Morgunblaðið - 26.02.2005, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Tilboð óskast
í 20 feta skemmti- og fiskibát að Draco
gerð, sem sökk í Vestmannaeyjahöfn.
Báturinn var knúinn af 230 Hö Volvo
Penta KAD 42 B vél, ekin 70 stundir.
Innréttingar, rafbúnaður ofl. er skemmt eftir
óhappið. Vélbúnaður var tekin úr bátnum,
hreinsaður og yfirfarin eftir óhappið.
Ath. tilboð skal gera í tvennu lagi:
í bát og vagn og í vél og drif.
Tilboða er óskað í búnaðinn í núverandi
ástandi og er hann til sýnis
hjá Fjölverk ehf í Vestmannaeyjum.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu félagsins í
Vestmannaeyjum fyrir kl 4.30 mánudaginn 31
janúar. Einnig má bjóða í bátinn á vef félagsins
www.tmhf.is
- TM Tjónaskoðunarstöð -
Tjónaskoðunarstöð • Hamarshöfða 2
Sími 515 2804 • Símbréf 515 2810
STOFNFUNDUR Hollvinafélags
Iðnaðarsafnsins á Akureyri var hald-
inn í fundarsal Einingar-Iðju sl. ný-
lega. Þar var kosin fimm manna und-
irbúningsnefnd sem hefur m.a. það
verkefni með höndum að koma með
drög að lögum Hollvinafélagsins og
einnig skipulagsskrá fyrir sjóð fé-
lagsins. Nefndinni er ætlað að skila
tillögum sínum fyrir framhaldsstofn-
fund sem haldinn verður í lok mars
nk.
Þau sem kosin voru í undirbún-
ingsnefnd eru Margrét Marvins-
dóttir, Kristinn Arnþórsson, Hjörleif-
ur Hallgríms, Jón Arnþórsson og
Þorsteinn E. Arnórsson.
Jón Arnþórsson forstöðumaður
Iðnaðarsafnsins sagði m.a. á stofn-
fundinum, að margir sem hefðu heim-
sótt safnið á liðnum árum hefðu talað
um með hvað hætti þeir gætu lagt sitt
lóð á vogarskálarnar til þess að það
megi eflast svo sem kostur er í nútíð
og framtíð. „Þar er að mörgu að taka
svo sem að vinna að frekari sýning-
arhaldi eða fræðslustarfi og að standa
að verkefnum er varða sögu iðnaðar
og annað sem stjórn félagsins metur
mikilvægt á hverjum tíma. Það er
mikilvægt fyrir hverja kynslóð að
þekkja sína fortíð og þess vegna eru
þessi markmið sérstaklega verðmæt
til tryggingar því að frásagnir af iðn-
aði liðinnar aldar verði sem gleggstar
og að Iðnaðarsafnið, hið eina í landinu
verði sannkallað fræðasetur. Þannig
sýnum við einnig þeim þúsundum
sem við iðnaðinn unnu verðskuldaða
virðingu,“ sagði Jón.
Á fundinum kom fram í máli Þor-
steins E. Arnórssonar, fyrrverandi
formanns Iðju, félags verk-
smiðjufólks, að Hollvinafélagi Iðn-
aðarsafnsins væri ætlað að vera sam-
starfs- og styrktaraðili safnsins.
Verkefni þess gætu verið af ýmsum
toga, fyrir utan stuðning við safnið.
Hollvinafélagið gæti m.a. stutt og
hvatt þá einstaklinga sem vilja safna
og skrá sögu fyrirtækja eða það
mannlíf sem þar blómstraði, því öll
fyrirtæki eigi sína sögu sem þurfi að
varðveita.
Lengsta viðvera í verksmiðj-
unum var 60 ár og 2 mánuðir
Einnig kom fram í máli Þorsteins
að hann hefur gert manntals- eða
starfsmannaskrár sem ná frá upp-
hafsári iðnaðar á Gleráreyrum og til
þess dags þegar Sambandið hætti
sem aðalrekstraraðili. Skrárnar eru
98 að tölu, ein skrá fyrir hvert ár, frá
1897 til 1993, ásamt einni skrá yfir
alla starfsmenn, sem hefur að geyma
7.200 nöfn. Styðsta viðvera er aðeins
einn dagur, þar sem einstaklingur er
skráður til vinnu í aðeins einn dag.
