Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 25
NEYTENDUR
BÓNUS
Gildir 27.–30. jan. verð nú verð áður mælie. verð
Freschetta pítsur, 400 g ....................... 279 399 697 kr. kg
Rifflaðar franskar ................................. 149 159 149 kr. kg
Bónus kolsýrt vatn, 2 ltr ........................ 89 99 45 kr. ltr
Bónus ís, 2 ltr ...................................... 199 299 100 kr. ltr
Bónus golden jasm. hrísgrjón, 4x100 g.. 99 nýtt 248 kr. kg
Bónus golden jasmine hrísgrjón, 2 ltr..... 259 nýtt 130 kr. kg
Blik uppþvottalögur, 500 ml ................. 59 59 118 kr. ltr
Mc handsápur, 500 ml......................... 89 99 178 kr. ltr
Emmess vanillustangir, 10 stk............... 259 285 26 kr. stk.
Bónus múslí ........................................ 199 259 199 kr. kg
HAGKAUP
Gildir 27.–30. jan. verð nú verð áður mælie
Holta ferskur kjúklingur, 1/1 ................. 396 695 396 kr. kg
Kjötb. lambalærissneiðar...................... 1.109 1.479 1.109 kr. kg
SS lambalæri, frosið ............................ 799 1.128 799 kr. kg
Rauðvínslegin helgarsteik ..................... 1.021 1.458 1.021 kr. kg
Ýsubitar frá Fjörfiski, roð-/beinlausir ...... 399 499 399 kr. kg
Chicago T. örbylgjuostapítsa, 340 g ....... 399 499 1.173 kr. kg
Ís ársins 2005 frá Kjörís ....................... 399 489 399 kr. ltr
NETTÓ
Gildir til 27.–30. jan. m. birgðir endast verð nú verð áður mælie.verð
Náttúru pítsa margarita, 300 g.............. 199 149 497 kr. kg
Náttúru pítsa pepperoni, 400 g ............. 199 149 373 kr. kg
Náttúru pítsa skinka, 350 g .................. 199 149 426 kr. kg
Iceberg (jöklasalat).............................. 299 199 199 kr. kg
Sveppir, box ........................................ 196 159 636 kr. kg
Svið frá Goða, verkuð ........................... 499 299 299 kr. kg
Nettó ofnsteik...................................... 1.349 899 899 kr. kg
Eldfugl kjúkl.borgarar + brauð, 2 stk. ..... 310 199 100 kr. stk.
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 27.–30. jan. verð nú verð áður mælie. verð
Kjúklingur frá Ísfugli, 1/1 ...................... 289 369 289 kr. kg
Ýsubitar roðlausir/beinlausir ................. 461 769 461 kr. kg
Ferskar kjúklingabringur, Íslandsfugl ...... 1.377 2.295 1.377 kr. kg
Ofnsteik með dönskum blæ .................. 1.105 1.579 1.105 kr. kg
Appelsínur .......................................... 89 169 89 kr. kg
Vatnsmelónur ...................................... 99 159 99 kr. kg
Gular melónur ..................................... 99 149 99 kr. kg
Perur .................................................. 99 195 99 kr. kg
SPAR, BÆJARLIND
Gildir til 1. feb. verð nú verð áður mælie. verð
Ungnautahakk úr kjötborði.................... 698 987 698 kr. kg
Toro Mexíkanskur pottréttur, 193 g ........ 198 225 1026 kr. kg
Lambasvið, frosin ................................ 399 498 399 kr. kg
Nautahamborgarar frosnir, 10x80 g....... 499 899 50 kr. stk.
