Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 11
UNDANFARNA mánuði hefur ver- ið fækkað í flugvallarþjónustudeild slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli sem sér um hreinsun flugbrauta og hefur öryggisnefnd Félags íslenskra flugumferðarstjóra lýst yfir áhyggj- um sínum á áhrifum þess á flugör- yggi. Frá og með 30. apríl mun hreinsunin heyra undir vélamiðstöð varnarliðsins en ekki slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli. Flugumferðar- stjórar hafa sömuleiðis áhyggjur af þeirri þróun og telja að þjónustan muni enn versna við það. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðs- ins, segir að þjónustan verði óbreytt og íslensku starfsmennirnir muni halda sínum störfum. Guðjón Arngrímsson, varafor- maður Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavíkur og starfsmaður í deildinni, segir að undanfarið hafi starfsmönnum flugvallarþjónustu- deildar verið fækkað úr 59 í 42. Deildin sinnir ekki eingöngu hreins- un flugbrauta en þegar mikið liggur við hafa allir starfsmenn á vakt tekið þátt í hreinsuninni og hefur ekki veitt af. Guðjón segir að þegar deild- in verði færð yfir til vélamiðstöðvar varnarliðsins muni væntanlega að- eins hluti starfsmannanna færast þangað. Þar með verði færri starfs- menn til taks sem hafi þekkingu á hreinsun flugbrauta. Um sé að ræða mjög sérhæft starf sem krefjist mik- illar verkþekkingar en núverandi starfsmenn deildarinnar hafi allir áratugalanga reynslu. Öryggi í húfi Kjartan Halldórsson, flugumferð- arstjóri á Keflavíkurflugvelli, segir að uppsagnir í flugþjónustudeildinni hafi þegar leitt til þess að snjó- hreinsun taki lengri tíma. Það leiði til þess að erfiðara sé að halda flug- vellinum opnum sem geti leitt til kostnaðarsamra tafa á flugi. „Það er skelfilegt ef þessi þjónusta skerðist enn frekar,“ segir hann. Öryggi flug- farþega sé einnig í húfi. Flugvélar geti þurft að lenda tafarlaust og þá sé að sjálfsögðu alvarlegt mál ef taf- ir verði á snjóhreinsun. Í liðinni viku var send tilkynning frá Keflavíkurflugvelli um að heml- unaraðstæður á einni brautinni væru ekki nægilega góðar. Í kjölfar- ið hringdi fulltrúi bandarísks flug- félags í flugturninn og lýsti yfir áhyggjum sínum enda væri flugvöll- urinn nauðsynlegur öryggisventill vegna flugs yfir Norður-Atlantshaf- ið. Honum létti þegar honum var tjáð að hægt væri að bæta úr þessu á skömmum tíma. Kjartan segir að þetta sé dæmi um öryggishlutverk flugvallarins. Kjartan hefur miklar áhyggjur af því að starfsemi flugþjónustudeildar verði færð yfir til varnarliðsins. Þar sé engin sérþekking á hreinsun flug- brauta til staðar. „Ef það á að setja óvana menn í þetta þá tekur mörg ár þangað til starfsemin kemst á sama stall og hún er á í dag,“ segir hann. Þá sé alltaf hætta á að varnarliðið ákveði einn daginn að segja upp öll- um Íslendingunum en þar með glat- ist dýrmæt verkþekking. Kjartan segir að í þessu starfi sé starfs- reynsla lykilatriði. Hermönnum sé skipt út á tveggja ára fresti og því borin von að hægt sé að þjálfa þá með fullnægjandi hætti. „Þá ætla ég ekki að fljúga nema á sumrin, það er alveg á hreinu. Þessi deild er það góð í dag að allar breytingar eru til hins verra,“ segir hann. Óbreytt þjónusta Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, segir að ákvörðunin um að færa yfirstjórn snjó- og hálkuvarna á flugbrautum og rekst- ur á þotugildrum til vélamiðstöðvar varnarliðsins varði eingöngu yfir- stjórn þessarar mikilvægu starf- semi. Breytingin sé gerð til sam- ræmis við hefðbundið skipulag í Bandaríkjaflota en hreinsun flug- brauta heyri almennt ekki undir slökkvilið heldur vélamiðstöðvar. Ekki sé um sparnaðaraðgerðir að ræða og starfsemin sjálf muni ekki breytast á nokkurn hátt. Aðspurður segir Friðþór að engum hafi verið sagt upp og engin störf verið lögð niður. Hann viti ekki betur en að all- ir íslensku starfsmennirnir haldi sín- um störfum og að