Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 43
MENNINGDAGBÓK
G
iovanna Canetti heitir
hún – la maestra er
hún kölluð í heima-
landi sínu, Ítalíu, og
hún á sér sérstæðan
og forvitnilegan feril í heimi óp-
erusöngsins. Aldrei ætlaði hún sér
þó að syngja – hún lærði á píanó
og lauk prófi sem einleikari.
„Það var mikil músík á æsku-
heimili mínu. Mamma var austur-
rísk söngkona og pabbi var ítalsk-
ur píanóleikari. Ég byrjaði
snemma að læra á píanó. Á ung-
lingsaldri varð ég æ heillaðri af
söngnum og söngröddinni og fór að
taka söngtíma með píanónáminu
sem þó átti hug minn allan. Ég
lauk einleikaraprófi í píanóleik í
Flórens, en langaði líka til að láta
reyna á röddina, og gerði það og
lauk söngprófi frá Verdi kons-
ervatoríinu í Mílanó. Þá var ég
mikið að spila með söngvurum. Ég
lauk söngnáminu og fyrr en varði
var ég farin að syngja í óperu-
húsum um alla Evrópu; Þýska-
landi, Austurríki, Englandi og víð-
ar. En svo kom að því að ég gifti
mig og eignaðist börn og ákvað að
leggja ferilinn á hilluna og sinna
heimilinu. Ég byrjaði hins vegar
fljótt á því að taka að mér söng-
nemendur, og fann að það átti afar
vel við mig að kenna. Það má segja
að þá hafi hafist þriðji starfsferill
minn, og honum sinni ég enn. Í
dag kenni ég í Mílanó, við Verdi
konservatoríið og við óperuskóla
Scala-óperunnar, og er með söng-
nema hvaðanæva úr heiminum og
margir þeirra hafa náð langt. Sá
nemandi minn sem hefur náð
lengst er Barbara Frittoli sem
syngur í öllum bestu óperuhúsum
heims og er mjög eftirsótt. Annar
nemandi minn er að komast á
toppinn um þessar mundir, Sonia
Prina, ungur messósópran, en hún
á að syngja hlutverk Rinaldos í
samnefndri óperu Händels á Scala
nú í vor. Barbara Frittoli var bara
sautján ára þegar hún byrjaði hjá
mér og óneitanlega finnst mér
gaman hvað henni hefur vegnað
vel. Við hittumst enn og hún kem-
ur af og til í tíma. Hún hefur
yndislega rödd.“
Giovanna Canetti segir það enga
eftirsjá að hafa þurft að gefa pí-
anóið og söngferilinn upp á bátinn
– þriðja starfið hafi reynst það
happadrýgsta og að hún uni sér vel
– hafi bara því miður allt of mikið
að gera. Söngkennari eins og hún
mætir ekki bara í kennslustundir
og elur upp óperusöngvara fram-
tíðarinnar, hún hefur ærinn starfa
af því að sitja í ýmiss konar dóm-
nefndum og hlusta á söngvara sem
koma í prufusöng fyrir hitt og
þetta. Þá er hún líka á ferð og
flugi um allan heim til að halda
námskeið fyrir langt komna söng-
nemendur, og er mjög eftirsótt á
því sviði líka. Kórea, Japan og
Bandaríkin eru þar ofarlega á blaði
auk Evrópulandanna.
„Ég er hingað komin til að halda
námskeið í Listaháskólanum – og
þetta er í fyrsta sinn sem ég kem
hingað til þessa fallega lands. Hér
á ég vini; Elísabetu Erlingsdóttur
söngkennara við skólann, og það er
fyrir okkar vinskap að ég kem
hingað.“
Elísabet kynntist Giovönnu Can-
etti þegar hún tók sér námsleyfi
frá störfum fyrir nokkrum árum.
Koma Canetti hingað verður
endurgoldin síðar meir þegar El-
ísabet heimsækir hana til Ítalíu og
heldur námskeið þar fyrir hennar
nemendur. Fyrir tilstilli þeirra hef-
ur komist á samstarf milli skólanna
sem þær kenna við, og báðar eru
að vonum ánægðar með það.
