Morgunblaðið - 21.01.2005, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Canada's fastest growing franchise
is now expanding into Iceland.
See us at www.fibrenew.com
KATRÍN Pétursdóttir, fram-
kvæmdastjóri Lýsis hf., hlaut í gær
FKA-viðurkenningu Félags kvenna
í atvinnurekstri.
Katrín rak áður fyrirtækið Hnot-
skurn og fiskafurðir, hausaverkun
og lýsisbræðslu. Hún er sögð hafa
séð sóknarfæri í Lýsi hf. og keypt
fyrirtækið árið 1999 eftir langt ferli
taprekstrar. Hafi henni tekist að
snúa rekstrinum til betri vegar og
með því að sameina fyrirtækin tvö
náð fram samlegðaráhrifum og meiri
hagkvæmni. Afurðir Lýsis hafi feng-
ið góða umfjöllun, niðurstöður úr
rannsóknum hafi nánast allar verið
mjög jákvæðar og almennt sé fólk
sammála um ágæti þeirra. Þá hafi
stöðug þróunarvinna átt sér stað síð-
ustu fimm árin og muni halda áfram.
Nú sé svo komið að 90% af fram-
leiðslu fyrirtækisins séu til útflutn-
ings um allan heim.
„Katrín hefur tekist á við krefj-
andi rekstrarumhverfi, sem kallar á
hugvitssemi, framkvæmdaelju og
hæfileika til þess að sjá möguleika
þar sem áður virtist aðeins uppgjöf
blasa við. Þess vegna lítum við í Fé-
lagi kvenna í atvinnurekstri á hana
sem verðuga fyrirmynd og árangur
hennar sem hvatningu öðrum kon-
um,“ segir í rökstuðningi FKA.
Markmiðið með FKA-viðurkenn-
ingunni er að heiðra einstakling, fyr-
irtæki, stofnun, félagasamtök eða
stjórnvald sem að mati stjórnar fé-
lagsins þykir best að slíkri við-
urkenningu komið fyrir vel unnin
störf í þágu atvinnurekstrar kvenna
eða hafi verið konum í atvinnu-
rekstri sérstök hvatning eða fyr-
irmynd. Áður hafa hlotið viðurkenn-
inguna Hilary Clinton, þáverandi
forsetafrú Bandaríkjanna, Þóra
Guðmundsdóttir hjá Atlanta, Elsa
Haraldsdóttir hjá Salon VEH, Svava
Johansen í Sautján og Aðalheiður
Héðinsdóttir hjá Kaffitári.
Edda og Guðrún verðlaunaðar
FKA veitti jafnframt tvær aðrar við-
urkenningar, fyrir eftirtektarvert
ævistarf og fyrir nýliða.
Hvatningarviðurkenningu FKA
hlaut Edda Jónsdóttir í i8 galleríi
fyrir að fara nýjar leiðir og skapa
galleríi sínu nafn í hinum alþjóðlega
myndlistargeira.
Þakkarviðurkenningu FKA hlaut
Guðrún Steingrímsdóttir, eigandi
Lífstykkjabúðarinnar við Laugaveg.
Guðrún, sem hefur stundað kaup-
mennsku í næstum þrjátíu ár, fyrst í
Kosta Boda og síðar í Lífstykkja-
búðinni, er sögð hafa sýnt einstaka
þrautseigju og það sé sérlega hvetj-
andi fyrir þær fjölmörgu konur í
FKA sem stunda verslunarstörf að
sjá að hægt sé að hafa þau að ævi-
starfi.
Katrín Pétursdóttir fær
FKA-viðurkenninguna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðurkenning Kristín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis hf., tekur við
viðurkenningunni úr hendi Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta.
TAÍLENSK stjórnvöld hafa ákveðið
að kanna möguleika á gerð fríversl-
unarsamnings við EFTA-ríkin, að
því er fram kemur í Stiklum, frétta-
bréfi utanríkisráðuneytisins.
Grétar Már Sigurðsson, skrif-
stofustjóri viðskiptaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins, stýrir viðræðum
EFTA-ríkjanna við Taíland um gerð
hugsanlegs fríverslunarsamnings.
Hann segist bjartsýnn á að viðræð-
urnar geti hafist í Reykjavík í maí
nk. og að þær muni ganga greiðlega
fyrir sig.
