Morgunblaðið - 26.02.2005, Blaðsíða 22
Sandgerði | Mikill afli hefur
borist á land í Sandgerði í blíð-
viðriskaflanum sem staðið hef-
ur í viku, að sögn Björns Ara-
sonar hafnarstjóra, en fram til
þess hafði verið ótíð og lítill
afli. Fiskirí hefur verið gott en
þegar leið á vikuna tóku marg-
ir sér frí vegna þess hvað fisk-
verð á mörkuðunum hefur
lækkað.
„Þetta hefur gengið ágæt-
lega og fínasta fiskirí verið al-
veg frá áramótum,“ segir Jón
Jóhannsson trillukarl á Muggi
GK-70. Hann gerir út á línu
frá Sandgerði og landaði þar
2,2 tonnum í fyrradag. Jón er
þokkalega ánægður með
aflann úr róðrinum. Segist
hafa getað farið í meiri veiði
en viljað frekar eltast við stóra
fiskinn. Það bar ágætan árang-
ur eins og sést á myndinni sem
tekin var þegar Jón var að
landa.
Jón er einn á bátnum þessa
dagana en faðir hans, Jóhann
Gunnar Jónsson, er í fríi. Jón
reri ekki í gær, segist hafa
ákveðið að taka sér frí vegna
þess hvað verðið fyrir fiskinn
væri orðið lágt. „Þetta er orðin
hálfgerð sjálfboðavinna,“ segir
hann. Veður hefur verið gott
um allt land síðustu daga og
víðast góður afli. Mikið fram-
boð á fiski hefur leitt til þess
að fiskverðið hefur lækkað.
Morgunblaðið/RAX
Gott fiskirí en lágt verð
Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Aðeins eru tæplega tveir mánuðir þangað
til kosið verður um sameiningu Borg-
arbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvít-
ársíðuhrepps, Skorradalshrepps og Kol-
beinsstaðahrepps. Það er því ekki ólíklegt
að sameiningarmálin séu vinsælt umræðu-
efni þegar fólk hittist á förnum vegi. Enda
sýnist sitt hverjum og það hlýtur að teljast
eðlilegt. Svæðið skiptist í þéttbýli og dreif-
býli og þarfir íbúanna því að mörgu leyti
ólíkar. Mikilvægt er að sveitarstjórn-
armenn og kjósendur geri sér grein fyrir
því áður en á hólminn er komið og sætti
sig við að veita þarf íbúum þessa ólíku
þjónustu. Skólamálin verða örugglega
helstu hitamálin í sameiningunni enda
mikilvægt fyrir alla foreldra að vera vissir
um að sem best verði búið að skólabörn-
unum. Spennandi verður að sjá hverjar til-
lögur sameiningarnefndar, sem vænt-
anlegar eru í byrjun mars, verða í þeim
efnum.
Margir þeirra sem nú kjósa um samein-
ingu hafa gert það áður og hafa reynslu af
því hvernig til hefur tekist. Auðvitað er
fólk misjafnlega ánægt. Kannski hafa ein-
hverjir gert sér óraunhæfar vonir um að
tekið yrði öðruvísi á ýmsum málum og úr-
bætur kæmu fyrr. Til dæmis hvað varðar
vegina. Þeir sem aka um Mýrarnar að
vetrarlagi þegar skiptist á þíða og frost
eiga mjög á hættu að festa bíla sína í drull-
unni á vegunum. Ekki átti undirrituð von á
því að komast á verri vegi en hingað heim,
en það gerðist þó þegar leiðin lá að Hunda-
stapa í gamla Hraunhreppi á dögunum. Er
ég viss um að íbúar á þessu svæði, svo og
skólabílstjórar, mjólkurbílstjórar og póst-
urinn hafa búist við að sæmilega væri fært
um helstu akvegina árið 2005. En í þeirra
spor eiga þeir sem búa í þéttbýlinu örugg-
lega erfitt með að setja sig.
