Morgunblaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Sölumaður óskast Harðduglegur og heiðarlegur sölumaður óskast á eina stærstu fasteignasölu landsins. Áhugasamir sendi umsóknir til auglýsinga- deildar Mbl. eða í box@mbl.is merktar: „Sölumaður — 16579“. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Fundir/Mannfagnaður Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík Þorrablót Hið árlega þorrablót sjálfstæðismanna í Reykjavík verður haldið í Gullhömrum, Graf- arholti á morgun, laugardaginn 22. janúar. Blótið hefst kl. 20:00, en húsið verður opnað kl 19.00 Blótstjórn verður í höndum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns og borgarfulltrúa og heiðursgestur verður Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Fjöldi skemmtiatriða, meðal annars stórsveitin South River band, fjöldasöngur, minni karla og kvenna, happdrætti o.fl. o.fl. Blótinu lýkur með dansleik þar sem hljómsveitin Snillingarnir halda uppi stuðinu. Miðasala í Valhöll, sími 5151700 milli kl. 09 – 17.00. Matur + dan- leikur kr. 4.000 - Dansleikur kr. 1000. Hittumst hress í góðra vina hópi Þorrablótsnefndin Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Suðurgötu 1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 27. janúar 2005 kl. 14.00 á neðangreindum eignum: Birkimelur 5, fastanr. 214-0782, Varmahlíð, þingl. eign Lúðvíks Al- freðs Halldórssonar. Gerðarbeiðendur eru Og Vodafone-Og fjarskipti hf., Greiðslumiðlun hf.-Visa Ísland og Íbúðalánasjóður. Helluland, landsnr. 146-382, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Ólafs Jónssonar, Þórunnar Ólafsdóttur og Kristín Jónsdóttir. Gerðar- beiðandi er Vátryggingafélag Íslands hf. Kárastígur 10, fastanr. 214-3630, Hofsósi, þingl. eign Björns Jóhanns- sonar. Gerðarbeiðandi er Samvinnulífeyrissjóðurinn. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 20. janúar 2005. Uppboð Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Miðbraut 11, Búðardal, fimmtudaginn 27. janúar 2005 kl. 14.00 á eftirfar- andi eign: Ásar, Saurbæjarhreppi, jarðarnr. 137891, þinglýstur eigandi Dóróthea Sigvaldadóttir, gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins. Sýslumaðurinn í Búðardal, 20. janúar 2005. Anna Birna Þráinsdóttir. Félagslíf Sálarrannsóknarfélag Íslands, stofnað 1918, sími 551 8130, Garðastræti 8, Reykjavík Opið hús. Nemendur úr hópum verða með heilun, ýmislegt annað áhugavert og brydda upp á nýjungum í opnu húsi föstu- daginn 21. janúar, í Garðastræti 8. Húsið opnað kl. 19.00 og lokað kl. 19.30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangseyrir. SRFÍ. Í kvöld kl. 20.30 sýnir Óskar Guðmundsson myndband með Sigvalda Hjálmarssyni í húsi fé- lagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum kl. 15.30 í umsjón Halldórs Har- aldssonar sem sýnir myndband með Krishnamurti. Á sunnudögum kl. 10 er hug- leiðing með leiðbeiningum. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid.is I.O.O.F. 12  1851218½  I.O.O.F. 1  1851218 Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika Kl. 12.00 Fríkirkjan Vegurinn, há- degisbænir. Kl. 20.00 Samkoma í kirkju Að- ventista í Reykjavík með þátt- töku fleiri trúfélaga. Kl. 20.00 Bænastund í umsjá Að- ventista í Sunnuhlíð Akureyri í félagsheimili KFUM og KFUK. Allir velkomnir! ✝ HjörleifurTryggvason fæddist á Ytra- Laugalandi í Eyja- fjarðarsveit 25. maí 1932. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 13. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Tryggvi Jóhannes- son bóndi Ytra- Laugalandi, f. þar 30. júlí 1911, d. 18.1. 1998, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja frá Sléttu í Reyðarfirði, f. 6.6. 1910, d. 8.8. 1997. Bróðir Hjörleifs er Aðal- björn bóndi, f. 20.3. 1937. Hjörleifur ólst upp á Ytra- Laugalandi og vann við almenn landbúnaðarstörf en hleypti heimdraganum 24 ára gamall og fór á vertíð til Vestmanneyja. Hann giftist hinn 6.6. 1960 eft- 2.1. 1988, og Silvía, f. 14.2. 1992. 3) Þórður, f. 30.6. 1962, kvæntur Hildi Larsen, f. 18.2. 1964. Synir þeirra eru Ólafur, f. 25.7. 1986, og Hjörtur, f. 28.2 1991. 