Morgunblaðið - 21.01.2005, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BUSH SVER EIÐINN
George W. Bush sór í gær emb-
ættiseið sem forseti Bandaríkjanna
fyrir seinna kjörtímabil sitt. Í ræðu
sinni sagði forsetinn að hann myndi
legja áherslu á að hlú að frelsi og
lýðræði um allan heim enda væri
frelsið besta tryggingin fyrir friði og
öryggi. Bush sagði að Bandaríkja-
menn gerðu sér nú grein fyrir því að
þeirra eigið frelsi byggðist á því að
aðrar þjóðir nytu sömu réttinda.
ESB gegn ruslfæði
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur gefið framleiðendum
á ruslfæði árs frest til að hætta að
beina auglýsingum að börnum og er
markmiðið að reyna að berjast gegn
vaxandi tíðni offitu hjá börnum. Fari
menn ekki að þessum tilmælum
verða sett lög gegn auglýsingunum.
Enn á móti smokkum
Kaþólska kirkjan á Spáni segir
það misskilning að hún sé horfin frá
andstöðu sinni við smokka. Biskupa-
ráð kirkjunnar segir að notkun á
smokki sé „ósiðleg, kynferðisleg
hegðun“.
Vinnusvæðið skoðað
Þrír fulltrúar frá ítölskum verka-
lýðsfélögum og yfirmaður Alþjóða-
sambands byggingamanna skoðuðu í
gær Kárahnjúkavirkjun, bæði
vinnusvæði og aðbúnað starfs-
manna. Voru nokkrar athugasemdir
gerðar en ástandið var talið gott í
heildina.
Hitakostnaður lækkar
Samningar um kaup Orkuveitu
Reykjavíkur á Hitaveitu Rangæinga
eru á lokastigi. Hitaskostnaður
venjulegra heimila á Hellu og Hvols-
velli mun lækka um 20–30% á tveim-
ur árum og ljósleiðari verður lagður
um þorpin.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Daglegt líf 28/29
Fréttaskýring 8 Umræðan 30/31
Viðskipti 12 Bréf 31
Úr verinu 14 Minningar 32/38
Erlent 14/17 Dagbók 40/43
Minn staður 18 Myndasögur 40
Höfuðborgin 19 Víkverji 40
Landið 22 Staður og stund 42
Austurland 22 Leikhús 44
Akureyri 23 Bíó 46/48
Listir 24/25, 44/49 Ljósvakamiðlar 50
Forystugrein 26 Staksteinar 51
Viðhorf 28 Veður 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp-
héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Norðurlands
eystra sem dæmt hafði Akureyrarbæ
til greiðslu 3,7 milljóna kr. skaðabóta
fyrir að brjóta jafnréttislög á Guð-
rúnu Sigurðardóttur sem gegndi
starfi deildarstjóra á félagsmálaskrif-
stofu bæjarins.
Guðrún taldi starf sitt og starf
deildartæknifræðings hjá bænum
jafnverðmæt, en í starfsmati sem
fram fór á nokkrum störfum hjá bæn-
um árið 1996, þ. á m. á framangreind-
um tveimur störfum, voru störfin
metin til sama stigafjölda. Guðrún
reisti kröfu sína á því að hún ætti að
njóta sömu kjara og deildartækni-
fræðingur og taldi Hæstiréttur að
hún hefði leitt verulegar líkur að því
að störfin tvö hefðu verið svo sam-
bærileg að henni hefði verið mismun-
að í kjörum.
Hæstiréttur taldi að Akureyrar-
bær hefði ekki fært haldbær rök að
því að markaðssjónarmið hefðu átt að
leiða til svo mismunandi kjara sem
um ræddi þegar litið væri til stöðu
þessara starfa í stjórnkerfi bæjarins.
