Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 52

Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik vann sinn fyrsta sigur á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Túnis í gærkvöld þegar það lagði slakt lið Kúveita að velli, 31:22. Íslend- ingar höfðu undirtökin allan tímann í leikn- um, en íslensku leikmennirnir gerðu sig seka um mörg mistök. Staðan í hálfleik var 17:12, en Kúveitar náðu að minnka muninn niður í tvö mörk. Íslendingar settu í gírinn undir lok- in og skoruðu fimm síðustu mörk leiksins. Einar Hólmgeirsson var atkvæðamestur ís- lensku leikmannanna með átta mörk. Íslenska liðið á frí í dag á HM en á morgun mætir það Rússum og myndi með sigri kom- ast í mjög vænlega stöðu í riðlinum. Morgunblaðið/RAX Arnór Atlason brunar hér að marki Kúveita í Túnis í gærkvöldi og fyrir aftan fylgist Einar Hólmgeirsson grannt með. Fyrsti sigurinn á HM JÁKVÆÐ gengisáhrif af háu hlutfalli erlendra skulda sjávarútvegsfyrirtækja í landinu vega upp tekjumissi þeirra af gengishækkun krón- unnar á árinu 2004, að mati Sigurgeirs Brynj- ars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Um mitt árið voru nærri 70% skulda sjávarútvegs- ins í erlendri mynt. Telur Sigurgeir að mikill hagnaður hafi orð- ið af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja á árinu 2004 sem byggist að verulegu leyti á geng- ishagnaði. Hins vegar segir hann framlegðina á hvert kíló sjávarafurða fara minnkandi milli ára og það sé áhyggjuefni. Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag kem- ur fram að gengisbreytingar krónunnar á síð- asta ári ættu ekki að hafa mikil áhrif á tekjur sjávarútvegsfyrirtækjanna á árinu vegna verð- hækkana á sjávarafurðum á sama tímabili. Sjávarútvegurinn Horfur á góðum hagnaði  Verð sjávarafurða/B1 MJÖG víðtækar þungatakmarkanir eru á veg- um landsins vegna mikilla hlýinda sem ekki sér fyrir endann á. Settar hafa verið á 10 tonna ásþungatakmarkanir á vegum í öllum lands- hlutum að Vestfjörðum og Suðurlandi undan- skildum. Tap Samskipa vegna þessara þungatak- markana nemur um 2 milljónum króna á dag að sögn Óskars Óskarssonar framkvæmda- stjóra innanlandssviðs Samskipa. Landflutn- ingar fyrirtækisins miðast við fullfermi, 49 tonn á bíl og tengivagni, en með þungatak- mörkunum verður að létta bílana niður í 44 tonn að heildarþyngd til að mæta kröfum um 10 tonna ásþunga. Þetta leiðir til þess að 5 tonn tapast á hvert æki og fjölga þarf ferð- unum sem hefur sinn kostnað í för með sér. Að sögn Sævars Inga Jónssonar deildar- stjóra umferðareftirlits Vegagerðarinnar hef- ur þurft að grípa til þungatakmarkana í jan- úarmánuði undanfarin ár vegna hlákutímabila og að því leyti sé ekki beinlínis um nýmæli að ræða. Til lengri tíma litið séu þó þungatak- markanir í janúar fátíðar því veturnir hér áður fyrr voru kaldari. Það hafi ekki verið fyrr en að vori sem árlegar þungatakmarkanir voru sett- ar þegar frost var að fara úr jörðu. Þungatakmarkanirnar að þessu sinni eru ótímabundnar og verða í gildi uns næst frystir, eða vatn rennur úr jarðvegi. Á meðan enn er klaki í jörðu hindrar hann frárennsli uppsafn- aðs vatns undir malbikinu með þeim afleið- ingum að mikið tjón getur orðið á slitlagi ef farið er á of þungum bílum um vegina. Um er að ræða takmarkanir sem bundnar eru við 10 tonna ásþunga og hefur bannið gífurleg áhrif á landflutninga þar sem flutningabílar eru margfalt þyngri en sem því nemur. Flutningafyrirtæki landsins hafa fengið sendar tilkynningar frá Vegagerðinni um þungatakmarkanir auk þess sem tilkynningum hefur verið komið á framfæri í fjölmiðlum. Tapa 2 milljónum á dag vegna þungatakmarkana ♦♦♦ ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, sótti slasaðan sjómann í bátinn Gideon sem var staddur um 135 sjómílur aust-suðaustur af Vest- mannaeyjum í gær. Skipstjórinn á Gideon, sem er