Morgunblaðið - 26.02.2005, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 26.02.2005, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Falleg 3ja herbergja íbúð í kjallara á þessum vinsæla stað. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með nýlega sprautulakkaðri innréttingu, baðherb. m/baðkari, tvö rúmgóð svefnherb., stóra og bjarta stofu. Parket á stofu og gangi. Íbúðin er nýlega máluð. Geymsla og sam. þvh. Stór barnvænn garður m/leiktækjum. Verð 15,9 millj. Kristján tekur á móti gestum kl. 13.00-14.00 laugard. og sunnud. OPIÐ HÚS UM HELGINA BARMAHLÍÐ 40 HELSTU dagblöð Evrópu fjölluðu í gær í forystugreinum um fund þeirra Vladímírs Pútíns, forseta Rússlands, og George W. Bush Bandaríkjaforseta í Bratislava á fimmtudag. Í Vestur-Evrópu var einkum lögð áhersla á gagnrýni Bandaríkjamanna á þróun mála í Rússlandi, samþjöppun forsetavalds og veika stjórnarandstöðu, en þar eystra töldu höfundar leiðara helstu dagblaða að fundurinn hefði verið sigur fyrir Pútín. Áberandi var í V-Evrópu sú áhersla á að „tónninn“ í samskiptum þessara manna hefði gjörbreyst frá því er þeir hittust fyrst í Slóveníu fyrir fjórum árum. Fleyg urðu þá þau ummæli Bush að þar hefði hann „horft inn í sálu“ Pútíns og eignast nýjan vin. „Traustið sem var til staðar í upp- hafi og byggt var á barnalegum von- um um sameiginlega hagsmuni hef- ur vikið fyrir varkárni og vonbrigðum,“ sagði m.a. í forystu- grein Lundúnablaðsins The Times. Í svipaðan streng tók leiðarahöfundur pólska dagblaðsins Rzeczpospolita sem sagði ljóst af ummælum Banda- ríkjaforseta að „töfrar Pútíns“ heyrðu nú sögunni til. Blaðið lagði áherslu á að þessi nýja staða í sam- skiptum Bandaríkjanna og Rúss- lands þýddi ekki að nýtt kalt stríð væri yfirvofandi en valdhafar í Moskvu mættu búast við því að sæta vaxandi þrýstingi af hálfu heims- byggðarinnar allrar. Þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine lagði áherslu á nauðsyn þess að Rússar og Bandaríkjamenn ættu með sér náið samstarf og væru tilbúnir til viðræðna. Í því ljósi hefði fundurinn í Bratislava í Slóvakíu verið mjög mikilvægur. Lýsti blaðið yfir þeirri skoðun að engar líkur væru á því að takast myndi að hefta útbreiðslu gjöreyðingarvopna án þess að til kæmi samvinna þessara ríkja. Bush Bandaríkjaforseti lauk á fimmtudag fimm daga ferð sinni til Evrópu. Tilgangurinn með förinni var einkum að bæta samskiptin við nokkur lykilríki Evrópu eftir innrás- ina í Írak og leita eftir stuðningi við uppbyggingarstarf þar á vettvangi Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Evrópusambandsins (ESB). Rússnesk blöð segja Pútín hafa farið með sigur af hólmi Á fundinum með Pútín í Bratis- lava lét Bandaríkjaforseti í ljós áhyggjur af þróun mála í Rússlandi. Nefndi hann einkum samþjöppun valds þar í landi, veika stjórnarand- stöðu og heft frelsi fjölmiðla. Í Bandaríkjunum og víðar hafa marg- ir stjórnmálaleiðtogar áhyggjur af því að Pútín hyggist hverfa af braut „lýðræðisvæðingar“ þeirrar sem einkenndi embættistíð forvera hans Borís Jeltsíns. Á undanliðnum miss- erum telja margir að völd forsetans og nánustu samstarfsmanna hans hafi verið aukin til muna. Þá er nefnt að í raun sé stjórnarandstöðu ekki að finna í landinu og flestir fjöl- miðlar séu