Fólkið í héraðinu á þó miklu meira sam-
eiginlegt og sameinar krafta sína á mörg-
um sviðum. Ekki síst í menningunni. Þar
spáir enginn í hvort einhver kemur úr
sveitinni eða þéttbýlinu heldur nýtur fólkið
þess að sinna áhugamálunum saman. Til
dæmis leikararnir í leikdeild Skallagríms
sem sýna nú Týndu teskeiðina eftir Kjart-
an Ragnarsson í leikstjórn Valgeirs Skag-
fjörð í gamla mjólkursamlagshúsinu í
Borgarnesi. Sýningunni hefur verið vel
tekið og þegar búið að bæta við tveimur
sýningum nú um helgina.
Úr
sveitinni
ÁLFTANES Á MÝRUM
EFTIR ÁSDÍSI HARALDSDÓTTUR BLAÐAMANN
TónlistarskóliReykjanesbæjarstendur fyrir
keppni í tónfræðigreinum
og þekkingu á hljóðfærum
og tónlist í sal Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja milli kl.
13 og 18 í dag. Keppnin
nefnist Kontrapunktur og
er liður í dagskrá Dags
tónlistarskólanna sem
haldinn er hátíðlegur um
land allt í dag.
Lúðrasveit Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar,
elsta deildin, heldur mara-
þontónleika í sal Njarðvík-
urskóla á morgun, sunnu-
dag, milli kl. 14 og 19. Er
þetta framtak æfing og
fjáröflun vegna tónleika-
ferðar sveitarinnar til
Washington í Bandaríkj-
unum um páskana þar
sem hún tekur þátt í
tónlistarhátíð og heldur
tónleika. Kaffihús verður
starfrækt á tónleikunum,
milli 15 og 17.
Kontrapunktur
Tvær kjarnakonurhafa opnað nýjablóma- og gjafa-
vöruverslun á Akureyri,
hún er í verslunarmið-
stöðinni Sunnuhlíð í Gler-
árhverfi. Verslunin heitir
Mimosa og það eru þær
Þórhildur Svavarsdóttir
og Rannveig Vernharðs-
dóttir sem eiga og reka
verslunina. Mimosa verð-
ur opin alla daga nema
sunnudaga.
Morgunblaðið/ Rúnar Þór
Ný blómabúð
Einar Kolbeinssonyrkir enn í tilefniaf nýju spreyi
sem vekur kynhvöt
kvenna:
Ef ég sinni um amorsstörf,
er á sléttum vegi,
og engri konu þykir þörf,
á þessu fjandans spreyi!
Og hann yrkir til Frið-
riks:
Spreyið þarf nú ekki enn,
ungdómsliðið slynga,
upp þó bæti eldri menn,
og einnig Mývetninga!
Friðrik Steingrímsson
hafði verið sendur
austur á Reyðarfjörð
og það spreylaus.
Hann svaraði við heim-
konuna:
Lánið við mig leikur ei
og lífið einskis virði,
illt er að hafa ekkert sprey
austur á Reyðarfirði.
Björn Ingólfsson yrkir:
Báglega við búskap vinnst
bónda sem er heylaus
og tilgangslítið Friðrik finnst
að fara austur – spreylaus.
Af kynlífsspreyi
pebl@mbl.is
Markmiðið
að bæta
þjónustuna
Hafnarfjörður | Hugmyndir heilbrigðis-
ráðherra um að hjúkrunarheimilið Sól-
vangur í Hafnarfirði verði sameinað St.
Jósefsspítala hafa verið kynntar fyrir bæj-
arstjórnarmönnum í Hafnarfirði og yfir-
mönnum stofnananna til þess að fá álit
þeirra áður en ákvörðun verður tekin.
