Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 47

Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 47
Ókeypis krakkaklúbbur www.myndform.is, krakkaklubbur@myndform.is Nýr og betri www.regnboginn.is kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. SIDEWAYS Þ.Þ. FBl  S.V. MBL. Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, leikstjóri og handrit 5 Sýnd kl. 4, 6 og 10. LEONARDO DiCAPRIO Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. Besta mynd, leikstjóri,og aðalleikari. 11 tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, leikari og handrit 7 Sýnd kl. 5.40 og 10.30. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i.16 ára. Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.15.  MMJ kvikmyndir.com  Ó.H.T. Rás 2  Ó.Ö.H. DV SV Mbl. Sýnd kl. 5.30 og 8. FRÁ ALEJANDRO AMENÁBAR, LEIKSTJÓRA THE OTHERS Stórkostleg sannsöguleg mynd um baráttu upp á líf og dauða. H.L. Mbl. ÓÖH DV. Baldur Popptíví  Ó.H.T Rás 2 Kvikmyndir.is    M.M.J. Kvikmyndir.com   Mögnuð spennumynd um baráttu upp á líf og dauða Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára GOLDEN GLOBE VERÐLAUN - Annette Bening sem besta leikkona Frábær mynd þar sem Annette Bening, Jeremy Irons og Michael Gambon fara á kostum. TILNEFNING TIL ÓSKARSVERÐLAUNA, Annette Bening sem besta leikkona ÓTH RÁS 2 Hverfisgötu ☎ 551 9000 CLOSER Frumsýnd 17. feb. CLOSER Frumsýnd 17. feb. CLOSER Frumsýnd 17. feb. Sýnd kl. 4 Ísl tal ATH! VERÐ KR. 500  Kvikmyndir.is.  Ó.S.V. Mbl. VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI1 jamie foxx FRUMSÝND Á FÖSTUDAG MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 47 GENGIÐ hefur verið frá því að stór- stjörnurnar Colin Farrell og Jamie Foxx muni leika aðalhlutverkin í væntanlegri kvikmyndagerð á sjón- varpsþáttunum Miami Vice. Lögguþættir þessir nutu mikilla vinsælda á 9. áratug síðustu aldar og gerðu stórstjörnu úr aðalleikaranum Don Johnson, sem lék hina tísku- meðvituðu rannsóknarlöggu Sonny Crockett. Eins og gefur að skilja þá mun Farrell klæða sig úr sokkunum og bregða sér í hvítu mokkasíurnar hans Johnsons á meðan Foxx mun fara með hlutverk félaga hans, Ric- ardo Tubbs, sem leikinn var af Philip Michael Thomas. Foxx er á ansi góðu róli um þessar mundir, sópar að sér verðlaunum fyr- ir túlkun sína á Ray Charles en marg- ir vilja meina að Farrell þurfi nauð- synlega á stórum smelli að halda eftir að hafa leikið í röð mynda sem fengið hafa heldur dræmar viðtökur. Höfundur upprunalegu þáttanna, sem framleiddir voru árin 1984–1989, Michael Mann, ætlar sjálfur að skrifa handritið og leikstýra myndinni og Universals Studios mun framleiða hana. Eftir að Mann sagði skilið við þættina á sínum tíma sneri hann sér að gerð kvikmynda og hefur átt glæstan feril; gert myndir á borð við The Insider, The Last of the Mohic- ans, Heat, Ali og nú síðast Collateral. Tökur á Miami Vice-myndinni eiga að hefjast í vor og er gert ráð fyrir að myndin verði tilbúin til frumsýningar í júlí 2006. Þættirnir nutu mikilla vinsælda á sínum tíma og lögðu línur í suðrænni karlatísku, sem mörgum þykir ef- laust ansi vafasöm í dag; hvít eða kremuð jakkaföt, hvítar mokkasíur, vel blásið og lakkað hárið, bronsbrún andlit og nett loðnir þriggja daga skeggjaðir vangar. Þrátt fyrir að hljóma hallærislega í dag þá gerðist það nýverið að lesendur breska dag- skrártímaritsins Radio Times völdu Miami Vice svalasta sjónvarpsþátt allra tíma ásamt CSI og Queer as Folk. Engum sögum fer af því hvort höf- undurinn Mann ætli að tíma- og stað- færa ævintýri Crocketts og Tubbs eða reyna að endurskapa liðna blóma- tíma tísku níunda áratugarins. Í það minnsta yrði forvitnilegt að sjá Farr- ell bregða sér í galla Johnsons. Miami Vice er ekki eini sjónvarps- þátturinn sem verið er að gera að kvikmynd. Væntanleg er kvikmynda- gerð á sjónvarpsþáttunum Bewitch- ed, með Nicole Kidman og Will Ferr- ell, og Dukes of Hazzard, með Seann William Scott, Jessicu Simpson og Burt Reynolds. Kvikmynd | Miami Vice á hvíta tjaldið Tískulöggur. Tubbs og Crockett þóttu fyrirmyndir annarra rannsóknar- lögreglumanna í klæðaburði og fasi. Farrell og Foxx verða Crockett og Tubbs Þeir Jamie Foxx og Colin Farrell hafa vafalítið skoðun á því hvort eigi að klæða þá í kremuðu jakkafötin og blása hárið - á Farrell þ.e.a.s. BARÐI Jóhannsson hefur samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Ís- lands við kvikmyndina Häxan frá 1922. Verkið verður frumflutt með sveitinni á Vetrarhátíð í Háskólabíói á laugardaginn, en