Morgunblaðið - 26.02.2005, Page 18
TALSMAÐUR Páfagarðs, Joaquin
Navarro-Valls, sagði í gær að Jó-
hannes Páll páfi II hefði sofið vel að-
faranótt föstudags á Gemelli-sjúkra-
húsinu í Róm og getað snætt léttan
morgunverð, að því er kemur fram í
frétt AFP-fréttastofunnar. Gerður
var barkaskurður á páfa í fyrradag
vegna öndunarerfiðleika sem hrjáðu
hann í kjölfar þess að flensa sem
hann veiktist af fyrir nokkrum vik-
um, tók sig upp aftur.
Navarro-Valls sagði að páfi mætti
ekki tala neitt næstu daga, hann yrði
að hlífa hálsinum vegna aðgerðar-
innar. Páfi, sem er er 84 ára gamall,
hefur árum saman verið þjáður af
Parkinsonsveiki sem sérfræðingar
segja að auki mjög hættuna á sýk-
ingum í lungum. Er ástæðan m.a. sú
að vöðvar veikjast af völdum Park-
insonsveiki og sjúklingurinn á því
erfiðara með að hósta og losa þannig
lungun við aðskotaefni sem geta bor-
ið í sér örveirur. Er einkum hætt við
að slíkar örveirur sæki á fólk á
sjúkrahúsum, segir í grein í tímarit-
inu Newsweek.
Lélegt ónæmiskerfi
Bruno Bergamasco, yfirmaður
taugalækningadeildar háskólans í
Torino, sagði í gær að óhjákvæmi-
legt hefði verið að gera aðgerðina á
páfa. Hann sagði að sjúkrahúsdvölin
nú, svo skömmu eftir að páfi veiktist
af flensunni, sýndi vel hve ónæmis-
kerfi hans væri orðið veikburða og
horfurnar væru ekki góðar.
„Hinn heilagi faðir hvíldist vel í
nótt,“ sagði í yfirlýsingu sem tals-
maðurinn Navarro-Valls las upp á
fréttamannafundi í gær. „Hann and-
ar án aðstoðar og ástand hjarta- og
æðakerfis er áfram gott.“ Sett var
slanga í háls páfa eftir barkaskurð-
inn til að hann ætti auðveldara með
að anda en Navarro-Valls bar til
baka fregnir um að páfi hefði þurft á
aðstoð öndunarvélar að halda. Sagði
talsmaðurinn að páfi tjáði sig nú með
því að skrifa á bréfmiða. Hann hefði
gert að gamni sínu og ritað „Hvað
hafið þið gert við mig?“ á einn mið-
ann, augljóslega með vísun til þess
að röddin hefði horfið.
Angelo Sodano kardínáli hefur
tekið við daglegum skyldustörfum
páfa meðan Jóhannes Páll II er á
sjúkrahúsinu, að sögn heimildar-
manna. Rætt er um að veikindi páfa
Líðan páfa
sögð góð eftir
aðgerðina
AP
Nunnur biðjast fyrir við messu sem
haldin var í kapellu Gemelli-
sjúkrahússins í Róm í gær.
Sérfræðingar segja ónæmiskerfi
Jóhannesar Páls II mjög veikburða
geti valdið miklum vanda ef svo fer
að honum verði haldið lifandi í önd-
unarvél þótt svo fari að líffæri verði
hætt að starfa eðlilega. Kirkjan hef-
ur lengi verið andvíg því að gripið sé
til of umfangsmikillar tækni til að
treina lífið í fólki sem ljóst er að ekki
muni ná sér og er dauðvona.
En heimildarmenn segja að greina
hafi mátt stefnubreytingu í þessum
efnum í Páfagarði síðustu mánuði.
Er fullyrt að staða af þessu tagi hafi
ekki komið upp fyrr í tveggja árþús-
unda sögu kaþólsku kirkjunnar.
Sjálfur hefur páfi sagt að hann muni
gegna embættinu þar til Guð leysi
hann undan því, þ. e. þangað til hann
deyr.
Nígeríumaður næsti páfi?
Meira en þúsund milljónir manna
heyra til Rómarkirkjunni en fjölg-
unin á sóknarbörnum hefur á síðari
áratugum verið langmest í Afríku
sunnan Sahara. Nokkrir kardínálar
eru taldir líklegastir eftirmenn Jó-
hannesar Páls páfa þegar hann deyr.
Einn þeirra er hinn 72 ára gamli
Francis Arinze frá Nígeríu. Hann er
náinn samstarfsmaður núverandi
páfa og er sagður jafn íhaldssamur
og hann, er andvígur því að konur
geti orðið prestar, fordæmir hjóna-
skilnaði, fóstureyðingar og samkyn-
hneigð. Liðin eru um 1500 ár síðan
Afríkumaður var síðast páfi.
18 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
UNGUR piltur gengur framhjá rúst-
um verslana og sölubása markaðar í
bænum Juba í Suður-Súdan eftir
sprengingu í vopnageymslu í fyrra-
dag. Súdönsk yfirvöld sögðu í gær
að 37 manns hefðu látið lífið og 75
slasast í sprengingunni. Um 1.600
manns misstu heimili sín þegar flug-
skeytum, sprengjum og sprengikúl-
um rigndi yfir hluta bæjarins í
sprengingunni. Hún mun hafa orðið
eftir að eldur kviknaði nálægt henni.
