Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 16
2005
verður haldinn föstudaginn 18. febrúar
á Grand Hóteli Reykjavík
Dagskráin er fjölbreytt að vanda
en nánari upplýsingar
er að finna á heimasíðu félagsins
www.steinsteypufelag.is
Skráning er hafin á
steinsteypufelag@steinsteypufelag.is
Steinsteypudagur
2005
Höfuðborgin | Akureyri | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Vínbúð á Flúðir? | Hreppsnefnd Hruna-
mannahrepps hefur samþykkt að kanna
möguleika á því að áfengisútsala verði sett
upp á Flúðum. Fulltrúar Áfengis- og tób-
aksverslunar ríkisins hafa þegar kannað
aðstæður á staðnum.
Í Pésanum, fréttabréfi Hrunamanna-
hrepps, er tekið fram að mál sem þessi taki
sinn tíma og þeirri spurningu varpað fram
hvort hægt verði að kaupa réttarpelann á
Flúðum fyrir næstu réttir.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Fjölmennt töltmót | Alls mættu 48
keppendur á töltmót í Reiðhöllinni Arnar-
gerði á Blönduósi síðastliðinn laugardag og
margir áhorfendur að auki. Þetta er fyrsta
af fjórum mótum, sem haldið er undir nafn-
inu Meistaramót Húnvetninga.
Sigurvegari í opnum flokki var Pétur
Vopni, sem kom frá Akureyri og sigraði á
Dreyra frá Hóli. Í öðru sæti varð Ólafur
Magnússon á Gáska frá Sveinsstöðum og
Herdís Einarsdóttir varð í þriðja sæti á Ór-
ator frá Grafarkoti. Í unglingaflokki sigraði
Helga Una Björnsdóttir á Syðri-Reykjum á
Orðu frá Gauksmýri, í öðru sæti varð Jón-
ína Lilja Pálmadóttir á Syðri-Völlum á
Laufey frá Sigmundarstöðum og Björt Jón-
asdóttir í því fjórða á Glanna frá Svana-
vatni.
Í áhugamannaflokki gerðust þau tíðindi
að Elvar Logi Friðriksson, sem lenti í
B-úrslitum, reið sig inn í A-úrslit og sigraði
þar í hörkukeppni. Elvar keppti á hryss-
unni Gígju frá Goðdölum. Í öðru sæti varð
Sigríður Ása Guðmundsdóttir á Nös frá
Syðri-Reykjum. Í þriðja sæti varð Guðrún
Ósk Steinbjörnsdóttir á Spóa frá Þorkels-
hóli.
Ráðinn verkefnisstjóri | Stjórn Ný-
sköpunarstofu Vestmannaeyja hefur
ákveðið að ráða Jón Ólaf Valdimarsson í
stöðu verkefnisstjóra við viðburðastjórn-
unarnámið sem fyrirhugað er að hefja í
Eyjum í haust. Þrír sóttu um starfið og
voru allir taldir hæfir umsækjendur, að
því er fram kemur á vef Frétta í Eyjum,
www.eyjafrettir.is.
Jón Ólafur er að ljúka MA-námi í
mannauðsstjórnun við viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands.
Ákveðið hefur veriðað stofna bæj-armálafélag
Frjálslynda flokksins í
Reykjanesbæ. Undirbún-
ingsnefnd hefur boðað til
stofnfundar næstkomandi
fimmtudag, kl. 20.30, í sal
Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur að Hafn-
argötu 80 í Keflavík. Þar
verður kosin stjórn fyrir
félagið og hafinn und-
irbúningur að framaboði
við næstu bæjarstjórn-
arkosningar.
Í tilkynningu frá und-
irbúningsnefndinni kemur
fram að hún hefur miklar
væntingar um breiðan
stuðning bæjarbúa. Boðið
verður upp á kaffi.
Gestir fundarins verða
alþingismennirnir Guðjón
Arnar Kristjánsson for-
maður og Magnús Þór
Hafsteinsson varafor-
maður og þingmaður Suð-
urkjördæmis
Bæjarmála-
félag stofnað
Foreldrafélag Öxarfjarðarskóla færði skólanumnýlega að gjöf skjávarpa og tvo ritþjálfa. ÞærGuðfinna R. Sigurbjörnsdóttir og Stefanía V.
Gísladóttir afhentu Huldu Aðalbjarnardóttur gjaf-
irnar. Hulda sagði að það væri mikils virði að hafa öfl-
ugt foreldrafélag starfandi við skólann. Hluti nemenda
var viðstaddur auka nokkurra kennara.
