Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 21

Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 21 DAGLEGT LÍF hann og leiðbeinir í þroskavæn- legum verkefnum. Rauður þráður í þessum nýju kennsluháttum eru námsáætlanir með raunhæfum markmiðum sem nemendur gera sjálfir í samvinnu við kennara og foreldra. „Þar með erum við að stuðla að því að nemendur taki aukna ábyrgð á námi sínu því þá fara allir á sínum hraða. Skólakerf- ið sér til þess að öllum fari fram, en bara mishratt. Að sama skapi sé ég ekki fyrir mér að svonefnd agavandamál þurfi að aukast sam- fara breyttum kennsluháttum. Þvert á móti tel ég að þeim gæti fækkað því þegar séð verður til þess að allir fái verkefni við hæfi, hafa allir nóg fyrir stafni og sjálfs- aginn verður meiri eftir því sem nemendur læra að bera ábyrgð á eigin námi með markmiðasetningu og námsáætlunum, segir Gerður. Í takt við nútímann „Við þurfum að sprengja utan af okkur stífan ramma 20. aldarinnar því hann á ekki við lengur, segir Gerður þegar spjallið berst að nauðsyn breytinganna, sem skiptar skoðanir eru um meðal kennara og foreldra. „Það er mjög eðlilegt að það gusti um nýjar hugmyndir og breytingar því menn vita hvað þeir hafa, en vita ekki hvað þeir fá, að óreyndu. Á meðan skóli 20. ald- arinnar var skipulagður fyrir iðn- aðarsamfélagið, ríður nú á að laga skólastarf að nútímanum, upplýs- inga- og þekkingarsamfélaginu. Atvinnulífið er einnig að ganga í gegnum breytingar og þar vinnur fólk t.d. í auknum mæli sjálfstætt í teymum að ákveðnum viðfangsefn- um. Skólakerfið þarf að þróast í takt við þessar breytingar og það gerir það. Samfara breyttri hugsun í kennsluháttum og breyttu starfi grunnskólakennara er eðlilegt að kjarasamningar kennara breytist. „Ég sé fyrir mér að kjarasamning- urinn muni þróast samhliða þróun í skólastarfinu. Nú er ákvæði í nú- gildandi kjarasamningi kennara um að unnt sé að gera sérkjara- samning við sveitarfélög vegna annars konar kennsluhátta í skól- um. Ég á fastlega von á því að þetta verði til umræðu á næstu ár- um og í næstu kjaraviðræðum kennara og sveitarfélaga.“ Morgunblaðið/Kristján Mikil áhersla verður lögð á samvinnu nemenda, þemanám, blöndun ólíkra ein- staklinga, sjálfstæð verkefni, sköpun og frumkvæði. Morgunblaðið/Ásdís Ekki er gert ráð fyrir lokuðum kennslustofum heldur mismunandi rými af ýms- um stærðum og gerðum fyrir árgangablandaða hópa. join@mbl.is Karlar þurfa að taka meiri ábyrgð inni á heimilunum en það myndi fækka þeim konum sem þurfa að láta af störfum og fara í veik- indaleyfi í langan tíma vegna las- leika og álags. Þetta er eitt sjón- armið af mörgum sem fram hafa komið í kjölfar niðurstaðna sænskr- ar rannsóknar þess efnis að margar konur fari ekki aftur út á vinnu- markaðinn eftir að hafa farið í veik- indaleyfi og níu af hverjum tíu kon- um töpuðu m.a.s. á því þar sem bætur í veikindaleyfi væru hærri en launin að teknu tilliti til kostnaðar við ferðir og hádegismat í vinnu. Vísindamennirnir Héléne Sand- mark og Monica Renstig við Karol- inska Institutet í Stokkhólmi skrif- uðu grein um rannsóknina í Dagens Nyheter og hefur hún vakið mikla athygli. Rannsóknin leiddi m.a. í ljós að konur í hlutastarfi með lág laun séu líklegastar til að þurfa að fara í langt veikindaleyfi. „Miklir mögu- leikar á leyfi vegna barneigna og veikra barna, ásamt góðum mögu- leikum á hlutastarfi, geta aukið líkur á langtímaveikindaleyfi og þar með útilokað konur frá atvinnulífinu til lengri tíma,“ skrifuðu þær Sand- mark og Renstig. Atvinnumálaráðherrann Hans Karlsson segir í samtali við DN að veikindabætur séu alls ekki of háar í Svíþjóð, málið snúist fremur um tvö- falt vinnuálag á þeim konum sem um ræðir. Fjölmennastar í þessum hópi eru konur yfir fimmtugt sem hafi unnið í verslun eða í umönn- unarstörfum og auk þess hafi ábyrgðin á heimili og fjölskyldu hvílt á þeirra herðum. Atvinnulífið þurfi að taka afstöðu til þessa stóra máls.  