Enginn heildarlaunasamanburður
lægi fyrir í málinu á inntaki starfa og
launakjörum þeirra deildarstjóra sem
voru hliðsettir Guðrúnu á félags- og
heilsugæslusviði. Yrði ekki talið að
Akureyrarbæ hefði tekist að sanna að
hlutlægar og málefnalegar ástæður
hefðu ráðið kjaramuninum en mis-
munandi kjarasamningar gætu ekki
einir sér réttlætt mismun starfskjara
kvenna og karla í skilningi jafnrétt-
islaga. Fallast mætti á úrlausn hér-
aðsdóms varðandi málsástæður Ak-
ureyrarbæjar um fyrningu og
tómlæti Guðrúnar um kröfu sína sem
var upphaflega 4,7 milljónir kr.
Hæstiréttur klofnaði
Fimm hæstaréttardómarar
dæmdu málið og klofnaði dómurinn í
málinu. Tveir dómarar, Garðar Gísla-
son og Ólafur Börkur Þorvaldsson,
töldu að sýkna ætti Akureyrarbæ af
kröfum Guðrúnar á þeim forsendum
m.a. að störfin tvö væru ólík og unnin
við mjög ólíkar aðstæður. Þau væru
ekki hliðsett í skipuriti Akureyrar-
bæjar. Í umræddu starfsmati hefði
ekki verið lagt mat á það hvort störfin
væru sambærileg og enginn slíkur
samanburður hefði farið fram á störf-
unum í málinu. Þótti Guðrúnu því
ekki hafa tekist að sýna nægilega
fram á að störfin væru sambærileg í
skilningi jafnréttislaga.
Meirihluta dómsins skipuðu hæsta-
réttardómararnir Gunnlaugur Claes-
sen, Guðrún Erlendsdóttir og Hrafn
Bragason.
Lögmaður Guðrúnar var Sif Kon-
ráðsdóttir hrl. og lögmenn Akureyr-
arbæjar hæstaréttarlögmennirnir
Bjarni Þór Óskarsson og Hákon Stef-
ánsson.
Akureyrarbær bótaskyldur vegna brota á jafnréttislögum
Samningar réttlæta
ekki kjaramismun
ÞAÐ hefur verið bjart og fallegt veður í höfuðborginni
að undanförnu en kalt. Flestir eru vel dúðaðir þegar
þeir eru á ferð úti í frostinu eins og þessi nemi, og ekki
er verra að ylja sér á heitum drykk í kuldanum.
Á ferð í frostinu með heitan drykk
Morgunblaðið/Ómar
GEIR H. Haarde fjármálaráð-
herra sat í gær og fyrradag ráð-
herrafund Norðurlanda og tuttugu
Afríkuríkja, í svonefndu Afríku-
framtaki Norðurlandanna, í Dar
Es Salaam í Tansaníu, að því er
segir í fréttatilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu. Einkunnarorð
fundarins voru: „Viðskipti og þró-
un: Hvað er í húfi fyrir Afríku?“
Fjármálaráðherra stjórnaði pall-
borðsumræðum sérfræðinga á
fundinum. Í inngangserindi sínu
fjallaði hann um hvernig frjáls við-
skipti geti hjálpað Afríkuríkjum í
baráttunni gegn fátækt.
Þá kemur fram, að upphafið að
Afríkuframtakinu megi rekja til
þess, er viðræður á vettvangi Al-
þjóðaviðskiptastofnunarinna
(WTO) í Kankún haustið 2003
sigldu í strand,
en margir hafi
talið eina af
ástæðum þess
vera samskipta-
örðugleika milli
þróaðra ríkja og
þeirra sem fá-
tækari eru.
Markmið Afr-
íkuframtaksins
er að styrkja samskipti og samráð
milli Norðurlandanna og Afríku-
ríkja á sviði alþjóðaviðskipta og
þróunar. Meðal viðfangsefna fund-
arins voru viðskiptaumhverfi Afr-
íkuríkja og hvernig frjáls viðskipti
geti aukið hagvöxt, hlutverk
frjálsra viðskipta í alþjóðlegri bar-
áttu gegn fátækt og viðskipta-
tengd þróunaraðstoð.
