Morgunblaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 24
„Í þessum heimi er það þannig að þær sem geta átt börn eru í fæðingabúð- unum, þar sem þær eru sæddar og eignast svo börn.“ Heimsstyrjöld ríkir, konureru réttdræpar, börnverða til í fæðingar-búðum, ástin* tilheyrir fortíðinni og þér er boðið um borð! Spítalaskipið er nýtt leikrit eftir Kristínu Ómarsdóttur, samið fyrir Nemendaleikhús Listaháskóla Ís- lands og frumsýnt í sal skólans, Smiðjunni, á Sölvhólsgötu 13 í kvöld kl. 20. Spítalaskipið er leikrit sem tekur á eldfimum efnum. Þar fjallar Krist- ín Ómarsdóttir um stríð, kynjabar- áttu og heim þar sem ástinni* hefur verið útrýmt, á ögrandi og kómískan hátt. Spítalaskipið Vonin er búið fær- ustu læknum og hjúkrunarfólki og siglir með særða hermenn af átaka- svæðum á tímum þar sem allir þegn- ar heimsins lúta sameiginlegu kerfi. Harðskeytt skæruliðahersveit kvenna hefur sagt heimskipulaginu stríð á hendur og þegar uppreisn- arher þeirra, Blátt túrblóð, smyglar sér um borð hefst blóðug og ógleym- anleg barátta. Orri Huginn Ágústsson, einn leik- aranna, segir að Kristín hafi samið verkið sérstaklega fyrir hópinn. „Þetta er í þriðja sinn sem skólinn efnir til keppni, þar sem hverjum sem er gefst tækifæri til að senda inn tillögu að verki. Það voru yfir tuttugu hugmyndir sem bárust nú, og nokkrar þeirra voru valdar til áframhaldandi þróunar. Af þeim var hugmynd Kristínar svo valin. Við höfum fengið að vinna verkið með henni, og það hefur verið mikið og skemmtilegt ævintýri – alveg stór- kostlega skemmtilegt og gaman,“ segir Orri. Hann segir Kristínu hafa fylgst með æfingaferlinu frá upphafi og fylgst með, og farið svo heim með verkið skrifað meira og bætt í það fullt af nýjum og skemmtilegum hugmyndum fyrir næstu æfingu. „Þetta hefur verið mjög skapandi ferli af því að við höfum fengið að vinna verkið með henni á þennan hátt.“ Félagar Orra í Nemendaleikhús- inu, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Jóhanna Friðrika Sæmunds- dóttir, taka undir orð hans um hve ánægjulegt samstarfið við Kristínu hefur verið. Ég spyr leikarana þrjá nánar um efnið – sem hljómar væg- ast sagt eins og vísindaskáldskapur. „Spítalaskipið Vonin, er spít- alaskip Heimsskipulags karla í þess- um heimi. Þar eru karlar búnir að hneppa konur í fæðingarbúðir, en þegar verkið gerist er þetta heims- skipulag búið að vera við lýði lengi,“ segir Orri. „Það sem gerist svo,“ segir Jóhannes Haukur, „er að kon- urnar eru búnar að fá nóg og gera þessa uppreisn. Við fylgjumst með fólki á skipinu: tveimur fangavörð- um, tveimur hásetum og skipstjórn- andum.“ „Við sjáum heiminn í smækkaðri mynd – þetta er míkró- kosmos,“ segir Orri, og segir áhorf- andann sjá svolítinn þverskurð af okkar heimi gegnum persónurnar og það sem gerist á skipinu. Jóhanna Friðrika segir að skemmtilegast við verkið sé að það skuli byggt á draumi höfundarins. „Mér finnst það mjög fríkuð tilhugsun. Í draumnum þurftu konur að vera í felum ef þær ætluðu að lifa almennilegu lífi – ann- ars voru þær vinnudýr eða fæðing- artæki í fæðingabúðunum. Í þessum heimi er það þannig að þær sem geta átt börn eru í fæðingabúðunum, þar sem þær eru sæddar og eignast svo börn, en ef þær eru óbyrjur eru þær í framleiðslu.“ Um tilgangsleysi stríðsátaka Jóhannes segir ástæðu fyrir því að svona sé komið fyrir fólkinu í þess- um heimi Kristínar. „Karlmenn komust að því að ástin* var tæki konunnar til að kúga karlmanninn. Við vorum ekkert að kúga þær. Lostinn var þeirra vopn við að kúga okkur. Málið var bara að losna við þær og í þessum heimi þurfum við ekkert að sjá þær – og þurfum þar af leiðandi ekkert að díla við tilfinn- ingar eins og ást*.“ Jóhanna segir að í þessum heimi þar sem ástin* er bönnuð, hafi kon- urnar það betra, vegna þess að þá sé ekki hægt að níðast á þeim kynferð- islega, og Orri bætir því við að með þessu séu þær líka að uppfylla til- gang sinn í lífinu. „Samt sem áður er leikritið enginn púra femínismi. Það snýst miklu frekar um stríð og til- gangsleysi átaka, þótt þetta sé heim- urinn sem það er sett upp í.