Góðir tenórar í Kóreu
Giovanna Canetti segir að mikið
sé til af fallegum söngröddum í
heiminum, en vandinn sé oft sá að
nemendur fái ekki nógu góða eða
rétta tilsögn. Og raddirnar geta
verið ólíkar eftir því hvar í heim-
inum þær fæðast og alast upp. „Í
Rússlandi, Búlgaríu og Rúmeníu
eru söngraddirnar gjarnan stórar
og miklar frá náttúrunnar hendi og
frekar dökkar. Í Kóreu, til dæmis,
eru til býsnin öll af góðum ten-
órum. Japanar hafa enn ekki eign-
ast jafn góða tenóra, en Japanarnir
vinna vel og ætla sér langt. Kór-
esku raddirnar eru einhverra hluta
vegna oft mjög góðar.“ Giovanna
Canetti hlær þegar hún er spurð
þeirrar kjánalegu spurningar hvort
Ítalirnir hafi ekki allt sem til þarf
– góðar raddir, langa hefð og óp-
erumúsík í blóðinu. „Ónei, það er
nú ekki alltaf þannig. Það vill nú
þannig til – og er ekkert öðruvísi
með Ítali en aðra, að það er mikil-
vægt að mennta sig og stunda
söngnámið af þolinmæði og natni.
Það sem mér finnst mikilvægast er
að góðir söngvarar, sem ætla sér
eitthvað í óperunni, leggi stund á
leiklist; það er grundvöllur þess að
söngvarar geti skapað persónur á
sviði og miðlað tjáningu þeirrar
persónu, eins og hún birtist í verk-
inu. Ítalskan er auðvelt mál að
syngja – og spænskan er það einn-
ig, vegna þess hve sérhljóðar eru
tærir og hreinir. Íslenskan hefur
aftur á móti marga og þykka sam-
hljóða sem geta reynst erfiðari í
söng. Það voru um fimmtán söng-
nemar á námskeiðinu hjá mér í
Listaháskólanum – allt mjög snjall-
ir nemendur, þótt fjórir til fimm
þeirra hafi borið af. Þegar ég heyri
í söngnemum sem mér finnst fram-
úrskarandi er ekki um annað að
ræða en að hvetja þá til dáða. En
það kemur líka fyrir að ég þarf að
segja nemum hreint út, að þeir
muni aldrei ná langt í söngnum.
Þetta þarf maður að gera af alúð
og nærgætni og útskýra vel hvers
vegna. Þetta kalla ég heiðarleika,
og þótt þetta geti verið erfitt, sér-
staklega þegar söngvarar eiga í
hlut, þá er það betra að einhver
segi sannleikann, heldur en að
unga fólkið sé að burðast með von-
ir í gegnum lífið sem aldrei eiga
eftir að rætast. Það er svo ótal-
margt sem þarf til; góða rödd,
músíkgáfu, leikhæfileika, persónu-
leika, úthald, dugnað og einbeittan
vilja og margt, margt fleira. Öll
störf eru kröfuhörð á sinn hátt, en
í tónlistinni er söngurinn erfið-
astur. Söngvarar þurfa líka enda-
laust að hugsa um að heilsan sé í
lagi. Þú gengur með hljóðfærið þitt
á þér hvert sem þú ferð, og það er
viðkvæmt fyrir veðrum, pestum,
andrúmsloftinu og svo ótalmörgu.
Þetta er hljóðfæri sem er ekki auð-
velt að gera við ef eitthvað kemur
upp á. Þess vegna finnst mér rétt
að vera hreinskilin og heiðarleg við
fólk sem ég sé strax að á ekki er-
indi í þetta.“
Tónlist | Giovanna Canetti kennir Listaháskólanemum
Verð að vera hrein-
skilin við þá sem ekki
eiga erindi í sönginn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Giovanna Canetti: „Það sem mér finnst mikilvægast er að góðir söngvarar,
sem ætla sér eitthvað í óperunni, leggi stund á leiklist.“
Giovanna Canetti út-
skrifaðist með láði
sem einleikari á píanó.
Hún átti farsælan feril
sem óperusönkona.
