Eintak - 01.11.1993, Blaðsíða 10

Eintak - 01.11.1993, Blaðsíða 10
Er þörf fyrir nýtt tímarit? Milli þess sem fólk óskaði okkur aðstandendum Eintaks velfarnaðar komu aðrir til okkar og spurðu þessarar spurningar. Og fengu fá svör. Við höfðum ekki leitt hugann að því hvort sérstök þörf væri fyrir blaðið sem við ætluðum að gefa út. Fyrir okkur var það álíka fjarlægt og að spyrja rithöfund með bók í smíðum hvort nokkur þörf væri fyrir þá bók? Hvort ekki væri til nóg af bókum? Hvort væri á það bætandi? Eða mann sem gengur í félag til að stunda fótbolta hvort ekki væri nóg af knattspyrnumönnum í heimin- um? Eða mann sem kæmi til vinnu niður á höfn hvort hann héldi að farmurinn kæmist ekki á land þótt hans nyti ekki við? Við sáum ekki hvers vegna fólki var umhugað um að við gerðum ekki einhvern óþarfa. I sjálfu sér eru tímarit óþörf. Ekki bara það tímarit sem við erum farin að gefa út, heldur öll tímarit. Mann- kynið lifði lengi áður en það fékk tímarit og engar heimildir eru um að það hafi saknað þeirra. Og enginn hefur dáið vegna þess að hann vantaði tímaritið sitt. En þannig er það um margt. Og jafnvel sumt af því sem fólk á erfitt með að neita sér um. Eins og smjör, ævisögur, útivist og jafnvel kynlíf. Þegar öllu er á botninn hvolft er engin þörf á að Islendingar stundi kynlíf næstu árin. Islendingar eru nógu margir - og ef miðað er við atvinnuástandið eru þeir of margir. En þótt tímarit séu álíka óþarfi og kynlíf viljum við sem stöndum að Eintaki ekki vera án þeirra. Og þar sem við höfum unnið við að gefa þau út viljum við ekki bara lesa þau, heldur líka búa þau til. Ekki vegna þess að við höfum einhvern boðskap að flytja. Eintak er ekki tímarit fyrir félagshyggjufólk eða frjálshyggjumenn frekar en aðra, og því er ekki ætlað að styðja neinn né vera vont við annan. Það á ekki að efla neinn í trúnni og ekki frelsa neinn heldur. Ef okkur tekst það sem að er stefnt mun tímaritið höfða til þess al- menna í flestum mönnum. I því verður ekki frímerkjadálkur fyrir frí- merkjasafnarann, íþróttir handa sportfíklum né umfjöllun um viðskipti handa þeim sem ekkert annað nenna að lesa. Það er nefnilega trú okkar á Eintaki að allt fólk sé nokkuð líkt. Það getur haft séráhuga á hinu og þessu, en allir eiga sameiginlegan áhuga á fólki. Ekki vegna hnýsni eða afskiptasemi, heldur einfaldlega vegna þess að við skiljum heiminn og okkur sjálf í gegnum annað fólk. Við getum viðhaldið dómhörku og miskunnarleysi gagnvart þeim sem hafa brotið reglur samfélagsins þar til við kynnumst sögu þeirra. Hún breytir ef til vill ekki skoðunum okkar á refsingum sem beitt er við þessum brotum, en á eftir mun okkur ekki veitast eins auðvelt að for- dæma þá sem fremja þau. Við getum álitið margt af því sem annað fólk hefur fyrir stafni næsta fánýtt þar til það skýrir út fyrir okkur hvað drífur það áfram. Og við getum myndað okkur skoðanir á ákveðnum einstaklingum og haldið fast í þær, allt þar til við kynnumst lífi þeirra og viðhorfum. Þannig eru tímarit - eða ættu að minnsta kosti að vera. Tímarit eru eins og aðrir fjölmiðlar eins konar samkomustaður þar sem lesandinn hittir þá sem fjallað er um. Áður en nútíminn hitti íslendinga í hausinn lifðu þeir nokkuð sáttir hver í sinni sveit. Þeir þekktu nábúa sína eins vel og sína nánustu, en höfðu næsta lítið af fólki í öðrum landshornum af segja. Þeir fengu fréttir úr fjarlægari hlutum sveitarinnar í kirkjuferðum eða með þurfa- lingum og þá oft stórlega ýktar. Núorðið búa flestir íslendingar í þéttbýli, en hafa hins vegar næsta lítið af nábúum sínum að segja. I fjölmiðlum heyra þeir þeim mun meira af fólki úr fjarlægum byggðum. Fregnirnar af nágrönnunum eru stopulli - og líklega oftast ýktari. Þannig hefur heimurinn breyst og allir eru orðnir leiðir á að velta því fyrir sér hvort það sé til góðs eða ills. Við lifum í heimi þar sem við metum okkur sjálf ekki aðeins með hliðsjón af þeim sem við berum virðingu fyrir í nánasta umhverfi okkar, heldur veltum við fyrir okkur örlögum og sögu, viðhorfum og tilfinningunr fólks sem við rekumst kannski aldrei á. Og til þess getum við notað fjöl- miðla - eins og tímarit. En fjölmiðlar eru auðvitað eins misjafnir og fólkið. Ef við skoðum hvers kyns líf þeir endurspegla, þá mætti ætla af lestri sumra blaða að maðurinn væri eins konar korktappi sem flýtur með straúmum sem virð- ast tæpast eiga upptök sín í mann- heimum. Þetta er sérlega algengt í ís- lenskum fjölmiðlum. I skjóli fámenn- is hefur skapast hefð í íslenskri blaða- mennsku fyrir eins konar óper- sónulegri heimssýn. I slíkum frásögn- um eru menn aldrei gerendur, heldur aðeins þolendur. Ástandið er slæmt og útlitið dökkt, en þannig virðist það hafa orðið af sjálfu sér. Annars staðar er gengið út frá þeirri sígildu lífssýn að heimurinn fari versnandi; óþjóðalýður vaði uppi sem aldrei fýrr á öllum vígstöðvum og enginn ráði við neitt - síst af öllu þeir sem vinna við það. Og svo eru þeir sem vilja endurspegla lagfærða mynd af veröldinni. Samfélagið er einhvern veginn ekki alveg samboðið þeim. Ef einhver kærir sig um að leita að sjónarhorni okkar á samfélagið vonum við að sá komist að því að við teljum heiminn fullgóðan og fólkið sem í honum býr ágætlega boðlegt. Kannski er það fýrst og fremst vegna leti, en við erum fyrir löngu búin að gefast upp á því að líta niður á lífið. Það er svo miklu auðveldara að þykja gaman að því en leiðast það. Og úr því fjölmiðlum er ætlað að endurspegla lífíð og tilveruna ætlum við að reyna að birta sem flestar myndir hennar. Það getur verið óskaplega leiðinlegt að vinna bara með það sem er gott og gilt. Það er lítið gaman að lífinu ef helmingur þess er annað hvort hættulegur eða óæskilegur, bjánalegur eða púkó. Við munum því fjalla um flest sem okkur dettur í hug. Og vonumst að sjálfsögðu til að einhver hafi gaman af. Þótt til þessa blaðs sé fýrst og fremst stofnað svo við sjálf getum haft það skemmtilegt. Gunnar Smári Egilsson 10 EINTAK NÓVEMBER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.