Crispy kruður, 100 g............................. 69 89 690 kr. kg
Kelloggs Special K, 750 g + snyrtitaska . 489 Nýtt 652 kr. kg
Holger bruður, fínar/grófar 400 g .......... 148 184 370 kr. kg
AB-mjólk án bragðefna ½ ltr ................. 79 91 158 kr. ltr
AB-mjólk bragðbætt, 4 teg., ½ ltr .......... 125 139 250 kr. ltr
ÞÍN VERSLUN
Gildir 27. jan.–2. feb. verð nú verð áður mælie. verð
SS bjúgu............................................. 454 568 454 kr. kg
SS brauðskinka ................................... 1.390 1.738 1.390 kr. kg
Breskar morgunverðarpylsur.................. 798 998 1.798 kr. kg
Ora lúxuskryddsíld, 220 g..................... 179 234 805 kr. kg
Forsoðnar kartöflur ............................... 329 398 329 kr. kg
Þykkvabæjar kartöflumús, 600 g ........... 319 387 510 kr. kg
Egils pilsner, ½ ltr ................................ 49 89 98 kr. ltr
Cheerios, 567 g................................... 299 359 508 kr. kg
Helgarsteik og grænmeti
HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is
Ingileif Gunnarsdóttir og Magn-ús Valsson fara í búðina áhverjum degi því þeim finnst
best að vera alltaf með nýtt græn-
meti og nýja ávexti á borðum. Þau
kaupa mest inn í Bónus en fara þó
einnig í Samkaup. Þegar matar-
karfan þeirra var skoðuð fóru inn-
kaupin fram í Bónus. „Mér finnst
þetta góð verslun,“ segir Ingileif.
„Hér er lægra vöruverð og góð þjón-
usta. Oftast er allt til sem okkur
vantar og mér finnst vöruúrval hafa
aukist. Það eina sem pirrar mig svo-
lítið er að komast ekki í búðina fyrir
hádegi því hún er ekki opnuð fyrr en
klukkan 12.“
Hann er snilldarkokkur
Ingileif rekur hárgreiðslustofuna
Heiðu í Borgarnesi og vinnur oftast
lengur en Magnús, sem er inn-
kaupastjóri hjá Norðuráli á Grund-
artanga. Matarinnkaupin lenda því
oftast á Magnúsi. „Svo er hann líka
snilldarkokkur og eldar mun oftar
en ég,“ segir Ingileif. Annars ríkir
jafnrétti og bræðralag í eldhúsinu.
Þau eru þrjú í heimili núna, önnur
dóttirin er flutt að heiman. Auk þess
eru bæði hundur og köttur á heim-
ilinu. Það sést í matarkörfunni því
þar er bæði hunda- og kattamatur.
Ingileif segir að hægt sé að taka
dæmi um að vöruverð hafi heldur
lækkað af dós af hundamat. Fyrir
fáum árum keypti hún hana á yfir
100 krónur en nú er hún á um 80
krónur. Matarinnkaup þeirra hjóna
hafa breyst á undanförnum miss-
erum eftir að Ingileif byrjaði í
dönskum vigtarkúr. Þar er mikil
áhersla lögð á grænmeti og ávexti.
„Eftir að hafa verið í þessu í fimm
mánuði missti ég taktinn í sum-
arfríinu í fyrra. Ég fór þó aldrei al-
veg í sukkið,“ segir hún. „Nú er ég
að reyna að ná mér á strik aftur.“
Fiskur og kjúklingur oft í viku
Það vekur því athygli að hún setur
stóran kassa af Cocoa Puffs í körf-
una. „Við erum að fara til Danmerk-
ur og ætlum að færa frænku minni
þetta því það fæst ekki þar.“ segir
hún. Þau Magnús og Ingileif ætluðu
að hafa lifur í matinn, en hún fékkst
ekki þennan dag. Þau ákváðu því að
kaupa frosin, roð- og beinlaus fisk-
flök í staðinn. Þau segjast borða
mikinn fisk og eftir að kjúklingur
lækkaði í verði er hann á borðum
tvisvar til þrisvar í viku. Í mat-
arkörfunni eru ávextir og grænmeti
mest áberandi, en einnig kolsýrt
vatn og léttmjólk, egg og fleira. Þau
kaupa ávexti og grænmeti nánast
daglega og eru sammála um að létt-
ur matur fari vel í mann og Magnús
hefur tekið upp sömu matarvenjur
og eiginkonan. Dóttirin hefur þó ein-
staka sérþarfir í mat, eins og Ingileif
orðar það, en þá bjargar hún sér
bara og býr sér til pítsu eða það sem
HVAÐ ER Í MATINN? | Ingileif Gunnarsdóttir og Magnús Valsson
Kjúklingur og
fiskur í uppáhaldi
Það er ekki langt fyrir
þau Ingileif Gunnars-
dóttur og Magnús Vals-
son að skreppa út í búð.
