Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 29

Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 29 MINNINGAR Landakotsspítala, eða allt þar til bera tók á einkennum Alzheimer- sjúkdómsins, sem á endanum varð henni að aldurtila. Sjúkdómur Dóru þróaðist hægt í fyrstu, svo að vart var merkjanlegt að nokkuð væri að, en eftir fárra ára meðgöngu Alzheimer-sjúkdómsins varð dagvistun á göngudeild fyrir minnisskerta óumflýjanleg, og seinna varð algjör umönnun á sér- hæfðri deild fyrir heilaskaðaða á Hrafnistu bitur veruleiki. Börn og tengdabörn Dóru hafa í kærleika reynt að létta henni þá sáru kröm, sem Alzheimer-sjúkdóm- urinn er, og einnig, og ekki síður, hefur óeigingjörn og fórnfús umönn- un og fyrirgreiðsla mágs míns sr. Ragnars Fjalars og konu hans Her- dísar frá upphafi verið ómetanleg í veikindum Dóru. Ég bið góðan Guð að blessa okkur öllum fagrar og hugljúfar minningar um Dóru. Guðlaugur Helgason. Það var kalt og frost á jörðu, er við hjónin keyrðum að Hrafnistu. Oft höfum við farið þessa leið á liðn- um árum, en ekki á þessum tíma sól- arhrings, þegar myrkur næturinnar hefur ekki ennþá vikið fyrir björtum degi. Langri þrautagöngu systur minnar var lokið. Það eru margar perlur á festi minninganna tengdar henni og þær eru allar skínandi bjartar. Ég minn- ist bernsku okkar á Akureyri. Við vorum átta systkinin, hún var fjórða í röðinni og kveður fyrst. Hún var alltaf kát og falleg nærvera hennar umvafði alla sérstakri hlýju. Bernskuheimilið okkar, Sólvangur, hefur vikið fyrir lystigarði trjáa og blóma, sem varðveita minningu góðra bernskudaga. Fullorðinsárin voru líka góð fram að þeim tíma sem alzheimer-sjúkdómurinn herjaði á þennan sterka heilbrigða líkama og færði hana inn í óminni gleymsk- unnar. Ég minnist með gleði liðnu áranna. Á flestum gleði- og sorg- arstundum voru fjölskyldur okkar saman, þær björtu minningar ylja okkur nú. Alltof löngu stríði elskulegrar systur minnar er nú lokið. Í anda sjáum við birtu himinsins umlykja hana og í sálu okkar allra, sem vor- um henni samferða, er þakklæti fyr- ir allt það góða sem hún gaf okkur á vegferð sinni. Herdís Helgadóttir. Halldóra Helgadóttir var eigin- kona móðurbróður míns, Friðriks Sigurbjörnssonar, sem lést um aldur fram fyrir tæpum 20 árum. Tíminn frá því að Friðrik dó hefur verið Dóru erfiður, sérstaklega vegna þess sjúkdóms sem hefur einangrað hana frá fjölskyldu og vinum. Frið- rik og Dóra voru stór hluti af lífi mínu enda var ávallt gott samband á milli móður minnar og Friðriks. Við fylgdumst með öllum þeim stórvirkj- um sem þau tókust á hendur, hvort sem það voru Harrastaðir, sumarbú- staðurinn Brekkukot á Kiðafelli eða Tungueyjar í Breiðafirði. Dóra var falleg og glæsileg kona svo eftir var tekið. Mér er minnisstæð ein heim- sókn þeirra Dóru, Friðriks og Unn- ar Ástu til Grundarfjarðar en þá fékk ég að fylgja þeim mæðgum á skemmtun í samkomuhúsinu og varð Grundfirðingum tíðrætt um þessar fallegu, dökkhærðu og heillandi „systur“. Ég sagði með nokkru stolti að þetta væru frænkur mínar og þær væru mæðgur en því vildu Grundfirðingar helst ekki trúa þó svo þeir vefengdu nú yfirleitt ekki það sem prestssonurinn sagði. Sum- arbústaður þeirra Friðriks og Dóru stendur næst við sumarbústað for- eldra minna. Í bréfi sem faðir minn skrifaði hinn 18. september 1978 til Ninnu, systur mömmu og Friðriks, segir hann svo frá einni af mörgum ferðum sínum í sumarbústaðinn: „Við Áslaug fórum ekki til Friðriks í Brekkukoti að þessu sinni en við er- um búin að vera þar í fyrri ferðum eftir að þau komu úr sumardvöl sinni í Breiðafjarðareyjum. Í Brekkukoti er nú aldeilis konung- lega tekið á móti gestum og ég held að það sé eini bústaðurinn þar sem tíðkast að veita súkkulaði með rjóma. Þau Dóra og Friðrik eru mjög vinsæl og margir vilja sækja þau heim en vinsældir þeirra byggj- ast ekki á veitingum, þótt góðar séu, heldur á óvenjulegri elskusemi og hjartahlýju. Gott er að eiga slíka ná- granna.