Morgunblaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 17 ERLENT Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900 www.ef.is • Hagstætt verð MOHAMMAD Khatami, forseti Írans, kvaðst í gær telja að Banda- ríkjamenn ættu við svo mörg vandamál að stríða í Írak að þeir gætu ekki gert árás á Íran. „Líkurnar á bandarískri árás á Íran eru mjög litlar. Við teljum að Bandaríkin séu ekki í aðstöðu til að grípa til þess brjálæðislega ráðs að ráðast á Íran,“ sagði Khatami. Hann bætti við að Íranar væru undir það búnir að verja sig ef á þá yrði ráðist en sagði ekkert um hvernig þeir myndu svara hugs- anlegri árás. Varnarmálaráðherra Írans sagði í nóvember að Íranar hefðu fjöldaframleitt eldflaugar sem hægt væri að skjóta á Ísrael og bandarískar hersveitir í Mið- Austurlöndum. George W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði á mánudag að stjórn sín útilokaði ekki þann möguleika að gripið yrði til hernaðaraðgerða gegn Íran vegna umdeildrar kjarnorkuáætlunar landsins. Áður hélt bandaríski blaða- maðurinn Seymour Hersh því fram í vikuritinu New Yorker að bandarískar sérsveitir hefðu verið að störfum í Íran frá því í sumar við að velja hernaðarlega mikil- væga staði vegna hugsanlegra loft- árása. Fjölmiðlar í Íran hafa síðustu vikur birt fréttir um að njósnatæki hafi fundist í dularfullum loftför- um sem íranskar sérsveitir hafi skotið niður nálægt stöðum sem tengjast kjarnorkuáætluninni. Her Írans hefur ekki staðfest þetta. Íranar búast ekki við árás Teheran. AP. KONA nokkur í Brasilíu ól nýlega sitt fimmta barn og vissulega það stærsta. Vó það hvorki meira né minna en 32 merkur, sem er tvöföld venjuleg fæðingar- þyngd. Drengurinn nýfæddi, Ademilton dos Santos, er stærsta barn, sem vitað er til, að hafi fæðst í Brasilíu, en hann var tekinn með keisaraskurði á sjúkrahúsi í borginni Salvador í norðausturhluta landsins. Er Francisca móðir hans sykursjúk og telja læknar, að til þess megi rekja óeðlilega mikla fæðingarþyngd drengsins. Vegur hann jafnmikið og annars er algeng- ast með sex mánaða gömul börn. Fyrri fjögur börn Franciscu voru öll eðlilega þung en sjúkleiki hennar var líka nokkurt vandamál við fæðingu þeirra. Fær Ademilton sykurupplausn í æð til að viðhalda réttu sykurmagni í blóði og auk þess fær hann súrefni vegna öndunarerfiðleika. AP Risabarn í Brasilíu Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.