Morgunblaðið - 21.01.2005, Side 18
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ný dægurlagasamkeppni | Dægurlaga-
samkeppni verður haldin í Sæluviku á
Sauðárkróki í vetur en verður að þessu
sinni í höndum nýrra skipuleggjenda. Ell-
ert Jóhannsson og Sigurpáll Aðalsteinsson
halda keppnina nú en áður hafði Kvenfélag
Sauðárkróks haldið hana í tíu ár.
Fram kemur á vefnum skagafjordur.com
að Kvenfélag Sauðárkróks hafi látið þau
boð út ganga að það myndi ekki efna til
dægurlagasamkeppni í ár. Ellert Jóhanns-
son sagði í samtali við vefinn að þeir félagar
hefðu ekki mátt til þess hugsa að keppnin
legðist af, enda hápunkturinn í Sæluviku
síðustu árin.
Hugmyndin er að keppnin verði með
svipuðu sniði og áður og hefur þegar verið
auglýst eftir lögum. Væntanlegir þátttak-
endur hafa frest til 15. febrúar næstkom-
andi til að skila inn lagi og texta.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Hrakinn snjótittlingur | Mæðgurnar
Sunna Högnadóttir og Íris Huld Sig-
urbjörnsdóttir komu í gærmorgun á Nátt-
úrustofu Vesturlands í Stykkishólmi með
snjótittling sem þær höfðu skotið skjóls-
húsi yfir. Sunna fann hann við húsvegg
heimilis þeirra, þar sem hann bar sig
fremur illa, og veitti honum gistingu um
nóttina. Hann var settur í fuglabúr á
Náttúrustofunni, þar sem hann hresstist
brátt. Var honum því sleppt í birtingu og
hefur hann því væntanlega brátt komist
til félaga sinna.
Kemur þetta fram á vef Náttúrustof-
unnar. Þar er vakin athygli á því að þegar
jarðbönn eru líkt og nú, treysti smáfugl-
arnir á gjafir mannanna. Náttúrustofan
skorar því á alla landsmenn að dreifa í
garða sína fuglafræjum, kjötsagi eða öðr-
um mat sem fuglarnir geta nýtt sér.
Maður ársins á Suðurnesjum | Tómas
J. Knútsson, kafari í Keflavík og stofnandi
umhverfissamtakanna Bláa hersins, hefur
verið útnefndur Maður ársins 2004 af Vík-
urfréttum. Tómas rekur Sportköfunarskóla
Íslands og var starfsmaður Slökkviliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Hann hefur unnið að
hreinsun strandlengjunnar ásamt félögum
sínum og ætlar að gera það að fullu starfi.
Segir það köllun sína, honum hafi verið ætl-
að það hlutverk.
Hreppsnefnd Bæj-arhrepps hefurákveðið að kaupa
slökkvibíl frá Brunavörn-
um Suðurlands á Selfossi.
Bíllinn, var orðinn fulllítill
til að þjóna sínu hlutverki
á Selfossi en kemur til
með að henta vel í Bæj-
arhreppi, segir á vefnum
strandir.is.
Slökkvibíllinn er með
drifi á báðum öxlum, mjög
lítið ekinn og fékkst á
góðu verði.
Brunavarnir Bæjar-
hrepps hafa aðstoðað við
slökkvistarf utan hrepps-
ins á undanförnum árum,
þá fyrst og fremst í sam-
vinnu við Brunavarnir
Húnaþings vestra í Stað-
arhreppi. Einnig hefur
komið upp að slökkvilið
Bæjarhrepps hefur sinnt
útköllum í Bitrufjörð. Mun
þessi bætti tækjakostur
koma mjög til góða .
Slökkvistöðin í Bæj-
arhreppi er á Borðeyri.
Brunabíll
Vel á fjórða hundraðbörn tóku þátt íJólaleik Bautans
og Dýraríkis en dregið
var úr þeim á dögunum.
Aðalverðlaunin féllu Lé
Kristjánssyni í skaut, en
hann er 8 ára gamall Ak-
ureyringur. Myndefnið
tengdist teiknimyndinni
um Nemo litla og fiska-
búrinu á veitingastaðnum
þar sem sjá má skraut-
fiska af ýmsu tagi synda
um meðan snætt er. Verð-
launin voru ekki af verri
endanum, fiskabúr með
gullfiskum, en á myndinni
virðir Lér þá fyrir sér
gegnum glerið áður en
haldið var með það heim
á leið.
