Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Canada's fastest growing franchise
is now expanding into Iceland.
See us at www.fibrenew.com
Einkabankaþjónusta | Private Banking
410 4000 | landsbanki.is
Landsbankinn heldur kynningarfund um fjárfestingu
í fasteignum erlendis á Hótel Sögu, fundarsal A,
í dag, 16. febrúar kl. 16 - 18.
Dagskrá:
• Ingólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Einkabankaþjónustu, greinir í stuttu máli frá breytingum
á Einkabankaþjónustu Landsbankans.
• Þorvaldur Þorsteinsson, fjármálaráðgjafi, lýsir þjónustu
bankans á sviði fjárfestinga í fasteignum erlendis.
• Kristján G. Valdimarsson, forstöðumaður skattaráðgjafar,
gerir grein fyrir skattamálum sem tengjast fjárfestingum
af þessu tagi.
• Tim Watts, yfirmaður fjárfestinga í íbúðarhúsnæði hjá
Cordea Savills, fjallar um fasteignamarkaðinn í Englandi.
• Brynhildur Sverrisdóttir, sjálfstæður fjármálaráðgjafi,
segir frá reynslu sinni af fasteignakaupum í Luxemborg,
Frakklandi og Englandi.
Fundarstjóri er Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri.
Veitingar í boði.
Allir velkomnir
en vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 410 7140
eða á landsbanki.is
Fjármögnun fasteigna
erlendis
Kynningarfundur í dag
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
C
A
L
26
44
8
0
2/
20
05
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME)
og Kauphöll Íslands kynntu í gær
samstarf þessara stofnana í eftirlits-
málum á verðbréfamarkaði.
Meginmarkmið samstarfsins eru
skilvirkni í rannsókn og meðferð eft-
irlitsmála og að ábyrgð hvors aðila
og verkaskipting sé skýr. Auk þess
er ætlunin að með samstarfinu verði
tvíverknaði í eftirliti haldið í lág-
marki og að upplýsingaskipti milli
aðila verði greið. Þá er það markmið
samstarfsins að viðbrögð FME og
Kauphallarinnar verði samræmd
þegar upp koma mál sem líkur eru til
að hafi mikla þýðingu á fjármála-
markaði.
Yfirlýsing til leiðbeiningar
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, og Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallar Ís-
lands, kynntu samstarf og verka-
skiptingu stofnananna á blaða-
mannafundi í gær. Páll Gunnar sagði
þar að FME og Kauphöllin hefðu
skynjað það að markaðurinn, og
kannski fjölmiðlar líka, upplifðu
ákveðna óvissu varðandi það hvernig
framkvæmd eftirlits á verðbréfa-
markaði sé háttað. Þetta væri ekki
hvað síst vegna þess að bæði Kaup-
höllin og FME hefðu þar hlutverki
að gegna.
„Það er ekki alltaf skýrt nákvæm-
lega hvernig verkaskiptingin er þar
á milli og kannski skynja menn ekki
heldur það samstarf sem á sér stað á
milli þessara aðila. Það er af þessu
tilefni sem Fjármálaeftirlitið og
Kauphöllin birta yfirlýsingu um
verkaskiptingu í eftirlitsmálum á
verðbréfamarkaði,“ sagði Páll Gunn-
ar.
Fram kom í máli Þórðar Friðjóns-
sonar að yfirlýsingin væri mikilvægt
skref í þróun eftirlitsþáttarins á
markaði. Hann lagði áherslu á að
yfirlýsingin væri ekki endanleg,
heldur yrði hún endurskoðuð reglu-
lega. Sértaklega bæri að nefna að
framundan væri innleiðing tilskip-
ana á fjármálamarkaði á vegum Evr-
ópusambandsins og breytingar sem
þeim fylgdu hefðu áhrif á samstarfið.
Páll Gunnar bætti við að yfirlýs-
ingin leysti ekki alla óvissu sem
kannski sé til staðar. Hún sé til leið-
beiningar og gefi betur en áður til
kynna það samstarf sem lengi hefur
verið til staðar á milli aðila.
