Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 41
DAGBÓK
Eftir hverju erum við að bíða?“ er yf-irskrift fyrirlestrar sem ÞorvaldurÞorsteinsson, rithöfundur og mynd-listarmaður, flytur í versluninni Mað-
ur lifandi í dag kl. 18.30.
Í fyrirlestrinum skoðar Þorvaldur tilhneigingu
manna til að fresta sjálfum sér með öllum til-
tækum ráðum. „Ég velti því fyrir mér hvernig
við forðumst raunverulega sjálfsþekkingu og fyll-
um lífið af sérhæfðri þekkingu í staðinn,“ segir
Þorvaldur. „Ég leita í framhaldi af því svara við
hver sé hugsanleg ástæða eða ástæður og hvern-
ig við getum snúið af þessari flóttaleið.“
Þorvaldur segir frestunaráráttu mannanna í
raun vera afleiðingu samfélagsuppbyggingar sem
gengur út á að ala fólk upp samtímis í skorti og
allsnægtum. „Skorturinn birtist m.a. í þeirri
grunnhugsun skólakerfisins og hins svokallaða
upplýsingasamfélags, að einstaklingurinn sé háð-
ur utanaðkomandi dóti sem muni gera hann að
manni. Að hvert og eitt okkar sé hingað komið til
að innbyrða upplýsingar af ótta við að verða út-
undan í leiknum, fremur en miðla af því ríkidæmi
sem býr innra með okkur. Við lærum að fresta
sjálfum okkur þangað til við teljumst tilbúin.
Þess virði að mæta á svæðið. Sem séð er um að
verði aldrei. Tómarúmið sem skapast við þetta
fyllum við hins vegar með fylgihlutum, forritum
og upplýsingum um allt milli himins og jarðar,
nema okkur sjálf.
Margt af því sem ég tala um á fyrirlestrinum
tengist þeim námskeiðum sem við bjóðum upp á
hjá kennsla.is og miðað við þau rífandi viðbrögð
sem þau hafa fengið er ég ekki í vafa um að það
er afgerandi hugarfarsbreyting í gangi í sam-
félaginu. Við erum búin að fá nóg af því að láta
skilgreina okkur út frá því sem við erum ekki og
eigum ekki. Við viljum læra að njóta okkar hér
og nú fyrir það sem við erum og það sem við eig-
um innra með okkur. Það er ekki eftir neinu að
bíða.“ Eftir hverju erum við að bíða?
„Það ætla ég mér að segja því ágæta fólki sem
hefur ákveðið að hætta að bíða og mæta á þenn-
an fyrirlestur í staðinn. Ef ég upplýsi það hér, er
allt eins víst að það ákveði að bíða aðeins lengur.“
Hver eru fyrstu skrefin í átt að nýju lífi?
„Því er best að svara með nokkrum lykilorðum
sem munu koma fyrir í fyrirlestrinum: Meðvit-
und, ábyrgð, ákvörðun.
Og svo auðvitað með því að hvetja fólk til að
skella sér inn á kennsla.is og skrá sig á eitthvað
af þeim námskeiðum sem þar eru í boði. Þau
virka.“
Sjálfsrækt | Fyrirlestur Þorvaldar Þorsteinssonar um frestunaráráttu í Maður lifandi
Ekki eftir neinu að bíða
Þorvaldur Þor-
steinsson er fæddur á
Akureyri 1960. Hann
lauk stúdentsprófi frá
MA 1980 og útskrif-
aðist úr nýlistadeild
MHÍ 1987 og Jan van
Eyck Akademie í Hol-
landi 1989.
Þorvaldur hefur starfað
jöfnum höndum sem
myndlistarmaður og
rithöfundur síðan 1990, auk þess að sinna
kennslu, fyrirlestra- og námskeiðshaldi. Hann
stofnaði MyPocket Productions ásamt Helenu
Jónsdóttur og sinnir þar framleiðslu kvik-
mynda- og leikhúsefnis, auk þess að veita for-
stöðu fræðslumiðstöðinni kennsla.is.
Þorvaldur er kvæntur Helenu Jónsdóttur og á
tvö fósturbörn.
