Morgunblaðið - 27.01.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.01.2005, Qupperneq 21
MEÐAN þoturnar hafa viðdvöl og skipt er um fraktpallana þurfa flugvirkjar að yfirfara ýmis atriði og auk þess fylgjast þeir með að eldsneyti sé bætt á þær í samvinnu við flugvélstjórann. Hrannar Sig- urðsson hefur bækistöð sína í Kuala Lumpur en var á dögunum send- ur í vikutíma til Kína til að leysa af samstarfsmann. „Við skoðum ýmis atriði á þotunum í svokölluðu dageftirliti, þ.e. þegar þær staldra lengst við á endastöð á hringferðum sínum eins og í þessu tilviki,“ segir Hrannar og á þar við þotu sem var í Hangzhou og átti að halda í 9 tíma flug til Dubai og þaðan áfram í nærri sex tíma til Amsterdam. Hrannar segist kunna vel við sig í Kuala Lumpur en þar eru 15 íslenskir starfsfélagar hans og nokkrir frá Malasíu. Hrannar hefur starfað í nærri fimm ár hjá Air Atlanta og verið í verkefnum í Englandi, Sádi- Arabíu og Nígeríu. Og á meðan Hrannar hugar að vélinni fer Mohamed Yusoff hleðslustjóri yfir alla pappíra og sér um að rétt sé raðað í búkinn á þotunni til að jafnvægi sé tryggt. Mohamed Yusoff, hleðslustjórinn frá Kuala Lumpur. Hrannar Sigurðsson flugvirki hefur aðsetur í Malasíu. Sinna margs konar eftirliti MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 21 FRÉTTIR mbl.is Föstudagur 7. janúar 2005 Forsíða Viðskipti Íþróttir Afþreying Fólkið AtvinnaFasteignir Gagnasafn Myndasafn MorgunblaðiðSmáauglýsingar Panta auglýsingu Upplýsingar um pantanir Spurt og svaraðBreyta netfangi Breyta lykilorði ...ódýrasta 300 kr. birtist í 7 daga mbl.is smáauglýsingin Frábært verð ódýrasta auglýsingin kostar 300 kr. Auðvelt að bóka þú getur pantað auglýsingu þegar þér hentar Auðvelt að leita tekur örskot að finna það sem leitað er að Vöktun þú færð tölvupóst eða SMS þegar rétti hluturinn finnst Vaktmappan geymir auglýsingar til frekari skoðunar mbl.isá www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Með kveðju. Sveinn, sími 695 9808. KÓPAVOGUR - RAÐ- EÐA PARHÚS Mér hefur verið falið að leita eftir rað- eða parhúsi í Kópavogi. Æskileg stærð 150–250 fm. Ríflegur afhendingartími sé þess óskað. Áhugasamir vinsamlegast hafi samband og ég mun fúslega veita nánari upplýs- ingar. Tvær til þrjár frakt-þotur Air Atlantaá dag og uppí tíuá dag fara um flugvellina í Dubai og Sharjah í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum til borga í Evrópu og Asíu. Í Dubai er stór fraktmiðstöð og alþjóðleg vörumiðlun og eru vörur sendar þaðan í allar áttir. Stór hluti af fraktflugi sem Atlanta sinnir fyrir önnur flugfélög fer um Dubai. Grikkinn Panagiotis Nikolaidis, oftast kallaður Takis, er stöðvarstjóri Atlanta í Dubai og hefur starfað frá félag- inu um árabil, fyrst á upphafs- árunum og kom svo aftur til liðs við fyrirtækið fyrir rúmum ára- tug. Hann er því öllum hnútum kunnugur í flugrekstri og hefur verið stöðvarstjóri frá 1996, m.a. í pílagrímafluginu. „Stöðin hér er einkum miðstöð fyrir áhafnir og hlutverk okkar er að sjá um að öll mönnun flug- vélanna gangi upp, afgreiða vél- arnar og stýra hleðslu þeirra,“ segir Takis. Hann segir að frakt- þotur Atlanta fljúgi frá Dubai og Sharjah fyrir Luftansa, Malasia Airways eða MASKargo, Carglux og Cathay Pacific. Áfangastað- irnir eru í Evrópu Amsterdam, Frankfurt og Manchester og í austurveg halda vélarnar til Kuala Lumpur, Shanghai, Hong Kong, Bankok, Japans og Ástr- alíu og fleiri staða í einum áfanga eða fleirum. Miðstöð 50–60 flugmanna Með Takis starfa þrír aðrir á skrifstofunni þar sem allir þræðir fara um, auk aðstoðarmanns. Hann segir fulla þörf á að bæta einum við. Þá starfa þrír flug- virkjar við svonefnt línuviðhald, þ.e. að fara yfir ákveðna hluti í þotunum meðan á viðdvöl stendur, sem oft er ekki nema tveir til þrír tímar. Um leið er þá verið að umskipa frakt ef á þarf að halda, bæta við eldsneyti og ganga frá allri pappírsvinnu. Milli 50 og 60 flugmenn hafa miðstöð í Dubai, þ.e. þar dvelja þeir nokkrar vikur í senn og halda þaðan ýmist til Evrópu eða Asíu og til Bandaríkjanna ef svo ber undir. Á skrifstofu Air Atlanta í Dubai er fylgst með hverri hreyfingu vélanna sem fara um Dubai í tölvukerfi fyrirtækisins. Um leið og vél fer af stað t.d. frá Evrópu er brottfarartíminn settur inn í kerfið og þar með er kominn nokkuð nákvæmur komutími til Dubai. Jafnframt sýnir kerfið hvernig staðan er á flugmönn- unum sem hafa miðstöð í Dubai, þ.e. hvenær tími er kominn á hin reglulegu hæfnispróf og svo framvegis. Morgunblaðið/jt Tvær til tíu þotur á dag um Dubai og Sharjah Panagiotis Nikolaidis er oftast kallaður Takis en hann er stöðvarstjóri í Dubai.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.