“ Þessi bréfbútur finnst mér segja meira um Dóru og Friðrik en mörg orð. Við Kristín og Magnús faðir minn sendum Þorvaldi, Frið- riki, Halldóru Helgu og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur og biðjum þeim Guðs blessunar. Sigurbjörn Magnússon. Tíminn er eins og vatnið, og vatnið er kalt og djúpt eins og vitund mín sjálfs. – – – Og tíminn hvarf eins og tár, sem fellur á hvíta hönd. (Steinn Steinarr) Enn hefur skarð verið höggvið í vinkvennahópinn. Dóra Helga eins og hún var alltaf kölluð, vinkona okkar, hefur kvatt. Aðdragandinn var langur og óvæginn. Á besta aldri greindist Dóra með Alzheimer-sjúk- dóminn. Það tók algleymið hátt í tvo áratugi að taka völdin hægt og hægt, síðan kom þögnin uns ljósið slokkn- aði. Hugurinn leitar til æskuáranna, en þá myndast böndin sem ekki verða rofin. Við nokkrar skólasystur ólumst upp á Akureyri og urðum leikfélagar. Fjölskylda Dóru bjó á býlinu Sólvangi sem þá var í útjaðri Syðri brekkunnar en handan túnsins voru Menntaskólinn og Lystigarð- urinn. Á Sólvangi var stundaður sjálfbær búskapur. Fjölskyldufaðir- inn, Helgi Ólafsson, var barnakenn- ari, fríður maður og einkar rólegur í fasi. Valý, húsfreyjan, geislaði af dugnaði, gekk hratt, talaði hratt og stjórnaði heimilinu af miklum mynd- arskap. Miðpunktur heimilisins var stóra eldhúsið, þar var margt um manninn. Systkinin voru átta og oft voru kostgangarar á heimilinu, menntaskólapiltar sem bjuggu þar á námsárunum. Það voru forréttindi að kynnast mannlífinu á Sólvangi. Dóra erfði eiginleika foreldra sinna beggja, hún var náttúrubarn, ljúf, kvik, leikandi létt, hláturmild og söngelsk og einstaklega falleg. Minningarnar hrannast upp þeg- ar litið er til baka og er eins og öll samvera okkar stelpnanna hafi á sér sérstakan blæ því tækifærin til leikja og starfa voru næg, ánægju- stundirnar með glensi og gríni ótal margar. Eftir barnaskólann tóku við unglingsárin í öðrum skólum og nú var skátastarfið mikilvægt í frí- stundum. Dóra var fegurðardísin og æringinn í hópnum og miðlaði gleði og smitandi hlátri. Oft voru haldnir kvöldfundir þar sem áhugamálin voru rædd. Ferðir voru skipulagðar, útilegur, skíða- og skautaferðir, far- ið í sund eða spilaður tennis. Ekki var að undra þótt skóla- bræðurnir litu Dóru hýrum augum en stóra ástin kom eins og elding af himni. Ungur laganemi að sunnan, Friðrik Sigurbjörnsson, kom, sá og sigraði. Við vinkonurnar stóðum á hliðarlínunni uppnumdar af þessu ævintýri. Þegar Dóra fór suður í hjúkrunarnám var hún frátekin hin- um verðandi lögfræðingi. Friðrik hóf embættisferil sinn í Bolungarvík og settust þau hjónin þar að. Þetta var á gullaldarárum bæjarins og er ekki að efa að Friðrik og Dóra nutu sín þar. Hjá vinkon- unum tók ýmist við nám, vinna, börn og búskapur eða búseta í öðrum löndum. Síðar varð Reykjavík heimabær okkar flestra og þá var þráðurinn tekinn upp á nýjan leik. Friðrik og Dóra áttu heima á Harrastöðum í Skerjafirði. Heimilið var afar sér- stakt, búið listaverkum og stóru bókasafni. Þau voru höfðingjar heim að sækja og á góðum stundum voru gömlu dagarnir rifjaðir upp við mikla kátínu. Minningin um Dóru er björt og tær. Hún er brosandi og hún syngur eitthvað fallegt. Við vottum öllum aðstandendum innilega samúð. Margrét, Hrefna og Sigrún. ✝ Sigríður Gísla-dóttir fæddist á Neðri-Fitjum í Víði- dal í Vestur-Húna- vatnssýslu 12. des- ember 1923. