Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 37

Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 37 HESTAR EINN hvimleiðasti kvilli sem herjar á hesta á húsi er múkk. Múkk er bólga eða út- brot í húðinni í kjúkubótinni, milli hófs og hófskeggs. Húð- in í kjúkubótinni er fíngerð og verður fyrir þenslu í hvert sinn sem hesturinn stígur í fótinn. Í Hestaheilsu eftir Helga Sigurðsson dýralækni er þess getið að áður fyrr var múkk algengara í afturfótum en í framfótum, en þá stóðu hest- arnir í skít langtímum saman. Nú er talið að það sé algeng- ara í framfótum. Erfitt er að segja til um hvað valdi múkki, en stundum hefur verið talið að of mikið prótein í fóðri geti valdið múkki. Edda Þórarinsdóttir dýra- læknir rannsakaði múkk og fjallaði um það í lokaritgerð sinni. Hún sendi spurninga- lista til félaga í Gusti um hvort múkk væri í hestum í húsum þeirra. Svör bárust um 277 hesta. 20 voru með múkk á báðum framfótum, 6 á öllum fótum, 1 á báðum afturfótum og 1 á öðrum framfæti. Um helmingur þessara hrossa var með múkk í fyrsta skipti. Aft- ur á móti höfðu þeir sem voru með það á afturfótum fengið múkk aftur og aftur. Edda telur svita geta átt þátt í að breyta bakteríuflór- unni, svo og hland og annað í umhverfinu. Hún telur jafn- framt að þegar hross fái mik- ið prótein svitni þau meira að framan við notkun og þannig hafi fóðurgjöfin áhrif á það hvort þau fái múkk. Umhverf- ið geti haft mikið að segja líka. Það hefur sýnt sig að ástandið batnar oft ef skipt er um jarðveg í gerðum og höfð möl í stað moldar. Erfitt að losna við múkkið Í rannsókninni fundust bakteríur í múkki, aðallega stafílókokkar. Þar sem svitinn er basískur getur reynst vel að þvo sárin upp úr mildum sápum með rétt sýrustig. Einnig er gott að nota zinkpasta eða önnur græðandi smyrsl. Helgi getur þess að oft sé erfitt að losna við múkkið. Ef talið er að fóðrið sé orsaka- valdur sé rétt að breyta því, einnig að skipta um smyrsl náist ekki sýnilegur árangur. Þá þurfi að hlífa hestinum við notkun á meðan á meðferð stendur. Nauðsynlegt sé að kalla á dýralækni sé hest- urinn haltur eða mikið bólg- inn. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Múkk getur sett strik í reikn- inginn ef uppáhaldshesturinn verður ónothæfur um lengri eða skemmri tíma. Múkk er þrálátur og hvim- leiður kvilli TALAÐ var um að öll umgjörð dags íslenska hestsins, sem haldinn var í Kaupmannahöfn, hafi verið íslensk. Meira að segja veðrið. En þrátt fyrir að það setti strik í reikninginn tókst kynningin vel og talið er að tæplega 3000 manns hafi komið í húsið á Norðurbryggju þar sem fyrirlestrar og kynning fór fram. Allir helstu fjölmiðlar í Danmörku höfðu fjallað um dag íslenska hests- ins fyrir fram og sagði Már Másson, viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, að það hefði greinilega haft áhrif. Þótt ekki hafi getað orðið jafnmikið úr þeim atrið- um þar sem íslenski hesturinn var sýndur úti við væri óhætt að segja að dagurinn hefði heppnast vel. Á með- an á hópreiðinni frá Christiansborg að Norðurbryggju stóð var snjó- koma. Veðurútlit var slæmt fyrir kvöldið og þeir sem voru með sýn- ingarhesta þorðu ekki annað en drífa sig heim með hestana á kerr- um. Ekki voru því jafnmargir hestar á sýningunni á Norðurbryggju og til stóð. Samt sem áður þusti fólk, sem verið hafði á fyrirlestrunum, út um leið og hún hófst að sögn Más. Eftir sýninguna