Fyrsta lota fríverslunarviðræðna
við Suður-Kóreu stendur nú yfir í
Genf og EFTA-ríkin hafa fyrir frí-
verslunarsamning við Singapúr. Að
sögn Grétars Más hefur EFTA tekið
frumkvæði í fríverslunarviðræðum
við Asíuríki og stefnt er að því að út-
flytjendur EFTA-ríkjanna geti náð
forskoti á keppinauta innan ESB
þegar kemur að markaðsaðgangi, en
ESB hefur ekki fríverslunarsamning
við þessi ríki.
„Ég tel góðar líkur á því að samn-
ingaviðræður við Taíland og Suður-
Kóreu muni ganga fremur greiðlega
fyrir sig og að okkur takist að gera
umfangsmikla fríverslunarsamninga
með ákvæðum um fjárfestingar,
þjónustuviðskipti og hugverkarétt
auk vöruviðskipta,“ segir Grétar
Már í Stiklum. „Þessir samningar
geta verið lyftistöng fyrir íslensk
fyrirtæki á Asíumarkaði, þar sem
tollar eru almennt mjög háir, ekki
síst á sjávarafurðum og tæknibún-
aði.“
Forskot EFTA á
ESB inn á Asíu
Fríverslunarviðræður við Taíland
hefjast í vor – Viðræður við S-Kóreu
! "# $
%#%!
& %"' ("
) ("
)#"
*"' (" & %"'
+!%
+!'
! %#
,#
-./!
-. ! "#($
0
. & %"'
1 "'
1. "
1 2 $ 34 / " 5 6("
*7 8" 4 ""
9:/!
-&
-% ;%# -%"'
-%. / 2 /$
<2## "#. "
= "" % "
3.4 .. 5-8(!#
!
(
!%' >2
*"' 7. & %"' <8 8
"# $
?@>A
-7
$!
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
!2 "#
2 $!
5
5
5
5
5
5 5
5
5
5
5
5
5
5
5 5
5
5
5
5
5
5
5 5
5
B CD
B CD
B 5CD
B CD
B
CD
B CD
B 5CD
5
B CD
5
5
B 5
CD
B CD
5
B CD
5
5
5
5
5
5
5
B 5CD
5
5
5
5
5
5
5
B 5CD
5
5
1! %'
'# "
< %( 7 % '# E
) -%
$
$ $ $
$ $$
$
$ $ $
5
$ $ $ 5
5
5
5
$
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
= 7 FG $ $
<1$ H /#"% %'
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
<1$5 I . ./%'"' % /% $ <1$5 -2%' % %!## . 2 %( /! " $
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær
námu alls um 3.898 milljónum
króna í gær. Mest urðu viðskipti með
hlutabréf, fyrir um 1.808 milljónir
króna en næst mest urðu viðskipti
með ríkisbréf fyrir um 1.324 milljónir
króna. Úrvalsvísitala Aðallista
hækkaði í gær um 0,15% og er nú
3.546 stig. Mest hlutabréfaviðskipti
voru með bréf Íslandsbanka eða fyrir
um 1.408 milljónir króna og hækk-
aði gengi bréfanna um 0,4%. Mesta
hækkun varð á bréfum Flugleiða eða
3,5%. Mest lækkun varð hinsvegar á
bréfum í SÍF, 1,2%.
Mikil viðskipti með
bréf Íslandsbanka
● ATVINNUÞÁTTTAKA á Bretlands-
eyjum jókst um 0,2% í desember-
mánuði síðastliðnum samanborið við
mánuðinn á undan og nam 74,8%, að
því er fram kemur í hálf fimm fréttum
KB banka. Segir þar að aukin atvinnu-
þátttaka gefi vísbendingu um að
breskur vinnumarkaður sé við betri
heilsu um þessar mundir en oft áður.
Í Morgunkorni Greiningar Íslands-
banka segir að skráð atvinnuleysi í
Bretlandi hafi verið 2,7% í desember,
sjötta mánuðinn í röð, og hafi ekki ver-
ið svo lágt í 30 ár. Englandsbanki hafi
áhyggjur af verðbólguþrýstingi af
þessum sökum og hafi hækkað stýri-
vexti sína fimm sinnum frá því í nóv-
ember 2003. Stýrivextir bankans
standi nú í 4,75% en ekki sé reiknað
með frekari hækkun í bráð. Þá segir
að atvinnuleysi í Bretlandi standi í
4,7% ef stöðlum Alþjóðavinnumála-
stofnunar (ILO) sé beitt við skrán-
inguna. Til samanburðar sé það 2,5%
hér á landi.
