Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 15
ERLENT
SÉRGÓÐIR, bandarískir neytendur
geta skaðað efnahagslífið um allan
heim ef þeir halda áfram að líta á
heimili sitt, fasteignina, sem hrað-
banka, sem fjármagnað geti áfram-
haldandi kaupæði. Kom þetta fram í
gær hjá Stephen Roach, aðalhag-
fræðingi fjármálafyrirtækisins
Morgan Stanleys, á Heimsviðskipta-
ráðstefnunni í Davos í Sviss.
Roach sagði, að flest benti til
áframhaldandi hagvaxtar en hvað
Bandaríkin varðaði „hef ég annað-
hvort misreiknað mig illilega eða
ekki er allt sem sýnist“. Sagði hann,
að Bandaríkjamenn væru að verða
neytendur, sem notuðu verðmæti
heimila sinna sem grundvöll fyrir
meiri og meiri lántökum. Nú væri
hins vegar vaxandi hætta á, að fast-
eignaverðbólan spryngi með tilheyr-
andi lánsfjárskorti.
„Bandarískir neytandinn er yfir-
vofandi slys,“ sagði Roach.
Vextir verða að hækka
Roach sagði, að vextir í Bandaríkj-
unum yrðu að hækka, en það biði eft-
irmanns Alans Greenspans, sem
væri að búa sig undir að hætta sem
seðlabankastjóri.
„Eðlilegir vextir, sem við höfum
ekki séð í Bandaríkjunum lengi,
munu taka á ofneyslunni og hinum
mikilvæga innflutningsþætti
greiðslujafnaðarins,“ sagði Roach og
bætti við, að neytendur „kreistu fjár-
magnið“ út úr heimilum sínum til að
kaupa innflutning frá Asíulöndum,
sem aftur keyptu Bandaríkjadollara
til að halda vöxtum lágum og við-
halda kaupæðinu.
„Þetta er brjálæðisleg aðferð við
að stýra efnahagslífinu í heiminum.
Þið vitið það, við vitum það en banda-
ríski seðlabankinn lokar augunum
fyrir því.“
Breytingar í Evrópu
Ýmsir aðrir lýstu áhyggjum af
óhagstæðum greiðslujöfnuði í
Bandaríkjunum en sumir bentu á, að
hann stafaði meðal annars af því, að
vöxturinn í bandarísku efnahagslífi
væri meiri en í Evrópu þar sem alls
konar ósveigjanleiki héldi aftur af
honum. Það kom þó fram, að í Evr-
ópu væri ýmislegt að breytast í þess-
um efnum, til dæmis í Frakklandi og
Þýskalandi, og vegna samkeppninn-
ar við Austur-Evrópu hefði sam-
keppnisgeta vestur-evrópskra iðn-
fyrirtækja aukist. Lykillinn að meiri
hagvexti í Evrópu væri nú aukin
framleiðni í þjónustugreinum.
„Bandaríski
neytandinn er
yfirvofandi slys“
Hætta sögð á að bandaríska
fasteignaverðbólan springi
Davos. AFP.
Meira á mbl.is/ítarefni
JÓHANNES Páll II páfi hefur gagnrýnt stefnu hinnar
frjálslyndu ríkisstjórnar sósíalista á Spáni. Ráðamenn
þar syðra hafa svarað fyrir sig og minnt páfa á að trúin
tilheyri einstaklingunum en ekki ríkisvaldinu.
Páfi átti í vikunni fund með spænskum biskupum í
Róm. Þar vék hann að ýmsum ákvörðunum stjórnar sós-
íalista á Spáni og boðuðum breytingum sem margar
hverjar vísa til samfélagssýnar kaþólsku kirkjunnar.
Stjórn José Zapatero forsætisráðherra Spánar hefur
m.a. boðað að samkynhneigðum verði heimilað að ganga í
hjónaband þar syðra. Í ráði er að breyta trúfræðikennslu
í skólum landsins og stjórnvöld hvetja nú til þess að karl-
menn noti smokka til að stemma stigu við útbreiðslu al-
næmis. Þá stendur til að heimila stofnfrumurannsóknir,
gera hjónaskilnaði einfaldari í lagalegu tilliti auk þess
sem stjórnin hafði uppi áform um að rýmka fóstureyð-
ingarlöggjöfina sem raunar hefur nú verið slegið á frest.
Ýtt undir virðingarleysi
Á fundinum með biskupunum sakaði páfi sósíal-
istastjórnina um að grafa undan sambandi ríkisvalds og
kirkju en kaþólska kirkjan nýtur ákveðinnar sérstöðu
Spáni þó svo kveðið sé á um aðskilnað ríkis og trúar í
spænskum lögum. Að sögn spænska dagblaðsins El
Mundo sagði páfi að stjórnvöld ýttu undir þá afstöðu að
kirkja og ríki væru og ættu að vera tvö aðskilin fyrir-
brigði og að þessi hugmyndafræði myndi smám saman
hefta trúfrelsið og veikja siðferðisþrekið. Þetta myndi
aftur geta af sér ýmist virðingarleysi fyrir hinu trúarlega
eða þekkingarskort á því sviði. Spánn væri kristið land
og rætur kristninnar í samfélaginu yrðu ekki slitnar upp.
Í El Mundo kemur og fram að páfi hafi tjáð sig um ein-
stök stefnumál sósíalista, m.a. breytingar á trúfræðslu
og lýst sig andvígan þeim áformum.
José Bono, varnarmálaráðherra Spánar, brást við
gagnrýni páfa á þriðjudag. Bono er maður kaþólskur og
iðkar trú sína. Hann kvað ekki unnt að gagnrýna rík-
isstjórnina fyrir að grafa undan sambandi ríkis og kirkju.
„Trúin tilheyrir ekki ríkinu heldur einstaklingunum,“
sagði Bono. Hann vék að andstöðu páfa við notkun getn-
aðarvarna og kvaðst ekki fá skilið að synd fælist í því að
nota smokka. Hið sama kvað hann gilda um samkyn-
hneigð. „Væri Kristur á meðal vor í dag hefði hann meiri
áhyggjur af þeim 25.000 börnum sem deyja úr hungri
alla daga eða af þeim stríðum sem háð eru,“ sagði ráð-
herrann. Hann bætti við að sýndi eitthvert ríki Evrópu
kaþólsku kirkjunni meiri stuðning en Spánn vildi hann
gjarnan heyra af því.
Kirkjan og hinn samfélagslegi veruleiki
Skoðanakannanir leiða í ljós að meirihluti almennings
fellir sig ekki við margar af grundvallarkennisetningum
kirkjunnar. Þannig telja sjö af hverjum tíu Spánverjum
að leyfa beri hjónabönd samkynhneigðra. Tæp 80% karl-
manna á aldrinum 15–29 ára kveðast nota smokk. Um
80% Spánverja kveðast játa kaþólska trú en kirkjusókn
fer ört minnkandi einkum á meðal hinna yngri. Þá hafa
kannanir leitt í ljós að um 70% landsmanna telja kaþ-
ólsku kirkjuna ekki skynja hinn samfélagslega veruleika.
Páfi gagnrýnir
sósíalista
á Spáni
Reuters
Jóhannes Páll II páfi.