Morgunblaðið - 26.02.2005, Page 28
28 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
www.golfactivity.co.uk
sími 0044 131 343 1545 • ecescott@aol.com
Vorgolf í Skotlandi
Þriggja daga golfpakki -
innifaldir 2 hringir á
Turnberry - frá kr. 52.550
Margir Íslendingar nýttusér ferðamátann „flugog bíll“ á árum áður,þegar hann varð mjög
vinsæll. Hjá mörgum byrjaði ferðin í
Lúxemborg, sem var kölluð hjarta
Evrópu í auglýsingum frá Loftleið-
um og síðan Flugleiðum, einnig í
kynningarbæklingum sem Lúx-
emborgarmenn gáfu út – bæklingum
sem einkenndust af stóru rauðu
hjarta.
Það var geysilega vinsælt að
fljúga til Lúxemborgar, enda er
flughöfnin á Findel-flugvellinum lít-
ið og vinaleg, eins og innanlands-
flughafnir t.d. í Reykjavík og á Ak-
ureyri. Menn gengu frá og til
flugvéla frá flughöfninni. Já, og
menn gengu um hundrað metra með
farangur sinn að bílaleigunum, sem
voru í langri og lítilli byggingu við
flugstöðina.
Það tók ekki langan tíma að fá bíl
afhentan og síðan var haldið á stað á
vit ævintýranna – til Hollands, Belg-
íu, Frakklands og Þýskalands. Ef
haldið var til Þýskalands var fyrsti
áfangastaður Trier, borgin sögu-
fræga við hina fögru Móselá, síðan
var haldið með árbakkanum niður
með ánni að Rín. Þeir sem ákváðu að
fara strax til Norður- eða Suður-
Þýskalands brugðu sér upp á hrað-
brautir og var stefnan fyrst tekin á
Koblenz er ferðin var heitið til Köln
og norður, en á Kaiserslauten ef
haldið var suður til Svartaskógar
eða austur í Bæjaraskóg.
Gamall herflugvöllur
Vegakerfið í Þýskalandi er það full-
komnasta í heimi. Allir vegir og
staðir eru vel merktir, jafnt á sveita-
vegum, þjóðbrautum eða hrað-
brautum. Ökumenn þurfa aldrei að
stöðva til að fara í raðir til að borga
vegagjöld, eins og tíðkast í Frakk-
landi, á Ítalíu og Spáni.
Fjölmargar ferðir mínar til og frá
Lúxemborg komu strax upp í hug-
ann, þegar ég frétti að lágfargjalda-
flugfélagið Iceland Express mun
hefja flug til flugvallarins Frank-
furt-Hahn í apríl.
„Er þetta ekki það sama og fljúga
til Frankfurt?“ spurði einn vinnu-
félagi minn, þegar ég sagði honum
frá nýja áfangastaðnum.
„Nei,“ svaraði ég. „Hahn-
flugvöllurinn er rúmlega 100 km frá
alþjóðaflugvellinum fyrir sunnan
Frankfurt. Hahn-flugvöllurinn er í
hinu fagra Hunsrück-héraði í Rín-
arlandi, fyrir sunnan Moselána – á
milli Trier og Koblenz – og það tek-
ur þig ekki nema tuttugu mínútur að
komast að ánni, þar sem styst er í
hana frá Hahn,“ svaraði ég.
Það má segja með sanni að vegir
liggja auðveldlega til allra átta til og
frá Hahn, hvort sem menn eru að
fara til Frankfurt, Köln, Lúx-
emborgar, Stuttgart, eða ef menn
velja að njóta sveitasælunnar – aka
um eftir þjóðvegum og finna sér án-
ingarstaði í litlum bæjum við ár-
bakka, í dölum og skógum.
Hér á síðunni eru tvö kort sem
sýnir hvar Hahn-flugvöllurinn er.
Annað er Þýskalandskort og hitt er
kort sem sýnir nágrenni flugvall-
arins. Þá er hér í ramma á síðunni
ýmsir staðir nefndir og sýnt hvað
margir km eru þangað.
Það er ekki langt síðan Hahn-
flugvöllurinn var tekinn í notkun
fyrir millilandaflug og vöruflutn-
inga. Flugvöllurinn er gamall her-
flugvöllur Bandaríkjamanna, sem
voru þar með herstöð fram til 1993,
er hún var lögð niður. Lengi vel var
herstöðin, sem um þrettán hundruð
hermenn voru í, sem draugaborg.
Þar voru mannlausar íbúðarblokkir,
kvikmyndahús, verslanir, veitinga-
staðir, skemmtistaðir, sundlaugar,
íþróttavellir og hús. Þess má geta til
gamans að þar fékk rússneska
landsliðið í handknattleik að gista til
að búa sig undir heimsmeistara-
keppnina í Kumamoto í Japan 1997.