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ að- faranótt 5. febrúar síðastliðins. Foreldr- ar hennar voru Mar- grét Pálsdóttir, f. 18. júní 1886, d. 23. nóv- ember 1970, og Gísli Árnason, f. 21. mars 1894, d. 19. ágúst 1955. Systkini Sig- ríðar eru Guðlaug, f. 12. júní 1920, Páll, f. 12. desember 1923, tvíburabróðir Sigríðar og lést innan sólarhrings, Ingibjörg Petrea, f. 7. mars 1926, d. 11. júlí 1994, og Árni Vernharður, f. 2. júní 1928. Uppeldisbræður Sig- ríðar voru Hörður Pétursson, f. 8. júlí 1922, d. 18. október 1950, og Stefán Jóhann Jónatansson, f. 25. júní 1940. Sigríður giftist 30. desember 1950 Sigurleifi Guðjónssyni, f. 9. ágúst 1916, d. 3. febrúar 2003. Foreldrar hans voru Guðjón Sig- urðsson, f. 4. júlí 1879, d. 21. apríl 1960, og Þórunn Guðleifsdóttir, f. 18. júlí 1877, d. 29. apríl 1942. Börn Sigríðar og Sigurleifs eru Unnar Þór, f. 30. maí 1950, og Margrét, f. 5. júlí 1956, sambýlis- maður Elías Hartmann Hreins- son, f. 3. ágúst 1954, dóttir þeirra er El- ísa Sirrý, f. 22. maí 1998. Sigríður vann að búi foreldra sinna á unglingsárum og gekk í barnaskóla, farskóla eins og tíðkaðist á þeim tíma, og veturinn 1945–1946 stundaði hún nám í Kvenna- skólanum á Blöndu- ósi. Eftir það lá leið- in fljótt til Reykjavíkur og fór Sigríður að vinna við það sem til féll, svo sem fiskvinnslu, mötu- neyti og á prjónastofu. Auk heim- ilishalds vann hún við ræstingar í Kvennaskóla Reykjavíkur ásamt heimilishjálp um árabil. Sigríður gekk í Handprjónasamband Ís- lands þegar það var stofnað og prjónaði hún margar fallegar lopapeysur og trefla sem prýddu íslenska bæklinga í fjölda ára. Sigríður átti sitt heimili í Safa- mýri 48 í tæp 40 ár og með lið- sinni dagvistunar á Vitatorgi, ásamt heimahjúkrun, gat hún verið lengur heima en hún dvaldi aðeins í 13 mánuði á Hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ, þar sem hún lést. Útför Sigríðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin kukkan 13. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín elsku góða mamma mín. Allt sem gott ég hefi hlotið, hefir eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærustu blysin þín. (Árni Helgason.) Minning um elskulega móður lif- ir. Takk fyrir allt. Við færum starfsfólki á dagvist- inni Vitatorgi alúðarþakkir okkar fyrir gott viðmót og hlýju og þökk- um jafnframt hjúkrunarfólki og öðru starfsfólki á Skógarbæ góða umönnun móður okkar. Unnar Þór og Margrét. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Guð blessi ömmu þína, skrifaði séra Bolli prestur til mín við minn- ingarathöfn í Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þar sem þú áttir heima síðastliðna 13 mánuði. Þó að ég sé ekki nema tæplega sjö ára þá er ég að kveðja nákom- inn ættingja í þriðja sinn, afa Sig- urleif í febrúar 2003, Haflínu lang- ömmu í júní 2004 og nú þig elsku amma. Ég varð svo sorgmædd þegar mamma sagði mér að þú værir dáin og ég spurði hvar þú værir. Þá svaraði hún því að núna værir þú hjá Sigurleifi afa og öllum vinum þínum. Ég hlustaði á og spurði svo: En mamma, það á eftir að jarða hana, fer hún nokkuð upp til Guðs fyrr en það er búið að jarða hana? Stórt er spurt en við svörum því af okkar besta mætti. Ég var daglegur gestur á heimilinu ykkar afa í Safamýrinni öll árin sem þið bjugguð þar, þar var al- gjör gullnáma, rólur úti í garði og dótið hennar mömmu minnar frá því hún var lítil stelpa, stór dúkku- vagn sem mamma sagði að væri orðinn antik – „hvað er nú það?