„Þetta er rétt á umræðustigi,“ segir Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra. „Við
höfum verið að fara yfir hvort við getum
eflt þessar stofnanir með því að sameina
þær.“ Jón segir að ákveðið hagræði fáist af
sameiningu, yfirstjórnin verði þá sú sama,
og hægt að samnýta einhverja þjónustu.
Svipað ferli hafi verið í gangi á Suðurlandi
og eins og þar sé reiknað með aukinni sam-
vinnu, og samræmingu á vöktum. „Ef það
er einhver sparnaður er það mjög gott, en
við höfum verið með það sem fyrsta mark-
mið að bæta þjónustuna með því að opna
möguleikana á því að menn vinni saman án
þess að þurfa að klífa yfir girðingar á milli
stofnana,“ segir Jón.
Hann tekur fram að þessi sameining sé
enn á umræðustigi, sveitarstjórn hafi verið
kynnt þetta erindi. „Við reiknum með að fá
viðbrögð á það og erum tilbúin að ræða
kosti og galla á þessum hugmyndum.“
Einnig eru uppi hugmyndir um að sam-
eina heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu
öllu, og hafa hugmyndir um það einnig ver-
ið kynntar aðilum í sveitarfélögum á svæð-
inu. Beðið eftir viðbrögðum þeirra.
Miðbærinn | Stjórn Torfusamtakanna
leggst eindregið gegn áformum um að
heimila niðurrif fjölmargra húsa við
Laugaveg og fer fram á það við borgaryf-
irvöld að deiliskipulag reita við Laugaveg
verði endurskoðað með það að markmiði að
varðveita sem flest þeirra.
Í tilkynningu frá stjórninni kemur fram
að hún telji borgaryfirvöld á villigötum í
málinu, og allt stefni í menningarsögulegt
slys sem ekki verði bætt. „Gömlu húsin eru
einstök og það eru aðallega þau sem gefa
Laugaveginum og umhverfi hans þann
sjarma sem hann hefur. Fyrir utan að vera
mikilvægar menningarminjar, mynda
gömlu timburhúsin víða heild sem ekki má
eyðileggja. Það er ekki nóg að eiga eitt og
eitt gamalt timburhús á stangli sem sýn-
ishorn. Og það er ekki nóg að eiga gömul
hús á safni,“ segir m.a. í tilkynningunni.
Leggjast
gegn niðurrifi
♦♦♦
Aðaldalur | Vegagerðin hefur hug á
að byggja nýja brú á Laxá hjá Laxa-
mýri í Suður-Þingeyjarsýslu. Ráð-
gert er að brúin verði 25 metrum
norðan núverandi brúar.
Núverandi brú yfir Laxá er ein-
breið og aðkoma að henni slæm. Þar
hafa orðið mörg umferðaróhöpp og
slys. Nýja brúin verður 84 metra
löng steypt bogabrú í einu hafi með
7,5 metra breiðri akbraut. Hug-
myndin er að bjóða verkið út í sumar
þannig að framkvæmdir geti hafist í
haust, að loknu laxveiðitímabili, og
þeim ljúki sumarið 2006.
Fram kemur í Framkvæmdafrétt-
um Vegagerðarinnar að nú er verið
að kanna hvort nýja brúin sé mats-
skyld samkvæmt lögum um mat á
umhverfisáhrifum. Svæðið er vernd-
að samkvæmt sérstökum lögum um
verndun Mývatns og Laxár. Telur
Vegagerðin að framkvæmdin hafi
fremur lítil umhverfisáhrif nema
hvað umferðaröryggi aukist.
Áningarstaðurinn á Heiðarenda,
við minnisvarðann um Jóhann Sig-
urjónsson, lendir undir nýja vegin-
um og verður því byggður nýr áning-
arstaður. Þótt vegurinn færist nær
minnismerkinu verður því ekki rask-
að.
Ný brú 25 metrum
norðar í Laxá í Aðaldal
Tvíbreið Tölvuteikning Vegagerðarinnar að nýrri brú á Laxá.
Löndun