24 stundir - 05.07.2008, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 24stundir
Tilboðsdagar
30% afsláttur
af völdum
sokkabuxum
og samfellum.
Peysum
og skyrtum.
„Sá sem biður er biðill.
Sá sem spyr er spyrill.
Hver er þá riðill?
Og hvers kona keppni er riðla-
keppni þar sem þessar íslensku
stúlkur voru lagðar?
Maður spyr sig.“
Jakob Smári Magnússon
jakobsmagg.blog.is
„Blogg eða blog. Nú blogga ég á
vef sem heitir blog.is, því skrifa
ég nú oftast blog hérna inn á með
einu g. Púkinn hefur hins vegar
ekki verið sammála mér.
Ég brosi alltaf út í annað þegar
hann leiðréttir mig. Algjör snilld
fyrir svona menn eins og mig.
„ikkar er ánæjan“.“
Tómas Hafliðason
blogg.gattin.net
„Ég hef sjaldan séð eins leiðinlega
og móðgandi sjónvarpsdagskrá
og er mótuð fyrir stelpur á Skjá
einum. Allir þessir þættir eru
raunveruleikaþættir fyrir Gróu á
næsta leiti. Ömurlega leiðinlegir
og heiladauðir. Stelpur/konur
eiga ekki skilið slíka vanvirð-
ingu.“
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
nanna.blog.is
BLOGGARINN
Gylta er komin aftur á göturnar.
„Við erum búnir að skipta um vél í
henni og búnir að mála hana alla
að utan. Þetta er langfallegasta
gylta landsins.“
Enn að jafna sig
Þó svo að Gyltan sé búin að ná
sér af sínum sárum er því miður
ekki sömu sögu að segja af Böðvari
en hann er enn að jafna sig eftir
fólskulega líkamsárás um páskana.
Böðvar og félagar hans í Dalton
voru gestir á balli á Höfn í Horna-
firði á föstudaginn langa þegar
ráðist var aftan að honum.
„Við ætluðum bara að fara að
hypja okkur aftur í Gyltuna og þá
kemur þessi maður askvaðandi og
flengir mig í skallann með flösku.“
Böðvar segir að hann hafi enn
ekki náð sér eftir árásina. „Það
skarst í einhverjar taugar sem veld-
ur því að ég er dofinn eitthvað nið-
ur í hendi og brjóstkassa. Öll öxlin
er alveg dofin með tilheyrandi
óþægindum. Þetta veldur líka jafn-
vægisleysi.“
Böðvar bítur þó á jaxlinn og
heldur áfram að spila með Dalton.
Í gær var sveitin á Akureyri og í
kvöld í Hressingarskálanum.
Hljómsveitarrúta Dalton er ekki haldin sjálfseyðingarhvöt
Gyltan snýr aftur
á göturnar
Gyltan, tónleikarúta
hljómsveitarinnar Dal-
ton, hefur snúið aftur á
þjóðvegi landsins. Rútan
er jafnóheppin og við,
segir Böðvar Rafn, söngv-
ari Dalton.
Enn sár Öxl Böðvars er alveg dofin.
Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Stoltir af Gyltunni
Drengirnir í Dalton
hugsa vel um sína glað-
væru en óheppnu rútu.
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Hljómsveitin Dalton er líklega ein
óheppnasta hljómsveit Íslandssög-
unnar. Hljómsveitarmeðlimir hafa
verið rændir og orðið fyrir fólsku-
legum líkamsárásum en rúta sveit-
arinnar, hin svonefnda Gylta, er
ekki síður óheppin.
„Ég held bara að hún sé álíka
óheppin og við. Þetta er ekki vilj-
andi gert og ekki sjálfseyðing-
arhvöt,“ segir Böðvar Rafn Reyn-
isson, söngvari Dalton, en hann og
félagar hans hafa ekki látið skakka-
föllin slá sig út af laginu og nýjasta
lag sveitarinnar, Stjörnuhrap, er að
gera góða hluti á íslensku útvarps-
stöðvunum.
