Morgunblaðið - 26.02.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.02.2005, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ María KarólínaMagnúsdóttir fæddist á Njálsstöð- um í Vindhælishreppi 22. nóvember 1909. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sólvangi í Hafnarfirði 10. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Magnús Steingríms- son, frá Njálsstöðum í Vindhælishreppi, f. 3.4. 1881, og Guðrún Einarsdóttir, frá Haf- urstaðakoti í Vind- hælishreppi, f. 8. 8. 1879. María ólst upp hjá foreldrum sínum sem lengst af bjuggu á Berg- stöðum, Þverá og Sæunnarstöðum í Hallárdal á Skagaströnd. Systkini Maríu voru: 1) Steingrímur bóndi á Eyvindarstöðum í Blöndudal, f. 15.6. 1908, d. 13.3. 1975, 2) Sigurð- ur verkstjóri á Sauðárkróki, f. 4.12. 1910, d. 16. 12. 1997, 3) Guðmann bóndi á Vindhæli, f. 9.12. 1913, d. 22.11. 2000, 4) Guðmundur bóndi á Vindhæli, f. 24. 7. 1919, dvelur nú á sen, sonur þeirra er Sigurður Bjarni, 4) Pétur Nikulás, f. 23.6. 1977, unnusta Anna Braguina. María stundaði nám í unglinga- skólanum á Hólum í Hjaltadal 1930 og Kvennaskólanum Blönduósi 1933–1934. Hún lauk ljósmæðra- námi frá Ljósmæðraskóla Íslands 26.6. 1931. Hún var ljósmóðir í Engihlíðarumdæmi 1931–1936, í Bólstaðarhlíðarumdæmi 1933– 1935, í Sauðárkróks-og Skarðs- hreppsumdæmi og á Sjúkrahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki 1936– 1979. Þá vann María við mæðra- og ungbarnaeftirlit á Sauðárkróki. En 1939 fór hún í sex mánaða náms- og starfsdvöl til Danmerkur til að kynna sér meðferð ungbarna. María var stofnfélagi Rauða kross- deildar Sauðárkróks og var í fyrstu stjórn hennar. Hún sat í barna- verndarnefnd um árabil og var virk í Kvenfélagi Sauðárkróks og var þar heiðursfélagi. Árið 1979 flutti María til Hafn- arfjarðar og starfaði við heimilis- hjálp þar yfir veturinn til 1989. En á sumrin á sama tíma starfaði hún á Löngumýri í Skagafirði sem þá var rekið sem sumarorlofsstaður aldr- aðra á vegum þjóðkirkjunnar. Útför Maríu fer fram frá Sauð- árkrókskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. heilsustofnuninni á Blönduósi, 5) Páll bóndi á Vindhæli, f. 4.12. 1921. María giftist 10.5. 1942 Pétri Jónassyni hreppstjóra, f. 19.10. 1887, d. 29. 11. 1977. Foreldrar hans voru Jónas Jónsson trésmið- ur og bóndi á Syðri- Brekkum í Akrahreppi Skagafirði og kona hans Pálína Guðný Björnsdóttir ljósmóðir. Dóttir Maríu og Pét- urs er Pálína Guðný, hjúkrunarfræðingur í Hafnarfirði, f. 27.6. 1943, gift Bjarna Nikulás- syni flugumferðarstjóra, f. 24.2. 1946, börn þeirra eru: 1) María Guðrún, f. 27.7. 1965, gift Bergþóri Haraldssyni, börn þeirra eru Árni Reynir, Bryndís Björk og Haraldur Páll, 2) Bjarndís, f. 22.11. 1969, sambýlismaður Alvar Alvarsson, börn þeirra eru Sigursteinn Bjarni, Aldís Ýr og Elísa, 3) Bryndís, f. 26.8. 1972, gift Valgarði Thorodd- Það er með miklum söknuði sem ég kveð nú elskulega ömmu mína sem verið hefur svo stór hluti af lífi mínu. Jafnframt finnst mér gott að nú skuli hún vera komin í faðm ástvina á himn- um laus við öll veikindi sem hrjáðu hana síðari ár. Fyrstu minningar mín- ar sem ég á um bernsku mína tengj- ast ömmu og afa á Sauðárkróki, þar var gott að vera umvafinn ást þeirra og umhyggju. Lífið á Suðurgötu 9 ein- kenndist mikið af ljósmóðurstarfi ömmu, mikið var um gestagang og amma oft kölluð út í vitjanir og fæð- ingar á öllum tímum sólarhringsins. Ekki var leitað til ömmu aðeins sem ljósmóður