Morgunblaðið - 26.02.2005, Síða 45

Morgunblaðið - 26.02.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 45 MINNINGAR Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Margrét, Sigfús Pétur, Valdimar og fjölskyldur,megi guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tím- um. Og eins og mamma ykkar sagði: „Bara að vera glöð.“ Kveðja Elsa frænka. Elsku Anna, nú er þinni lífsgöngu lokið. En margar eru þær minningar sem þú skilur eftir hjá okkur því fáar manneskjur eru eins og þú. Alltaf hraust og alltaf jákvæð, sást aldrei neitt neikvætt og allt var æðislegt hjá þér. Anna, þó líkami þinn sé ekki hjá okkur, þá vitum við að sálin þín verður hjá okkur. Við munum ávallt hugsa til þín. Þú hefur verið okkur mjög náin og töluðum við alltaf um þig sem Önnu ömmu því við sóttum mikið í þig og alltaf var hægt að koma til þín og fá eitthvað gott frá þér. Anna mín, alltaf var gott að koma til þín, sama hvernig skapið í manni var, þú gast alltaf látið manni líða vel og það munt þú alltaf gera sama hvar þú ert. Þegar við hugsum um þig hlýnar manni alltaf um hjartarætur, því þá erum við að hugsa um eitthvað jákvætt, því þú ert ávallt jákvæð hvar sem þú ert. Elsku Anna, þín er sárt saknað en leiðir okkar allra liggja einhvern tímann saman, nú ertu komin til Pét- urs og við hugsum til ykkar. Við hugsum ávallt um ykkur hvar sem er og hvenær sem er. Elsku Anna og Pétur, við sjáum ykkur í draumi, líka er við liggjum í laumi. Þið eruð það sem við sjáum, alltaf ykkur við þráum. Þið eruð í okkar hjarta, þið eruð ljósið okkar bjarta. Elsku Anna, takk fyrir allar þær góðu stundir sem við erum búin að eiga saman í gegnum tíðina. Elsku Margrét, Valdimar, Sigfús og fjölskyldur. Megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Kolbrún Birna og Kristján Örn. Með þessum ljóðlínum viljum við kveðja hjónin Önnu og Pétur. Og það er margt sem þakka ber við þessa kveðjustund. Fjör og kraftur fylgdi þér, þín fríska, glaða lund. Mæt og góð þín minning er og mildar djúpa und. Þú skilur eftir auðlegð þá sem enginn tekið fær. Ást í hjarta, blik á brá, og brosin silfurtær. Mesta auðinn eignast sá er öllum reynist kær. Þín minning öllu skærar skín þó skilji leið um sinn. Þó okkur byrgi sorgin sýn mun sólin brjótast inn. Við biðjum Guð að gæta þín og greiða veginn þinn. (G.Ö.) Elsku Margrét, Sigfús Pétur, Valdimar Helgi og fjölskyldur, og aðrir aðstandendur. Við biðjum góð- an guð að styrkja og styðja ykkur á þessum erfiðu tímum. Minningin um yndisleg hjón lifir áfram. Eiríkur, Valgeir, Ingunn, Arnór og fjölskyldur. Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftanrjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson.) Mánudagurinn 21. febrúar rann upp ótrúlega bjartur og fagur hér í Eyjum eftir þoku og drunga undan- farna daga. Sólin að hækka á lofti og vorið á næsta leiti. En skjótt skipast veður í lofti, síminn hringir og okkur tilkynnt að Anna mágkona okkar og svilkona sé dáin, aðeins 59 ára. Kallið kom snöggt, en þó ekki, þú varst bú- in að berjast við illvígan sjúkdóm í tæp tvö ár og öll vissum við að hverju stefndi. Þú varst búin að vera alveg ótrúlega dugleg eftir að Pétur þinn lést í desember sl. og við full bjart- sýni um að þú mundir lifa það að sjá ófædda barnabarnið sem Anna og Valdimar eiga von á í næsta mánuði og jafnvel að þú kæmist til Eyja með vorinu. En ekkert varð af þessum væntingum okkar. Nú ert þú búin að fá hvíldina, elsku Anna, laus við þrautir og þjáningar í baráttu þinni við krabbameinið. Þú tókst veikind- um þínum með æðruleysi og aldrei heyrði maður þig kvarta, þú hafðir