4) Hug- rún, f. 29.1. 1967, gift Einari Gíslasyni, f. 23.6. 1960. Dætur þeirra eru Guðbjörg, f. 25.8. 1995, og Þórhildur, f. 25.8. 1995. 5) Jó- hannes Helgi, f. 18.8. 1974, í sam- búð með Hildi Magnúsdóttur, f. 24.3. 1981. Sonur Jóhannesar og Sigurbjargar Níelsdóttur, f. 4.9. 1974, er Níels Birkir, f. 30.12. 1998. 6) Jón Elvar, f. 16.12. 1975, í sambúð með Kolbrúnu Ingu Rafnsdóttur, f. 10.12. 1975. Dóttir þeirra er Svala Huld, f. 27.11. 2004. Barnabörnin eru tólf. Hjörleifur var bóndi á Ytra- Laugalandi allt sitt líf og bjó þar félagsbúi með Aðalbirni bróður sínum til ársins 1995. Hann vann við landbúnaðarstörf fram á síð- asta dag á býli sona sinna á Ytra- Laugalandi og Hrafnagili í Eyja- fjarðarsveit. Hjörleifur verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hann verður jarðsettur á Munka- þverá. irlifandi eiginkonu sinni Vilborgu Guð- rúnu Þórðardóttur hjúkrunarfræðingi, f. 3.2. 1937. Foreldrar hennar voru Þórður Jónsson bóndi Sölv- holti í Flóa, f. 22.4. 1901, d. 17.4. 2000, og kona hans Þórhildur Vigfúsdóttir hús- freyja, f. 18.3. 1903, d. 4.4. 1989. Börn Hjörleifs og Vilborg- ar Guðrúnar eru: 1) Þóra, f. 31.12. 1959, gift Ívari Ragnars- syni, f. 26.7. 1956. Börn þeirra eru; Vilborg Hjörný, f. 27.10. 1981, Eva Huld, f. 3.8. 1984, Egill Þór, f. 31.3. 1993, og fóstursonur Jeff Chris Hallstrøm, f. 24.2. 1992. 2) Grettir, f. 29.3 1961, kvæntur Kristínu Kolbeinsdóttur, f. 31.5 1962. Börn þeirra eru; Sandra, f. 6.12. 1986, Steinar, f. Elsku pabbi minn, það er virkilega erfitt að kveðja þig svona snöggt, en þú varst oft búinn að tala um að svona vildir þú kveðja, áður en þú yrðir ruglað gamalmenni. Þetta var nú samt allt of snemmt. Við áttum eftir að gera svo margt saman. Það er margs að minnast. Þú varst alltaf til staðar þegar á þurfti að halda og veturinn 1998 kemur fljótt upp í hug- ann þegar við vorum tveir með bú- skapinn á Laugalandi. Það var erf- iður tími en þú lagðir mikið á þig til að það gengi upp og því gleymi ég aldrei. Upp frá því tengdumst við sterkum böndum og var samband okkar einstakt eftir það. Þú varst mikill persónuleiki og mannþekkjari og með eindæmum gjafmildur, vildir allt fyrir mann gera. Þú komst t.d. með marga haldapoka af mat fyrir tugi þúsunda til okkar systkinanna þegar við byrjuðum að búa, það topp- uðu þig fáir. Þú þoldir heldur ekki fólk sem voru nánasir og nísku… eins og þú orðaðir það. Einnig hafðir þú gaman af því að gera að gamni þínu og fátt fannst þér skemmtilegra en þegar sölumenn komu og voru að reyna að selja þér eitthvað, það eru til margar sögur af því en í stuttu máli sagt held ég þeir séu alveg hættir að koma á Ytra-Laugaland. Ég minnist einnig ferðalaganna frá barnæsku þar sem stoppað var í hverri sjoppu sem sást og við Jó- hannes bróðir fengum ís í brauði. Vorið 2000 þegar við keyptum Hrafnagil varst þú frá 1. degi á drátt- arvél frá morgni til kvölds. Þú keyrð- ir allan skít, um 6500 tonn á ári, rak- aðir öllu heyi og vannst alla flagvinnu og ef við ætluðum að leysa þig af varðstu vondur og spurðir okkur hvort við héldum að þú væri aumingi. Svo varstu farinn að taka nesti með þér á vélarnar til að við stælum þeim ekki af þér þegar þú fórst í mat. Þú elskaðir að vinna á dráttarvélum. Fyrir þetta fáum við bróðir þér seint fullþakkað og hann er orðinn stór þáttur þinn í þessu búi og það verður erfitt ef ekki ómögulegt að manna þína stöðu. Elsku pabbi minn, ég kveð þig nú með söknuði en ég veit að þú ert nú á góðum stað. Þinn Jón Elvar. Mig langar að minnast tengdaföð- ur míns en hann lést 13. jan. á FSA í kjölfar erfiðrar aðgerðar. Nú eru tuttugu ár síðan leiðir okkar lágu saman og minnist ég hans fyrir góð- an húmor, magnaðar vísur og skemmtilegar frásagnir. Hann hafði stórt hjarta og gjafmildi hans var ríkuleg. Kom það oft fyrir er við Hugrún hófum búskap að hann rakst inn og hafði þá komið við í búð og kom lestaður af vörum og fyllti á ís- skápinn. Búmaður var hann mikill og dýravinur, hann mátti ekkert aumt sjá og alltaf gátu hrafnarnir stólað á hann þegar harðnaði á dalnum. Ég man að