Morgunblaðið - 27.01.2005, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 17
MINNSTAÐUR
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
SELÁSHVERFI - HEIÐARÁS
Gott 336 fm einbýlishús á 2 hæðum
með innbyggðum bílskúr og 2 auka-
íbúðum á jarðhæð. Aðalinngangur á
efri hæð sem skiptist í: Flísalagða
fremri forstofu, hol, stofur með útgengi
á vestursvalir, eldhús og á sérgangi
eru 3 góð svefnherbergi og flísalagt
baðherbergi. Hringstigi til neðri hæðar
þar sem er stórt hobbý-herbergi og
þvottahús með útgengi í garð. Einnig
eru á neðri hæðinni 2 vel innréttaðar aukaíbúðir, báðar með sérinngangi. Sú
stærri er 3ja herbergja en hin 2ja herbergja. Skjólgóður suður- og vesturgarður
við húsið. Bílskúrinn er innbyggður í efri hæðina. Nýtingarmöguleikar hússins eru
margs konar, hvort sem væri ein, tvær eða þrjár íbúðir. Stutt er í alla þjónustu og
í útivistarsvæðin í Elliðaárdal, Víðidal, við Rauðavatn o.fl. V. 47,5 m. 3617
Minningarmót í skák | Helgina
11.–13. febrúar nk. halda Skákfélag
Akureyrar og Taflfélag Dalvíkur
minningarmót um Jón Björgvinsson,
sem lést á síðasta ári. Mótið fer fram
í KEA-salnum Sunnuhlíð og hefst kl.
19.30 með fjórum atskákum. Síðustu
þrjár umferðirnar eru kappskákir,
90 mínútur á 30 leiki og 30 mínútur
til að ljúka skákinni. Fimmta um-
ferðin hefst kl. 11 á laugardag og
sjötta umferð kl. 17 sama dag. Sjö-
unda og síðasta umferðin hefst kl. 11
á sunnudag. Heildarverðlaun eru 95
þúsund krónur og skiptast þannig:
1. verðlaun 40.000.-.
2. verðlaun 25.000.-.
3. verðlaun 15.000.-.
1800–2000 stig 5.000.-.
1799 stig og minna 5.000.-.
50 ára og eldri 5.000.-.
Einnig verða veittir eignabikarar
fyrir alla flokka, sem og önnur og
þriðju verðlaun. Þátttökugjald er kr.
1.500 fyrir fullorðna en frítt fyrir 15
ára og yngri. Hægt er að skrá sig á
heimasíðu félagsins sem er skák-
félag.is. Nánari upplýsingar veita
Gylfi Þórhallsson í síma 862-3820 og
Smári Ólafsson í síma 897-7874.
Skákmót | Janúarhraðskákmót
Skákfélags Akureyrar verður haldið
fimmtudaginn 27. janúar kl. 20 í
KEA-salnum Sunnuhlíð. Laug-
ardaginn 29. janúar fer fram sveita-
keppni barnaskólasveita á Akureyri
og nágrenni. Teflt verður í Íþrótta-
höllinni og hefst taflið kl. 13.00.
Sunnudaginn 30. janúar kl. 14. verð-
ur haldin í KEA-salnum Sunnuhlíð
sveitakeppni, hin svokallaða Ak-
ureyrardeild. Föstudaginn 21. jan-
úar var haldið 15 mínútna mót. Þátt-
takendur voru átta og sigraði Gylfi
Þórhallsson en hann hlaut 6 vinn-
inga.
STJÓRN Einingar-Iðju hef-
ur samþykkt að kaupa fjóra
potta sem verða við sum-
arbústaði á Illugastöðum í
Fnjóskadal.
Björn Snæbjörnsson for-
maður greindi á fundi stjórn-
arinnar frá hugmynd varð-
andi „pottvæðingu“ á
Illugastöðum þar sem ekki
er möguleiki á að setja upp
fleiri en sex potta vegna raf-
magnstakmörkunar. Hug-
myndin er að athuga hvort
ekki sé hægt að setja upp
rafmagnspotta við fjögur hús
félagsins. Á svæðinu er fyrir
einn pottur í húsi nr. 19 hjá
Félagi verslunar og skrif-
stofufólks á Akureyri og hef-
ur leigan aukist til mikilla
muna eftir að potturinn kom
á staðinn.
Eins og áður segir sam-
þykkti stjórnin að prófa
þetta og fól formanni að
ganga í málið.
„Pott-
væðing“
Sýning | Walk, er yfirskrift á sýn-
ingu sem þýski listamaðurinn Daneil
Gustav Cramer, sem nú dvelur í
Gestavinnustofu Gilfélagsins hefur
opnað í Samlaginu.
JAFNRÉTTIS- og fjölskyldu-
nefnd fjallaði um nýfallinn dóm
Hæstaréttar í máli Akureyrarbæj-
ar og Guðrúnar Sigurðardóttur
vegna launamismununar og fagn-
aði nefndin því að niðurstaða væri
fengin í málinu. Hæstiréttur stað-
festi dóm Héraðsdóms Norður-
lands eystra sem dæmt hafði Ak-
ureyrarbæ til greiðslu 3,7 milljóna
króna skaðabóta fyrir að brjóta
jafnréttislög á Guðrúnu sem
gegndi starfi deildarstjóra á fé-
lagsmálaskrifstofu bæjarins.