var TV2 í Dan- mörku með stutt innslag auk þess sem mynd af íslenskum hesti birtist á forsíðu Politiken. Jónas R. Jónsson, umboðsmaður íslenska hestsins, var á kynningunni og sagðist hann hafa verið mjög ánægður með hvernig til tókst. „Ég held að þessi kynning hafi haft mikið að segja fyrir þá sem þangað komu. Haldnir voru fyr- irlestrar af fólki sem er fært á sínu sviði svo að fólkið fékk ákaflega góðar upplýsingar um íslenska hest- inn. Ég er hræddur um að ef veðrið hefði verið betra hefði getað skapast öngþveiti því biðraðir mynduðust inn í fyrirlestrasalina. Eins gæti ver- ið að við hefðum ekki fengið þessa fínu mynd á forsíðu Politiken ef ekki hefði snjóað.“ Eigendur góðir sendiherrar Jónas sagði að Toni Kolnes, for- maður FEIF, alþjóðasamtaka eig- enda íslenskra hesta, hefði tekið það upp í lokaræðunni að oft væri talað um íslenska hestinn sem einn besta sendiherra Íslands. Hún sagði að réttara væri að tala um eigendur ís- lenskra hesta sem góða sendiherra. Þeir eru um 70.000 talsins innan FEIF og hafa flestir mikinn áhuga á landi og þjóð og vita meira um Ís- land en flestir landafræðikennarar sem kenna börnum. Sandra Bragadóttir, sem býr á bú- garði skammt frá Slagelse þar sem hún þjálfar og selur íslenska hesta, var ein þeirra sem tóku þátt í hóp- reiðinni á hryssunni Drottningu frá Miðhúsum. Hún sagði veðrið hafa verið brjálað og stanslaus snjókoma var á meðan á hópreiðinni stóð. „En þetta var mjög gaman. Ég var renn- andi blaut og mér var kalt, en mér fannst það þess virði. Um leið og ég kom úr hópreiðinni skellti ég mér í 66°Norður kuldagallann og setti hrossið á kerruna og keyrði heim. Ég var þrjá tíma að komast heim sem venjulega tekur klukkutíma, enda keyrðum við á 30 km hraða alla leið. Veðrið setti svip á dag íslenska hestsins í Kaupmannahöfn Biðraðir mynduðust á fyrirlestra sem haldnir voru um íslenska hestinn. Skyggni var ekki mikið þegar íslensku hestarnir töltu um götur Kaupmannahafnar á laugardaginn. asdish@mbl.is ERFITT hefur reynst fyrir ís- lenska tamningamenn og reiðkenn- ara að fá atvinnuleyfi í Bandaríkj- unum. Er talið að það standi markaðssetningu íslenska hestsins þar fyrir þrifum. Eitt af verkefnum umboðsmanns íslenska hestsins er að vinna að því að finna lausn á þessu máli. Jónas R. Jónsson, umboðsmaður íslenska hestsins, segir að verið sé að vinna að málinu af fullum krafti. Nýlega hófst samstarf við lögfræð- ing sem hefur reynslu af því að flytja inn knapa og tamningamenn frá Suður-Ameríku og þá sem sér- hæfða tamningamenn á sérstökum hestakynjum þaðan, t.d. Paso Fino. „Við höfðum áður átt samstarf við tvo lögfræðinga en komist að því að þeir höfðu ekki nægilega þekk- ingu á málinu. Vinna þessa manns lítur vel út, en staðreyndin er sú að þetta tekur ótrúlega langan tíma,“ segir Jónas. Prófmál er í gangi „Í gangi er ferli á prófmáli sem felst í því að tamningamaður héðan fær meðmæli bæði frá Íslandi og Bandaríkjunum, vottorð frá FT og Hólaskóla um prófgráður og reynslu. Síðan verður auglýst eftir tamningamanni á afmörkuðu svæði í Bandaríkjunum. Ef svör berast þarf viðkomandi að sýna fram á hæfni sína, en ef engin svör berast, sem er líklegra, verður vonandi hægt að ráða tamningamann frá Ís- landi. Þar með er jafnframt búið að sýna fram á að ekki eru tekin störf frá Bandaríkjamönnum. Einnig þarf að sýna fram á sérstöðu ís- lenska hestsins og að vöntun sé á íslenskum tamningamönnum. Þar af leiðandi verður litið á störf þeirra sem þjónustu við Bandaríkjamenn.