“ Jóhannes og Jóhanna samsinna þessu og segja verkið fyrst og fremst fjalla um það hve stríð séu heimskuleg í hvaða mynd sem þau birtast okkur. „Femíníski tónninn er miklu frekar spurningin um það hvers vegna við deilum – og hvers vegna karlar og konur séu enn að rífast,“ bætir Orri við. Níu nemendur eru í Nemenda- leikhúsinu núna, fimm strákar og fjórar stelpur, en hvert þeirra um sig er í minnst þremur hlutverkum í sýningunni. Grímur eru notaðar til að skapa fjölbreytni, en þær hannaði Katrín Þorvaldsdóttir. Orri segir að verkið sé allt unnið á talsvert stíl- iseraðan máta. „Verkið er ekki sett upp á hefðbundnu sviði þar sem áhorfendur sitja utan við rammann, heldur plöntum við okkur niður meðal þeirra. Útlitið á okkur er líka stíliserað, en þó er þetta ekkert slettuleikhús þar sem fólk þarf að vera með svuntu á fremsta bekk. Þetta er ósköp þægilegt fyrir áhorf- andann og hann fær að sitja á stól. Nálægðin er mikil og gaman að prófa að vera í svo mikilli nánd við áhorfendur án þess að það virki uppáþrengjandi.“ Um þessar mundir er Nemenda- leikhúsið líka að æfa nýtt verk í Borgarleikhúsinu sem frumsýnt verður í mars, en það er ný leikgerð Benedikts Erlingssonar á Draum- leik eftir Strindberg. En þótt heim- arnir séu ólíkir, benda krakkarnir á að bæði séu verkin byggð á draum- um – og fyrsta leikverk hópsins var svo Draumur á Jónsmessunótt eftir Shakespeare. „Þetta er draumavet- ur fyrir okkur,“ segja þessir ungu draumaleikarar að lokum. Spít- alaskipið verður sýnt oft, í stuttan tíma, þannig að óvarlegt er fyrir áhugasama að ætla að treina sér um of að mæta á sýningar í Smiðjunni, en aðgangseyrir að sýningunni er þúsund krónur. Leiklist | Nemendaleikhúsið frumsýnir Spítalaskipið eftir Kristínu Ómarsdóttur Heimsskipulag karla án losta og ástar* Morgunblaðið/Golli „Femíníski tónninn er miklu frekar spurningin um það hvers vegna við deilum – og hvers vegna karlar og konur séu enn að rífast.“ *bannorð begga@mbl.is 24 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Ilmur Kristjánsdóttir leikur Ausu er níu ára og er með K R A B B A M E I N Hún er einlægur O F V I T I Hún er F Y N D I N og H E I L L A N D I Hún E L S K A R óperutónlist og Þ R Á I R að deyja eins og dívan á sviðinu Ausa Ausa er einþáttungur Miðaverð aðeins kr. 1.500 Börn 12 ára og yngri fá frítt í fylgd forráðamanna Úr dómum: „Ilmur Kristjánsdóttir er hreint frábær í þessu hlutverki og það væri vonandi að allir unglingar landsins fengju tækifæri til þess að sjá þessa sýningu og helst með umræðum eftirá“ EB DV „Túlkun Ilmar kom leikhúsgestum bæði til að hlæja og gráta“ SAB Mbl N æ st ÍSLENSKA óperan og Osta- og smjörsalan hafa undirritað sam- starfssamning vegna tónleika- ferðar Óperunnar norður í Laug- arborg í Eyjafjarðarsveit í febrúar. Íslenska óperan hefur átt sam- starf við Tónvinafélag Laugar- borgar og Eyjafjarðarsveit und- anfarin misseri og nú er aftur komið að því að listamenn á vegum Óperunnar sæki Eyfirðinga heim. Hinn 23. febrúar nk. munu þau El- ín Ósk Óskarsdóttir sópran og Jó- hann Friðgeir Valdimarsson tenór ásamt Kurt Kopecky á píanó halda tónleika í Laugarborg. Á tónleik- unum mun þríeykið meðal annars flytja aríur og dúetta úr Toscu, La Bohème, Madama Butterfly, Man- on Lescaut, La Traviata og Mac- beth. Flugfélag Íslands kemur einnig að kostun verkefnisins. Elín Ósk og Jóhann Friðgeir eru um þessar mundir önnum kafin við æfingar á Toscu þar sem þau syngja hlutverk elskendanna Toscu og Cavaradossi. Tosca verð- ur frumsýnd hjá Íslensku óperunni 11. febrúar nk. Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar, og Bjarni Daníelsson óperustjóri undirrita samstarfssamninginn vegna ferðar Óperunnar norður. Osta- og smjörsalan styrkir Óperuna eftir Kristínu Ómarsdóttur Leikarar: Aðalbjörg Þóra Árna- dóttir, Atli Þór Albertsson, Guðjón Davíð Karlsson, Jó- hanna Friðrika Sæmunds- dóttir, Jóhannes Haukur Jó- hannesson, Oddný Helgadóttir, Ólafur Steinn Ingunnarson, Orri Huginn Ágústsson og Sara Dögg Ásgeirsdóttir Leikmynd: Bjarni Þór Sigur- björnsson Lýsing: Egill Ingibergsson Búningar og gervi: Katrín Þor- valdsdóttir Tónlist og hljóðmynd: Ólöf Arnalds Dramatúrg: Kristín Eysteins- dóttir Leikstjóri: María Reyndal Spítalaskipið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.