Morgunblaðið/Kristbjörg
Fékk skjávarpa
og ritþjálfa að gjöf
Friðrik Stein-grímsson leggurorð í belg út af úð-
anum margumtalaða sem
talinn er vekja kynnautn
kvenna:
Þegar lostinn litar flest
og liggur snót á púðanum,
hvað skal gera og hver veit best
hvar á að spreyja úðanum?
Einar Kolbeinsson er
undrandi á fáfræði Frið-
riks og yrkir:
Á unaðsstunum ætla það,
afleitt hljóti að vera,
að vita ekkert um það hvað,
á maður að gera!
Síðan segir Einar að til
séu lausnir á vanda Frið-
riks:
Svo gengið síður verði valt,
og víst að ekki kveljist,
settu bara yfir ALLT,
svo öruggur þú teljist.
Friðrik Steingrímsson
svarar:
Annaðhvort hún af því gleðst
eða af vonsku sveiar,
ef aftan, framan, efst og neðst
Einar hana spreyjar.
Enn af
nautnaúða
pebl@mbl.is
Laxamýri | Mikið hefur sést af
tófum í sveitum Þingeyjarsýslu í
vetur og þykir mönnum sem
þeim hafi fjölgað á undaförnum
árum. Vetrarveiði hefur verið
nokkur og til eru menn sem hafa
náð á annan tug dýra. Það breyt-
ir ekki því að enn er mikil umferð
og hafa bændur áhyggjur af
þessari fjölgun í stofninum.
Á myndinni má sjá Gunnar
Óla Hákonarson refaskyttu með
ref sem skotinn var í hólma í
Laxá og var dýrið vel á sig komið
og virðist hafa haft nægilegt æti.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Mikið um tófur í Þingeyjarsýslu
Vetrarveiði
Borgarnes | Reykjavík fær til sín hlutfalls-
lega mun meira af umsvifunum ríkisins en
borgin skilar til hins opinbera í formi skatt-
tekna. Kemur þetta fram í rannsóknar-
skýrslu eftir Vífil Karlsson sem Calculus
ehf. í Borgarnesi hefur gefið út.
Skýrslan sem nefnist Um landfræðilegt
misræmi á milli fjármögnunar og umsvifa
hins opinbera er að finna á vef fyrirtækisins,
www.calculus.is. Í fréttatilkynningu um út-
komu skýrslunnar kemur fram að 75% af
öllum umsvifum á vegum ríkisins séu í
Reykjavík en þaðan fái hið opinbera aðeins
42% skatttekna sinna. Á Reykjanesi, þar
sem Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær
og Seltjarnarnes eru talin með, er ráðstafað
10% af veltu hins opinbera en þaðan kemur
31% skattteknanna. Það sem eftir er af land-
inu fær til sín 15% af umsvifum hins opin-
bera en þaðan koma 27% af tekjunum.
Fram kemur í fréttatilkynningunni að
þessi neikvæði viðskiptajöfnuður hins opin-
bera gagnvart landsbyggðinni grafi undan
hagvexti þar og er vitnað í höfundinn og sagt
að miðað við umfang talnanna og hversu
lengi þetta hafi staðið yfir megi líkja þessu
við nýlendustefnu ýmissa ríkja hér áður fyrr
þegar nýlendur voru skattpíndar en sjóð-
irnir síðar fluttir heim til nýlenduherranna.
Því liggi beint við að færa til stofnanir eða
lækka skatta á landsbyggðinni.
Landsbyggðin
greiðir meira
en hún fær
Hveragerði | Bæjarstjórinn í Hveragerði
mun í dag veita Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins leyfi til reksturs vínbúðar í Hvera-
gerði. Stefnt er að opnun búðarinnar eftir
hádegið.
ÁTVR hefur innréttað vínbúð í söluskála
ESSO í Hveragerði og hugðist opna þar
vínbúð í síðustu viku. Bæjarstjórn frestaði
því á fundi sínum á fimmtudag að taka af-
stöðu til erindis fyrirtækisins um rekstr-
arleyfi vegna þess að hún taldi að nauðsyn-
leg gögn vantaði frá ÁTVR og var
bæjarstjóra falið að afla þeirra. Orri Hlöð-
versson bæjarstjóri segist hafa verið í sam-
skiptum við fyrirtækið á föstudag og í gær
og taldi hann að forsendur væru komnar til
að veita leyfi. Fékk hann heimild bæjar-
fulltrúa til að gefa leyfið út, með fyrirvara
um samþykki bæjarstjórnar á næsta fundi
og bjóst við að gera það árdegis í dag.
♦♦♦
Vínbúðin fær
rekstrarleyfi