Páll Gunnar benti á mikilvægt
væri að búa verðbréfamarkaðnum
þá umgjörð að brot ættu sér ekki
stað. „Í því sambandi skipta miklu
máli tiltölulega nýlegar heimildir,
þótt mjög takmarkaðar séu, sem
Fjármálaeftirlitið hefur til þess að
beita stjórnvaldssektum,“ sagði Páll
Gunnar.
Í yfirlýsingunni segir að samstarf
þessara stofnana breyti ekki eða hafi
áhrif á verksvið þeirra, eins og kveð-
ið er á um í lögum eða stjórnvalds-
fyrirmælum. Fjármálaeftirlitið hef-
ur almennt eftirlit með framkvæmd
laga um verðbréfaviðskipti, auk þess
að hafa eftirlit með starfsemi kaup-
halla og skipulegra tilboðsmarkaða.
Eftirlitsstarfsemi Kauphallarinnar
felst hins vegar fyrst og fremst í því
að fylgjast með því að útgefendur
verðbréfa og kauphallaraðilar starfi í
samræmi við lög og reglur Kauphall-
arinnar.
FME og Kauphöll
sameinast um eftirlit
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samstarf Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, og Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri FME, kynntu samstarf í eftirliti með verðbréfamarkaði.
● HAGNAÐUR BN banka í Noregi á
síðasta ári nam 209 milljónum
norskra króna, sem samsvarar ríf-
lega 2 milljörðum
króna. Hagnaður
fyrirtækisins
jókst um 15 millj-
ónir norskar krón-
ur, sem sam-
svarar 145
milljónum króna,
frá árinu 2003.
Ástæðu af-
komubatans má
rekja til þess að framlög í afskrift-
areikning lækkuðu um 25 milljónir
norskra króna á milli ára en annars
voru rekstrargjöld á síðasta ári 12
milljónum króna hærri á síðasta ári
en árið áður, samtímis sem tekjur
hækkuðu um 7 milljónir króna.
Hagnaður BN
banka 2 milljarðar
TRYGGVI Jónsson,
forstjóri Heklu,
Hjörleifur Jak-
obsson, forstjóri
Olíufélagsins Essó,
Frosti Bergsson,
fyrrum stjórnar-
formaður Opinna
kerfa og Egill
Ágústsson hjá Ís-
lensk ameríska
hafa keypt KB
banka, Straum og
Tryggingamiðstöð-
ina út úr fyrirtæk-
inu og eiga nú allt
hlutafé í Heklu. Ný stjórn Heklu
var kosin á aðalfundi í gærkvöldi
en hana skipa Hjörleifur, Frosti
og Egill. Þá var tilkynnt á fund-
inum að Hekla hefði yfirtekið
Kia-umboðið frá og með deginum
í dag.
Tryggvi Jónsson, forstjóri
Heklu, segir nokkurn aðdraganda
vera að kaupunum en kaupverðið
sé trúnaðarmál. Hann segir að
engum starfsmönnum Kia-
umboðsins verði sagt upp og
fyrrum eigandi verði Heklu innan
handar a.m.k. fyrst um sinn.
Tryggvi segir Kia-umboðið góða
viðbót við umsvif Heklu. Það hafi
selt um 130 bíla í fyrra en gert sé
ráð fyrir mikilli aukningu í sölu á
þessu ári og á næstu árum. „Kia
hefur alls staðar verið í miklum
vexti og við viljum taka við þessu
flaggi. Starfsemin verður með
óbreyttu sniði í Hafnarfirði,
a.m.k. fyrst um sinn.“
Tryggvi segir ljóst að sam-
legðaráhrif náist með þessari yf-
irtöku í allri yfirstjórnun og á öll-
um stoðsviðum. „Við sjáum fyrir
okkur að þetta geti orðið mjög
sterk viðbót við reksturinn á
komandi misserum og árum.“
Eigendaskipti hjá Heklu hf.
Yfirtaka
Kia-umboðið
9 'J
-KL C
C
<->
MN
C
C
@@ ,+N
C
C
)N
9 !
C
C
?@>N MO 6"!
C
C