Morgunblaðið - 27.01.2005, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 kút, 4 hattkollur,
7 loðskinns, 8 skrifum, 9
frístund, 11 sterk, 13 fugl,
14 ólyfjan, 15 grobb, 17
litla grein, 20 handlegg,
22 áhöldin, 23 tré, 24 star-
ir, 25 gegnsæir.
Lóðrétt | 1 leyfir, 2 blíðu-
hótum, 3 halarófa, 4 um-
gerð, 5 sjaldgæf, 6 lofar,
10 mannsnafn, 12 virði, 13
sómi, 15 formum, 16 ber,
18 fjallsnef, 19 ræktuð
lönd, 20 flanir, 21 máttur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 stórlátur, 8 lokum, 9 æfing, 10 urð, 11 gramm, 13
innir, 15 fjörs, 18 eflir, 21 pól, 22 undra, 23 leggs, 24 inn-
gangur.
Lóðrétt | 2 takka, 3 rómum, 4 áræði, 5 urinn, 6 slag, 7 Æg-
ir, 12 mör, 14 nef, 15 fauk, 16 öldin, 17 spaug, 18 ellin, 19
lygnu, 20 risi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Samband við foreldra eða aðra valdhafa
er stirt í dag. Svo virðist sem enginn vilji
sýna samstarfsvilja. Hvað er um það að
segja? Er ekki bara best að halda friðinn?
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sýndu aðgát og sparsemi við gerð ferða-
áætlana í dag. Farðu vel yfir allt, jafnvel
tvisvar, og ekki ganga að neinu vísu. Mál-
efni tengd útgáfu og menntun þarfnast
líka yfirferðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn í dag er ekki góður til þess að
biðja einhvern um lán eða falast eftir ein-
hverju. Það er eins og umheimurinn sé í
nískukasti, ekki búast við neinu, þá verð-
ur þú ekki fyrir vonbrigðum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Samskipti við ástvini eru eilítið fjarlæg
og stirð í dag og tjáskipti dálítið þvinguð.
Ekki búast við of miklu meðan þetta
ástand varir, slakaðu frekar á.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er best fyrir þig að vinna bara í ein-
rúmi í dag. Bíddu með það að kynna nýj-
ar hugmyndir fyrir samstarfsfólki.
Traust og vinátta eru af skornum
skammti núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Tilhugalífið gæti valdið þér vonbrigðum í
dag. Vegir ástarinnar reynast oftar en
ekki holóttir og viðsjárverðir. Það á
reyndar við í lífinu öllu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú verður hugsanlega fyrir vonbrigðum
því eitthvað sem þú ætlaðir að kaupa fyr-
ir heimilið er annaðhvort ekki til eða allt
of dýrt. Kannski þarftu að vera eilítið
raunsærri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Stemmningin er breytileg hjá fólki, rétt
eins og veðurfarið. Ekki taka það til þín
ef einhver virðist þóttafullur eða óvin-
gjarnlegur. Það líður hjá.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Viðhorf þitt til peninga ætti að vera nokk-
uð jarðbundið í dag. Þetta er ekki góður
dagur til þess að kaupa eitthvað án um-
hugsunar eða af léttúð. Kauptu eitthvað
hagnýtt, sem endist lengi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki hafa áhyggjur af því hvað aðrir eru
að hugsa. Málið er að þú ert með full-
komnunaráráttu og fullkomnun er
óhugsandi. Sýndu sjálfri þér miskunn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú lærir sitthvað nytsamlegt ef þú gætir
þess að fá að vera í einrúmi í dag. Einvera
er stundum uppspretta nýrra uppgötv-
ana, það er eins og þær hafi marað í hálfu
kafi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki láta vini þína valda þér vonbrigðum
í dag. Kannski að einhver verði fyrir von-
brigðum með þig. Misskilningur milli ást-
vina er alger tímasóun, reyndar.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vatnsberi
Afmælisbarn dagsins:
Þú sýnir snilldartakta á stundum og
þykir skýr, skörp og barnslega einlæg
manneskja. Hæfileikar þínir gera oft
vart við sig á unga aldri. Þú hefur unun
af því að vera í takt við tímann.
Frelsi þitt er þér mikilvægt.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Café Kulture | Beggi í Mood spilar á Café
Kulture, Hverfisgötu 18. Leikið verður frum-
samið efni í bland við hefðbundinn blús.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22. Frítt inn.
www.aripall.com/mood.
Gaukur á Stöng | Skátar, Reykjavík og Jan
Mayen spila til að safna peningum vegna
væntanlegrar utanfarar sveitanna. Mæting
er kl. 22 og kostar 300 kr. inn.
Skemmtanir
Kaffi Sólon | Hreimur og Vignir á efri hæð
Kaffi Sólons. Dj Andrés á neðri hæð.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí 101 | Egill Sæbjörnsson – Herra
Píanó & Frú Haugur.
Gallerí Humar eða frægð! | Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir sýnir vídeóverk.