stjórnvöldum undirgefn- ir. Þess varð ekki vart í helstu dag- blöðum Rússlands í gær að þar hefðu menn efasemdir um fram- göngu Pútíns forseta. Var það sam- dóma álit höfunda forystugreina að Pútín gæti borið höfuðið hátt eftir fundinn. „Vináttan í fyrirrúmi,“ sagði Vremíja Novosteí. „Bush treystir Pútin,“ bætti blaðið við. Fram kom sú skoðun að væri fram- ganga forsetanna metin í stigum hefði Pútín farið með sigur af hólmi. „Bush telur að Pútín sé lýðræðis- sinni,“ sagði viðskiptablaðið Vedom- ostíj. Í Vestur-Evrópu voru ritstjórar sýnilega á öðru máli. Í forystugrein hins þýska Süddeutsche Zeitung sagði að þrátt fyrir fundinn yrði því ekki neitað að „margir Rússar treysta ekki Bush, hinum sjálfskip- aða útflutningsstjóra lýðræðisins.“ Dagblaðið Publico sem gefið er út í Portúgal fagnaði því sérstaklega að „afturkippur á vettvangi lýðræðis- ins“ í Rússlandi hefði verið ræddur á fundinum í Bratslava. Blaðið lýsti ennfremur yfir ánægju sinni með að Bush hefði komið þessum „skila- boðum til leiðtoga Evrópu“ og sagði ljóst að þeir hinir sömu leiðtogar myndu á engan veg hagnast á því að þegja um „valdníðslu Kremlverja“. Breska dagblaðið Guardian reyndist svipaðrar skoðunar. Ráða- menn í Evrópusambandinu töluðu fjálglega um einstakt samband þeirra og Rússa en lítil innstæða væri að baki slíkum yfirlýsingum. Vart væri unnt að halda því fram að Bush hefði gagnrýnt Pútin af hörku en aðfinnslur hans væru þó „skárra en ekki neitt“. Breyttur „tónn“ í sam- skiptum Bush og Pútíns Dagblöð í Evrópu leggja áherslu á gagnrýni Bush á stjórnarhætti í Rússlandi Brussel. AFP. MANNFÓLKINU mun fjölga um heil 40% á næstu 45 árum. Fjölgunin verður nær einvörðungu í þróunar- ríkjum. Þessi er helsta niðurstaða nýrrar skýrslu Mannfjöldaskrifstofu Sam- einuðu þjóðanna. Því er nú spáð að íbúum jarðarinnar muni fjölga úr þeim 6,5 milljörðum sem þeir eru núna í 9,1 milljarð árið 2050. Aukningin verður svo að segja öll í þróunarlöndunum, en íbúafjöldi þró- aðra ríkja helst svo að segja óbreytt- ur, eða 1,2 milljarðar. Í spánni segir að Indland taki við af Kína sem fjöl- mennasta ríki jarðarinnar um 2030. Gríðarlegri fólksfjölgun er spáð í 50 fátækustu ríkjum heims á næstu áratugum. Um þau gildir almennt að íbúarnir verða tvöfalt fleiri árið 2050 en nú. Í ríkjum á borð við Afganist- an, Tsjad og Austur-Tímor verður fjölgunin enn meiri. Því er spáð að íbúatalan þar muni þrefaldast. Í skýrslunni kemur fram að í Afr- íku hafa meðalævilíkur dregist sam- an á síðustu árum. Árið 1995 gat Afr- íkubúi sem þá fæddist átt von á að lifa í 62 ár. En á síðustu fimm árum þ.e. frá 2000–2005 hefur orðið ótrú- leg breyting þar á og mælast með- alævilíkurnar nú 48 ár. Útbreiðsla smitsjúkdóma á borð við alnæmi veldur þar mestu auk þess sem efna- hagsleg stöðnun og vopnuð átök draga úr meðalævilíkum íbúa Afr- íku. Þetta ástand er sagt bundið við Afríku. Fólki fjölgar um 40% Gríðarlegri fólks- fjölgun spáð í 50 fátækustu ríkjunum FÉLAGAR í íþróttafélagi í Hvíta-Rússlandi hella yfir sig ísköldu vatni úr fötum í tíu stiga frosti á hátíð í gær í tilefni af vetrarlokum í Raubítsj, 30 kílómetra austan við Mínsk, höfuðborg landsins. Reuters Vetur kvaddur í Hvíta-Rússlandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.