Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BÚAST má við að allt að 200 gæludýr, mest hundar, verði flutt til landsins á þessu ári. Að sögn Hákons Sigurgrímssonar, skrif- stofustjóra í landbúnaðarráðuneytinu, voru flutt inn 148 gæludýr í fyrra. Nokkrar ástæður eru til að ætla að innflutningurinn aukist í ár, að mati Hákonar. Í fyrra var fyrirkomulagi innflutningsins breytt þannig að dvöl dýranna í einangr- unarstöð var stytt í fjórar vikur, en var 6–8 vikur áður. Þar á móti voru hertar mjög kröfur sem gerðar eru til undirbúnings inn- flutningi dýranna. Þessi breyting raskaði nokkuð áformum sumra sem ætlað höfðu að flytja inn gæludýr. Þá dró það úr fjölda innfluttra dýra í fyrra að einangrunarstöðinni í Hrísey var lokað í hálfan mánuð vegna lagfæringa. „Mér sýnist, miðað við fjölda umsókna, að það verði flutt inn talsvert fleiri dýr á þessu ári en verið hefur. Ég gæti alveg trú- að því að þetta fari upp undir tvö hundruð dýr,“ sagði Hákon. Hann sagðist gera þann fyrirvara við þessa tölu að alltaf er töluvert um forföll, þannig að umsóknir um innflutning eru fleiri en dýrin sem á endanum eru flutt inn. Margvíslegur kostnaður Talsverður kostnaður fylgir því að flytja inn gæludýr. Auk innkaupsverðsins erlendis frá, sem er mjög breytilegt, og flutnings til landsins þarf að greiða héraðsdýralækni, eða full- trúa hans, fyrir móttöku dýrsins á Keflavíkurflugvelli og heilbrigðisskoðun. Síðan þarf að flytja dýrið til Hríseyjar og sér rekstraraðili einangrunarstöðvarinnar um flutning frá Keflavík til Reykjavíkur, þaðan sem dýrið er flutt með flugi til Akureyrar og þaðan með bíl og ferju út í Hrísey. Þar tekur við fjögurra vikna dvöl í einangrunarstöð áður en dýrið er afhent eigendum. Daggjöldin eru breytileg eftir stærð og tegund dýranna. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu landbúnaðarráðuneyt- isins er kostnaður við fjögurra vikna einangrun að meðtöldum flutningskostnaði, öðrum en í flugi innanlands, eftirfarandi: Fyrir hunda undir 20 kg 127.733 kr., fyrir hunda yfir 20 kg 129.290 kr. og fyrir ketti 127.295 kr. Virðisaukaskattur er inni- falinn í framangreindum fjárhæðum. Einangrunarstöðin í Hrísey er í opinberri eigu. Fyrir þrem- ur árum var opnað fyrir þann möguleika að einstaklingar gætu sett upp einangrunarstöð fyrir gæludýr, en engin slík stöð hef- ur enn risið. Allt að 200 gæludýr flutt inn í ár Hákon Sigurgrímsson. TENGLAR ................................................................................ Meira á www.mbl.is/itarefni EFTIR þrjár vikur fjölgar á heimili Hávars Sigurjónssonar í Árbænum þegar tíkin Col- grima flytur inn eftir fjögurra vikna ein- angrun í Hrísey. Þetta er í fyrsta sinn sem hundur af hennar tegund kemur til landsins. Tegund sú heitir berner sennen, en á ís- lensku er hún kölluð svissneskur fjallahund- ur. Colgrima kemur hingað frá Noregi og segir Hávar að mikil eftirvænting sé innan fjölskyldunnar. Mikið hundalíf „Við erum öll búin að fylgjast spennt með frá því hún fæddist. Við vorum dálítinn tíma að gera það upp við okkur hvort við vildum fara út í þetta því þetta er svo mikil skuld- binding og að sjálfsögðu verða allir að vera með. En reynslan af hinum hundinum okkar er þannig að við vildum gjarnan fá annan.