Atvinnuástand
í Bretlandi batnar
● LANDSBANKI Íslands hefur tilkynnt
Fjármálaeftirlitinu að bankinn hafi
ákveðið að stofna útibú á Englandi.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að hér sé
í raun um formsatriði að ræða sem
setur eðlilega umgjörð um vaxandi
bein umsvif Landsbankans í London.
„Viðskiptavinatengslin verða skýrari
og þjónustan markvissari. Útibúið
skapar umgjörð um tvíþætta starf-
semi sem þegar er orðin um-
svifamikil. Annars vegar útlána-
starfsemi í formi sambankalána þar
sem Landsbankinn er annaðhvort
þátttakandi eða leiðandi lánveitandi.
Hins vegar fyrirtækjaráðgjöf. Lands-
bankinn er að efla þjónustu sína á
þessum tveimur sviðum á Englandi,“
segir Halldór.
Lárus Welding, sem starfað hefur á
Fyrirtækjasviði Landsbankans, verð-
ur útibússtjóri hins nýja útibús.
Landsbankinn með
útibú á Englandi
● AUKIN skilvirkni markaða hefur
ekki skilað sér til sænskra neytenda í
bættum hag, í kjölfar afnáma hafta á
sænskum mörkuðum á síðasta ára-
tug síðustu aldar. Þetta hefur sænska
fréttaþjónustan TT eftir Dan And-
ersson, hagfræðingi. Það er á orku-
markaðnum og í innanlandsflugi sem
umbæturnar hafa ekki skilað sér í
aukinni skilvirkni. Lægra verð hefur
ekki heldur skilað sér til hins almenna
neytanda nema á símamarkaði en á
öðrum mörkuðum sem rannsakaðir
voru hefur skilvirkni aukist.
Það eru, að sögn Andersson, að
mestu leyti fyrirtæki sem hafa notið
góðs af afnámi hafta í Svíþjóð.
Afnám hafta skilar sér
ekki til neytenda
HÆKKUN á gengi krónunn-
ar undanfarið á að stærstum
hluta eftir að koma fram í
lækkuðu vöruverði til neyt-
enda, að því er fram kemur í
Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka. Segir það að lík-
legt sé að þau áhrif muni
sjást á næstu mánuðum og að
það muni draga niður verð-
bólguna hér á landi.
Gengi krónunnar er um 7%
hærra en það var fyrir ári. Á
sama tíma hefur verð á inn-
fluttum vörum staðið í stað.
„Ljóst er að mikið af hækkun
krónunnar á eftir að skila sér
inn í verði innfluttra vara,“
segir í Morgunkorninu. „Tals-
verður tími kann að líða frá
því að gengisbreytingar eiga
sér stað þar til þær skila sér í
verði til innlendra neytenda.
Ráða þar þættir á borð við
veltuhraði birgða, notkun á
gengisvörnum, samkeppni í
viðkomandi grein og þá
hversu mikið fyrirtækin
sveifluleiðrétta til skemmri
tíma með því að breyta fram-
legð sinni fremur en verði
vörunnar til neytenda. Á end-
anum skilar gengisbreytingin
sér hins vegar með einhverj-
um hætti en það getur tekið
langan tíma eða allt að einu
og hálfu ári.“
Hækkun
krónunnar á
eftir að skila
sér í lægra
vöruverði
FARÞEGAR Icelandair, dóttur-
félags Flugleiða, voru rúmlega 1,3
milljónir talsins á árinu 2004, og
eru það 200 þúsund, eða 17,8%,
fleiri farþegar en á árinu 2003.
Sætanýting jókst um 5,3 pró-
sentustig á milli ára í 74,5%. Þá
var framboð sæta 12,5% meira en
á síðasta ári, en salan jókst hins
vegar um 21,2% milli ára, að því er
segir í tilkynningu frá Flugleið-
um.
Aukning varð einnig hjá öðrum
dótturfélögum Flugleiða. Farþeg-
um Flugfélags Íslands í innan-
landsflugi fjölgaði um 13,7% á
árinu 2004 miðað við 2003. Þá
fluttu Flugleiðir-Frakt 26,4%
fleiri tonn í fraktflutningum á
árinu 2004 en á árinu á undan. Hjá
Loftleiðum-Icelandic voru far-
tímar, þ.e. sá tími sem flugvél er í
notkun, frá því hún fer frá brott-
fararhliði og þar til hún stöðvar
aftur við brottfararhlið, 62,2%
fleiri en á árinu 2003.
Farþegum Flugleiða
fjölgaði um 18%
9 'J
-KL
C
C
<->
MN
C
C
@@
,+N
C
C
)N
9 !
C
C
?@>N MO 6"!
C
C