Þau búa á Kjartans-
götunni í Borgarnesi og
rétt hjá þeim eru bæði
Samkaup og Bónus.
asdish@mbl.is
hana langar í. Þau hafa nammidag
einu sinni í viku og þá má borða sæl-
gæti og fá sér rjómasósur og slíkt.
Ingileif segir að eftir að hún fór að
borða lítið sælgæti og mikið af ávöxt-
um finni hún betur sæta bragðið af
ávöxtunum. Magnús segir að sér
finnist mest gaman að elda góðar
nautalundir og finnist þær besti
maturinn. Oftar hafi þau þó léttari
mat. Til dæmis þennan þægilega og
fljótlega kjúklingarétt:
Kjúklingaréttur
Magnúsar
Kjúklingabringur
paprika, sveppir, laukur, hvítkál
eða blómkál
hrísgrjón
Montreal Steak-krydd
chilipipar (ferskur eða í duftformi)
sítrónupipar
Kjúklingabringurnar eru skornar
í bita og brúnaðar á pönnu. Paprika,
sveppir, laukur, hvítkál, blómkál eða
annað sem til er í ísskápnum létt-
steikt á pönnu.
Hrísgrjón soðin. Öllu blandað
saman í eldfast mót, kryddað með
sítrónupipar, Montreal Steak-kryddi
og örlitlum chilipipar, annaðhvort í
duftformi eða smátt söxuðum fersk-
um. Bakað í ofni í 20–25 mínútur.
Gott að bera fram með hvítlauks-
brauði.
Í stað þess að hafa lifur var eld-
aður fiskur þegar heim var komið
þetta kvöld.
Fiskur með grænmeti
Fiskflök eru lögð í blöndu af soja-
sósu, sítrónusafa úr ½ sítrónu, karríi
og sítrónupipar og látin liggja í hálf-
tíma. Tvær teskeiðar af olíu eru hit-
aðar á pönnu og grænmeti sem
keypt var og til var í ísskápnum að-
eins svitað. Fiskurinn lagður ofan á.
Lokið sett á pönnuna og slökkt undir
þannig að bæði fiskurinn og græn-
metið er eiginlega gufusoðið.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Ingileif Gunnarsdóttir og Magnús Valsson fara helst daglega út í búð því þau vilja hafa grænmetið sem ferskast.
Morgunblaðið/Jim Smart
ALLT fuglakjöt sem er á
markaði í Danmörku verður
frá og með 1. júní nk. að
merkja með ráðum um
hvernig á að meðhöndla það
til að fyrirbyggja sýkingar af
völdum hugsanlegra bakt-
ería, að því er fram kemur á
vef Berlingske Tidende. Um
er að ræða bæði danskt
fuglakjöt og innflutt. Dansk-
ir framleiðendur hafa
löngum merkt kjötið á þenn-
an hátt en það verður nú
skylda.
Hér á landi er gerð krafa
um sérstaka merkingu á um-
búðir um hráa kjúklinga en
ekki hefur verið gerð krafa
um að setja fram leiðbein-
ingar um hitastig í mat-
reiddum kjúklingi eða leið-
beiningar um hvenær hann
er fullsteiktur, að sögn Elín-
ar Guðmundsdóttur, for-
stöðumanns matvælasviðs
Umhverfisstofnunar. Ís-
lenska reglugerðin um þetta
efni kveður á um að á um-
búðir alifugla og afurða
þeirra skuli skrá leiðbein-
ingar um meðhöndlun og
matreiðslu. Á merkingunum
koma eftirfarandi leiðbein-
ingar fram:
Blóðvökvi á ekki að kom-
ast í aðra matvöru eða
áhöld.
Látið frosið fuglakjöt
þiðna í umbúðunum.
Gætið að hreinlæti.
Kjötið skal vel steikt eða
soðið.
Mikilvægustu ráðin til að
koma í veg fyrir sýkingar
eru skv. vef Berlingske að
steikja kjötið í gegn, þ.e. upp
í 75°C. Kjötið á að losna frá
beini og safinn sem rennur
úr því að vera glær.
MATUR
Skyldu-
merkingar
um með-
höndlun
fuglakjöts