íslenskur, hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og til- kynnti að einn skipverjanna, litháenskur maður, hefði slasast og óskaði eftir að hann yrði sóttur með þyrlu og fluttur á sjúkrahús. Talið var að maðurinn hefði hlotið opið beinbrot á læri. Sjómaður sóttur á haf út ♦♦♦ KB banki mun greiða 3,3 milljarða í arð til hluthafa en hagnaður bankans nam nærri 15,8 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta er ríflega tvöfalt meiri hagnaður en árið 2003 og rúmum milljarði meira en hæstu afkomuspár greiningardeilda bankanna gerðu ráð fyrir. Þessi góða afkoma sýndi sig í miklum við- skiptum með hlutabréf bankans í Kauphöll Íslands. Viðskiptin í gær námu 2,2 millj- örðum króna. Gengi bankans hækkaði um 1,9% í gær og er komið í 500 stig. Þess má geta að álíka mikil viðskipti, upp á tæpa tvo milljarða króna, urðu með bréf bankans dag- inn áður en uppgjörið var birt. „Ég er mjög sáttur við afkomuna á fjórða ársfjórðungi þótt ytri aðstæður hafi ekki ver- ið bankanum hagstæðar á einu helsta ein- staka markaðssvæði bankans, Íslandi. Niður- staðan sýnir að bankinn byggir á traustum tekjustoðum,“ sagði Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri KB banka um afkomuna. Greiningardeild Landsbankans mælir með yfirvogun á KB banka. Greiningardeildin bendir á að hreinar þóknanatekjur bankans námu 5,2 milljörðum í fyrra og jukust mikið á árinu. Þetta skýrist af stórum fyrirtækja- verkefnum. Vakin er athygli á að gengis- hagnaður hlutabréfa skýrist m.a. af erlendri hlutabréfaeign, auk þess sem innleystur hagnaður vegna sölu á 11% hlut í Baugi nam 1,3 milljónum. Á móti kemur gengistap vegna eignarhlutar bankans í Singer og Friedlander. Hreinar rekstrartekjur bankans jukust um nærri 17 milljarða milli ára og námu 48,6 milljörðum árið 2004. Þar af námu hreinar vaxtatekjur 18,9 milljörðum og jukust þær um átta milljarða milli ára, þ.e. munur á vaxtatekjum og vaxtagjöldum bankans. Mun- ar þar talsverðu innkoma danska bankans FIH í samstæðuna á miðju árinu. Útlán KB banka ríflega þrefölduðust frá árslokum 2003 til ársloka 2004 og námu þá 1,1 milljarði. Þetta er 71% af heildareignum bankans og jókst hlutfallið úr 63% árið 2003. KB banki greiðir 3,3 milljarða króna í arð  Hagnaður/B2 Bankinn hagnaðist um 15,8 milljarða í fyrra FRAKKLAND vann Bocuse d’Or-matreiðslukeppnina sem staðið hefur yfir í tvo daga í Lyon í Frakklandi. Íslenski keppandinn, Ragnar Ómarsson, lenti í 5. sæti en 24 þjóðir taka þátt í keppninni sem er frægasta einstaklingsmatreiðslukeppni heims. Sérstök verðlaun eru veitt fyr- ir besta fisk- og kjötréttinn og urðu Svíar hlutskarpastir í keppninni um fiskinn. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra afhenti verðlaunin í þeim flokki. Ferskur íslenskur skötuselur var notaður í keppninni og að sögn keppenda og dómara var um ein- staklega gott hráefni að ræða. Að sögn Árna var þetta einkar ánægjuleg niðurstaða og greini- legt að Norðurlöndin ásamt Frakklandi stæðu uppúr í mat- reiðslu í heiminum í dag. Finnar unnu verðlaun fyrir besta kjöt- réttinn en kjötið sem notað var í keppninni var danskt kálfakjöt. Að sögn Gissurar Guðmunds- sonar forseta klúbbs mat- reiðslumeistara á Íslandi og á Norðurlöndunum er niðurstaða þessarar keppni sú að matar- gerðarlistin sem slík hefur færst frá Mið-Evrópu til Norður- landanna. Gissur vildi koma á framfæri sérstöku þakklæti til Ragnars Ómarssonar og aðstoð- armanna hans og allra þeirra fjölmörgu sem staðið hafa að baki Klúbbi matreiðslumeistara svo þátttaka Íslands í keppninni gæti orðið að veruleika. Fyrstu sjö sætin röðuðust sem hér segir: Frakkland, Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Ísland, Aust- urríki, Finnland. Ísland í 5. sæti á Bocuse d’Or Morgunblaðið/Jón Svavarsson Árni Mathiesen afhenti verðlaun fyrir matreiðslu á skötusel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.