Morgunblaðið - 27.01.2005, Page 14
VAGNAR tveggja farþegalesta liggja þvert á
teinana eða utan þeirra eftir árekstur þeirra
og þriðju lestarinnar, flutningalestar, í Los
Angeles í gærmorgun. Ljóst er að minnst 10
létust og allt að 100 slösuðust. Lögreglan sagði
að kyrrstæður jeppi á brautarteinum hefði
valdið árekstrinum og hefði bílstjórinn ætlað
að fremja sjálfsmorð með þessum hætti. Hann
heyktist hins vegar á því og stökk út úr bílnum
á síðustu stundu. Eldur kom upp í einni lest-
inni og önnur valt út af teinunum og fréttir
voru um, að fólk hefði lokast inni í vögnunum.
Mikinn fjölda björgunar- og slökkviliðsmanna
dreif strax að, að minnsta kosti 300 manns með
35 sjúkrabíla.
AP
Mannskætt lestarslys í Los Angeles
14 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Í
rösk kona, sem býður sig
fram til þings í kosning-
unum á sunnudag, sagði ný-
lega að hún óttaðist að eig-
inmaður sinn kæmist að því
að hún væri í framboði. Hún sagði
þetta í hálfkæringi en ummæli
hennar varpa þó ljósi á hversu
hættulegt það er fyrir konur að
sækjast eftir opinberu embætti í
Írak.
Fyrir utan um það bil tug þjóð-
þekktra kvenna, sem hafa haslað
sér völl í stjórnmálunum, hafa kon-
urnar sem bjóða sig fram til þings
leynt framboði sínu af ótta við að
þær verði fyrir ofbeldi af hálfu of-
stækismanna.
Uppreisnarmenn í Írak hafa hót-
að árásum á alla frambjóðendur en
konurnar eru í enn meiri hættu en
karlarnir vegna þess að þær standa
frammi fyrir reiði trúarofstæk-
ismanna sem telja að konur eigi
ekki að gegna opinberum emb-
ættum.
Ein kvennanna, sem buðu sig
fram, var myrt nálægt heimili sínu í
Bagdad. Annarri konu var rænt og
lausnargjalds krafist. Reynt var að
ráða eina af þekktustu stjórn-
málakonum Íraks af dögum í fyrra
en hún komst lífs af. Sautján ára
sonur hennar beið bana.
Mikið í húfi
Margar kvennanna neita að við-
urkenna, jafnvel fyrir vinum sínum,
að þær séu í framboði til þings.
Tugir kvenna hafa lýst því yfir að
þær séu hættar við að bjóða sig
fram, en þær eru samt enn á fram-
boðslistunum og ætla að setjast á
þing nái þær kjöri. Kjósendurnir
velja lista, en ekki einstaklinga, og
njóti listarnir nógu mikils stuðnings
verður þeim úthlutað þingsætum í
hlutfalli við atkvæðafylgið.
„Hvers vegna vitum við ekkert
um konurnar sem eru í framboði?
Hvers vegna fáum við aðeins lista
og tölur, en fáum ekki að vita hverj-
ir eru á þeim?“ spurði kona á einum
af örfáum fundum sem kven-
frambjóðendurnir hafa haldið í
Bagdad.
„Það er synd að konur skuli ekki
þora að taka þátt í stjórnmálunum,“
svaraði einn kvenframbjóðendanna,
Songul Chapouk. „Írak er núna
frjálst land. Ég veit að ástandið í ör-
yggismálum er slæmt en við verðum
að taka því sem að höndum ber og
grípa þetta frábæra tækifæri.“
Í kosningunum er mikið í veði
fyrir konur vegna þess að þingið á
að semja nýja stjórnarskrá.
Í Írak hafa lengi verið í gildi lög
sem kveða á um jafnrétti kynjanna
og veita konum m.a. rétt til að
kjósa, ganga í skóla, erfa eignir, auk
réttinda á ýmsum sviðum fjöl-
skyldulífsins. Trúarleg afturhaldsöfl
reyndu í fyrra að afnema sum af
þessum réttindum kvenna og vildu
auka vald klerka í málum sem varða
hjónabandið, skilnaði, forræði yfir
börnum og erfðarétt. Litlu munaði
að þessi tilraun tækist og talið er að
afturhaldsöflin reyni þetta aftur á
þinginu.
Fá 25% þingsætanna
Í kosningalöggjöfinni er kveðið á
um að konur fái minnst 25% þing-
sætanna. Nokkrar þjóðþekktar kon-
ur voru því mjög eftirsóttar þegar
framboðslistarnir voru undirbúnir,
að sögn íraska fréttaskýrandans
Hassans Bazaz. Hann segir að
fimmtíu stjórnmálaflokkar hafi til
að mynda beðið vinkonu hans um að
fá að setja nafn hennar á lista
þeirra. Einn flokkanna, Óháðir
demókratar, losaði sig við konu
nokkra eftir að í ljós kom að hún
hafði skráð sig á tvo aðra framboðs-
lista.
Stærstu flokkarnir og kosninga-
bandalögin hrepptu flestar þeirra
kvenna sem hafa látið mest að sér
kveða í kvenréttindabaráttunni eða
gegnt embættum í bráðabirgða-
stjórninni. Þær eru þegar orðnar
þekktar og bjóða sig fram fyrir opn-
um tjöldum – umkringdar örygg-
isvörðum.