ekki sé gert ráð fyrir að hermenn sjái um hreinsun flugbrautanna. „Það verða sömu stjórnendur, verkstjórar og starfs- menn. Það er bara yfirstjórnin sem færist yfir til vélamiðstöðvarinnar. Hjá slökkviliðinu frá 1975 Þjónustan verður óbreytt. Það er mergur málsins,“ segir Friðþór. Að- spurður sagðist hann ekki hafa upp- lýsingar um annað en að íslensku starfsmennirnir haldi sínum kjörum. Fram til ársins 1975 heyrði hreinsun flugbrauta undir vélamið- stöð varnarliðsins (Public Works) en það ár var slökkviliðinu falið þetta verkefni þar sem árangur vélamið- stöðvarinnar var talinn óviðunandi. Síðar tók slökkviliðið einnig við flug- afgreiðslu og flugþjónustu fyrir her- flugvélar og frá 1980 hefur flugvall- arþjónustudeild einnig séð um þotugildrur fyrir varnarliðið en þotugildrur nefnast vírar sem strengdir eru yfir flugbrautir áður en orrustuþotur lenda, svipað og gert er á flugmóðurskipum. Öll þessi starfsemi heyrir enn undir flugvall- arþjónustudeild slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli sem var og er eingöngu skipuð íslenskum starfs- mönnum. Síðastliðið haust var auglýst for- val vegna þjónustu við herflugvél- arnar, þ.e. flugafgreiðslu og flug- þjónustu. Bandaríski flugherinn hefur þó ekki tekið ákvörðun um að verkið verði boðið út, að sögn Frið- þórs Eydal. Verði af útboðinu mun slökkviliðið að sjálfsögðu ekki lengur sjá um þessa starfsemi, sem eftir 30. apríl verða einu verkefni flugvallarþjón- ustudeildarinnar. FÍA fylgist með Halldór Þ. Sigurðsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að félagið fylgist með þessum breytingum en hann hefur ekki fengið nákvæma skýringu á þeim. Öryggisnefnd félagsins muni fjalla um málið. Hann segir að flugmenn hafi áhyggjur enda sé verið að hrófla við starfsemi sem hafi verið í mjög góðu lagi hingað til. Bandaríkjaher tekur við stjórn á hreinsun flugbrauta á Keflavíkurflugvelli Flugumferðarstjórar hafa áhyggjur af flugöryggi Ljósmynd/Baldur Sveinsson Ráðgert er að varnarliðið taki við umsjón með hreinsun flugbrauta Keflavíkurflugvallar. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 11 FRÉTTIR Á SÍÐUSTU árum hefur flug herflugvéla um Keflavík- urflugvöll dregist mjög saman en farþegaflug aukist og er það nú ríflega 70% af umferð um flug- völlinn. Það eru hins vegar Bandaríkjamenn sem borga brúsann og greiða þeir allan kostnað við hreinsun flugbrauta á flugvellinum. Árið 2002 var hann 1,9 milljónir Bandaríkja- dala, skv. upplýsingum frá varn- arliðinu, sem þá jafngilti um 160 milljónum íslenskra króna. Bandaríkjamenn borga brúsann KYNNINGARÁTAK Hjálparstarfs kirkjunnar, sem beint er að ungu fólki á aldrinum 16–24 ára, hófst síð- astliðinn mánudag í Flensborg í Hafnarfirði. Kynningar verða haldnar í öllum framhaldsskólum landsins næstu daga, plakötum dreift og nýr bæklingur kynnt- ur. Að sögn Önnu M. Þ. Ólafs- dóttur, fræðslu- og upplýsingafulltrúa Hjálparstarfs- ins, er með nýja efninu verið að höfða á nýjan hátt til ungs fólks. „Við erum fyrst og fremst að höfða til þess að þau eru á þeim aldri þegar þau eru að verða meira og meira sjálfstæð og þróa persónu- leika sinn og reynir á meira og meira í þeirra fari. Við viljum vekja þau til umhugsunar um það að þau geti haft heilmikil áhrif á það hvernig mann- eskjur þau vilji vera.“ Í stað þess að höfða til samúðar eða samviskubits er með þessu átaki skírskotað til ábyrgðar og eigin vals. Í nýja bæklingnum eru upplýs- ingar um verkefni hjálparstarfsins og samanburður á dæmigerðum neysluvörum íslenskra unglinga og hvað er hægt að gera fyrir andvirði þeirra í þróunarlöndum. Í stað þess að fara í bíó er hægt að gefa tæpar 900 krónur en fyrir þá upphæð fæst skólaborð og stóll fyrir eitt barn. Með þessu vonast samtökin til að opna augu æskunnar fyrir því hve lítið þarf að láta af hendi, en sam- kvæmt rannsókn, sem gerð var, sögðust unglingar ekki myndu setja þessa upphæð fyrir sig, sérstaklega