Morgunblaðið - 26.02.2005, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 26.02.2005, Qupperneq 56
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes HIN DÝRIN LEIKA SÉR! HIN DÝRIN FARA ÚT! VIÐ VERÐUM AÐ KOMA AF STAÐ EINHVERJUM BREYTINGUM HÉRNA ÉG VEIT EN HVERNIG EIGUM VIÐ AÐ FARA AÐ ÞVÍ AÐ BREYTA ÖLLUM HINUM DÝRUNUM ÞÚ FÆRÐ SÉRSTAKAN MAT Í DAG ÞETTA ER ÞAÐ SAMA OG VENJULEGA! ÉG VISSI AÐ VARST AÐ BÚAST VIÐ EIN- HVERJU SÉRSTÖKU... ÞANNIG AÐ, TIL AÐ KOMA Á ÓVART, FÆRÐU ÞAÐ SAMA OG Í GÆR ÞETTA VAR GRÍN... AF HVERJU HLÆRÐU EKKI? ÞAÐ ERU EKKI MARGIR MAGAR SEM HAFA HÚMOR FYRIR SVONA LÖGUÐU! ERU EINHVER SKRÍMSLI UNDIR RÚMINU MÍNU?! NEIBB NEI NEI ÉG HEYRÐI ANNAÐ! OG EF ÞAU FARA EKKI UNDIR EINS, ÞÁ BRENNI ÉG ÞAU MEÐ ELDVÖRPUNNI MINNI ÁTT ÞÚ ELDVÖRPU? ÞAU LJÚGA, ÉG LÝG! Litli Svalur © DUPUIS framhald ... ÞEGAR MAÐUR ER SJÓMAÐUR JAFNAST EKKERT Á VIÐ ÞAÐ AÐ HORFA Á ÖLDURNAR ÉG KANN ALVEG ROSALEGA SKEMMTI- LEGAN, NÝJAN LEIK. VILTU HEYRA? KOMDU MEÐ HANN... ÞETTA ER PRINSESSA. HÚN HEFUR VERIÐ HNEPPT Í ÁLÖG HAA?! HÚN VAKNAR EKKI NEMA BRÁÐMYNDARLEGUR PRINS KYSSI HANA HAAA?! Á MUNNINN?! AUÐVITAÐ! ANNARS VÆRI ÞETTA OF EINFALT. HÚN HEFUR FENGIÐ FULLT AF KOSSUM Á KINNINA FRÁ FORELDRUM OG VINUM. ÞAÐ HAFÐI ENGIN ÁHRIF OJ BARA! Á MUNNINN! ÞETTA ERU ÓGEÐSLEG ÁLÖG PRINS ER EINS OG KAPTEINN. HANN HRÆÐIST EKKERT. PANT VERA PRINSESSAN!! HEYRÐU! BÍDDU! OF SEINT, MÍN ER SOFNUÐ Á ÞESSUM TÍMAPUNKTI VISSI ÉG AÐ HLUTIRNIR HÖFÐU BREYST. LEIKUR ÞAR SEM ÉG ÞARF AÐ KYSSA Á MUNNINN ER STELPULEIKUR MÉR FINNST SKEMMTILEGRA AÐ LEITA AF FJÁRSJÓÐI. EIGUM VIÐ EKKI BARA AÐ FARA Í GAMLA LEIKINN? HEYRÐIRÐU EKKI HVAÐ ÉG SAGÐI? EF ÞÚ VILT HAFA ÞETTA SVONA ÞÁ ER MINN BARA LÍKA FARINN AÐ SOFA GÆTI HÚN HAFA SOFNAÐ Í ALVÖRUNNI? ÞESSI LEIKUR GÆTI ORÐIÐ MJÖG LANGUR ALLT Í LAGI! HÉRNA KEMUR ÞETTA! EKKERT. HÚN VAR STEINSOFANDI ALLT Í EINU... HVERNIG Á ÉG AÐ SEGJA ÞETTA... LANGAÐI MIG AÐ GANGA ÚR SKUGGA UM ÞAÐ... HVAÐ ÞAÐ ER Í RAUN OG VERU SEM BREYTIST HJÁ STELPUM Dagbók Í dag er laugardagur 26. febrúar, 57. dagur ársins 2005 Víkverja finnstStrákarnir á Stöð 2, þeir Auddi, Sveppi og Pétur Jóhann oft- ast nær ansi sniðugir. Það er þetta alþýðlega fas þeirra sem gerir þeim kleift að ná svo vel til fólks, ekki síður barna en fullorðinna. Uppátæki þeirra eru og flest bráðsmellin og gott hjá þeim að vera farnir að ítreka fyrir áhorfendum, einkum hinum yngri, að óvar- legt sé að reyna að leika þau eftir. x x x Þeir mættu samt sem áður veltaaðeins betur fyrir sér hvað þeir gera og hversu mjög þeir geta hreyft við áhrifagjarnri æskunni. Eitt er það uppátæki sem stuðað hefur Vík- verja, en það er þegar þeir þremenn- ingar fara út af örkinni og bjóða fólki gull og græna skóga – eða réttara sagt nokkur þúsund kalla – fyrir það eitt að gera það sem því er sagt að gera. Virðist kannski hin saklausasta skemmtun – að kanna hversu langt fólk er tilbúið að ganga fyrir fáeina seðla. Gott og vel. En þegar þetta er sett í víðara samhengi setur Víkverji stórt spurningarmerki við athæfið. Hjá strákunum er fólki stillt upp fyrir framan myndavél, seðlum veifað og fólk manað til að gera eitthvað sem það kærir sig ekkert um að gera. Gera eitthvað sem því þykir ekki eðlilegt að gera. En það er allt í lagi að gera það sem aðrir segja þér að gera svo lengi sem þú færð borgað fyrir það. Eða hvað? Hér setur Víkverji spurningarmerki við þenn- an leik og hugsar dæmið lengra – til þeirra barna og unglinga sem horfa á þáttinn. Og til þess hóps meðal þeirra sem sögur hafa gengið af í fjölmiðlum og víðar – þær sögur að þó nokkuð algengt sé orðið að unglingar, og þá sérstaklega unglingsstúlkur, geri ýmsa hluti bara til að fá eitthvað í staðinn, fá að vera með ákveðnum hópi, vera með í partíi, vera kúl – vera eins og hinir. Ekki treysta eigin eðlisávísun eða áhuga heldur gera það sem aðrir segja þér að gera – og kannski færðu borgað fyrir það á eftir. Að sjálf- sögðu bera strákarnir ekki ábyrgð á því á hvað börn og unglingar horfa í í sjónvarpinu, sú ábyrgð er í höndum foreldra. En þeir mættu samt alveg hugsa þetta „saklausa“ grín lengra. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is             Hallgrímskirkja | Listvinafélag Hallgrímskirkju gengst fyrir tónleikum í dag kl. 17 þar sem Mótettukór Hallgrímskirkju og Hörður Áskelsson fá góða gesti í heimsókn. Á tónleikunum mun hinn heimsfrægi Raschér-saxófón- kvartett frumflytja ásamt kórnum nýtt verk, Adoro Te Devote, eftir Huga Guðmundsson. Mótettukórinn og Raschér-kvartettinn flytja auk þess hvor um sig verk eftir Bach og Penderecki. Miðaverð er 2.000 kr. Morgunblaðið/ÞÖK Söngur og saxófónar MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Þá birtist honum engill af himni, sem styrkti hann. Og hann komst í dauðans angist og baðst enn ákafar fyrir, en sveiti hans varð eins og blóðdropar, er féllu á jörðina. (Lúk. 22, 43.–44.)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.