Bergþóra Jónsdóttir
komst að því að þessi
fjölhæfa kona er
hvorki við eina, né
tvær fjalir felld, held-
ur þrjár, því stærsta
ævistarfið, söng-
kennslu tók hún upp
síðarmeir, og ber
ábyrgð á því að hafa
kennt heimsfrægum
stjörnum.
begga@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 9, postu-
línsmálning kl. 9 og kl. 13 bókaormar
leshringur kl. 13.30, vinnustofan opin
alla daga. Allir velkomnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–16.30, heilsugæsla kl. 9.30–11.30,
smíði/útskurður kl. 13–16.30, spil, keila
og bridskennsla kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist,
spilað bridge/vist, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10.
10.45 leikfimi, kl. 14.40 ferð í Bónus,
kl. 14.30–15.30 kaffi.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús kl. 13–16.
Vilborg Gunnarsdóttir leiðbeinir við
málun á gler. Spilað, teflt. Kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofa félagsins opin kl 10 til 11.30, fé-
lagsvist kl 13 í Gjábakka.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Söngvaka kl. 14 umsjón Helgi Seljan
og Sigurður Jónsson, Gunnar Þor-
láksson og Kolbrún Hauksdóttir kynna
auðveldar dansaðferðir í kaffihléi.
Leikfélagið Snúður og Snælda sýna
„Ástandið“ kl. 14 í Iðnó. Miðapantanir í
s. 563 9700 og 588 2111. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starfið í Ármúlaskóla kl. 16.20 í stofu
V24. Skákklúbbur í KÍ-húsi kl. 14.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Lax-
dæla í umsjá Arngríms Ísbergs heldur
áfram á miðvikudögum kl. 16.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl. 10 og kl. 11
glerskurður kl. 13. Í Garðabergi er
Handavinnuhorn og spilað brids kl. 13,
vöfflukaffi kl. 14.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá hádegi spilasalur
opinn, kl. 14.30 kóræfing. Á morgun kl.
13.15 félagsvist.
Furugerði 1 | Kl. 9, aðstoð við böðun,
bókband, kl. 11, fyrirbænafundur, kl. 14,
leikfimi.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, bútasaumur, útskurður og hár-
greiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 11 banki,
kl. 12 hádegismatur, kl. 13 bridge, kl. 15
kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb, kaffi og sam-
vera frá kl. 9, myndmennt kl. 10, línu-
dans kl. 11, myndmennt og glerskurður
kl. 13, pílukast kl. 13.30, kóræfing kl. 17.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–15 klippimyndir o.fl. umsjón Sig-
rún, jóga kl. 9–12, námskeið í myndlist
kl. 15–18, böðun virka daga fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir–hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Listasmiðja og Betri stofa,
postulínsmálun og frjálst handverk.
Sjónvarp, útvarp og dagblöðin liggja
frammi í setustofunni. Morgunkaffi,
hádegisverður og síðdegiskaffi alla
virka daga. Fótaaðgerðarstofa s. 897–
9801.
Korpúlfar Grafarvogi | Pútt á Korp-
úlfsstöðum á morgun, fimmtudag, kl.
10.
Langahlíð 3 | Harmoniku- og söng-
stund með Þorvaldi Björnssyni kl. 15.
Laugardalshópurinn í Þróttarheim-
ilinu | Jóga, teygjur slökun fyrir eldri
borgara í dag kl. 12.10.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smiði, kl. 9–16.30
opin vinnustofa, kl. 14 félagsvist, kaffi
– verðlaun, kl. 9 fótaaðgerð.
Sjálfsbjörg | Félagsvist í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt,
kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug), kl.
10.15–11.45 spænska, kl. 11.45–12.45
hádegisverður, kl 12.15–14 versl-
unarferð í Bónus, Holtagörðum, kl 13–
14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurð-
ur, kl 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband, handmennt og hár-
greiðsla kl. 9, morgunstund kl. 10, kór-
æfing kl. 13. Fleiri félaga vantar í kór.
Þórðarsveigur 3 | Opið hús, handverk
kl. 13.30–16.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 10–12. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekk-
ur) kl. 15.30–16.30.