“ Fyrir á fjölskyldan hina fimm ára gömlu Hrafntinnu sem er veiðitík af labrador- tegund. Hana hefur Hávar þjálfað af miklum myndugleik og er hún honum ómissandi veiðifélagi. „Það er ekkert stórmál að vera með tvo hunda ef maður er með einn,“ segir Hávar hinn rólegasti, en heimilisfólkið hefur áður tekið að sér að passa hunda fyrir vini og kunningja. Eftir að fjölskyldan tók þá ákvörðun að fá sér annan hund hófst mikil leit að rétta hundaræktandanum og í allt er þetta ferli búið að taka á annað ár. Colgrima mátti ekki koma til landsins fyrr en hún var orðin fimm mánaða og þá þurfti hún að fara í alls kyns sprautur og skoðanir svo að ekki kæmi með henni smitandi sjúkdómur. Eftir það tók við vistin í Hrísey. Góður félagsskapur En hvernig er þessi nýjasti meðlimur ís- lensku hundafánunnar? „Colgrima er ekki veiðihundur eins og Hrafntinna heldur fyrst og fremst fjöl- skyldu- og heimilishundur. Ég hef haft áhuga á þessari tegund lengi, þetta eru mjög skemmtilegir hundar, góður fé- lagsskapur og afskaplega blíðir og tryggir. Þó að þeir séu frekar stórir eru þeir nú fyr- irhafnarlitlir.“ Mörgum vex einmitt í augum sú vinna sem fylgir því að fá ferfætling inn á heimilið. „Ef manni fyndist þetta leiðinlegt væri þetta örugglega mikil vinna en þetta er náttúrlega áhugamál þannig að maður telur þetta ekkert eftir sér, en ef maður er að þjálfa veiðihund fer mikill tími í þetta, sér- staklega fyrstu tvö árin. Annars er þetta bara gaman.“ En hefur þessi mikli hundavinur átt kött? „Já já, við eigum tvo síamsketti, og svo höfum við átt fiska líka. Sumum þótti nóg um að sjá hérna einn hund og tvo ketti, en þetta er ekkert mál. Kettirnir standa á sínu.“ Hávar og fjölskylda þurfa þess ekki lengi að bíða að fá Colgrimu heim. Eflaust á henni eftir að líka vel nýja heimilið, enda í góðum félagsskap. Fyrsti hundur sinn- ar tegundar á Íslandi Colgrima er fyrsti svissneski fjallahundurinn, eða berner sennen, sem kemur hingað til lands. LITLIR og stórir, írskir eða mexíkóskir. Sú er liðin tíð að íslenski fjárhundurinn réði heim- keyrslum okkar með gleðilegu gelti. Hér á landi má sjá sífellt fleiri nýjar hundategundir sem borist hafa yfir hafið hvaðanæva að. Fyrir nokkrum árum voru ekki margir eigendur hér að litlum Chihuahua-hundum eða japönskum Chin-hvuttum en í dag eru haldnar sýningar með alls konar hundategundum og fleiri bæt- ast í hópinn. Einangrunarstöðin í Hrísey rúmar tólf hunda hverju sinni og þar er aldrei autt pláss. Hjá Hundaræktarfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að það séu þó ekki sífellt nýj- ar tegundir að streyma inn fyrir landsteinana, heldur eru íslenskir hundaræktendur að bæta við sig nýjum meðlimum úr sömu tegund enda hagur í því að hafa þá sem flesta. Sá sem hefur áhuga á hreinræktuðum hundi frá útlöndum má búast við því að þurfa að greiða um 200 þúsund krónur í ýmsan kostnað og gjöld fyrir utan kaupverð. Ljósmynd/Jón Svavarsson Sífellt bætast nýjar hundategundir í fánu Ís- lands. Hér er mexíkóskur smáhundur Meiri fjölbreytni en áður HUGSANLEGT er að Vatnamæl- ingar Orkustofnunar og Veiði- málastofnun verði sameinaðar, eða geri samstarfssamning sín á milli. Starfandi er viðræðuhópur sem hef- ur það hlutverk að meta möguleika á aukinni samvinnu eða sameiningu og er reiknað með að hann skili nið- urstöðum og tillögum í byrjun mars. Sveinbjörn Björnsson, formaður viðræðuhópsins, segir að starfandi séu hópar fagmanna stofnananna til að kanna málið. Hann segir að