heldur einnig sem hjálpar- hellu í nauðum margra og brást hún alltaf skjótt og vel við og leysti hvers manns vandræði eftir bestu getu. Eftir að amma flutti í Hafnarfjörð eftir 48 ára farsælt ljósmóðurstarf hélt hún áfram að hjálpa fólki er hún hóf störf við heimilishjálp hjá eldri borgurum. Þar eignaðist amma marga góða vini. Amma hafði gaman af börnum og eftir að ég eignaðist frumburð minn hann Árna Reyni reyndist amma mér ómetanleg hjálp þegar hún tók að sér að gæta hans þó að hún væri orðin áttræð. Fékk drengurinn ýmislegt að dunda hjá langömmu sinni, m.a. útbjó hann kross og gaf henni. Þessi kross fylgir nú ömmu í gröfina í dag. Veit ég að þessi tími hefur verið þeim báðum mjög góður. Það gladdi okkur fjöl- skylduna að amma skyldi komast í fermingu Árna Reynis í apríl 2003 því eftir það fór heilsu ömmu mjög hrak- andi. Amma var trúuð kona og kenndi okkur bænir, einnig hafði hún mikla trú á krossmarkinu. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Elsku amma mín, ég vil þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum saman, fyrir allt sem þú hefur kennt mér og fyrir alla hjálpina og stuðning- inn sem þú veittir mér. Guð blessi minningu góðrar ömmu. María Guðrún. Þá er komið að því að þú kveður, elsku amma mín. Þitt ljós mun lifa og ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér þar sem þú ert núna. Ég þakka þér af hjarta alla okkar sam- veru. Minning þín mun alltaf vera í hjarta mínu. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þau auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Blessuð sé minning þín, Bryndís. Þegar ég frétti andlát Maríu Magn- úsdóttur, ljósmóður, frá Sauðárkróki, þótti mér sem bók hefði verið lokað. María var af þeirri kynslóð, sem á fyrri hluta síðustu aldar stundaði sín störf af einstakri samviskusemi og al- úð, í anda samhjálpar og samvinnu, með hagsmuni fjöldans í huga, en lét gerðir sínar aldrei ráðast af peninga- hyggju og græðgi. Þessi kynslóð lagði grundvöllinn að þeirri velmegun, sem MARÍA KARÓLÍNA MAGNÚSDÓTTIR ✝ Eiríkur Jónssonfæddist í Þver- spyrnu í Hruna- mannahreppi 31. júlí 1920. Hann lést á hjúkrunarheim- ilnu Ljósheimum á Selfossi 15. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jón Guðmundur Jónsson bóndi í Þverspyrnu, f. 24. september 1887, d. 26. mars 1965 og Guðlaug Eiríksdótt- ir, f. í Hraunbæ í Álftavershreppi 23. maí 1895, d. 24. apríl 1988. Eiríkur var elstur tíu systkina en þau eru auk hans: 1) Sig- urjón, f. 22. nóv. 1921, 2) Sigríð- ur, f. 1. júní 1923, d. 7. mars 2002, 3) Kristinn, f. 14. apríl 1926, 4) Guðmundur, f. 16. nóv- ember 1927, 5) Sigrún, f. 14. Örn. 2) Svanlaug, f. 7. september 1950, maður hennar er Hörður Hansson, börn þeirra eru Eirík- ur, Bryndís og Eiður Örn. 3) Ás- laug, f. 20. maí 1953, sambýlis- maður hennar er Eiríkur Kristinn Kristófersson, þau eiga þrjú börn, Sigrúnu, Kristin og Hauk og eitt barnabarn, Ásbjörn Inga. 4) Jón Guðmundur, f. 17. maí 1956, kona hans er Anna María Sigurðardóttir, þau eiga fimm börn, Sigurborgu, Bjarka, Sigurjón Snæ, Brynhildi og Sig- urbjörn. Eiríkur hlaut hefðbundna skólagöngu í barnaskóla sveit- arinnar og að auki var hann tvo vetur á Bændaskólanum á Hvanneyri. Hann var síðan bóndi í Berg- hyl í 50 ár og starfaði þá meðal annars í sveitarstjórn og í naut- gripræktarfélaginu. Hann var einnig deildarstjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands í mörg ár. Síðustu æviárin bjó hann svo að