Lengsta viðveran eru 60 ár og 2 mán-
uðir og svo allt þar á milli. Jafnframt
hefur Þorsteinn verið að safna vísum
sem ortar hafa verið í verksmiðj-
unum.
Í lok stofnfundarins var gestum
boðið upp á veitingar og að skoða
myndamöppur af fólki við störf í
verksmiðjunum frá árunum 1930-
1990.
Hollvinafélag Iðnaðarsafnsins stofnað
Öll fyrirtæki eiga sína
sögu sem þarf að varðveita
Morgunblaðið/Kristján
Stofnfundur Jón Arnþórsson, forstöðumaður Iðnaðarsafnsins á Akureyri,
ræðir við Hönnu Guðmundsdóttur og Erlu Stefánsdóttur á stofnfundi Holl-
vinafélagsins en þær voru m.a. að skoða möppur með gömlum myndum.
ÚLFHILDUR Rögnvaldsdóttir tók
við formennsku í Félagi verslunar-
og skrifstofufólks á Akureyri og
nágrenni á aðalfundi félagsins ný-
lega. Hún var áður varaformaður
en tekur nú við af Páli H. Jónssyni
sem ekki gaf kost á sér til endur-
kjörs. Hann er þó áfram í stjórn fé-
lagsins.
Fram kom á aðalfundinum að
sjúkrasjóður var rekinn með 1,3
milljóna króna halla á liðnu ári og
orlofssjóður með 5,2 milljóna króna
tapi, en rekstur félagsins skilaði
10,6 milljóna króna hagnaði í heild-
ina. Afkoman er einni milljón króna
lakari en árið á undan. Félagssjóð-
ur var rekinn með 9 milljóna króna
hagnaði, sem er nokkru meira en
var árið á undan þegar hann var
5,7 milljónir. Greiðslur úr sjúkra-
sjóði námu 28,9 milljónum króna,
en bætur úr sjóðnum hafa hækkað
um 40% á þremur árum.
Lakari afkomu Orlofssjóðs milli
ára má rekja til þess að ráðist var í
umfangsmiklar endurbætur á einu
orlofshúsi félagsins að Illugastöð-
um á árinu og kaup á húsi þar til
viðbótar. Eftir kaupin á félagið 10%
eignarhlutdeild í orlofsbyggðinni að
Illugastöðum en átti 7% áður.
Eginfjárstaða félagsins er sterk,
eigið fé nam 227,7 milljónum króna
í árslok 2004, en skuldir 1,4 millj-
ónum króna.
Auk Úlfhildar og Páls eiga Einar
Hjartarson, Reynir Svanholt og
Friðbjörg Jóhannsdóttir sæti í
nýrri stjórn Félags verslunar- og
skrifstofufólks á Akureyri og ná-
grenni.
Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni
Úlfhildur tekur við af Páli
KB banki og Íþróttafélagið Þór á
Akureyri hafa gert með sér styrkt-
ar- og samstarfssamning til næstu
fjögurra ára. Heildarfjárhæð samn-
ingsins er trúnaðarmál en um er að
ræða stærsta samning þessarar
tegundar sem Þór hefur gert frá
upphafi. Í samningnum felst að á
árunum 2005 til 2008, að báðum ár-
um meðtöldum, mun KB banki
verða einn af aðalstyrktaraðilum
Þórs og aðalstuðningsaðili allra
yngri flokka félagsins í knatt-
spyrnu, handbolta og körfubolta.
Allir keppnisbúningar í þessum
flokkum munu bera auglýsingu frá
KB banka en að auki fá allir iðk-
endur í yngri flokkum félagsins
rauða háskólaboli merkta félaginu
og bankanum. Þá verður KB banki
aðalstyrktaraðili Pollamóts Þórs
næstu fjögur árin og mun gefa
verðlaunagripi til nokkurra móta
sem félagið gengst fyrir, segir í
fréttatilkynningu frá KB banka.
KB banki styrkir Þór
Morgunblaðið/Kristján
Samningur Hilmar Ágústsson útibússtjóri og Jón Heiðar Árnason, formað-
ur Þórs, handsala samninginn. Fyrir aftan þá standa formenn deilda, f.v.