rannsóknir þeirra séu farnar að tengjast svo mikið að rétt sé að kanna mögulegt hagræði af samein- ingu. Vatnamælingar eru sjálfstæð deild innan Orkustofnunar, og hafa það hlutverk aðallega að mæla fall- orku til virkjana, en hafa alltaf mælt vatn víðar og fylgst með öllu af- rennsli á landinu. „Vatnamælingar hafa alltaf haft vilja til þess að taka að sér víðtækara hlutverk en að vinna eingöngu fyrir orkuiðnaðinn. Nú er verið að kalla eftir því að þeir taki að sér slíkt hlutverk þar sem við erum um það bil að fara að taka við svokallaðri vatnatilskipun sem Evrópusambandið hefur skilgreint. Þá er verið að tala um að Vatna- mælingar Orkustofnunar sinni víð- tækara hlutverki í almennu eftirliti með vatnafari landsins,“ segir Sveinbjörn. Eitt af því sem notað er til að fylgjast með ástandi vatna er líf- ríkið í vötnunum, og er ástand fisks í vötnum mjög góð vísbending um ástand vatnsins. Fiskistofnarnir eru nú mældir af Veiðimálastofnun, en ef mál þróast á þann hátt að fylgst sé með almennu vatnafari þá færast rannsóknarsvið þessara aðila nær hvort öðru, og vaknar spurning um hvort hægt væri að ná hagræði af samvinnu, segir Sveinbjörn. Málið er flóknara en ella vegna þess að stofnanirnar heyra undir tvö ráðuneyti, landbúnaðar- og iðn- aðarráðuneyti. Einnig kemur til greina aukið samstarf við Veð- urstofuna þar sem hlutverk hennar við mælingar geta farið saman við vatnamælingar, segir Sveinbjörn, en Veðurstofan heyrir undir um- hverfisráðuneyti. Sameining Vatnamælinga og Veiðimálastofnunar könnuð Morgunblaðið/Jim Smart Vatnamælingamenn hafa fylgst með rennsli í og úr vötnum á landinu öllu. VERSLANAKEÐJAN Iceland Foods í Bretlandi hefur ákveðið að falla frá því að sækja um einkaleyfi á vörumerkinu Iceland í löndum ut- an Bretlands, en Halldór Ásgríms- son forsætisráðherra óskaði eftir því bréflega við fyrirtækið að það endurskoðaði umsókn sína í þessum efnum. Þetta kemur fram í svarbréfi til forsætisráðherra frá forstjóra fyrir- tækisins, Malcolm Walker, en er- indið var tekið fyrir á stjórnarfundi í fyrirtækinu í gær og ákveðið að falla frá umsókninni um einkaleyfi á notkun nafnsins í öllum löndum ut- an Bretlands. Þá segir ennfremur í bréfinu samkvæmt upplýsingum forsætis- ráðuneytisins að forráðamenn versl- anakeðjunnar vilji gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vinna með íslenskum stjórnvöldum að því að koma í veg fyrir að nafnarugl- ingur þess valdi vandræðum í fram- tíðinni. „Þegar ég stofnaði Iceland árið 1970 var þetta aðeins ein lítil versl- un í Norður-Englandi með frosnar matvörur. Konunni minni datt í hug að gefa henni nafnið Ice Land. Aldrei hvarflaði að okkur að það myndi verða að því stórfyrirtæki sem það er í dag, hvað þá að í notk- un okkar á nafni þess gætu falist vandræði fyrir landið Ísland,“ segir meðal annars í bréfi forstjórans. Fram kemur einnig að forráða- menn verlsanakeðjunnar vilji gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að nafnaruglingur valdi vandræðum í framtíðinni. Boðið til höfuðstöðva fyrirtækisins Samkvæmt upplýsingum for- sætisráðuneytisins kemur forstjór- inn ennfremur á framfæri boði til forsætisráðherra um heimsókn til höfuðstöðva fyrirtækisins í Deeside, fyrir hönd Pálma Haraldssonar stjórnarformanns Iceland. Fallið frá einka- leyfaumsókn vegna Iceland

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.