28. mars kviknaði í Gyltunni þar
sem hún stóð við Háskólann í
Reykjavík og skemmdist hún þó
nokkuð að innan ásamt því að lakk
fór af hluta þaksins. Daltonbræður
voru ekki fyrr búnir að gera að sár-
um Gyltunnar þegar vél hennar gaf
sig á leiðinni til Egilsstaða fyrir um
6 vikum síðan. „Síðan þá er hún
búin að vera vélarvana. Líkið af
henni var geymt í frystihúsi í
Grindavík.“
Nú geta Daltonbræður tekið
gleði sína á ný því þeirra dýrmæta
HEYRST HEFUR …
Egill Rafnsson úr Sign mun fylla í skarðið fyrir
Arnar Gíslason, trommuleikara Mugison, á næstu
vikum. Arnar á von á barni með kærustu sinni Láru
Rúnarsdóttur tónlistarkonu í lok ágúst, og ferðast
Egill nú með Mugison og er reiðubúinn til þess að
hlaupa í skarðið ef náttúran skyldi kalla fyrr en
áætlað var. Egill mun svo taka við sem trommari
Mugison á meðan Arnar er í barneignarfríi. bös
Stór hluti landsmanna hefur nú smitast af hesta-
bakteríunni og flykkjast landsmenn því til Hellu þar
sem landsmót hestamanna fer fram. Reynir
Traustason og félagar hans á DV hafa líklega smit-
ast af bakteríunni líka því í helgarblaði DV er að
finna áhugaverða úttekt yfir helstu skúrka og hetjur
villta vestursins þar sem hestamennskan var allsráð-
andi. Þetta kallast að hugsa út fyrir boxið. vij
Í dag fara fram söngprufur Í Tunglinu fyrir nýja
söngkonu í Merzedes Club. Þar sem um mikla
ferðahelgi er að ræða kemur til greina að halda aðra
slíka í miðri næstu viku, en heyrst hefur að Ólöf
Jara Valgeirsdóttir, Verslóstjarnan og dóttir Guð-
rúnar Gunnarsdóttur, ætli að spreyta sig. Verður
það að teljast kaldhæðni örlaganna, því andað hefur
köldu milli Guðrúnar og Merzedes Club...tsk
„Nei nei, þú varst ekkert að
vekja mig. Ég svaf út í morgun,“
sagði Logi Bergmann Eiðsson
rámri röddu, skömmu eftir hádegi
í gær, en hann fór 18 holur á 18
mismunandi völlum á 71 höggi á
innan við sólarhring, til styrktar
MND-félaginu.
Heppnaðist mjög vel
„Ég var hvað þreyttastur um há-
degisbilið á fimmtudaginn, en
þreytan vék fyrir spennunni og
adrenalíninu sem fylgdi þessu
ferðalagi, sérstaklega þegar við fór-
um í þyrluna, sem var mjög gam-
an,“ sagði Logi þreytulegur.
Hann lék með Ragnhildi Sigurð-
ardóttur, margföldum Íslands-
meistara, gegn Eyfa og Þorsteini
Hallgrímssyni, einnig margföldum
Íslandsmeistara.
Logi tapaði holukeppninni og
einnig hárinu, sem var hluti af veð-
máli. „Þetta er ekta sveitaklipping,
sem ég hef ekki skartað í um 30 ár
held ég.“
Loga þótti par þrjú hola á Þing-
eyrarvelli skemmtilegust, en Berg-
víkin var erfiðust, enda hífandi
rok. „Erfiðast var samt að halda
dampi, enda leið langur tími á
milli hola. En mestar áhyggjur hef
ég þó af Eyfa, sem fékk einungis
sex tíma svefn áður en hann fór á
golfmót í Vestmannaeyjum!“
Söfnunin heldur áfram
Samtals hafa safnast um fjórar
milljónir fyrir MND-félagið og
enn er hægt að leggja sitt af mörk-
um og hringja í síma 908 1001
(1000 kr), 908 1003 (3000 kr) og
908 1005 (5000 kr.)
traustis@24stundir.is
Safnaði fjórum milljónum fyrir MND-félagið
Náði takmarkinu
en tapaði hárinu
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
6 2 3 9 7 5 8 1 4
7 9 1 8 3 4 6 2 5
4 8 5 1 2 6 7 3 9
5 3 7 2 4 1 9 6 8
8 6 2 7 9 3 5 4 1
9 1 4 5 6 8 2 7 3
1 4 9 6 5 2 3 8 7
2 5 8 3 1 7 4 9 6
3 7 6 4 8 9 1 5 2
a
Nei, en þarna gefst fólki tæki-
færi til að sjá tímana tvenna!
Fornbíladagur á Árbæjarsafni. Tímaskekkja?
Guðbrandur Benediktsson er deildarstjóri miðlunar hjá
Minjasafni Reykjavíkur, en á sunnudaginn verður forn-
bíladagurinn haldinn í Árbæjarsafni.FÓLK
24@24stundir.is fréttir