24 stundir - 05.07.2008, Page 56

24 stundir - 05.07.2008, Page 56
24stundir ? Eitt herbragð tækifærissinnans er aðgera ferðalög ráðamanna tortryggileg.„Hvað er þetta lið alltaf að þvælast útum allt þegar það er kreppa hérheima?“ frussar fólk út úr sér í blandvið kremkex á kaffistofum. Þá hefurmálflutningurinn það yfirbragð að ætlamætti að stjórnmálamenn séu ekki í vinnunni í útlöndum heldur á bunandi fylliríi og flótta undan ástandinu heima. Frá sömu munnum sprettur svo einnig staðhæfingin að uppbygging sendiráða erlendis sé heimskulegt bruðl. Það er rétt eins og sumir haldi að utanríkisþjónusta á tímum myspace og facebook sé tilgangslaust snobb. Í stuttu máli þá bera þessar árásir á opinber ferðalög og stjórnmálaleg um- svif erlendis vott um örvæntingu og þröngsýni. Öll vitum við að mikil og tíð samskipti við hinn síbreytilega um- heim er það sem heldur okkur á floti hvort sem horft er til efnahags eða menningar. Í þeirri efnahagskreppu sem ríkti á Íslandi upp úr 1990 heyrð- ust sömu raddir og nú. „Hvað er þessi Jón Baldvin alltaf að þvælast í útlönd- um?“. Svarið er að hann undirbjó undirritun EES-samningsins sem ein- mitt leiddi okkur út úr þessari sömu lægð. Ég tek ofan fyrir þeim sem taka sér tíma frá fjölskyldum sínum til að ferðast í nafni Íslands til annarra landa. Tíma og fé varið til að efla sam- skipti við önnur lönd er vel varið. Kannski er aðdáendaklúbburinn ekki stór en ég held samt með þotuliðinu. Áfram þotuliðið YFIR STRIKIÐ Hvað hafa menn á móti ferðalögum? Bergur Ebbi Benediktsson vill að fólk ferðist. 24 LÍFIÐ Blaðamaður 24 Stunda er á Hró- arskeldu og er kolfallinn fyrir 100 kílóa trukkalessu með rödd Arethu Franklin. Beint frá sólinni á Hróarskeldu »50 Logi Bergmann fór golfhring um landið á sólarhring. Hann fann fyrir þreytu en adr- enalínið hafði betur. Þreyttastur um hádegisbilið »54 Beckham-hjónin vekja alls staðar athygli og nú hefur írskur leik- hópur ákveðið að búa til söngleik um þau. Sungið um David og Victoriu Beckham »50 ● Hundblautur „Við erum að leggja að bryggju, þetta gekk allt vel og allir eru ánægðir, en blaut- ir,“ sagði Bjart- mar S. Sigurðs- son, fjölmiðlafulltrúi tuðruhópsins Kraftur í kringum Ísland, sem siglt hefur á slöngubátum í kringum landið til söfnunar handa Krafti, stuðningsfélagi ungs fólks með krabbamein. Ferðin hófst 16. júní, en kláraðist í gær. „Þetta hefur ver- ið mjög gaman og við höfum safn- að á tíundu milljón, ég hef ekki ná- kvæma tölu ennþá.“ ● Mannréttinda- stjóri ekki -stýra „Ég verð mann- réttindastjóri. Það er það sem stend- ur í minni starfs- lýsingu. Það er engum vand- kvæðum bundið fyrir mig,“ segir Anna Krist- insdóttir sem borgarstjórinn í Reykjavík mun leggja til við borg- arráð að verði ráðin mannréttinda- stjóri borgarinnar aðspurðu um það hvort hún verði stýra eða stjóri. „Ég hef alltaf verið tals- maður almennra mannréttinda og ég vinn auðvitað eftir því auk þess sem samþykkt hefur verið mann- réttindastefna borgarinnar.“ ● Spiluðu í Frakklandi Meðlimir hljóm- sveitarinnar Agent Fresco eru ný- komnir heim frá Aix-en-Provence í Suður-Frakklandi þar sem þeir spiluðu á hinni virtu Class Eu’rock-tónlistarhátíð. „Þetta var rosalega skemmtilegt og mjög góð stemning þegar við vor- um að spila,“ segir Þórarinn Guðnason, gítarleikari hljómsveit- arinnar. „Það var fullt af fólki sem mætti á hátíðina, aðallega inn- fæddir.“ Ritstjórn Sími: 510 3700 ritstjorn@24stundir.is Auglýsingar Sími: 510 3700 auglysingar@24stundir.is Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við „PALMERA“ HORNSVEFNSÓFI Flottur brúnleitur hornsvefnsófi. Efni: acrylblanda. Kemur með hægra og vinstra horni. Auðvelt að breyta í svefnsófa fyrir tvo. Svefnsófi með innbyggðri rúmfatageymslu. 3 lausir skrautpúðar fylgja með. Stærð: 250 x 180 sm. Á MÁNUÐI U.Þ.B. 5.464,- / SKIPT Í 36 MÁNUÐI 139.900,- HORNSVEFNSÓFI 39.900,- BORÐ+2 STÓLAR+BEKKUR 39.900,- BORÐ+2 STÓLAR+BEKKUR „JIMMY“ SVEFNSÓFI Fínn svefnsófi með míkrófíber áklæði. Tilvalinn í unglingaherbergið. Fæst í dökkbrúnu og ljósbrúnu. Stærð í svefnstöðu: B:116 x L:185 x H:42 sm. 16.900,- SVEFNSÓFI 19.900,- ÁÐUR: 39.900,- „BOB” SVEFNSÓFI Fallegur svefnsófi með slitsterku míkrófíberáklæði. Litur: Grár. Stærð: B:195 x H:92 x D:38 sm. Í svefnstöðu: B:114 x L:195 sm. „CAROLINA” BORÐ + 2 STÓLAR + BEKKUR Borð og stólar úr basti. Borðið er með glerplötu og hillu. Stólarnir eru með þykkri og góðri sessu. Á MÁNUÐI U.Þ.B. 2.002,- / SKIPT Í 28 MÁNUÐI „COPACABANA” BORÐ + 2 STÓLAR + BEKKUR Borð og stólar úr basti. Borðið er með glerplötu. Stólarnir eru með þykkri og góðri sessu. Á MÁNUÐI U.Þ.B. 2.002,- / SKIPT Í 28 MÁNUÐI SPARIÐ 20.000,- „DAVE“ KOMMÓÐUR Hvítt bastsett með góðum hirslum. Með 3 skúffum: St. B:45 x H:76 x D:35 sm. Bekkur með sessu og 3 skúffum: St. B:100 x H:51 x D:35 sm. 7.990,- VERÐ AÐEINS: 4.990,- VERÐ AÐEINS: Frábær verð! 29.900,- BORÐ + 2 STÓLAR „PENGAL” BORÐ + 2 STÓLAR Borð og stólar úr basti. Borðið er með glerplötu og hillu. Á MÁNUÐI U.Þ.B. 1.540,- / SKIPT Í 28 MÁNUÐI 29.900,- BORÐ+2 STÓLAR+BEKKUR „BAHAMA” BORÐ + 2 STÓLAR + BEKKUR Borð og stólar úr basti. Borðið er með glerplötu og hillu. Stólarnir eru með þykkri og góðri sessu. Á MÁNUÐI U.Þ.B. 1.540,- / SKIPT Í 28 MÁNUÐI

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.