þegar litið er á hana í þessu sam- hengi. Hægt að gefa með sms-skilaboðum Í framhaldi af þessari kynningu verður hægt að gefa til hjálpar- starfsins með sms-skilaboðum en það er nýmæli. „Við leggjum upp úr því að hafa allar greiðsluleiðir opnar. Við reynd- um að koma til móts við unga fólkið og hvernig það myndi helst vilja haga sínum framlögum og þetta var niðurstaðan,“ segir Anna. Auk kynninganna sem verða í framhaldsskólunum munu bækl- ingar liggja frammi í háskólum, kaffihúsum og kvikmyndahúsum. Hjálparstarf kirkjunnar kynnt ungu fólki Hvernig manneskja viltu vera? Morgunblaðið/RAX Anna M.Þ. Ólafsdóttir, fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfsins. VEGNA fréttar í blaðinu í gær um nýja stöðu prófessors í krabba- meinslækningum við læknadeild HÍ með starfsaðstöðu á Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi, skal tekið fram að fleiri en einn yfirlæknir starfa á lyflæknasviði II á LSH. Starfsemi spítalans er skipt upp í 9 svið og tilheyra allar einingar krabbameinslækninga á sjúkra- húsinu sviði sem nefnist lyflækna- svið II, þ.e. geislameðferð krabba- meina, lyfjameðferð krabbameina, geislaeðlisfræðin, blóðsjúkdómar og líknardeildin í Kópavogi, og er yfirlæknir eða yfirmaður yfir hverri einingu. Þannig er Þór- arinn E. Sveinsson yfirlæknir geislameðferðardeildar krabba- meina og Sigurður Björnsson er yfirlæknir lyflækninga krabba- meina. Báðar þessar einingar til- heyra lyflækningasviði II eins og áður segir. Prófessorinn sem ráð- inn verður mun hafa starfs- aðstöðu á LSH auk aðstöðu innan læknadeildar og hann mun jafn- framt gegna starfi yfirlæknis á lyflækningasviði II í samræmi við ákvæði samstarfssamnings HÍ og LSH. Fleiri en einn yfirlæknir á lyf- lækningasviði II BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam- þykkti samhljóða á fundi sínum í gær bókun sem Kristján Þór Júl- íusson bæjarstjóri lagði fram, þar sem fram kemur að bæjarstjórn vill að gefnu tilefni ítreka að hún stend- ur heilshugar að baki hugmynda- samkeppninni „Akureyri í öndvegi“ og að ekki standi til að spilla fyrir forsendum keppninnar. Ennfremur segir í bókuninni að bæjarstjórn muni skoða vel þær tillögur kepp- enda sem bestar þykja og reyna að sjá til þess að uppbygging miðbæj- arins verði í samræmi við þá heild- arsýn sem ætla má að myndist í kjöl- far keppninnar. Bókun bæjarstjóra er lögð fram í tengslum við afgreiðslu umhverfis- ráðs á tillögum að skipulagi á Sjall- areitnum svokallaða en þar hyggst SS Byggir reisa þrjá 14 hæða íbúða- turna með 150–170 íbúðum ofan á tveggja hæða verslunar- og bílahús. Umhverfisráð tók jákvætt í tillöguna og heimilaði fyrirtækinu að gera deili- skipulagstil- lögu sem bygg- ist á framkomnum hugmyndum. Það var jafn- framt álit ráðs- ins að hug- myndirnar trufluðu ekki verkefnið „Akureyri í öndvegi“. Nokkrar umræður urðu um málið í bæjarstjórn í gær. Jón Erlendsson, bæjarfulltrúi Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs, taldi að af- greiðsla umhverfisráðs truflaði al- þjóðlegu samkeppnina um skipulag miðbæjarins og tengdist „Akureyri í öndvegi“ en aðrir sem tóku til máls voru ekki á því, enda væri aðeins um hugmyndir að ræða varðandi Sjall- areitinn. Í bókun bæjarstjóra kemur einnig fram að mikilvægt sé að hafa í huga við umræðu um skipulagsmál á Sjallareit að áherslur hafi í mörg ár verið þær hjá bæjaryfirvöldum að þétta þar byggð og þær hugmyndir sem nú eru uppi hafi verið í umræðu á vettvangi bæjarmála í rúmt ár. Fyrir liggi að vinna að deiliskipulagi á þessum reit sé enn á frumstigi og engra frekari ákvarðana að vænta í því fyrr en löngu eftir að úrslit hug- myndasamkeppninnar munu liggja fyrir. Skilafrestur í alþjóðlegu hug- myndasamkeppninni um skipulag miðbæjarins rennur út 1. mars en úrslit verða kunngerð sumardaginn fyrsta, 21. apríl nk. Ekki stendur til að spilla forsend- um keppninnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.