Árbæjarkirkja | Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 12. Fyrirbænir, hugleiðing og
tónlist. Hádegishressing á eftir. Opið
hús fyrir eldri borgara kl. 13.–16. Spil,
föndur, ferðalög, spjall og fræðsla.
Starf með 7–9 ára börnum í Sel-
ásskóla kl. 15–16. Starf með 10–12 ára
börnum í Selásskóla kl. 16–17.
Áskirkja | Hreyfing og bæn kl. 11–12.
Aðalfundur safnaðarfélagsins og
þorramatur kl. 19. Allir velkomnir.
Bessastaðasókn | Haukshús: For-
eldramorgunn kl. 10–12. Opið hús eldri
borgara kl. 13–16. KFUM&K starf fyrir
9–12 ára börn frá kl. 17.30–18.30.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður eftir stundina. Kirkju-
prakkarar, 7–9 ára kl. 16.30. TTT, 10–12
ára kl. 17.30. Æskulýðsfélag KFUM&K
og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra. Sam-
vera frá kl. 13. Spil, föndur og handa-
vinna. Gestur dagsins er Stefán Einar
Matthíasson æðaskurðlæknir.
Digraneskirkja | Barnastarf 6–9 ára
kl. 17.15–18 á neðri hæð.
Garðasókn | Foreldramorgunn kl. 10
til 12. Heitt á könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni.
Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari,
orgelleikari Hörður Bragason Allir vel-
komnir. Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl.
20–21, fyrir 8. bekk. „Á leiðinni heim
er helgistund alla virka daga föst-
unnar. Lesinn er einn Passíusálmur í
hvert sinn. Í dag les Halldór Blöndal.
Grensáskirkja | Hvern miðvikudag er
samvera eldri borgara í Grensáskirkju
frá kl. 14 til 16. Boðið upp á Bibl-
íulestur, gott samfélag og léttar veit-
ingar.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa alla
miðvikudagsmorgna kl. 8 árdegis.
Hugleiðing, altarisganga. Einfaldur
morgunverður í safnaðarsal á eftir.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Tíu til tólf ára krakkar hittast í
Hjallakirkju kl. 16.30–17.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjöl-
skyldusamveran hefst kl. 18 með léttri
máltíð á vægu verði. Kl. 19 er Bibl-
íulestur fyrir alla fjölskylduna. Mike
Bradley frá Bandaríkjunum talar til
okkar. Barna- og unglingastarfið er
fyrir 1–2 ára, 3–4 ára, 5–7 ára, 8–9
ára, 10–12 ára og 13–17 ára.
Kálfatjarnarkirkja | ALFA-námskeið
er um grundvallaratriði kristinnar trú-
ar. Þau eru haldin í þægilegu umhverfi
á mannamáli. Miðvikud. kl. 19–22 frá
19. jan. til 23. mars.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í kl.
20. „Konungur yfir gjörvallri jörðinni“.
Sálmur 47. Ræðumaður: Guðlaugur
Gunnarsson. Kaffiveitingar.
Langholtskirkja | Kl. 12.10 hádeg-
isbænagjörð með orgelleik – fyr-
irbænir. Kl. 12.30 súpa og brauð (300
kr.). Starf eldri borgara kl. 13–16. Fjöl-
breytt dagskrá. Uppl. í s. 520 1300.
Markúsarguðspjall lesið og rætt frá kl.
19.30 – 20.15 í safnaðarheimili. Um-
sjón: sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Laugarneskirkja | Kl. 10 mömmu-
morgunn. Kl. 10.30 Gönguhópurinn
Sólarmegin leggur af stað frá kirkju-
dyrum. Kl. 14.10–15.30 Kirkjuprakk-
arar. (1.–4. bekkur) Kl. 19 fermingar–
Alfa. Kl. 20.30 Unglingakvöld.
Neskirkja | Foreldramorgunn kl. 10.
Stefán I. Stefánsson kynnir Barna-
hjálp SÞ – UNICEF. Opið hús kl. 13.
Listareisa: Kjarvalsstaðir. Kjarval,
Hörður, Helgi Hjaltalín og Pétur Örn.
Ólöf K. Sigurðardóttir deildarstjóri
fræðsludeildar, kynnir sýningar.
Kirkjan á Stóranúpi í Eystrihrepp.