Ættingja leitað
ÉG er að leita að ættingjum mínum á
Íslandi. Afi minn var Sigurður Hans-
son, fæddur 8. september 1860,
skráður í Arnarbælissókn? og amma
mín var Þórunn Magnúsdóttir, fædd
á Akranesi 7. apríl 1871.
Þau áttu bæði börn á Íslandi þegar
þau fluttu til Hull í Englandi. Þau
eignuðust þar þrjá syni, Paul, Hilmar
og Thor. Hilmar Hans Anderson var
faðir minn, fæddur 1909, látinn 1989.
Hann var sjómaður og heimsótti ætt-
ingja sína á Íslandi þegar skipið hans
kom til landsins.
Þeir sem gætu liðsinnt mér eru
vinsamlega beðnir að hafa samband
við:
Jenny Cumins,
12/12 Forrest Street,
South Perth 6151,
Western Australia.
netfang:
thorun@bigpond.com
Allir tala í einu
ÉG hef gaman af að horfa á Kastljós
og Ísland í dag. En stundum finnst
mér erfitt að hlusta á fólk í þessum
þáttum þegar allir tala og hlæja í
einu. Sérstaklega er þetta áberandi í
þættinum Íslandi í dag.
Kona á Seltjarnarnesi.
Sóðaskapur
íKeflavík
ÉG vil koma á framfæri kvörtun
vegna sóðaskapar í Keflavík. Þar er
hundaskítur á lóðum, því hundum er
sleppt lausum og þeir gera þarfir sín-
ar í görðum, og svo eru blaðabunkar
út um allt sem eru að rigna niður,
bæði Fréttablaðið og önnur blöð. Vil
beina því til hundaeigenda að þrífa
eftir hundana og hafa þá í bandi.
B.B.
Pels tekinn í misgripum
SVARTUR minkapels var tekinn í
misgripum í erfidrykkju á Hótel
Loftleiðum þriðjudaginn 8. febrúar.
Sá sem tók pelsinn er beðinn að hafa
samband í síma 561 6156.
Kettlingar fást gefins
TVEIR 10 vikna fressar fást gefins,
kassavanir, svartir og hvítir. Upplýs-
ingar í síma 557 8011.
Kettlingar fást gefins
ÞRÍR yndislegir 9 vikna kettlingar
fást gefins á gott heimili. Upplýsingar
í síma 567 0410.
Köttur í óskilum
ÞESSI köttur fannst á Írabakka.
Eigandi getur haft samband við El-
ísabetu í síma 849 1810.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 Be7 5.
0-0 0-0 6. b3 c5 7. Bb2 Rc6 8. e3 d4 9.
exd4 cxd4 10. He1 Re8 11. d3 Rc7 12.
Ra3 f6 13. Rc2 e5 14. Rh4 g5 15. Rf3 Be6
16. Rfxd4 exd4 17. Hxe6 Rxe6 18. Bd5
Kh8 19. Bxe6 Bc5 20. Bf5 Dc7 21. a3 a5
22. Hb1 Had8 23. Ba1 Bd6 24. b4 axb4
25. axb4 Be5 26. b5 Re7 27. b6 Dd6 28.
Be4 Hd7 29. Hb5 f5 30. Bxb7 f4 31. Bg2
fxg3 32. fxg3 Rf5 33. b7 He7 34. Df3 Dh6
Staðan kom upp í öflugu 6 manna
móti sem lauk fyrir skömmu á Berm-
údaeyjum. Bartlomiej Macieja (2.618)
hafði hvítt gegn Giovanni Vescovi
(2.645). 35. Dxf5! Óvenjuleg drottning-
arfórn sem leiðir til þess að hvítur á létt-
unnið tafl þar eð hann fær þrjá létta
menn fyrir drottningu. 35. – Hxf5 36.
Hxe5! Hxb7 36. – Hexe5 hefði að sjálf-
sögðu verið svarað með 37. b8=D+ og
hvítur vinnur. 37. Hxf5 Hb1+ 38. Hf1
Hxf1+ 39. Bxf1 Kg8 40. Bxd4 Dh5 nú
þegar tímamörkunum er náð hefði
svartur getað gefist upp með góðri sam-
visku. 41. Re3 Dg6 42. Rd5 Kf7 43. Rf6
Df5 44. Re4 Kg6 45. Be3 h6 46. c5 Df7
47. Bf2 Db7 48. Rd6 Df3 49. Rc4 Kf6 50.
d4 Ke7 51. Re3 og svartur gafst upp
saddur lífdaga.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
NEC-bikarinn.