eitt af því fyrsta er hann vildi vita um mína hagi var hvaða tónlist ég hlustaði á því hann var músíkant, djassgeggjari og harmonikkuunnandi, tónlistin var svo stór hluti af honum. Glenn Mill- er, Mills Brothers, Guðmundur Ing- ólfsson og Ingimar og Finnur Eydal voru hans menn sem og allir er höfðu góða sveiflu. Hjörleifur á Y-Lauga- landi var gleðimaður mikill og litrík- ur í sinni sveit og varla voru haldin þorrablót eða kabarettar svo ekki væri vitnað í hann eða uppátæki hans. Hann var hreinskiptin og kvað ævinlega skírt að og talaði tæpi- tungulaust. Ekki er hægt að segja annað um Hjörleif en hann hafi verið lélegur bindindismaður en þó fór þeim skipt- um fækkandi er hann fékk sér „al- mennilega í glas“ svo notuð séu hans orð. Búskapur barna hans átti hug hans allan og þótt aðrir væru teknir við þá starfaði hann eftir sem áður að búskapnum, það var hans líf og yndi. Að vinna tún og akra voru hans sól- arlandaferðir þá gaf hann sér vart tíma til að taka mat eða kaffi slíkur var áhuginn og minnti það helst á ungan og ákafan bónda en ekki mann sem komin var yfir sjötugt. Þó skiln- aðurinn sé sár og söknuður mikill er þó hægt að hugga sig við að það átti ekki fyrir honum að liggja að verða óvinnufær og traktorslaus í ellinni. Ég vil að lokum þakka Hjörleifi þessi 20 ár er við höfum átt samleið, alla greiðana og skemmtilegu stundirnar er við höfum átt saman í gegnum tíð- ina. Blessuð sé minning hans. Einar Gíslason, Brúnum. Nágranni minn Hjörleifur Tryggvason á Ytra-Laugalandi er allur. Hann heyrir nú sögunni til og verður þar minnst sem sérstaklega litríks manns. Undir nokkuð hrjúfu yfirborði var einlægni og hlýja. Hjör- leifur var mikið glæsimenni á velli og hraustur svo af bar, þrátt fyrir að lík- amanum væri ekki hlíft á nokkurn máta. Hann er mér harmdauði og mun svipminna er nú yfir Staðar- byggðinni þegar hans nýtur ekki lengur við. Fyrstu kynni mín af Hjörleifi ná hér um bil hálfa öld aftur í tímann, þegar fjárbúskapur var á báðum bæjunum. Í þá tíð var skylt að baða fé, fengum við einatt dygga hjálp þeirra feðga við það verk. Eitt sinn hafði faðir minn tekið með örlítið tár á fleyg og dreypti á mannskapinn, leið ekki á löngu þar til hlátrasköllin gullu við og allir voru kátir, enda þeir feðgar með skemmtilegustu mönn- um. Hjörleifur var mikill tónlistar- unnandi, hann var sérstaklega hrif- inn af djasstónlist og sótti tónleika í önnur héruð ef svo bar undir. Snemma eignaðist hann mynd- bandstökuvél og hóf þá þegar að safna myndskeiðum af sveitungum sínum. Með tímanum eignaðist hann mikið safn, sem ómetanlegt má telj- ast. Um nokkurt skeið spilaði Hjörleif- ur brids með Baldri föður mínum og bræðrum hans, Theodór og Bjart- mari. Var oft setið lengi nætur við spilaborðið og mjög glatt á hjalla. Einu sinni sem oftar varpaði Theo- dór vísu á þá makkera Hjörleif og Baldur: Ýmislegt í kvöld ég kveð komið þið inn úr hregginu. Bændur eru mættir með mosa og flær í skegginu. Sýnu lengst var þó eitt skiptið á Ytra-Laugalandi. Samkvæmt áætl- un átti að hætta spilamennsku um kl. 3 eftir miðnætti. Var þá veður með allra versta móti og lagði húsbóndinn blátt bann við því að þeir bræður Baldur og Theodór héldu til síns heima. Var spilað áfram fram að fjós- tíma, hafði þá veðrið gengið niður og þótti ferðafært orðið. Í ljós kom að ófærð var mikil og hamlaði svo för að um 3 klst. tók að fara hér milli bæja. Líklegt má telja að nú hafi spila- stokkurinn verið tekinn fram að nýju. Undanfarin ár hefur Hjörleifur lagt sonum sínum lið í kúabúskapn- um, sem er sá umfangsmesti á landi hér. Er mál manna að hann hafi unn- ið á við tvo hið minnsta. Þrátt fyrir miklar annir heimavið, hefur Hjör- leifur gefið sér tíma til að aðstoða okkur nágranna sína. Nú síðast á haustmánuðum þegar mikið lá við í búskapnum hér á bæ. Hafi hann heila þökk fyrir það og mörg önnur viðvik og greiðasemi. Fjölskyldu Hjörleifs Tryggvason- ar sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Benjamín Baldursson. Ytri-Tjörnum. HJÖRLEIFUR TRYGGVASON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.