Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 22

Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING „ÞAÐ er mikill fengur að bókum Jóhönnu Kristjónsdóttur. Þær eru framlag til þeirrar umræðu sem ber hvað hæst á alþjóðavettvangi nú um stundir. Þar er viðhorfum friðar, sátta og jafnréttis teflt fram gegn tortryggni, fjandskap og stríði.“ Þetta var meðal þess sem fram kom í áliti viðurkenningarráðs Hagþenkis, félags höfunda fræði- rita og kennslugagna, þegar Jó- hanna Kristjónsdóttir tók við við- urkenningu félagsins í gær, fyrir bækur sínar um málefni araba- landa. Viðurkenningin er veitt ár- lega fyrir framúrskarandi fræðilegt efni. Í álitinu sagði ennfremur: „Síð- ustu ár hafa einkennst af vaxandi spennu og togstreitu milli Vest- urlanda og arabaheimsins bæði í pólitískum og trúarlegum efnum. Þessi spenna kemur bæði fram í al- þjóðlegum samskiptum og í innan- ríkismálum flestra landa þar sem alþjóðavæðingar og fjölmenning- aráhrifa gætir. […] Gegn þessum ógnum er fræðsla besta vopnið, fræðsla sem slær á þá fordóma, vanþekkingu og tor- tryggni sem eru drifkraftur póli- tískrar spennu og stríðsátaka. Bækur Jóhönnu Kristjónsdóttur um Austurlönd nær og þjóðir araba, menningu þeirra og trú, færa okkur fræðslu í þessum efn- um. Með þeim hefur hún byggt brú til aukins skilnings þjóða í milli, meira umburðarlyndis, vináttu og friðar. Fordæmi Jóhönnu er óvenjulegt. Eftir langt starf sem blaðamaður, rithöfundur og húsmóðir hleypti hún heimdraganum til að kynna sér sögu og þjóðfélög araba. Árið 1995 hóf hún nám í arabísku í Egypta- landi og síðar við háskólann í Dam- askus í Sýrlandi þar sem hún lauk BA-prófi. Kunnátta í arabísku er fágæt hérlendis en hún er lykillinn að þeim viðfangsefnum sem Jó- hanna hefur valið sér. Samhliða námi sínu hefur hún ferðast um Austurlönd og skrifað greinar og bækur sem lýsa þessum framandi heimi, menningu hans fyrr og nú og samskiptum við Vesturlönd. Bækur þessar eru fjórar talsins. Jafnframt hefur hún haldið fyrir- lestra og námskeið um hug- myndaheim araba og islam auk þess sem hún hefur kennt arab- ísku. Í ritum sínum hefur Jóhanna jafnan sérstaklega dregið fram stöðu kvenna og því má segja að skrif hennar hafi jafnframt verið framlag til jafnréttisbaráttu kynjanna. […] Viðurkenningu Hag- þenkis 2005 fær Jóhanna Kristjóns- dóttir fyrir að veita sýn inn í fram- andi menningarheim og eyða með því vanþekkingu og fordómum.“ Íslendingar sýna aröbum áhuga Jóhanna Kristjónsdóttir segir viðurkenningu Hagþenkis hafa þá þýðingu fyrir sig að skrif hennar og störf séu viðurkennd. Henni þyki það ekki síst mikilsvert þar sem samtök fræðimanna standi að viðurkenningunni. „Mér finnst það gleðilegt að Íslendingar sýna því mikinn áhuga sem ég hef verið að skrifa. Það sé ég til dæmis á nám- skeiðum og fyrirlestrum sem ég hef haldið þegar ég er hér heima, og í ferðum mínum með Íslendinga á þessar slóðir. Ég reyni ekki að heilaþvo fólk, því ég er ekkert endi- lega að tala um einhver fyrirmynd- arsamfélög í arabaheiminum. En Íslendingar vilja gefa fólki í þess- um heimshluta tækifæri til þess að veita okkur skilning á sínum heimi. Við getum ekki alltaf sett sama- semmerki milli þess sem okkur finnst eðlilegt og þess sem fólk í öðrum menningarheimum aðhefst. Það er svo mikilvægt að við leyfum hverjum menningarheimi að halda sinni reisn og virðingu, rétt eins og við viljum að aðrir líti okkar menn- ingarheim. Við getum ekki með einföldum yfirlýsingum afgreitt aðra heimshluta sem frumstæða og harðneskjulega þótt þeir séu ekki eins og okkar, því það eru alltaf til forsendur og skýringar sem fólk gleymir í slíkum málflutningi.“ Jóhanna kveðst alltaf hafa trúað því að hún væri á réttri leið með skrifum sínum, en að sér hafi þótt óskaplega vænt um að fá viður- kenninguna. „Það gerir mann enn staffírugri í að halda áfram.“ Fræðistörf | Jóhanna Kristjónsdóttir fær viðurkenningu Hagþenkis fyrir Arabíubækur sínar Jóhanna Kristjónsdóttir tekur við viðurkenningunni úr hendi Sverris Jakobssonar formanns Hagþenkis. Brú til aukins skilnings, vin- áttu og friðar Morgunblaðið/Jim Smart GREINA má mikinn áhuga meðal manna á málefnum Mið-Austur- landa um þessar mundir, fólkinu sem þar býr, trúarbrögðunum sem það stund- ar, sögu þess og samtíma. Það vekur af þessum sökum ávallt at- hygli þegar Magnús Þorkell Bernharðsson er staddur á Ís- landi. Magnús er sérfróður um sögu Mið-Austur- landa, kennir við háskóla í Banda- ríkjunum, og það er gjarnan leitað til hans til að ræða þessi mál í fjölmiðlum hér heima og á fund- um. Nú