það alltaf ágætt þegar við hringdum í þig eða komum til þín. Þú varst ótrúleg. Þú varst kát og lífsglöð og hafðir yndislega nærveru. Þú naust þín best með fjölskyldu þinni og vinum, þú varst vinur vina þinna og máttir ekkert aumt sjá, alltaf tilbúin að hjálpa til ef á þurfti að halda. Þær eru margar minningarnar sem við eigum með þér og Pétri sem spanna um 40 ár og þær ætlum við að varð- veita í hjörtum okkar og ylja okkur við um ókomin ár. Nú ert þú komin til Péturs og við vitum að ykkur líður vel saman og að þið munið fylgjast með börnunum ykkar og þeirra fjöl- skyldum. Elsku Anna, við viljum þakka þér samfylgdina, vináttu þína og hlýju í gegnum tíðina. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð geymi þig elsku vinan. Við munum hittast aftur. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð, hann er góður og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért og horfin burt þessum heimi. Ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir.) Elsku Margrét, Sigfús Pétur, Valdimar Helgi og fjölskyldur, þetta er búið að vera ykkur mikið erfiður tími en þið hafið staðið saman eins og einn stór klettur í veikindum for- eldra ykkar. Það er mikil lífsreynsla að horfa á eftir foreldrum sínum, tengdafor- eldrum og fyrir barnabörnin að missa ömmu og afa með aðeins tveggja mánaða millibili og fá ekki notið þeirra lengur. Við skiljum ekki tilganginn og hvað lífið getur verið óréttlátt. Elsku vinir, við biðjum góðan guð að styðja ykkur og styrkja í sorg ykkar og söknuði. Sendum systkin- um Önnu og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Önnu Aðalbjargar Sig- fúsdóttur. Lára og Sveinn, Esther og Guðni, Sigríður og Óskar, Arnór Páll og Svanhildur. Elsku Anna frænka. „Hæ ég er frænka þín, veistu hvað ég heiti? Anna, panna, pottur og kanna, púðursykur og undirskál.“ Ég stelpuhnokkinn lít á hana stórum augum með galopinn munn. En þá skellihlær hún og tekur mig í faðminn. „Nei, nei, ég heiti bara Anna frænka.“ Þetta lýsir svo sannarlega létt- leika þínum, enda gleymi ég þessu aldrei. Elsku frænka, það er sárt að þurfa að kveðja. Minning um yndislega frænku sem gaf svo mikið af sér með góð- mennsku sinni, hlýju og kærleika mun ávallt lifa í hjarta mínu. Ég veit að nú eru þið Pétur saman á ný, laus við þrautir og þjáningar. Þú ert kom- inn í þitt fínasta púss og Pétur slær á létta strengi. Elsku Anna, ég kveð þig að sinni og þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér og fjölskyldu minni. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Elsku Margrét, Fúsi, Valdimar og fjölskyldur. Ég bið algóðan guð að vaka yfir ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímum. Kveðja Elín Sigríður. ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út- för ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JENS KARVELS HJARTARSONAR frá Kýrunnarstöðum, Engihjalla 11. Hjördís Karvelsdóttir, Sigríður G. Karvelsdóttir, Þorsteinn Ingimundarson, Hrafnhildur Karvelsdóttir, Bjarni Karvelsson, Magnea Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum samúð og vinarhug vegna fráfalls föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, LOFTS EIRÍKSSONAR, Steinsholti, Gnúpverjahreppi. Gunnar Örn Marteinsson, Kari Torkildsen, Eiríkur Loftsson, Stefanía Birna Jónsdóttir, Sigurður Loftsson, Sigríður Björk Gylfadóttir, Daði Viðar Loftsson, Bente Hansen, Lilja Loftsdóttir, Guðni Árnason, Sigþrúður Loftsdóttir, barnabörn, Guðbjörg Eiríksdóttir, Margrét Eiríksdóttir. Hún elskulega Þuríð- ur, sem lá með mér á 21A, krabbameinsdeild Landspítalans, hefur nú kvatt þennan