Það sagði mér Wolfgang Gütschow,
varaformaður rússneska handknatt-
leikssambandsins, í viðtali undir fyr-
irsögninni; Ætlum að sækja gull til
Japans, sem ég tók við hann í Þýska-
landi í apríl 1997. Rússar gerðu það
sem þeir ætluðu sér – tryggðu sér
gull.
Það er önnur saga. Frakkar
byggðu flugstöðina upp fyrir Banda-
ríkjamenn. Framkvæmdir hófust við
flugvöllinn í apríl 1951 og fyrsti
áfanginn var tekinn í notkun 2. júní
1952. Fljótlega varð flugvöllurinn
aðaláfangastaður vöruflutninga frá
Bandaríkjunum til Þýskalands. Á
vellinum var mikill og öflugur floti
herflugvéla af öllum stærðum og
gerðum. Á undanförnum árum hefur
Frankfurt-Hahn-flugvöllurinn verið
byggður upp og einnig flughöfnin
við völlinn, sem er glæsileg með
mörgum verslunum og veit-
ingastöðum. Um fjórar milljónir far-
þega ferðast um völlinn á ári, til og
frá þrettán löndum. Mestu umsvifin
eru í kringum írska lágfargjalda-
flugfélagið Ryanair, sem flýgur til
og frá 19 áfangastöðum til Hahn.
Á stuttum tíma hefur þessi litli
lágfargjaldaflugvöllur orðið einn af
öflugustu flugvöllum Þýskalands og
hann er fjórði stærsti flugvöllurinn í
Þýskalandi í sambandi við vöruflutn-
inga, en í tíunda sæti þegar aðeins er
talað um farþega sem ferðast um
flugvöllinn.
Trier og Idar-Oberstein
Á árum áður þegar ferðalangar í
„flug og bíl“ héldu heim á ný eftir
akstur um Evrópu, var mjög vinsælt
að gista tvær til þrjár síðustu næt-
urnar áður en haldið var heim frá
Lúxemborg – í Trier, hvílast fyrir
heimferðina, borða góðan mat í frá-
bæru umhverfi. Já, og ekki skemmdi
það fyrir að skreppa í búðir og
versla í fögrum göngugötum í hjarta
borgarinnar. Það er hægt að rifja þá
stemmningu upp á nýjan leik þegar
flogið er heim frá Hahn, sem er 72
km frá Trier. Einnig er hægt að
gera það sama í Idar-Oberstein, sem
er í 50 km fjarlægð. Þessir tveir litlu
sambyggðu bæir, sem liggja við
ánna Nahe, hafa upp á að bjóða
heillandi umhverfi eins og Trier,
hótel, gistihús, veitingastaði og
verslanir.
Þá er hægt að fá inni á fallegum
gistihúsum í litlum bæjum á svæðinu
– við Mosel og í Hunsrück. Stærstu
bæirnir við Hahn-flugvöllinn eru
Lautzenheusen og Söhren.
ÞÝSKALAND
Verður Hahn
nýtt hjarta
Evrópu?
Vegir liggja til allra átta frá Hahn, til Frankfurt, Kölnar, Lúxemborgar, Stuttgart og einnig ef aka á um eftir þjóð-
vegum og finna sér skemmtilega áningarstaði í litlum bæjum við árbakka, í dölum og í skógum.
3
D
E "F
)
D D
>G -
/
-
> - 8 H
)
6
F
/GH# >-
I ) -
/ #
#
:G
J
8
EGH
D#
!"#$"#
6 GH
%
Íslendingum verður fljótlega boðið upp á nýjan
áfangastað þegar flogið er til Evrópu. Það er flug-
völlurinn Frankfurt-Hahn í Þýskalandi. Sigmund-
ur Ó. Steinarsson telur að flugvöllurinn geti orðið
„ný Lúxemborg – nýtt hjarta Evrópu“ þar sem
hann er rétt við árbakka hinnar fallegu Moselár – í
Hunsrück-héraðinu á milli Trier og Koblens.
TENGLAR
.....................................................
www.hahn-airport.de
www.hunsruecktouristik.de.
HÉR eru nokkrir áfangastaðir,
þegar ekið er frá Hahn-flugvelli,
og lauslega reiknaðir km þangað
frá Hahn.
Lúxemborg ...................................90
Borgir og bæir við Mosel:
Trier...................................................73
Bernkastel ....................................29
Zell .....................................................18
Cochen............................................53
Koblenz...........................................70
Staðir við Rín:
Rüdesheim....................................65
Mainz...............................................85
Aðrir áfangastaðir:
Frankfurt .......................................115
Heidelberg ...................................169
Pforzheim...................................239
Saarbrücken ................................82
Idar-Oberstein ............................50
Köln.................................................164
Ekið frá Hahn