Fjármálaráðherra
sótti ráðherra-
fund í Tansaníu
Geir H. Haarde
HÆSTIRÉTTUR stytti í gær fang-
elsisrefsingu fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Íslenska dansflokks-
ins sem sakfelldur var fyrir tveggja
milljóna króna fjárdrátt. Hæstirétt-
ur stytti refsingu héraðsdóms úr 9 í
8 mánuði og skilorðsbatt 5 mánuði
af henni.
Þrátt fyrir alvarleika málsins
taldi Hæstiréttur að ákærði ætti sér
þær málsbætur að hann hefði ekki
áður gerst sekur um refsiverða
háttsemi svo að kunnugt sé og hefði
játað brotin að verulegu leyti.
Í dóminum kemur einnig fram að
ríkissaksóknari hafi falið ríkislög-
reglustjóra rannsókn málsins með
bréfi 20. júlí 2001. Hafi málið ekki
borist ríkissaksóknara á ný fyrr en
með bréfi ríkislögreglustjóra 30.
október 2003. Miðað við umfang
rannsóknarinnar hafi orðið alls
óviðunandi dráttur á framkvæmd
hennar, sem hefði með engu verið
réttlættur.
Óviðunandi
dráttur á
málsmeðferð
ÞRÍR fulltrúar frá kennslanefnd rík-
islögreglustjóra komu til Phuket-
eyju við Taílandsstrendur á mánu-
dag, en starf þeirra felst í að bera
kennsl á líkamsleifar fórnarlamba
hamfaranna við Indlandshaf.
Að sögn Guðmundar Guðjóns-
sonar, yfirlögregluþjóns hjá emb-
ætti ríkislögreglustjóra, mega full-
trúarnir ekki tjá sig við fjölmiðla um
störf sín ytra en þeir starfa fyrir
þarlend stjórnvöld. Guðmundur hef-
ur verið í sambandi við hópinn. Við
komuna til Phuket á mánudag tóku
tveir fulltrúar norsku kennslanefnd-
arinnar á móti þeim en á staðnum
eru fulltrúar kennslanefnda frá
Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og
Noregi. Eftir er að rannsaka mörg
þúsund lík.
Eftir að rannsaka
fleiri þúsund lík
ÍSLENSK kona var úrskurðuð í
gæsluvarðhald eftir að hún var
handtekin á Keflavíkurflugvelli á
þriðjudag með fíkniefni. Konan var
að koma frá Kaupmannahöfn.
Hluti efnanna var innvortis en
einnig var hún með fíkniefni á sér.
Að kröfu lögreglunnar á Keflavík-
urflugvelli var konan úrskurðuð í
gæsluvarðhald sem rennur út í dag.
Ekki fengust upplýsingar um magn
eða tegund efnanna.
Með fíkniefni frá
Kaupmannahöfn
SAMNINGUR hefur verið undirrit-
aður um samstarf lögreglunnar í
Reykjavík og á Akranesi. Er sam-
starfinu ætlað að styrkja löggæslu á
Akranesi, Kjalarnesi, í Kjósarhreppi
og eftir atvikum í Mosfellsbæ.
Með samningnum er leitast við að
gera lögregluna sýnilegri á svæðinu,
stytta viðbragðstíma vegna útkalla,
auka þjónustu við borgarana og
tryggja betur öryggi þeirra og um
leið nýta betur fjármagn, mannafla og
tæki lögreglu.
Þá sinna bæði liðin umferðareftir-
liti á svæðinu án tillits til umdæmis-
marka. Gert er ráð fyrir gagnkvæmri
aðstoð vegna stærri verkefna eða ef
lögreglumenn eru uppteknir í öðru.
Lögreglan í samstarfi
Jón S. Ólason, yfirlögregluþjónn á Akranesi, Geir Jón Þórisson yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, Ólafur Þór Hauksson, lögreglustjóri á Akranesi,
og Ingimundur Einarsson, varalögreglustjóri í Reykjavík, við undirritun.