hann hefur áður flutt það í París í annarri útsetningu. Myndin er eftir Benjamin Christen- sen og fjallar um galdraofsóknir, nornir og djöflatrú. Benedikt Hjartarson frá Hugvísindastofnun mun kynna myndina stuttlega í upp- hafi. Eftir sýninguna býður stofn- unin tónleikagestum á málþing um galdra sem einnig verður haldið í Háskólabíói. „Ég var beðinn um að semja mús- ík við þessa mynd í fyrra og þetta tónverk var frumflutt í París, þar sem ég spilaði það ásamt tveimur fiðluleikurum og slagverksleikara. Síðan var ákveðið að verkið yrði út- sett fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og flutt á Vetrarhátíð, í samvinnu við Kvikmyndamiðstöð Íslands og Há- skóla Íslands,“ segir Barði, en Þórir Baldursson hefur aðstoðað hann við að útsetja það fyrir sinfóníu- hljómsveit. Gott samstarf Barði segir að samstarfið við Þóri og Sinfóníuhljómsveitina hafi verið mjög gott. „Allt saman er þetta hið besta mál.“ Verkið er einn klukkutími og tutt- ugu mínútur að lengd og Barði segir að að öllum líkindum verði það aldrei flutt aftur. „Líklega verður þetta eini opinberi flutningurinn á þessu verki,“ segir hann. Barði hefur þó heyrt það á æfingum og segir það hljóma vel. „Það er mjög góð tilfinn- ing að heyra sinfóníuhljómsveit flytja verk eftir sig. Maður hugsar reyndar allan tímann um það sem maður hefði getað gert betur, en þannig er það bara,“ segir hann, „ég held að það sé mjög gott, að hugsa þannig. Um leið og manni finnst maður hafa gert eitthvað sem maður þurfi ekki að bæta getur maður al- veg eins hætt. Yfirleitt keppa menn að því alla ævi að gera betur en síð- ast.“ Semur verk fyrir franska hátíð Spurður hvort hann gæti hugsað sér að snúa sér að klassískum tón- smíðum í framtíðinni segist Barði eiginlega nú þegar vera farinn að stunda þær af krafti, því nú er hann að semja verk fyrir strengjakvartett og sembal, sem flytja á næsta sumar á Aix-en-Provence tónlistarhátíðinni í Frakklandi. „Þetta er góð tilbreyting og það er gaman að prófa sig áfram.“ Vetrarhátíð | Sinfónían flytur verk eftir Barða Jóhannsson Galdraofsóknir og djöflatrú Barði er jafnvígur á popp og sígilda tónlist. Kvikmyndatónleikar Sinfóníunnar og Barða Jóhannssonar eru í Há- skólabíó kl. 15 á laugardag. Fólk folk@mbl.is Ástralski leikarinn RussellCrowe gefur lítið fyrir frammi- stöðu Josephs Fiennes í hlutverki Shakespeares í kvikmyndinni Shakespeare ást- fanginn, þar sem hann lék á móti Gwyneth Palt- row. Segir Crowe í viðtali við tíma- ritið GQ að Fi- ennes hafi verið eins og „teprulegur, sætur strákur“. „Myndin var að öllu leyti alveg fullkomin, nema aðalsöguhetjan, William Shakespeare, var ekki eins og alvöru rithöfundur – hann var alltof hreinlegur,“ segir Crowe. „Hann var ekki nógu órakaður, og hann hafði greinilega ekki drukkið nóg. Hann var teprulegur, sætur strákur.“    Brad Pitt sló upp veglegri afmæl-isveislu fyrir Jennifer Aniston á dögunum – sem hefur skotið enn frekari stoðum undir orðróminn um að þau séu að draga sig saman á ný, eftir að hafa skilið að borði og sæng í janúar. Pitt eyddi tveim- ur dögum í að undirbúa afmæl- isveisluna sem var haldin á heimili þeirra í Beverly Hills og vakti at- hygli að þau tóku saman á móti gestum, eins og ekkert hefði í skor- ist, stórstjörnum á borð við Morgan Freeman, Mel Gibson og Cindy Crawford. Segja málglaðir sjón- arvottar að Pitt hafi lagt sig sér- staklega fram um að gera kvöldið ánægjulegt fyrir eiginkonu sína en fyrir skömmu bárust af því fregnir að hann vildi endilega taka saman við hana aftur. „Undanfarið hefur runnið upp fyrir honum betur en nokkru sinni áður að Jennifer er sálufélagi hans,“ hafði breska tímaritið Reveal eftir ónefndum heimildarmanni. Þá hefur amma Pitt lýst yfir að hún sé sann- færð um að þau eigi eftir að taka saman aftur.    Bruce Willis segist eiga í góðusambandi við fyrrverandi eiginkonu sína Demi Moore, en þau hættu að vera saman árið 1998 eftir 11 ára sam- band, sem gat af sér þrjú börn. Þetta kom fram í viðtali við breska sjónvarpsmann- inn Michael Parkinson þar sem hinn fimmtugi Willis lýsti einn- ig yfir að hann og kærasti Moore, hinn 26 ára Ashton Kutcher úr Punk’d þáttunum, væru mestu mát- ar og að þeim kæmi öllum mjög vel saman. „Við höngum stundum saman. Hann er ansi góður gæi. Ég elska Demi, við erum ennþá góðir vinir. Ég óska henni alls góðs.“ Í viðtalinu við Parkinson viðurkenndi Willis að hann þráði heitt að giftast á ný og eignast fleiri börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.