hefur Mál og menning gefið út bók eftir Magnús Þorkel, Písl- arvottar nútímans, um bakgrunn átaka og spennu í Írak og Íran og í ljósi atburða undanfarinna ára er hún ótvírætt tímabær, það er já- kvætt að Íslendingum gefist tæki- færi til að lesa handhægt og gagn- ort rit á íslensku um þessa sögu. Hér ræðir jú að mörgu leyti um stærstu álitamál samtímans. Magnús tekur sér það verk hér á hendur að fjalla um nútímasögu nágrannaríkjanna Íraks og Írans og hann gerir það á áhugaverðan og fróðlegan hátt. Lopinn er hvergi teygður, það er jákvætt þó að stundum þyrsti lesandann í meiri fróðleik. Við þessu bregst Magnús hins vegar með því að vísa lesendum leiðina í frekari heimildir í aftanmálsgreinum. Er þetta vel til fundið. Áhugavert er að heyra í bók Magnúsar um tildrög þess að Írak varð til í nútímalegri mynd og frá- sögnin af írönsku keisurunum er stórfróðleg. Sömuleiðis saga Mu- hammads Musaddiq, sem var for- sætisráðherra Írans um miðja síð- ustu öld. Það er hér sem Magnús nær sér best á flug í ritsmíð sinni. Sú kenning Magnúsar, að stríð Íraka og Írana 1980–1988 hafi „stofnanavætt píslarvættisdauð- ann“ er síðan allrar athygli verð, ekki síst í ljósi þess hversu sjálfs- morðsárásir hafa orðið algengar í seinni tíð; bæði í átökum Palest- ínumanna og Ísraela og í aðgerð- um skæruliða í Írak undanfarna mánuði. Segir Magnús raunar á einum stað að sjálfsmorðsárásir – eða hótun um sjálfsmorðsárásir – verði að öllum líkindum rauður þráður í alþjóðastjórnmálum og hernaði 21. aldar. Greining Magnúsar gefur mönn- um ekki tilefni til mikillar bjart- sýni, hann segir líklegt að íbúar Mið-Austurlanda muni enn upplifa stríðsástand næstu ár og áratugi. Það er yfirlýst markmið Magn- úsar með Píslarvottum nútímans að veita innsýn í heim múslíma, hann telur hugmyndir Vest- urlandabúa yfirleitt byggðar á misskilningi eða hreinlega van- þekkingu. Tekur Magnús þann kostinn að fjalla um tvö ríki, Íran og Írak, sem þó eru um margt ólík, eins og hann bendir sjálfur á. Írakar eru (flestir) arabar, það eru Íranar hins vegar ekki. Þjóð- irnar tala ólíka tungu, eiga ólíka sögu, hafa meira að segja eldað grátt silfur saman; löndin tvö tók- ust á í hörmulegu stríði á níunda áratugnum sem engu skilaði en kostaði hundruð þúsunda manna lífið. Skýrir Magnús þessa nálgun þannig að bæði Íran og Írak hafi verið nokkurs konar pólitískar til- raunastofur á tuttugustu öldinni þar sem ýmis stjórnarform hafi verið reynd. Er kenning hans sú að þáttur íslams í stjórn- málaþróuninni hafi ekki verið mik- ill, eins mótsagnakennt og það kunni að hljóma í ljósi opinberrar umræðu um múslímska öfga- trúarmenn og hryðjuverkastríð. Saga Mið-Austurlanda á tutt- ugustu öld sé öllu heldur saga nýrra þjóðríkja og þjóðern- ishyggju, nútímavæðingar og er- lendrar íhlutunar. Sannarlega er þáttur Vestur- landa, einkum Breta og Banda- ríkjamanna, fyrirferðarmikill í bók Magnúsar. Myndi gagnrýni á Písl- arvotta nútímans einmitt kannski fyrst og fremst víkja að þessum þætti. Magnús gagnrýnir nefni- lega umfjöllun um Mið-Austurlönd á Vesturlöndum, telur mikla van- þekkingu ráða ríkjum, fólk meti lönd eins og Íran og Írak of mikið út frá eigin sjónarhorni í stað þess að gefa gaum afstöðu og vilja fólksins á staðnum. Bók Magnúsar sjálfs er hins vegar einmitt þessu sama marki brennd, að horft er á alla hluti út frá gerðum Vesturlandabúa á svæðinu og með hliðsjón af því hverju Bandaríkjamenn eða Bret- ar voru að reyna að ná fram. Af- staða Magnúsar til íhlutunar Vest- urlanda er sannarlega gagnrýnin (engum leynist t.d. að Magnús er lítill aðdáandi verka Vesturlanda á þessu svæði, þ.m.t. innrásarinnar í Írak 2003), en bókin getur varla talist í grundvallaratriðum skrifuð út frá öðru sjónarhorni en því sem við eigum að venjast: við sjálf – þ.e. Vesturlandabúar – erum hér í aðalhlutverki. Kannski er þetta eðlilegt í ljósi sögunnar en ég sakna samt hins, að heyra meira af lífi og draumum venjulegs fólks í löndunum tveim- ur. Pólitískar tilraunastofur Bækur Stjórnmál Magnús Þorkell Bernharðsson. Mál og menning 2005. 237 bls. Píslarvottar nútímans – Samspil trúar og stjórnmála í Írak og Íran Davíð Logi Sigurðsson Magnús Þorkell Bernharðsson TOM Burlinson (t.v) aðalleikari í sýningunni „The Producers“ tekur hér sporið ásamt nokkrum dönsurum á sérstakri fjölmiðlaæfingu í Sydney í gær. Söngleikurinn, sem er eftir háðfuglinn kunna Mel Brooks, verður frum- sýndur í Lyric-leikhúsinu í Sydney 14. maí næstkomandi. AP Söngleikur Brooks æfður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.