Morgunblaðið/Kristján
Heppinn strákur
Í gær var ort um titr-araeign íslenskrakvenna, sem ku vera
meiri en í öðrum löndum,
eða 52%. Einar Kolbeins-
son orti um konurnar:
Tilþrif, dirfska, tryggð og þor,
er tæpast endurgoldið,
ef vilja heldur víbrator,
en „venjulega holdið“.
Inn á lífsins unaðsslóð,
allt er gott svo fremi,
titrarinn ei tendri glóð,
– ég tel það nægjusemi.
Einar orti að loknum
kvöldfréttum á þriðjudag:
Loks í góða lausn við glittum,
lofa skulum Kára snjalla,
sem fjarlægir úr fyllibyttum,
fremur leiðan erfðagalla.
Þegar undirritaður fór
þess á leit við Einar að fá
að birta vísurnar fékk
hann svar sem var á þessa
leið:
Beiðni þinni svo ég svara,
sem vart skaðað getur:
Ef þú vilt þá birtu bara,
bullið úr mér Pétur.
Tilþrif, dirfska,
tryggð og þor
pebl@mbl.is
Akureyri | Listamennirnir
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
og Jón Laxdal, sem sett hafa
svip á menningarlífið á Ak-
ureyri, hafa nú flutt sig um
set, hirt hafurtask sitt úr
miðpunkti listalífsins, Lista-
gilinu svonefnda, og komið
sér fyrir í félagsheimilinu
Freyjulundi í Arnarnes-
hreppi, norðan bæjarins.
Húsið, þar sem hátt er til
lofts og vítt til veggja, hafa
þau innréttað eftir eigin höfði
og er það í senn heimili og
vinnustofur þar sem þau
sinna list sinni. Á myndinni
er Alla með fríðum flokki að-
stoðarmanna sem stóðu í
ströngu við að flytja lista-
verkin úr gömlu vinnustof-
unni út í bíl sem flutti þau á
nýjan áfangastað í sveitasæl-
unni.
Morgunblaðið/Kristján
Af mölinni í sveitina
Flutningar
LEIFAR birkiskóglendis er að finna á
Sprengisandi að því er fram kemur í
ferðasögu sem Jóhann Björgvinsson skrif-
ar á vefsíðu Eyjafjarðardeildar 4x4
(http://www.simnet.is/ggi/YtraFljotsgil/
YtraFljotsgil.htm) þar sem hann segir frá
ferð í Ytra-Fljótsgil, sem er upp með
Skjálfandafljóti sunnan Kiðagils. Þar er
m.a. að finna leifar birkiskóglendis sem
samkvæmt lýsingu og myndum er býsna
heillegt þótt ekki sé það stórt um sig né
trén há í loftinu. Sérstaka athygli vekja
reyniviðarhríslur tvær, en þetta er hugs-
anlega hæsti fundarstaður reyniviðar.
Frá þessu er sagt á vef Skógræktar rík-
isins og þar segist Hörður Kristinsson
grasafræðingur kannast við staðinn, fór
eitt sinn þangað vegna ábendingar frá
Steindóri Steindórssyni grasafræðingi.
„Þetta er því ekki nýr fundarstaður birki-
skóglendis, þótt fáir viti reyndar af hon-
um.
Skóglendið er í árgili Skjálfandafljóts,
vestan fljóts og sunnan Kiðagils og er því
innan marka Sprengisands,“ segir í frétt á
vef skógræktarinnar.
Skóglendi á
Sprengisandi
Skagafjörður | Fundi sveitarstjórnar
Skagafjarðar sem boðað hafi verið til í
gær var frestað. Á fundinum átti að taka
fyrir að nýju mál sem snerta Villinganes-
virkjun en félagsmálaráðuneytið felldi á
dögunum úr gildi ákvörðun sveitarstjórn-
ar um að gert væri ráð fyrir virkjuninni á
aðalskipulagi vegna vanhæfis Bjarna
Maronssonar, sveitarstjórnarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, sem tengist stjórn-
arstörfum hans fyrir Kaupfélag Skagfirð-
inga.
Bjarni flutti á sínum tíma tillögu um
málið sem gekk gegn stefnu meirihlutans
sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð
og Sjálfstæðisflokkurinn standa að og
samþykkti hana ásamt fulltrúum minni-
hlutans. Átti að taka málið til afgreiðslu á
ný, án aðildar Bjarna, á fundi sveitar-
stjórnar í gær. Forseti sveitarstjórnar
frestaði honum um óákveðinn tíma, að því
er fram kemur á vefnum skagafjordur-
.com.
Fundi sveit-
arstjórnar
frestað
♦♦♦