Morgunblaðið - 27.01.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 19
MINNSTAÐUR
Um hva› snúast stjórnmál?
Kynntu flér máli› í Stjórnmálaskóla Sjálfstæ›isflokksins í Valhöll
mánudags-, flri›judags- og fimmtudagskvöld frá 9. til 25. febrúar.
Valhöll
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
sími 515 1700
www.xd.is
Dagskráin ver›ur kynnt á heimasí›u Sjálfstæ›isflokksins, www.xd.is.
Skráning og nánari uppl‡singar í síma 515 1700/515 1777 og á netfangi disa@xd.is
- borgarmálin
- listina a› hafa áhrif
- flokksstarfi›
- menntun og menningarmál
- heilbrig›isfljónustu
- umhverfismál
- listina a› vera lei›togi
- efnahagsmál
- utanríkismál
- sjávarútvegsmál
Fyrirlestrar og umræ›ur, m.a. um
Ky ntu þ álið í Stjórnmálaskól Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
frá 31. janúar til 24. febrúar. Námskeiðið fer fram á þriðjudags- og
fimmtudagskvöldumen auk þeirra verða tvö mánudagskvöld
(tvær fyrri vikurnar) nýtt fyrir námskeiðið.
Bor r lin
listina að hafa áhrif
flokksstarfið
menntun og menningarmál
heilbrigðisþjónustu
ferða- og samgöngumál
listina að vera leiðtogi
efnahagsmál
umhverfismál
utanríkismál
sjávarútvegsmál
sjónvarpsþjálfun
Dagskráin er á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is á hnapp Stjórnmálaskólans.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 515 1777/515 1700, einnig á netfangi disa@xd.is
ÚTSALA
50% afsláttur af öllum vörum
v/Laugalæk • sími 553 3755
Strandir | „Magnús hafði áhuga á
þessu, hann var alltaf með hugann
hér,“ segir Stefanía Jónsdóttir á
Þambárvöllum í Bitrufirði á Strönd-
um. Hún og Magnús Sveinsson, eig-
inmaður hennar, byggðu sé íbúðar-
hús og fluttu þangað í vetur úr
Reykjavík til að taka við búskapn-
um.
Stefanía er úr Kollafirði á Strönd-
um og Magnús frá Þambárvöllum.
Hann lærði blikksmíði og hefur búið
í Reykjavík í sautján ár og unnið við
iðn sína. Stefanía hefur einnig búið
fyrir sunnan í nokkur ár. Þau eiga
tvo syni, Guðjón Örn Steinarsson,
fjögurra ára, og Atla Rafn Magn-
ússon, sem verður tveggja ára í vor.
Þau ákváðu að flytja á heimaslóð-
irnar. Magnús byggði stórt íbúðar-
hús úr timbri á Þambárvöllum 2,
byrjaði á því í maí og þau fluttu inn í
nóvember. Um áramótin tóku þau
við meginhluta búsins af foreldrum
Magnúsar, Sveini Eysteinssyni og
Sigrúnu Magnúsdóttur.
Ætlaði aldrei að búa í sveit
„Þetta blundaði alltaf í mér. Ég
var hér í öllum fríum og keyrði oft
hingað um helgar til að aðstoða við
búskapinn,“ segir Magnús um
ástæðu þess að þau ákváðu að rífa
sig upp og flytja í sveitina. Hann
bætir því við að foreldrar hans séu
orðnir fullorðnir og nú hafi annað-
hvort verið að hrökkva eða stökkva.
„Ég er líka alin upp í sveit og
sagðist aldrei ætla að búa í sveit,“
segir Stefanía. Hún hefur einnig bú-
ið í Reykjavík og segist frekar hafa
viljað búa á Akureyri eða í ein-
hverjum bæ úti á landi. En hún er
komin í sveitina og lítur á björtu
hliðarnar. „Ég hef mömmu hérna
rétt hjá mér. Og svo verð ég að
reyna að rækta eitthvað hérna,“
segir hún.