Álftarima 20 á Sel- fossi. Útför Eiríks verður gerð frá Hrunakirkju í dag og hefst at- höfnini klukkan 13.30. mars 1929, 6) Guð- rún, f. 17. janúar 1933, 7) Stefán, f. 2. des. 1934, 8) Ásta, f. 1. maí 1936, 9) Val- geir, f. 14. júní 1939. Eiríkur kvæntist hinn 16. nóvember 1946, Jónu Sigrúnu Sigurjónsdóttur, frá Minnibæ í Grímsnesi, f. 8. nóvember 1923, d. 21. desember 1982. Foreldrar hennar voru Sigurjón Jóns- son bóndi í Minnibæ, f. á Hömrum 26. júlí 1875, d. 28. október 1923, og Guðrún Guð- mundsdóttir, f. í Miðhúsum í Bisk. 8. október 1884, d. 7. maí 1976. Börn Eiríks og Jónu Sig- rúnar eru; 1) Guðrún Guðlaug, f. 29. september 1947, maður hennar er Arnar Bjarnason, þau eiga tvö börn, Ástu og Einar Er aldraður maður hverfur héð- an af jörðu eftir langt og litríkt ævistarf, þá er það kannski fleira en söknuður sem kemur upp í huga manns. Minningar ryðjast fram og það koma myndir upp í hugann. Pabba varð þeirrar gæfu auðið í byrjun búskapar að fá í hendur jörðina Berghyl sem afi hans og nafni Eiríkur eldri á Berghyl hafði búið á og keypt um aldamótin 1900. Mamma og hann hófu þarna bú- skap og saman unnu þau að upp- byggingu þessarar fallegu land- námsjarðar í 35 ár eða þar til mamma lést fyrir aldur fram 59 ára gömul. Það var ekki miklum þægindum fyrir að fara og algert jafnræði ríkti í stritinu. Það hefði þurft fleiri stundir í sólarhringinn stundum. En launin voru hins veg- ar ómæld ánægja góðrar uppskeru og í umhirðu alls bústofns. Sauð- EIRÍKUR JÓNSSON Ástkær bróðir okkar, INGÓLFUR HALLDÓRSSON frá Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum fimmtudaginn 24. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Systkini hins látna. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR KRISTBJÖRG MATTHÍASARDÓTTIR, Víðilundi 24, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt föstudagsins 25. febrúar. Haraldur M. Sigurðsson, börn, tengdabörn, ömmubörn og langömmubörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON, Hrafnistu í Reykjavík, áður til heimilis í Álftamýri 49, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Eyjólfur Guðmundsson, Eygló Úlfhildur Ebeneserdóttir, Hörður Guðmundsson, Anna Margrét Tryggvadóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Sigurgeirsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Ólafur R. Vilbertsson, Guðveig Nanna Guðmundsdóttir, Sigurður Grétar Geirsson, Guðlaugur Björn Guðmundsson, Anna María Valdimarsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Dagbjört Ásgeirsdóttir og afabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ODDBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 24. febrúar. Eyja Sigríður Viggósdóttir, Jóhann Hafliðason, Áslaug Björg Viggósdóttir, Guðmundur Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar hjartfólgni faðir, tengdafaðir, afi og langafi, INGVAR BJÖRNSSON frá Gafli, lést miðvikudaginn 9. febrúar sl. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum hlýju og vinsemd. Smári Þröstur Ingvarsson, Gréta Alfreðsdóttir, Úlfheiður Kaðlín Ingvarsdóttir, Richardt Svendsen, Auðbjörg Nanna Ingvarsdóttir, Þorbergur Leifsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR BJÖRN SVEINSSON, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 24. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ólöf Ólafsdóttir, Guðlaug Björnsdóttir, Þór Magnússon, Guðjón Björnsson, Friðrika Sigvaldadóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.