Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 21
ERLENT
LEIÐTOGAR biskupakirkjunnar
hafa beðið kirkjudeildirnar í
Bandaríkjunum og Kanada að
draga sig út úr mikilvægu ráði
heimssambands kirkjunnar fram til
ársins 2008 vegna deilna um afstöð-
una til samkynhneigðar. Beiðnin
var sett fram í lok fjögurra daga
ráðstefnu heimssambandsins í
Newry á Norður-Írlandi í fyrra-
kvöld.
Um 78 milljónir eru í biskupa-
kirkjunni, ein af fjölmennustu
deildunum er í Nígeríu. Fulltrúar
deildanna í Afríkulöndum eru yf-
irleitt mjög íhaldssamir og berjast
hart á móti auknum réttindum
samkynhneigðra í kirkjunni. Miklar
deilur hafa staðið innan kirkjunnar
eftir að samkynhneigður prestur
var skipaður biskup í Bandaríkj-
unum og eftir að prestar hennar
fóru að blessa samkynhneigð pör í
Kanada.
Samþykki kirkjudeildirnar í
Norður-Ameríku að draga sig út úr
ráðinu verða þær ekki lengur full-
gildir aðilar að heimssambandi
biskupakirkjunnar. Fréttavefur
breska ríkisútvarpsins BBC segir
að þetta geti verið fyrsta skrefið í
átt að varanlegum klofningi kirkj-
unnar.
Ósammála um samkynhneigð
Í yfirlýsingu frá leiðtogum kirkj-
unnar segir að þróunin í norður-
amerísku kirkjudeildunum hafi
grafið alvarlega undan boðskap
biskupakirkjunnar um samkyn-
hneigð. Forsenda beiðninnar er
sögð sú að kirkjan þurfi tíma til að
komast að sameiginlegri niðurstöðu
í málinu en beiðnin þykir engu að
síður mikill sigur fyrir talsmenn
íhaldssamra gilda innan kirkjunnar.
Þá segir í yfirlýsingu leiðtoganna
að raunverulegur möguleiki sé á
því að kirkjudeildirnar „velji ekki
að ganga sömu leið til frambúðar“
og að fallist kirkjurnar í Bandaríkj-
unum og Kanada ekki á að draga
sig í hlé þurfi þær þegar „að læra
að ganga einar“.
Biskupakirkjan að klofna?
London. AFP.
Kirkjudeildirnar í N-Ameríku beðnar
að draga sig út úr mikilvægu ráði
FYRRVERANDI forstjóri rúss-
neska olíurisans Yukos, Mikhaíl
Khodorkovskí, segist vera algerlega
saklaus af því sem hann hefur verið
ákærður fyrir, sem m.a. eru skatt-
svik, falsanir og fjárglæfrar.
Kom þetta fram í þriggja klukku-
stunda framburði hans fyrir rétti í
Moskvu í gær en málflutningur hef-
ur nú staðið í níu mánuði.
Khodorkovskí var fangelsaður í
október 2003. Hann kvaðst hafa rek-
ið öflugt fyrirtæki „og aðstoðað
ýmsa aðra við að rísa úr rústunum
eftir hrun Sovétríkjanna“. Hann
svaraði öllum ákæruatriðum, sem
saksóknari lagði fram og sagði m.a.
að hann myndi ekki öll smáatriði en
hann hefði ekki borið ábyrgð á
ákvarðanatöku er leitt hefði til ým-
issa meintra brota. Þar að auki hefði
allt sem Yukos gerði verið í sam-
ræmi við gildandi lög á sínum tíma.
„Ríkissaksóknari hefur ekki lagt
fram nein sönnunargögn ... heldur
reynir að búa þau til,“ sagði Khodor-
kovskí.
Bandarískur dómari vísaði á
fimmtudag frá máli sem Yukos höfð-
aði þar í Texas til að fá tímabundna
greiðslustöðvun vegna hættu á
gjaldþroti. Sagði dómarinn að þar
sem megnið af starfsemi Yukos væri
í Rússlandi væri ekki hægt að rétta í
umræddu máli vestra. Taka yrði
málið fyrir þar sem embættismenn
Rússlandsstjórnar gætu tekið þátt í
umfjöllun þess.
Segist
vera
saklaus
Moskvu, Washington. AFP.
Reuters
Mikhaíl Khodorkovskí
♦♦♦
NEFND á vegum Sameinuðu þjóð-
anna byrjaði í gær að afla upplýsinga
í Líbanon um morðið á Rafiq Hariri,
fyrrverandi forsætisráðherra lands-
ins.
Í nefndinni eru þrír háttsettir lög-
regluforingjar frá Írlandi og þeir
hétu því að gæta hlutleysis. Yfirvöld
í Beirút féllust á að vinna með nefnd-
inni en höfnuðu ýtarlegri rannsókn
af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Stjórn
Líbanons og sýrlensk stjórnvöld
hafa verið sökuð um að hafa staðið
fyrir morðinu á Hariri 14. febrúar.
Varnarmálaráðherra Sýrlands,
Abdel Rahim Mrad, tilkynnti í fyrra-
dag að Sýrlendingar hygðust senda
hermenn sína í Líbanon inn í Bekaa-
dal í austurhluta landsins, nálægt
landamærunum að Sýrlandi. Ekkert
benti þó til þess í gær að liðsflutning-
arnir væru hafnir.
Um 14.000 sýrlenskir hermenn
eru í Líbanon. Í ályktun, sem örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti í september, er þess krafist
að herliðið fari þaðan og að Sýrlend-
ingar virði fullveldi Líbanons.
Nefnd SÞ
aflar gagna
um morðið
á Hariri
Beirút. AFP.