Norður
♠ÁG1084
♥G V/Enginn
♦86
♣K9872
Vestur Austur
♠K ♠D976532
♥D65 ♥108
♦ÁKDG9 ♦104
♣10543 ♣DG
Suður
♠–
♥ÁK97432
♦7532
♣Á6
Eins og fram kom í þætti gærdagsins
vann lið frá Ísrael NEC-sveitakeppnina
með því að leggja pólsk/rússneska sveit
í hörkuspennandi úrslitaleik. Spilið að
ofan er frá þeirri viðureign:
Vestur Norður Austur Suður
Dubinin Doran Gromov Israel
1 tígull 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 2 spaðar Pass 3 hjörtu
Pass Pass Pass
Þrjú hjörtu er hófsamur samningur,
sem virðist hjóta að vinnast, en Israel
Yadlin var lokaður fyrir hinni slæmu
spaðalegu og slysaðist einn niður. Það
gerðist þannig: Rússinn Dubinin tók tvo
fyrstu slagina á ÁK í tígli og skipti svo
yfir í spaðakóng. Israel drap með ás og
henti tígli heima. Hann fór svo heim á
laufás og trompaði tígul í borði með
gosa og austur henti laufi í slaginn. Isra-
el spilaði þá spaða og stakk smátt (!) og
vestur yfirtrompaði með fimmu. Dub-
inin spilaði svo laufi og Gromov tromp-
aði kóng blinds, spilaði spaða og upp-
færði trompdrottningu vesturs. Heldur
neyðarlegt.
Á hinu borðinu stökk Pólverjinn Bal-
icki strax í fjögur hjörtu, enda spilar
hann ekki bút þegar geim kemur til
greina:
Vestur Norður Austur Suður
Campanile Zmudzinski Barel Balicki
1 tígull 1 spaði Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Vörnin fór eins af stað – ÁK í tígli og
spaðakóngur í þriðja slag. Balicki drap
og trompaði strax spaða smátt, sem
vestur yfirtrompaði og spilaði hjarta-
drottningu. Nú var ekki hægt að stinga
tígul í borði, en það kom ekki að sök því
vestur lenti í kastþröng í láglitunum
þegar sagnhafi tók öll hjörtun. Balicki
fékk þannig tíu slagi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
ÓLÖF Björnsdóttir myndlist-
armaður hlaut Ullarvettlinga
Myndlistarakademíu Íslands við há-
tíðlega og fjölmenna athöfn á
Næsta bar á föstudagskvöld, en
Ullarvettlingunum er ætlað að
beina augum þjóðarinnar að því
nauðsynlega afli sem myndlistin er
á þroskabraut hverrar þjóðar, auk
þess að vekja athygli á „myndlistar-
manni sem hefur dug, þor og frum-
leika til þess að ausa af þeim
gnægtarbrunni sem geymir forn og
ný sannindi um eðli þeirrar þjóðar
sem kallar sig Íslendinga.“
Í ávarpi sínu sagði stjórn-
arformaður akademíunnar, Bene-
dikt Gestsson, m.a.: „Því verður
ekki neitað að íslenskir myndlistar-
menn hafa verið útilegumenn í list-
rænni viðleitni sinni og sjást oft
ekki fyrir glýju þess markmiðs að
verða ljósið sem tíðarandaleik-
stjórar tendrar á hátimbruðum há-
tíðum póstmódernískrar rétthugs-
unar. Þess vegna skilur þjóðin
tíðarandann en ekki listina og þar
af leiðandi skapast ákveðið ginn-
ungagap milli þjóðar og listamanns.
Í þessu ginnungagapi er sjálfs-
myndin, en Ólöf að spinna örlög
þjóðar af reifi rollunnar, sallaró-
leg.“
Sérstakur styrktaraðili Ullar-
vettlinganna 2005 var Iceland Ex-
press, sem flutti Ólöfu til landsins
frá London þar sem hún hefur verið
búsett undanfarin átta ár.
Ólöf Björnsdóttir
fær Ullarvettlingana
Morgunblaðið/Eggert
Benedikt Gestsson afhendir Ólöfu Björnsdóttir ullarvettlingana.