitað afskaplega umhverfisvænt. „Mér leiðist að vera í bíl, verð bara bílveikur og fæ hausverk. Ég reyni því að hjóla allt sem ég get. Við eigum þrjú börn og þurfum líka að nota bíl en við eigum aftanívagn fyrir börnin sem við festum aftan á hjólin. Svo eru hjólreiðar svo góð líkamsrækt!“ Óskar Jónasson Leikstjóri. Þrefaldar umbúðir utan um allt Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverf- isráðherra býr í fjölbýlishúsi í Garðabæ, þar sem aðeins bjóðast svartar tunnur. „Við höf- um rætt það nágrannarnir að koma okkur upp sameiginlegu kerfi sem myndi gera lífið þægilegt fyrir alla. En þangað til gerir hver þetta fyrir sig. Ég flokka gler, plast og dósir, fer með blöð og pappafernur í Sorpu og þar fram eftir götunum. Þetta sem flestir eru að reyna að gera. Síðan finnst mér skipta máli að nota hreinsiefni sem eru framleidd með tilliti til umhverfisins. Það er einfalt mál að velja efni sem eru umhverfismerkt, t.d. með Svaninum. Ég reyni að vera ábyrgur neyt- andi og sniðganga vörur sem ég veit ekki hvaðan koma. Við þurfum að gera þær kröf- ur til framleiðenda að geta gengið úr skugga um upprunann, að varningurinn sé fram- leiddur við ákjósanlegar aðstæður og barna- þrælkun komi hvergi við sögu,“ segir Þór- unn. Hún segist ekki alveg nógu dugleg að skilja ráðherrabílinn eftir heima en það er svokallaður tvinnbíll sem gengur fyrir raf- magni og olíu og eyðir því litlu. „Ég hef alltaf verið nokkuð dugleg að ganga styttri vega- lengdir en ég viðurkenni að ég þarf að taka mig á í hjólaferðunum.“ Þórunn Sveinbjarn- ardóttir Umhverfisráðherra. Þarf að taka mig á í hjólreiðunum „Heima hjá mér er það eiginmaðurinn sem hefur á okkur aga og sér til þess að í grænu tunnuna fari allur pappír sem til fellur og fernur undan mjólk og safa,“ segir Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði. „Dósir og flöskur höfum við flokkað í mörg ár og á meðan að unglingar voru á heimilinu kom sér vel fyrir þá að fá yfirráðaréttinn yfir þeim hluta úrgangsins og koma í verð. Við förum líka með grasið af blettinum okkar upp í heiði eftir hvern slátt og leggjum þannig okkar af mörkum við að græða upp heiðina fyrir ofan bæinn. Ég hjóla stundum í vinn- una en starfsins vegna þarf ég að vera mikið á bíl. Það er reyndar gagnlegt fyrir mig sem bæjarstjóra að hjóla um bæinn. Umhverf- issjónarmið ráða þar ekki beint ferðinni heldur fæst með því annað og betra sjón- arhorn en út um bílrúðuna. Í vetur hafa börnin í Garðinum haft áhrif á mig og aðra bæjarbúa varðandi umhverfismálin því bæði leikskólinn og grunnskólinn náðu þeim ár- angri að draga Grænfánann að húni. Fán- arnir blakta hér í fersku vindunum í Garð- inum og minna okkur á umhverfismálin og hvetja bæjarbúa til góðra verka á því sviði.“ Oddný Harðardóttir Bæjarstjóri í Garði. Bæjarstjóri á hjóli Þegar hjartað verður grænt Ertu fyrirmyndarborgari þegar kemur að umhverfismálum? Flokkarðu áldósir og mjólkurfernur samviskusamlega og skilar þeim á næstu endurvinnslustöð? Endurnýtirðu gjafapappír og hjólarðu í vinnuna? Eða ertu alltaf á leiðinni að fara að gera eitt- hvað í þessu? Það er bara svo lítill tími alltaf. Svo takmarkað pláss í íbúðinni. Svo vont veður á þessu landi. Svo þægilegt að henda bara öllu draslinu út í tunnu, keyra þessa 200 metra út í búð og kaupa eitthvað tilbúið í frauðbakka. Hér lýsa fimm fyrirmynd- arborgarar því hvernig þeir leggja sitt af mörkum til að stuðla að grænni og vænni veröld. LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Allar þessar litlu einingar skapa svo mikið rusl. Hugsaðu þér t.d. hlutföllin milli innihalds og umbúða í einum LGG-brúsa! spjallið

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.