Reuters
Mannskæð sprenging í vopnabúri
HERVE Gaymard, fjármálaráðherra
Frakklands, sagði af sér embætti í
gær vegna hneykslismáls þar sem
upp komst að hann hafði látið ríkið
borga húsaleigu sína. Við embættinu
tekur Thierry Breton sem verið hefur
stjórnandi France Telecom-símafyr-
irtækisins.
„Ég hef ákveðið að afhenda for-
sætisráðherranum afsagnarbeiðni
mína sem fjármála- og iðnaðarráð-
herra,“ sagði Gaymard. „Mér er ljóst
að ég hef gert glappaskot, í fyrsta lagi
hef ég gerst sekur um alvarlegan
dómgreindarbrest vegna íbúðarinnar
sem ríkið greiddi. Ég breytti greiðsl-
unum strax og mun, eins og ég hef
sagt, borga til baka allan kostnað sem
ég fékk greiddan.“
Í yfirlýsingunni sagði og að fjöl-
skylda hans hefði sætt linnulausum
árásum vegna málsins.
Gaymard er 44 ára og átta barna
faðir. Hann er öt-
ull stuðningsmað-
ur Jacques Chirac
Frakklandsfor-
seta. Háðtímaritið
Le Canard
Enchaine greindi
fyrst fjölmiðla frá
því að Gaymard
réði yfir glæsi-
legri íbúð nærri
Champs-Elysees-breiðgötunni. Mán-
aðarleigan væri 14.000 evrur, rúmar
ellefu hundruð þúsund krónur, og
hana greiddu skattborgararnir. Síðar
upplýsti sama tímarit að Gaymard
ætti fyrir rúmlega 200 fermetra íbúð í
miðborg París.
Á stefnuskrá frönsku ríkisstjórnar-
innar er að draga úr ríkisútgjöldum. Í
könnunum hefur komið að almenn-
ingur hefur einkum áhyggjur af háu
húsnæðisverði.
Franskur ráð-
herra kveður
París. AFP.
Herve Gaymard
FYRSTI alþjóðlegi samningurinn um
tóbaksvarnir verður lagalega bind-
andi á morgun, sunnudag, að sögn Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar,
WHO. Stofnunin segir að markmiðið
með samningnum sé að draga úr
reykingum sem séu orðnar næstal-
gengasta dánarorsökin í heiminum og
valdi um fimm milljónum ótímabærra
dauðsfalla á ári hverju.
„Manntjónið af völdum náttúru-
hamfaranna við Indlandshaf var lítið
miðað við manntjónið af völdum reyk-
inga,“ segir í yfirlýsingu frá stofnun-
inni. „Á vestanverðu Kyrrahafssvæð-
inu einu deyja 3.000 manns á degi
hverjum af völdum reykinga. Núna
höfum við alþjóðlegt tæki til að taka á
þessu alþjóðlega vandamáli.“
WHO segir að verði ekkert að gert
sé líklegt að reykingar valdi tíu millj-
ónum ótímabærra dauðsfalla á ári
fyrir árið 2020. „Tóbak er eina löglega
varan sem veldur dauða um helmings
þeirra sem nota hana reglulega. Af
þeim 1,3 milljörðum manna sem
reykja munu 650 milljónir deyja fyrir
aldur fram vegna tóbaks.“
Alþjóðlegar reglur
Í samningnum eru m.a. alþjóðlegar
reglur um verð, skatta og auglýsingar
á tóbaki, auk reglna sem miða að því
að draga úr óbeinum reykingum.
Samningurinn var samþykktur á
fundi á vegum Alþjóðaheilbrigðis-
málastofunarinnar í maí 2003. Um
167 ríki hafa undirritað hann og hann
tekur nú gildi þar sem yfir 40 ríki hafa
þegar staðfest hann.
Fyrsti alþjóðlegi
tóbaksvarnasamn-
ingurinn í gildi
6
%
&$% #
'()* ++,
- -
# .
/ # -
0
#
1 # $-0 1 $% - -0
!"
2
0 # 3445
6 789:;8<$-
=
> -0
/ #- -% 0 1$ 3444
2
-
0
#
$% "
(2# -
1
& :
1
*
-1*
$2# 9(2&%%
$2&%% -
1;
9
L &
'(" 3?<.@
*
&
" 3<.@
?*
*
) * " A< P *
+,(
" <?@
*
-*" 3<4@
3 B% -
C 3 > , *
'
&
$%# $%"# ( ( (#9) Q
(
?< Manila. AFP.
Níu friðar-
gæsluliðar
vegnir í
Kongó
Kinshasa. AFP.
NÍU friðargæsluliðar frá Bangla-
desh biðu bana og ellefu særðust í
árás óþekkts hóps í Lýðveldinu
Kongó í gær. Friðargæsluliðarnir
voru á eftirlitsferð og urðu fyrir árás
úr launsátri í Ituri-héraði í norðaust-
anverðu landinu. Er þetta ein mann-
skæðasta árás sem gerð hefur verið
á friðargæsluliða Sameinuðu þjóð-
anna á síðustu árum.
Friðargæsluliðarnir voru á svæði
þar sem sex vopnaðir hópar hafa
herjað á mörg þorp að undanförnu.
Ofbeldið hefur magnast í Ituri á síð-
ustu vikum og hermt er að 70.000
manns hafi flúið heimkynni sín
vegna árásanna frá síðustu áramót-
um. Vígahóparnir hafa farið ráns-
hendi um héraðið, myrt marga
þorpsbúa, rænt og nauðgað konum
og stúlkum.