“ – ásamt ýmsu fleiru. Stundirnar þeg- ar þið afi gátuð passað mig áður en heilsan ykkar versnaði voru dýr- mætar, ekki þurfti að koma við í bakaríi áður en við heimsóttum ykkur því þú amma mín tókst allt- af fram pönnukökupönnuna og bakaðir nokkrar. Amma, þú hefðir átt að kenna mömmu að baka pönnukökur, hún segist bara kunna að baka vöfflur, ég skil ekki af hverju. Nú þegar þú verður jörðuð við hliðina á afa þá ætla ég að setja falleg sumarblóm í sumar, rauð á litinn, því þér fannst hann falleg- astur, og blá hjá afa. Við mamma tölum og hugsum til ykkar, það er svo gott, og ég fer alltaf með bæn- irnar mínar. Þú sofnað hefur síðsta blund í sælli von um endurfund, nú englar Drottins undurhljótt þér yfir vaki – sofðu rótt. (Aðalbjörg Magnúsdóttir) Takk, amma mín, fyrir alla þína góðvild. Þín ömmustelpa, Elísa Sirrý. Að fæðast, komast á legg, þrosk- ast að visku og vexti, verða full- orðin, lifa lífinu, eldast og deyja er lífsins gangur. Mig langar til að minnast með nokkrum orðum hjartkærrar systur minnar sem andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 5. febrúar síðastliðinn eftir erfiðan og illvígan sjúkdóm, sem Alzheimer-sjúkdómurinn er. Á þessari stundu er margs að minnast og margt að þakka fyrir eftir langa ævi, því Sirrý, eins og hún var kölluð af okkar nánustu, var afar bóngóð og umhyggjusöm. Hún ólst upp meðal okkar systk- ina á okkar góða foreldraheimili, gekk í barnaskóla, farskóla eins og gerðist á þeim tíma, stundaði síðan nám í Kvennaskólanum á Blöndu- ósi veturinn 1945–1946. Eftir það lá leiðin fljótt til Reykjavíkur þar sem hún settist að og giftist síðan Sigurleifi Guðjónssyni, börnin þeirra urðu tvö, Unnar Þór og Margrét. Sirrý og Leifur maðurinn henn- ar voru afar gestrisin hjón og var ávallt gott að koma til þeirra. Sirrý lagði sig fram um það að heimili hennar stæði alltaf opið mér fjöl- skyldu minni með margskonar að- stoð og var það okkur mikils virði, þar sem ég bjó norður í Miðfirði. Sirrý hélt mikilli tryggð við sveitina okkar, það leið varla svo sumar að hún kæmi ekki norður, ýmist ein eða með börnin. Eftir að við Björn hættum búskap og flutt- um til Reykjavíkur 1978 varð sam- bandið enn nánara, enda var yf- irleitt stutt á milli heimilanna. Mesta áhugamál hennar var handavinna og liggur eftir hana mikill útsaumur og flosmyndir ásamt öðru. Að leiðarlokum þakka ég og fjöl- skylda mín Sirrý langa og trygga samfylgd og biðjum henni og fjöl- skyldu hennar guðs blessunar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Hvíl í friði. Þín systir Guðlaug. Elsku Sirrý. Kærar þakkir fyrir að hafa feng- ið að kynnast þér, svo hlý og blíð sem þú varst og einstaklega góð kona. Ég var þess láns aðnjótandi að tengjast þér þegar við Magga þín rugluðum saman okkar reytum og eignuðumst sólargeislann þinn og nöfnu okkar, hana Elísu Sirrý. Það var svo gott að koma til þín í Safamýrina, svo mikil ró og friður yfir öllu í kringum þig og alltaf sama góða skapið. Þótt farið hafi að halla undan fæti hjá þér síðustu ár þá fór aldr- ei frá þér róin og létta lundin, þótt tjáningin væri orðin erfið var hlát- urinn alltaf til staðar. Guð blessi minningu þína, elsku Sirrý, og hvíl í guðs friði. Elías Hartmann. SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR MAGNÚSSON fiskmatsmaður, sem andaðist á heimili sínu, Völusteinsstræti 15, Bolungarvík, sunnudaginn 13. febrúar, verður jarðsunginn frá Hólskirkju laugardaginn 19. febrúar kl. 14.00. Elsa Ásbergsdóttir, Elísabet Kr. Einarsdóttir, Margrét Þ. Einarsdóttir, Hjalti Gústavsson, Ásberg M. Einarsson, Steinunn Frímannsdóttir, Einar Örn Konráðsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.