„Það er alltaf ákveðin áhætta. En
ég hef trú á sauðfjárræktinni. Marg-
ir bændur eru orðnir gamlir og ég
reikna með að það verði mikil hag-
ræðing og endurnýjun í stéttinni á
næstu árum,“ segir Magnús. Hann
er með tæplega 500 fjár á fóðrum í
vetur og hyggst stækka búið. Stefn-
ir að því að ná fljótlega 600 kinda
markinu og láta þar við sitja til að
byrja með. Hann segir að mörg stór
bú séu á Ströndum, með 600 til 700
vetrarfóðraðar ær, og telur að
menn komist vel af.
Stefanía segir að ekki séu miklir
möguleikar fyrir sig á að stunda
vinnu utan heimilis. Hún hefur
áhuga á að fá börn frá Félagsmála-
stofnun í Reykjavík og leyfa þeim að
kynnast sveitalífinu. Segist hafa
heimtað og fengið aukaherbergi í
nýja húsinu til að nota í þeim til-
gangi, ef til kæmi.
Fyrsta húsið í tuttugu ár
Magnús ætlar að einbeita sér að
búskapnum. Segist væntanlega ekki
neita blikksmíðavinnu ef um það
yrði beðið en það vanti vélarnar til
þess að hægt væri að gera það af
einhverri alvöru.
Það vekur óneitanlega athygli
vegfarenda um veginn um Strandir
þegar þar sjást framkvæmdir.
Magnús og Stefanía telja að ekki
hafi verið byggt nýtt sjálfstætt íbúð-
arhús á þessu svæði í rúm tuttugu ár
og flest útihúsin voru byggð fyrir
þrjátíu árum.
Í Bitrufirði er fullorðið fólk á
flestum bæjum en mikil endurnýjun
hefur aftur á móti orðið í næstu
sveit, Bæjarhreppi í Hrútafirði.
„Það sem kom okkur hingað, fyrir
utan bjartsýnina, er að ungt fólk er
á flestum bæjum inni í Hrútafirði,“
segir Stefanía. Aðeins þrjú börn
voru orðin eftir í Broddanesskóla og
var hann lagður niður í haust og
börnunum ekið í skóla til Hólmavík-
ur. Annar skóli er á Borðeyri og
vonast Magnús og Stefanía til að
hann verði starfræktur áfram enda
séu börn að fæðast í skólahverfinu.
Þau reikna með að keyra börnin sín
þangað, þegar þar að komi. Of langt
sé að aka þeim til Hólmavíkur, þar
myndu þau þurfa að vera alla vik-
una og koma aðeins heim um helg-
ar.
Stefanía segir að gott sé að ala
börnin upp í sveit, þau séu frjáls.
Hún vann um tíma á leikskóla í
Reykjavík og Guðjón Örn var þar.
„Mér fannst frábært að vinna á leik-
skólanum og sá hvað gott er fyrir
börnin að vera þar. Eldri strákurinn
naut sín vel á leikskólanum, hann er
mikið leikskólabarn. En sá yngri er
meiri sveitastrákur,“ segir Stefanía.
Ungt bjartsýnisfólk flytur á heimaslóðirnar og byggir íbúðarhús á Ströndum til að hefja búskap
Annaðhvort að hrökkva eða stökkva
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Aftur á heimaslóðirnar „Ég var hér í öllum fríum og keyrði oft hingað um helgar til að aðstoða við búskapinn,“
segir Magnús, sem flutti að lokum aftur á Strandirnar með Stefaníu og sonum þeirra, Atla Rafni og Guðjóni Erni.
LANDIÐ
Siglufjörður | Sveit Eyjólfs Sig-
urðssonar frá Sauðárkróki sigraði
í sveitakeppni Norðurlands vestra
í brids sem haldin var í Siglufirði
um sl. helgi. Sveitin háði harða
baráttu við sveit Sparisjóðs Siglu-
fjarðar og varð lokastaðan sú að
sveit Eyjólfs hlaut 108 stig af 125
mögulegum en sveit Sparisjóðsins
endaði með 107 stig.
Í sigursveitinni eru Eyjólfur
Sigurðsson (lengst til vinstri), Jón
Örn Berndsen, Ásgrímur Sig-
urbjörnsson, Ágúst Sigurðsson,
Ólafur Sigmarsson og Guðni
Kristjánsson.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Sauðkrækingar
sigursælir í brids