Skapti Hallgrímsson, Þorgils Sævarsson og Unnsteinn Jónsson.
Minna urðað | Á síðasta ári var
heildarmagn þess úrgangs sem urð-
aður var á urðunarstað Sorpeyð-
ingar Eyjafjarðar á Glerárdal
17.321 tonn. Þetta er 2.378 tonnum
minna magn er þar var urðað árið
2003 og er munurinn 12%. Þetta er
annað árið í röð sem minnkun verð-
ur á magni til urðunar. Meginskýr-
ingarnar á þessari þróun eru vænt-
anlega þær að sláturúrgangur er
jarðgerður í vaxandi mæli og meira
en áður af pappír var flutt til endur-
vinnslu til Svíþjóðar. Þá var þetta
fyrsta heila árið sem bannað var að
urða hjólbarða, segir á vef sorp-
samlagsins.
Fundur| Stefna, félag vinstri
manna, heldur fund um Ísland og
Evrópu á Mongó í Kaupangi í dag,
laugardaginn 26. febrúar, kl. 10.30.
Framsögumaður er Ragnar Ás-
geirsson prófessor sem ráðleggur
úrsögn Íslands úr EES.
AKUREYRI
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi í vikunni að Fram-
kvæmdasjóður Akureyrarbæjar
myndi styrkja verkefni varðandi
uppbyggingu Vísindagarða við Há-
skólann á Akureyri um eina milljón
króna.
„Þetta eru gleðifréttir,“ sagði
Þorsteinn Gunnarsson rektor Há-
skólans á Akureyri. Hann sagði að
við nýtt rannsóknahús háskólans,
Borgir, væri gert ráð fyrir að risi
viðbygging, „ætlunin er að fyrir-
tæki sem stunda rannsóknir eða
þau sem sjá sér hag í sambýli við
háskólann yrðu staðsett í þessari
viðbyggingu,“ sagði Þorsteinn.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
hefur einnig samþykkt að leggja
fram eina milljón króna og þá hefur
rektor rætt við fulltrúa í mennta-
mála- og iðnaðarráðuneytum um að
leggja fram fé til að gera megi hag-
kvæmniathugun, en samkvæmt
fjárhagsáætlun kostar 5 milljónir
króna að gera slíka athugun vegna
málsins.
„Við horfum til þess að fyrirtæki
á sviði upplýsingatæki, líftækni og í
sjávarútvegi gætu komið sér fyrir í
Vísindagörðunum,“ sagði rektor.
Ráðuneytin hafa ekki enn gefið
formlegt svar, en tekið jákvætt í er-
indið að sögn Þorsteins. Hann gerði
ráð fyrir að hagkvæmnisathugun
yrði lokið á haustdögum, „og þá
ræðst þetta fyrst og fremst af
áhuga þeirra fyrirtækja sem haft
verður samband við varðandi
áframhaldið, en mér sýnist þetta
líta vel út.“
Háskólinn á Akureyri
Hugað að
uppbygg-
ingu Vís-
indagarðs
Óskað eftir lóð | Umhverfisráð
hefur tekið jákvætt í erindi frá Bald-
vin Valdemarssyni f.h. Valbæjar ehf
sem óskaði eftir vilyrði fyrir 12 til 15
þúsund fermetra lóð til að byggja
verslunar- og þjónustuhús ásamt að-
stöðu fyrir sjálfsafgreiðslubens-
ínstöð. Óskað er eftir landsvæði
vestan Hörgárbrautar og norðan
Síðubrautar. Ráðið fól umhverf-
isdeild að láta gera deiliskipulag á
umræddu svæði þar sem tekið yrði
tillit til sjónarmiða umsækjanda.
Dagvistun | Á fundi skólanefndar
var tekið fyrir erindi frá Iðnnema-
sambandi Íslands þar sem skorað er
á sveitarfélög landsins að vinna sam-
eiginlega að því að tryggja börnum
námsmanna dagvistunarpláss í því
sveitarfélagi þar sem foreldrar
stunda nám. Fram kom á fundi
skólanefndar að Akureyrarbær
tryggir nú þegar börnum náms-
manna pláss í leikskóla.