heim. Ég kynntist Þuríði þar sem við lág- um hlið við hlið í strangri lyfjameðferð, og mun ég seint gleyma því hvað hún tók vel á móti mér þegar ég gekk fyrst inn á stofuna, hún brosti á móti mér og spurði hvort ég væri að leita að ein- hverju, en þá var ég að koma í mína fyrstu lyfjagjöf með hnút í maganum og hún brosti bara og sagði: Þetta er allt í lagi, það er svo gott að fá hressar konur hingað inn, leggstu bara við hlið- ina á mér. Þetta voru svo þægilegar móttökur, ég kornung að koma í mínar fyrstu meðferðir og hún því miður þurft að reyna þetta áður. Síðan spurði hún mig spjörunum úr og talaði ekki um annað en hvað ég ætti falleg náttföt og fallega inniskó, hún var mér mikil stoð og alveg yndisleg kona. Hún hvatti mann svo áfram og síðan var hún alltaf svo sæt þegar hún var búin með sinn skammt eins og við töl- uðum um á deildinni, og hún nikkaði alltaf til mín og sagði: Þú átt bara nokkra tíma eftir, enga stund að líða; setti síðan bunkann af nýjustu dönsku blöðunum sínum á borðið mitt og sagði: Kíktu í þetta, fullt af góðum uppskrift- um í þessu. Það var svo gaman að því, þar sem hún hafði sjálf svo litla matarlyst, að hún vildi alltaf gefa mér af sínum há- degisverði, því að ég var svo ung og hraustleg, og mér veitti sko ekkert af því að næra mig. Alveg einstök bar- áttukona! Ég held líka að hjúkrunarfólkinu hafi fundist gaman að henni, hún var alltaf létt og kát og aldrei sást nein uppgjöf hjá henni, allavega sóttu hjúkkurnar oft í að kíkja inn á okkar ÞURÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR ✝ Þuríður Sigurð-ardóttir fæddist í Stykkishólmi 13. október 1942. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 19. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey frá Foss- vogskapellu 31. jan- úar. stofu, þar var svo mikið líf og fjör og allir að berj- ast en samt sáttir og við allar 3 á stofunni ákveðnar í að sigra. Þegar hún þurfti að fara fram úr var alltaf það sama hjá henni: Hvað eru allar þessar snúrur að þvælast hérna? Við vorum með nokkur viðhöld alltaf með okkur, með lyfja- pokunum hangandi á, og oftar en ekki reif hún þá úr sambandi, síðan brostum við bara að þessu öllu saman og hugsuðum hvað við ættum nú mörg skipti eftir. Það eiga eflaust margir eftir að sakna hennar Þuríðar, hún var svo ákveðin, dugleg og skemmtileg týpa. Þuríður mín, þú hefur þurft að heyja svo harða baráttu og verið svo sterk, og mér fannst svo fallegt hvað þú talaðir vel um eiginmann þinn og börnin, alltaf varstu að segja mér frá þeim, þar sem börnin þín eru á svipuðum aldri og ég. Mér er líka minnisstætt að þegar hún kvaddi á daginn eftir hverja lyfja- gjöf skellti hún í snatri á sig hárkoll- unni, fór í bomsurnar og úlpuna sínar og sagði: Jæja, best að fara koma sér, ef að einhver nennir að sækja mig, sjáumst svo næst stelpur! Og brosti og var svo rokin. Elsku Þuríður mín, ég vil biðja al- góðan guð og englana að vaka yfir þér og vernda þína fjölskyldu sem þér þótti svo vænt um. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér, þú varst algjör hetja. Við sjáumst seinna, Þuríður mín. Hvíl þú í friði. Linda Katrín Urbancic. Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Minningar- greinar Elsku besta amma mín, ég sakna þín svo sárt og er allt- af að bíða eftir að þú komir til mín, elsku amma mín. Þegar ég sé húsið þitt og sjúkrahúsið þá held ég alltaf að ég sé að fara til þín, elsku amma. Nú vakið þið afi yfir mér og ég sé ykkur í draum- um mínum. Ég elska þig, elsku amma mín. Þín prinsessa og engill Súsanna Sif. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.