HEILSA| Tvöfalt vinnuálag kvenna Karlar geta breytt þróuninni Tvisvar hefur Erla María Lárus- dóttir komið til Slóveníu að sumri, en um síðustu áramót dvaldi hún í höfuð- borginni Ljubljana. „Ég kom fyrst til Slóveníu í út- skriftarferð með menntaskóla- nemum árið 1999. Ég held að einn af kennurunum hafi bent okkur á þennan mögu- leika. Hann vildi vekja áhuga okk- ar á þessum stað. Við dvöldum í strandbænum Portoroz, sem er frek- ar lítill en býður þó upp á fína ferða- þjónustu. Það vildi svo skemmtilega til að ég kynntist Villa kærastanum mínum eftir þetta, en hann er hálfur Slóveni og hálfur Íslendingur. Móðir hans er frá Slóveníu og á marga ættingja þar og við höfum farið tvisvar saman til Slóveníu. Hvernig var að vera í Ljubljana um áramót? „Það var mjög skemmtilegt en töluvert öðruvísi en á Íslandi. Allir safnast saman á aðaltorginu rétt fyrir miðnætti og flugeldum er skotið á loft úr kastalanum sem er á hæð fyrir of- an torgið. Fólk var einnig iðið við að skjóta upp í mannþrönginni og því var betra að vera var um sig. Svo fer fólk á klúbbarölt sem er ekki ósvipað og heima. Það er greinilegt að ferðamanna- straumurinn til landsins er að aukast, meira að segja á þessum árstíma. Maður rakst á fólk frá öllum heims- hornum, segir Erla María. „Við ferðuðumst einnig um Trenta- þjóðgarðinn í Ölpunum. Þar er stór- fenglegt landslag og við dvöldum þar í fjallakofa og fórum í gönguferðir til lítilla bæja í kring. Þeir sem búa í þessum litlu bæjum hafa viðurværi sitt af ferðaþjónustu á sumrin, bjóða þá upp á ýmsa afþreyingu og á vet- urna er þetta tilvalið skíðasvæði.“ Hún segir Slóveníu fallegt land þar sé allt til alls fyrir ferðamenn, hvort sem þeir vilja dvelja í höfuðborginni Ljubljana, þar sem eru góðir veit- ingastaðir og hægt er að skemmta sér ef vill, á ströndinni eða njóta fal- legrar náttúru uppi í fjöllum. Við ána sem rennur í gegnum borgina er hægt að fara á mjög skemmtilega markaði, bæði stóran og líflegan grænmetismarkað og hefðbundinn útimarkað með alls kyns handverki og glingri héðan og þaðan. Í Ölpunum er boðið upp á margs konar afþrey- ingu og hægt að fara í göngur, flúða- siglingar og fleira. Stutt er að fara í alls kyns ferðir frá Slóveníu, til dæm- is til Ítalíu eða Króatíu. Hvernig er verðlagið? „Mér fannst verðlag almennt gott í Slóveníu,“ segir Erla María. „Skart- gripir og föt eru yfirleitt á góðu verði fyrir utan þekkta merkjavöru sem er oft á svipuðu verði og hér. Sér- staklega er maturinn ódýr, hvort sem maður eldar sjálfur eða kaupir hann á veitingastöðum, en maturinn er líka mjög góður.“  FERÐALÖG|Eftirminnileg ferð Í litlum fjallakofa í Slóveníu Erla María Lárusdóttir hefur komið þrisvar sinnum til Slóveníu. Henni finnst Slóvenía vera fallegt land þar sem margt er hægt að gera og skoða Í Ljubljana eru góðir veitingastaðir , verslanir og markaðir og hægt að fara á ströndina eða njóta fallegrar náttúru upp í fjöllum. Erla María nefnir hér þrjá veit- ingastaði þar sem hægt er að fá góðan mat á hagstæðu verði. Sestica Slovenska cesta Ljubljana. Þetta er einn af elstu veitinga- stöðunum í höfuðborginni. Operna Klet (Óperukjallarinn) Þessi veitingastaður er beint á móti óperuhúsinu í Ljubljana og hann er þekktur fyrir góða sjávar- rétti. Sokol Þetta veitingahús er við gamla torgið, rétt við ráðhúsið í Ljub- ljana. Þarna er boðið upp á ekta slóvenskan mat. Erla María Lárusdóttir Erla María ferðaðist um Trenta- þjóðgarðinn í Ölpunum og bjó þar í litlum fjallakofa. ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. FRÉTTIR mbl.is FERÐALÖG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.