Gallerí i8 | Finnur Arnar – ýmis myndverk.
Gallerí Sævars Karls | Hulda Vilhjálms-
dóttir – Hver er að banka á hurðina?
Kannski barnið í landslaginu?
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós-
myndir, skúlptúra, teikningar og myndbönd.
Sigríður Salvarsdóttir í Vigur sýnir listaverk
úr mannshári í Boganum. Sýningin stendur
til 13. mars.
Hafnarborg | Rafmagn í 100 ár. Svart á
hvítu, þrívíð verk, málverk, teikningar og
grafík eftir íslenska og erlenda listamenn í
Sverrissal og Apóteki. Sigrún Guðmunds-
dóttir er myndhöggvari janúarmánaðar.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk í forkirkju Hallgrímskirkju.
Hrafnista, Hafnarfirði | Tryggvi Ingvarsson
rafvirkjameistari sýnir útsaum og málaða
dúka í Menningarsal, fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kling og Bang gallerí | Heimir Björgúlfsson
– Alca torda vs. rest.
Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð-
ardóttir – Landslagsverk.
Listasafn ASÍ | Valgerður Guðlaugsdóttir –
Á skurðarborði Augans.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Birgir
Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur
myndröðum, Snertingum og Ljóshærðum
starfstéttum. Elías B. Halldórsson – Olíuljós.
Verk úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á
neðri hæð.
Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn-
laugsdóttir – Mátturinn og dýrðin, að eilífu.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórður
Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar. Bjargey
Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit mitt ekki
blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian Griffin –
Áhrifavaldar.
Nýlistasafnið | Hlynur Helgason – Gengið
niður Klapparstíg. Carnal Knowledge.
Slunkaríki | Ívar Brynjólfsson – Bardaga-
vellir.
Thorvaldsen Bar | Kristín Tryggvadóttir
sýnir samspil steina, ljóss og skugga.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Sören
Solsker Starbird – Er sálin sýnileg?
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson er
myndlistarmaður mánaðarins. Yfirlitssýn-
ing á verkum Braga í veitingastofu og í kjall-
ara.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýningaröðin Tón-
listararfur Íslendinga. Kynntar eru nýjar
rannsóknir á tónlistararfinum og útgáfa
efnis á geisladiskum. Fyrsta sýningin fjallar
um Silfurplötur Iðunnar sem Kvæðamanna-
félagið Iðunn og Smekkleysa gaf nýlega út
á 4 geisladiskum ásamt riti.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýningin
Þjóð verður til – menning og samfélag í
1200 ár. Opið frá kl. 11–17.
Fundir
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur kl. 17 að
Háaleitisbraut 58–60. Fundurinn er í umsjá
Sveinbjargar Arnmundsdóttur.
Sel-Hótel – Mývatn | Sjálfstæðisflokkurinn
heldur stjórnmálafund kl. 20. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverf-
isráðherra og Halldór Blöndal forseti Al-
þingis.
SÍBS-deildin | Vífilsstöðum. Félagsfundur
er í kvöld kl. 20, í samkomusal Múlalundar,
Hátúni 10. Ávarp flytur Gunnar Helgason
formaður deildarinnar og erindi flytur Sóley
Ingadóttir hjúkrunarfræðingur. Fundarstjóri:
Ögmundur H. Stephensen.
Fyrirlestrar
Askja – Náttúrufræðihús HÍ | Sigríður
Matthíasdóttir sagnfr. heldur fyrirlesturinn
„Um einstaklingseðli kvenna. Karlar og við-
horf til kvenréttinda á Íslandi um aldamótin
1900.“ Aðgangur ókeypis.
Háskóli Íslands | Britta Olinder, formaður
Svíþjóðardeildar Norræna félagsins um
kanadísk fræði, flytur fyrirlestur um mynd-
birtingar af Kanada í skáldverkum þriggja
kanadískra skáldkvenna í boði hugvís-
indadeildar HÍ og Íslandsdeildar Norræna
félagsins um kanadísk fræði kl. 16.15 í stofu
111 í Aðalbyggingu.
Raunvísindadeild HÍ | Ríkharður Fr. Frið-
riksson heldur meistaraprófsfyrirlestur við
jarð- og landfræðiskor raunvísindadeildar
HÍ kl. 17 í Öskju. Fyrirlestur Ríkharðs nefnist
Úrkomuleiðréttingar byggðar á snjómæl-
ingum og fjallar um notkun snjómælinga til
leiðréttingar á hefðbundnum úrkomumæl-
ingum.
Kynning
Maður lifandi | Ókeypis ráðgjöf um notkun
hómópatíu kl. 13–15. Kristín Kristjánsdóttir
hómópati aðstoðar og svarar spurningum.
Málstofur
Seðlabanki Íslands | Málstofa verður haldin
kl. 15 í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli. Dr.