Í bókun jafnréttis- og fjöl-
skyldunefndar kemur m.a. fram að
niðurstaðan sé ljós og hafi for-
dæmisgildi á vinnumarkaði, kjara-
samningar réttlæti ekki kynbund-
inn launamun og unnt sé að meta
sambærileika ólíkra starfa með
starfsmati. Hjá Akureyrarbæ hafi
margt breyst til hins betra á und-
anförnum árum.
Í bókun meirihluta nefndarinnar
er ennfremur bent á að innleiddir
hafi verið sérstakir embættis-
mannasamningar sem æðstu
stjórnendur bæjarins taka laun
samkvæmt að undangengnu
starfsmati. Þá hafi Akureyrarbær
ásamt öðrum aðilum Launanefnd-
ar sveitarfélaga og viðsemjendum
innleitt kynhlutlaust starfsmats-
kerfi.
Þá er bent á að launamunur
kvenna og karla í íslensku sam-
félagi hafi ekki aðeins falist í
grunnlaunum heldur einnig yfir-
vinnugreiðslum.
Til að sporna við slíku sam-
þykkti bæjarstjórn fyrir skömmu
tillögu að sérstökum reglum um
yfirvinnugreiðslur þar sem kveðið
er á um að einungis verði greitt
fyrir unna yfirvinnu. Tillögur að
reglunum voru settar með það í
huga að auka gegnsæi launa og
jafnrétti kynja.
Jafnréttis- og fjölskyldunefnd
beinir því til stéttarfélaga og at-
vinnurekenda um allt land, í bókun
sinni, að vinna að því að leita leiða
til að koma í veg fyrir að kynbund-
inn launamunur geti myndast
vegna mismunandi kjarasamninga
eða annarra þátta og hvetur jafn-
framt til notkunar kynhlutlauss
starfsmats hvar sem því verður við
komið.
Þorlákur Axel Jónsson lagði
fram sér bókun á fundinum, þar
sem fram kemur að harma beri að
Akureyrarbær hafi enn á ný verið
dæmdur til þess að greiða starfs-
manni sínum skaðabætur vegna
brota á jafnréttislögum. Komið
hafi í ljós að málarekstur bæjarins
í jafnréttismálum undangenginna
ára hafi ekki verið byggður á hald-
bærum rökum.
Taka beri mið af þessari reynslu
í afgreiðslu sambærilegra mála
sem upp kunna að koma, segir
ennfremur í bókun Þorláks.
Jafnréttis- og fjölskyldunefnd
fjallaði um dóm Hæstaréttar
Kjarasamningar réttlæta
ekki kynbundinn launamun
NÝJAR höfuðstöðvar SBA-
Norðurleiðar á Hjalteyrargötu 10
hafa verið opnaðar formlega. Það
var Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, sem tók húsið í notkun
með því að aka nýjasta bíl fyrirtæk-
isins gegnum borða sem strengdur
var við einar af innkeyrsludyrum
fyrirtækisins.
Húsið var byggt árið 1969 sem
tollvörugeymsla og var síðar í eigu
Ölgerðar Egils Skallagrímssonar en
SBA keypti húsið síðastliði sumar.
Breytingar á því hafa staðið yfir frá
því í byrjun október á liðnu hausti,
innréttuð var starfsmannaaðstaða,
verkstæði, sprautuklefi og þvotta-
klefi auk breytinga sem gerðar voru
á skrifstofuálmu. Leggja þurfi viða-
mikið loftræstikerfi, dælukerfi fyrir
olíur, frárennsli og ýmislegt annað í
húsið og þá var hitalögnum komið
fyrir í gólfum og steypt í þau öll.
Húsið er alls um 1200 fermetrar að
stærð og lóð um 4000 fermetrar.
Í nýjum höfuðstöðvum sameinar
fyrirtækið starfsemi tveggja verk-
stæða á Akureyri og skrifstofur
sem voru á þriðja staðnum í bæn-
um. Umferðarmiðstöð verður áfram
við Hafnarstræti 82 en að auki rek-
ur SBA-Norðurleið verkstæði og
skrifstofu við Skógarhlíð í Reykja-
vík.
Hjá fyrirtækinu starfa 33 menn
en fjöldinn þrefaldast yfir sumarið.
Þá eru ótaldir leiðsögumenn, þannig
að á launaskrá yfir sumarmánuðina
eru hátt á annað hundrað manns.
Fyrirtækið á 55 bíla og gert er ráð
fyrir að um 60 bílar verði í rekstri
nú á komandi sumri. Í heild eru
2300 sæti í þessum flota samanlagt,
en hann hefur ekið um 2 milljónir
kílómetra á ári, þ.e. 50 hringi um
miðbaug og er olíunotkunin um 500
þúsund lítrar og farþegafjöldinn um
160 þúsund. Fjöldi fólks lagði leið
sína í hinar nýju höfuðstöðvar og
kynnti sér starfsemi fyrirtækisins
og öflugan bílaflota þess.
Nýjar höfuðstöðvar SBA-Norðurleiðar
Morgunblaðið/Kristján
Nýtt húsnæði Gestum SBA-Norðurleiðar stóð til boða að skoða ný og
glæsileg húsakynni fyrirtækisins, nýjustu fólksflutningabílana og svip-
myndir úr sögu fyrirtækisins.
Um 160
þúsund far-
þegar á ári