“ Jónas segir ástandið mjög slæmt. Sárlega vanti íslenska tamninga- menn og reiðkennara í Bandaríkj- unum, en eins og ástandið sé núna megi reiðkennarar til dæmis ekki þiggja laun ef þeir halda námskeið þar. Erfitt að fá atvinnuleyfi fyrir íslenska tamningamenn í Bandaríkjunum Unnið að lausn málsins FRÉTTIR SAMTÖK um betri byggð mótmæla byggingu nýrrar flugstöðvar sem þau segja að kölluð hafi verið sam- göngumiðstöð í Vatnsmýrinni. Samtökin mótmæla þeirri „stór- kostlegu sóun á almannafé og skerðingu á framtíðarmöguleikum svæðisins sem felst í ákvörðuninni,“ eins og segir í yfirlýsingu þeirra. „Samtökin telja staðsetninguna óheppilega eigi rútur að fara þar um. Engin byggð er í nágrenninu, engar tengingar við almennings- samgöngur eða ákvörðunarstaði ferðamanna. Benda mætti á Hlemm, Mjóddina og athafnasvæði Strætó við Borgartún sem mun fýsilegri kosti svo dæmi séu nefnd. Uppbyggingu samgöngumann- virkja á að miða við þarfir almenn- ings en ekki þess fámenna hóps ríkisstarfsmanna sem notar flug- völlinn mest að jafnaði.“ Mótmæla bygg- ingu samgöngu- miðstöðvar UNGVERSKA menningarfélagið á Íslandi, Félagið Ísland-Ungverja- land, býður þrjá styrki fyrir Íslend- inga til náms í ungversku í Ung- verjalandi frá ungverska menntamálaráðuneytisins. Í boði eru námskeið sem öll eru haldin við virta háskóla í Ungverja- landi. Fólk getur valið eftirfarandi háskóla: Háskólinn í Debrecen (www.nyariegyetem.hu), Balassi Bálint Intézet í Budapest (www.bbi.hu), Háskólinn í Pécs (elsti háskóli Ungverjalands, stofn- aður árið 1367; www.isc.pte.hu), Háskólinn í Szeged (www.art.u- szeged.hu/hungarianstudies), Há- skólinn „Eötvös Loránd“ í Buda- pest (stærsti ungverski háskólinn sem tengdur er Háskóla Íslands með Erasmus skiptiáætlun; www.elte.hu). Styrkirnir fela í sér: skólagjöld, húsnæði, fullt fæði, kvölddagskrá, ferðir og annað á vegum skólans, samgöngukort og u.þ.b. 500 HUF á dag í vasapening. Þeir sem áhuga hafa á að sækja um styrkinn sendi ferilskrá sína ásamt 1 bls. ritgerð um ástæður áhuga á Ungverjalandi og ung- versku. Umsóknarfrestur er til 15. mars og umsóknum skal koma til Félagsins Ísland-Ungverjaland, Hagamel 45, 107 Reykjavík. Nánari upplýsingar er að fá á heimasíðu félagsins (http:// ungverjaland.supereva.it/) og með því að senda tölvupóst á netfangið mauriziotani@yahoo.it eða í síma 551 2061 – 696 7027 Þrír styrkir til náms í ungversku Móðir með barn í flæðarmáli Rangur myndatexti var við mynd af verki eftir Kristínar Gunnlaugs- dóttur sem fylgdi umsögn um sýn- ingu hennar í Listasafni Reykjanes- bæjar í blaðinu í gær. Myndin heitir Móðir með barn í flæðarmáli og er eggtempera á tré frá árinu 2004. Bæklingi seinkaði Blaðinu í dag fylgir bæklingur um dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík. Bæklingurinn átti að fylgja blaðinu í gær eins og fram kom í tilkynningu í blaðinu en vegna tæknilegra örðug- leika gat ekki orðið af því. Beðist er velvirðingar á því. LEIÐRÉTT Leiðrétt KRISTINN H. Gunnarsson alþing- ismaður hefur opnað vefsíðu, krist- inn.is. Kristinn mun einkum nota síðuna til að setja fram skoðun sína á þjóðfélagsmálunum og blanda saman við frásögn af atburðum og öðru sem hann telur eiga erindi til almennings. Kristinn H. Gunnarsson opnar vefsíðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.