Morgunblaðið - 06.02.2005, Page 16
16 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
þúsund verkfræðingar. Alþjóðleg fyrirtæki
opna ekki aðeins verksmiðjur í Kína. Þau reka
þar einnig rannsóknarstofur og þróa nýjar
vörur.
Hin aukna velmegun í Kína sést greinilega
á myndum Sverris Vilhelmssonar ljósmynd-
ara frá Kína. Hann heimsótti forboðnu borg-
ina í Peking og fór á Kínamúrinn. Vitaskuld
minnir margt á gamla tíma og niður sögunnar
fylgir ferðalangnum, en klæðaburður almenn-
ings er orðinn fjölbreyttari en áður var og lit-
rík auglýsingaskilti, meðal annars frá vest-
rænum fyrirtækjum, hefðu verið óhugsandi
fyrir nokkrum árum.
Kína er enn lokað þjóðfélag og kínversk
stjórnvöld reyna til dæmis að hemja aðgang
hins almenna borgara að umheiminum á Net-
inu. Þegar ljósmyndarinn mundar vélina á
Torgi hins himneska friðar kemur tortrygginn
varðmaður og spyr hvort hann sé blaðamaður.
En tortryggnin í garð hins vestræna er á und-
anhaldi í efnahagsmálum.Kínverski risinn hef-
ur ekki aðeins rumskað, hann er kominn á
fulla ferð.
Neyslusamfélagið Litríkar auglýsingar blasa við á götu í Peking og vegfarendur ganga og hjóla hjá án þess að líta upp. Tekur Kína við af Bandaríkjunum sem hin kapitalíska eimreið alþjóðlega hagkerfisins?
Að tjaldabaki Hjá Tiananmen-torgi er gamalt hverfi, sem að mestu verður rifið fyrir Ólympíuleikana.
Þingið Kínverska þingið fundar í Höll alþýðunnar. Víðáttur torga undirstrika smæð einstaklingsins í mannhafi fjölmennasta ríkis heims.
Bænastaður Altari bæna fyrir góðri uppskeru í Musteri himnanna er eitt þekktasta tákn Peking.
’Meðaltekjur í borgunum eruþrefalt hærri en í sveitinni og
þessi tekjumunur hefur hleypt
af stað einhverjum mestu
fólksflutningum sögunnar.‘