Sawsan Ali Sharifi, landbún-
aðarráðherra bráðabirgðastjórn-
arinnar, er helsti kvenframbjóðandi
listans sem Ayad Allawi forsætis-
ráðherra fer fyrir. Hún ræðir við
kjósendur, aðallega bændur, á ferð-
um sínum sem ráðherra. Að öðru
leyti einskorðast kosningabarátta
hennar við þaulskipulagða blaða-
mannafundi. Maysoon Damluji,
helsti kvenframbjóðandi Óháðra
demókrata, segist aðeins koma fram
á kosningafundum þar sem örygg-
isgæslan er eins mikil og kostur er.
„Ég get ekki gengið um göturnar,
ekki einu sinni í fylgd örygg-
isvarða,“ sagði Damluji, arkitekt
sem sneri aftur til Íraks fyrir tveim-
ur árum eftir 22 ára útlegð.
Að Damluji, Sharifi og nokkrum
öðrum stjórnmálakonum und-
anskildum veigra konurnar sér við
því að koma fram opinberlega.
Margar þeirra hafa sent fjölskyldur
sínar til annarra landa af ótta við að
ráðist verði á þær fyrir kosning-
arnar.
Rótgróin kvenréttindahreyfing
Ákvæðið um að konur fái minnst
25% þingsætanna er umdeilt í Írak.
Sumir hafa áhyggjur af því að
óþekktu konurnar, sem fá sæti á
þinginu, verði þar aðeins upp á
punt, án raunverulegra áhrifa.
Stuðningsmenn kvennakvótans
höfðu beitt sér fyrir því að allt að
40% þingsætanna væru ætluð kon-
um. Þeir segja kvótann nauðsyn-
legan til að konur geti náð fótfestu á
þinginu og spá því að þeim vaxi
smám saman ásmegin í stjórn-
málum landsins.
Kvenréttindahreyfingin er
rótgróin í Írak og varð til á þriðja
áratug aldarinnar sem leið. Í stjórn-
arskránni frá 1970 var kveðið á um
jafnrétti kynjanna á mikilvægum
sviðum en konur gegndu þó nánast
engum mikilvægum embættum á
valdatíma Saddams Husseins.
Konur hafa verið áhrifameiri í
írösku bráðabirgðastjórninni en
trúarlegu afturhaldsöflin hafa sótt í
sig veðrið. Konum, sem hafa beitt
sér fyrir auknum kvenréttindum,
hefur verið hótað lífláti. Kaupsýslu-
konan Zeena Qushtaini var myrt og
þegar lík hennar fannst var höfuðið
hulið klúti sem hún hafði neitað að
nota í lifanda lífi.
Fréttaskýring | Margar konur bjóða sig fram til þings í Írak en flestar þeirra halda framboðinu leyndu – jafnvel fyrir vin-
um sínum – af ótta við að þær verði fyrir ofbeldi ofstækismanna.
Margar konur
bjóða sig fram
– leynilega
Reuters
Nawal Abdel Rida, frambjóðandi í þingkosningunum í Írak, á blaðamanna-
fundi með nokkrum öðrum konum sem bjóða sig fram til þings.
’„Hvers vegna vitumvið ekkert um konurnar
sem eru í framboði?
Hvers vegna fáum við
aðeins lista og tölur, en
fáum ekki að vita hverj-
ir eru á þeim?“‘
ALLT að 31 bandarískur landgönguliði kann
að hafa látið lífið þegar herþyrla fórst í vest-
urhluta Íraks í gær. Verið var að flytja her-
menn frá 1. landgönguliðadeildinni þegar þyrl-
an fórst í slæmu veðri skammt frá landa-
mærum Jórdaníu laust eftir miðnætti
aðfaranótt miðvikudags.
Þá létu fjórir landgönguliðar lífið í átökum
við uppreisnarmenn í Al Anbar-héraði í vest-
urhluta Íraks. Að auki særðust fjórir land-
gönguliðar þegar skotið var á bandaríska bíla-
lest á veginum að alþjóðaflugvellinum í
Bagdad í gær.
Ekki er vitað hvað olli slysinu en að sögn
bandarísks liðsforingja var slæmt veður á
svæðinu. Að minnsta kosti sjö manns létu lífið í
þremur sprengjuárásum í borginni Riyadh,
skammt frá Kirkuk í norðurhluta Íraks í gær.
Þá réðust uppreisnarmenn á skrifstofur
stjórnmálaflokka og skóla, sem nota á sem
kjörstaði í þingkosningunum á sunnudag.
Yfir 30 landgöngu-
liðar fórust
Bagdad. AP.
UM 260 manns týndu lífi er mikil skelfing
greip um sig í fyrradag meðal hundraða þús-
unda manna í pílagrímsferð í Vestur-
Indlandi.
Allt að 400.000 manns voru samankomin í
og við hof uppi á hæð en talið er, að trúarleg
athöfn við hofshliðið hafi verið upphafið að
ósköpunum. Fólst hún í því að brjóta kókos-
hnetur en er fólkið þyrptist að, tróðust þeir
undir, sem fallið höfðu í hálli kókosmjólkinni.
Er þetta fréttist, brutust út óeirðir og var
þá kveikt í sölutjöldum við veginn upp á hofs-
hæðina. Í eldinum sprungu gaskútar með
miklum gný og varð það enn til að auka á
ringulreiðina. Voru það aðallega konur og
börn, sem tróðust undir, en sumir urðu eld-
inum að bráð.
Slys af þessu tagi eru ekki fátíð á Indlandi
en þetta er líklega eitt það mannskæðasta í
seinni tíð.
Um 260 tróðust
undir á Indlandi
Wai. AFP.