Edith Madsen flytur erindið „Modelling
heterogeneity and testing for units roots in
panels with a fixed time-series dimension.“
Málþing
Skipulagsstofnun | Málþing laugardaginn
29. jan. á Grand Hóteli, Sigtúni 3, Reykjavík
kl. 9–13, um samráð við skipulagsgerð og
mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Allir
eru velkomnir. Þátttaka tilkynnist á skipu-
lag@skipulag.is eða í síma 595 4100.
Námskeið
Mímir – símenntun | Námskeiðið sím-
svörun á ensku á vegum Útflutningsráðs og
Mímis – símenntunar, verður haldið 1. feb. kl.
14–16. Nemendur læra algengan orðaforða,
að taka á móti skilaboðum og að veita upp-
lýsingar á ensku. Ætlað einstaklingum með
nokkurn grunn í ensku. Verð: 3.700 kr.
Kennari: Caroline Nicholson. Skráning:
www.utflutningsrad.is.
Frístundir
Lindasafn | Lindasafn verður með opið
bókasafnið kl. 17–22, fyrir handavinnukonur
sem vilja koma saman. Bútasaumur og önn-
ur handavinna. Verið velkomnar í Lindasafn,
Núpalind 7 (2. hæð Lindaskóla). Sími
564 0621.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivistarræktin fer kl.
18 frá bílastæðinu þar sem Skógrækt-
arfélag Rvk var í Fossvogi og gengið vestur
með Öskjuhlíð, Nauthólsvík og út með
Skerjafirði að norðan út undir Ægisíðu.
Ferðin tekur rúma klukkustund. Allir vel-
komnir, ekkert þátttökugjald.
Þorrablót á Leirubakka í Landssveit 28.–
30. jan.
Jeppaferð í Kerlingarfjöll 28.–30. janúar nk.
Fararstjóri: Jón Viðar Guðmundsson.
Laugardalurinn | Stafganga í Laug-
ardalnum kl. 17.30. Gengið frá Laugardals-
lauginni. www.stafganga.is.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
BJÖRN Davíð Kristjánsson þver-
flautuleikari kemur fram á hádeg-
istónleikum í sal Tónlistarskóla
Garðabæjar í dag kl. 12.15. Tónleik-
arnir eru hluti af hádegistón-
leikaröð Tónlistarskóla Garðabæjar,
sem haldin er í janúar og febrúar í
tilefni af 40 ára starfsafmæli skólans
og er nú hálfnuð. Það eru fyrrum
nemendur og kennarar við skólann
sem koma fram á hádegistónleik-
unum.
Birni til undirleiks er Agnes Löve,
skólastjóri Tónlistarskóla Garða-
bæjar, sem leikur með á píanó. Á
tónleikunum verða flutt verk eftir
J.S. Bach, F. Poulenc og G. Fauré.
Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl.
12.15 og standa í u.þ.b. hálftíma. Að-
gangur er ókeypis á tónleikana og
allir velkomnir. Þá eru íbúar Garða-
bæjar, sem og starfsfólk fyrirtækja í
bænum, sérstaklega hvattir til að
mæta og njóta góðrar tónlistar.
Bach, Poulenc og
Fauré á hádegistón-
leikum í Garðabæ
TREGINN verður í algleymingi á Grand
rokki í kvöld kl. 22, þegar hljómsveitin
Tenderfoot og dúettinn Sviðin jörð stíga á
svið ásamt trúbadornum Láru.
Tenderfoot gáfu nýlega út plötuna
Without Gravity, en sveitin leikur óraf-
magnað og lágstemmt kántrí.
Dúettinn Sviðin jörð samanstendur af
frændunum Frey Eyjólfssyni og Magnúsi
Einarssyni, sem báðir starfa við dag-
skrárgerð á Ríkisútvarpinu og leika vand-
aða tónlist fyrir hlustendur, en Magnús
kenndi einmitt Frey á gítar og mandólín á
sínum tíma.
Tónlist Sviðinnar jarðar er að sögn
þeirra félaga tregafullt og drungalegt
kántrí og yrkisefnin eftir því. „Undirtitill-
inn á tónlistinni okkar er: Lög til að skjóta
sig við,“ segir Freyr Eyjólfsson. „Engin
von, ekkert ljós, aðeins sviðin jörð. Enda
eru jólin búin og ekkert nema vísareikn-
ingar og vandræði fram undan.“
Sviðin jörð stefnir nú að útgáfu plötu,
þar sem finna má þrettán frumsamin lög
eftir þá félaga, öll í tregafyllri kantinum.
„Við munum leika nokkur lög af þeirri
plötu í kvöld, en á miðvikudaginn í næstu
viku munum við hittast á Næsta bar og
leika fullt prógramm af ekta tregakántrí,“
segir Freyr og bætir við að þeir félagar fari
mjög hefðbundnar og troðnar slóðir í
kántrítónlist. „Þetta eru bara þrír hljómar
og sannleikurinn. Áhrifavaldur okkar er
númer eitt, tvö og þrjú Hank Williams og
svo allar gömlu góðu kántríhetjurnar.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Tregatónar á
Grand rokki