Morgunblaðið - 26.02.2005, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 26.02.2005, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 49 Í NOKKUR skipti í röð hefur rússneska flugfélagið Aeroflot haldið mikla skákhátíð í febrúar á hverju ári í Moskvu. Fyrirkomulag hátíðarinnar hefur alltaf verið þannig að teflt er í nokkrum flokk- um og þó að öll- um sé heimil þátttaka þá eru stigalágmörk í hverjum flokki nema í þeim sem er ein- göngu ætlaður skákáhuga- mönnum. Sterkasti flokk- urinn hefur hingað til alltaf verið vel skipaður en hann hefur aldrei verið eins stjörnum prýddur og í ár. Frakkinn Etienne Bacrot (2.715) var stigahæsti keppandinn en Úkraínumennirnir Vassily Iv- ansjúk (2.711) og Ruslan Ponom- arjov (2.700) komu fast að hæla hans. Til að geta teflt í flokknum þurfti að hafa 2.549 stig. Sumir voru undir þessu stigalágmarki en fengu engu að síður að tefla en alls voru 103 keppendur í flokknum. Ísraelski stórmeistarinn Emil Sut- ovsky (2.669) varð hlutskarpastur á mótinu með 6½ vinning af 9 mögulegum. Andrey Kharlov (2.614), Vassily Ivansjúk, Alexand- er Motylev (2.665) og Vladimir Akopjan (2.665) fengu sama vinn- ingafjölda en sá ísraelski varð úr- skurðaður sigurvegari eftir stiga- útreikninga. Í 6.–12. sæti með 6 vinninga lentu kempur á borð við Etienne Bacrot, Alexander Khalif- man (2.662), Teimour Radjabov (2.667) og Vladimir Malakhov (2.664). Emil hélt fyrirlestra um skák hér á landi árið 2003 og þótt- ust þeir takast vel. Hann lagði mikla áherslu á agaða útreikninga og nauðsyn þess að sækja að and- stæðingnum strax í upphafi tafls. Skákstíll hans ber þessara kenn- inga glöggt merki því að fáir eru jafn sókndjarfir og hann. Hinn rússneski stórmeistari Filippov réð lítt við Emil í eftirfarandi skák og skiptu engu þó að hann væri hróki yfir mest alla skákina. Hvítt: Emil Sutovsky (2.669) Svart: Valery Filippov (2.621) 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. c3 Rf6 5. e5 Rd5 6. 0-0 Bg7 7. d4 cxd4 8. cxd4 0-0 9. Rc3 Rxc3 10. bxc3 d6 11. exd6 exd6 12. Bg5 Dc7 13. He1 h6 14. Bf4 Re7 15. Db3 g5?! Hugsanlega eru þetta mistök en erfitt var að sjá fyrir að hvítur gæti haldið sókninni gangandi á jafn fáum mönnum eins og framhaldið ber með sér. 16. Rxg5! hxg5 17. Bxg5 Be6 Stundum nota skákmenn það viðkvæði að þegar búið er að segja A verði að segja B. Hvítur lifir eftir því og skiptir þá engu hvort hann verði hróki undir í framhaldinu. Allt á að leggja undir. Reyndar er það svo, þegar nánar er að gáð, að engir aðrir möguleikar voru fýsi- legir þar eð eftir aðra leiki hvíts hefði svartur getað stillt saman strengi sína. 18. Hxe6! fxe6 19. Dxe6+ Hf7 20. He1! a6 21. Ba4 Rc6 22. Bb3 d5 Svartur reynir að blíðka goðin með að gefa peð í viðbót en það reynist skammgóður vermir. 23. Bxd5 Kf8 24. Dg6 He8 25. Hxe8+ Kxe8 26. h4! Kf8 Það er með ólíkindum hvernig hvítur getur haldið stöðuuppbygg- ingu sinni áfram í rólegheitum með því að ýta h-peði sínu áfram. Bisk- upapar hvíts stjórnar öllu borðinu og ekki sakar að hafa fjögur peð upp í hrókinn. 27. h5! Dd7 28. Be6 Re5 29. dxe5 Dd1+ 30. Kh2 Bxe5+ 31. f4! Bxf4+ 32. Bxf4 Hxf4 33. Dh6+ Ke7 34. Dxf4 Kxe6 35. De4+ Kd6 Svartur hefði getað gefist upp með góðri samvisku en nú fær hvít- ur tækifæri til að skipta upp í gjör- unnið peðsendatafl. 36. Dd4+ Dxd4 37. cxd4 Ke7 38. d5 og svartur gafst upp. Næststerkasti flokkurinn hafði ekki að geyma aukvisa en þar máttu bara tefla skákmenn með 2.399 stig til 2.549. Nokkrir stór- meistarar urðu jafnir og efstir með sjö vinninga. Við fyrstu sýn virðist hann hafa vera tilvalinn fyrir þá sem voru á höttunum eftir áfanga að stórmeistaratitli. Í ljósi þess kemur eilítið á óvart að íslenskir skákmenn hópuðust ekki á mótið eins og þeir hafa gert undanfarin ár. Jón Árni Halldórsson (2.127) lét fámenni íslenskra skákmanna ekki á sig fá og tefldi í veikasta flokknum sem var ætlaður þeim væru með lægri stig en 2.200. Frammistaða hans var prýðileg en hann endaði í 42.–63. sæti af 222 keppendum með 5½ vinning. Meistaramót Taflfélagsins Hellis Eftir því sem á hefur liðið Meist- aramót Taflfélagsins Hellis í ár hefur heldur betur syrt í álinn fyrir Birni Þorfinnssyni (2.359), sexföld- um meistara félagsins. Björn sem er stigahæstur kepp- enda hefur verið heillum horfinn og að loknum fjórum umferðum hefur hann 1½ vinning. Sigurður Daði Sigfússon (2.309) og Davíð Kjartansson (2.290) eru efstir og jafnir með 3½ vinning en Hrannar Baldursson (2.164) og Jóhann Helgi Sigurðsson (2.061) koma næstir með 3 vinninga Jóhann Helgi kom á óvart í þriðju umferð þegar hann lagði Lenku Ptácní- kovu (2.280) að velli en í þeirri fjórðu kom eftirfarandi staða upp í viðureign hans og Sigurðar Daða: Eftir skandínavískan leik kom upp staða með mislitum biskupum. Sigurður tókst að hræra upp í stöðunni og fá öflug sóknarfæri. Til þess að auka sóknarþungann fórnaði hann skiptamun og þegar hér er komið sögu hafði svartur leikið af sér í síðasta leik 33. ...Df1- b5. Andstæðingur var ekki lengi að nýta sér þetta með 34. Hxg7+! Kxg7 35. exf6+ Kf7 36. Dxb5 Hxd4+ 37. Kc3 og svartur gafst upp enda fátt sem gleður augað þegar hvert peðið á fætur öðru mun hverfa af borðinu. Meistara- mótinu lýkur miðvikudaginn 2. mars næstkomandi en teflt er í húsakynnum félagsins í Mjódd. Linares-ofurmótið er hafið Því sérstaka fyrirkomulagi er haldið áfram á ofurmótinu á Lin- ares á Spáni að hafa keppenda- fjöldann á oddatölu. Vladimir Kramnik er ekki á meðal keppenda enda virðist hann forðast skákmót þar sem Garry Kasparov (2.804) er einnig með. Þegar tveim umferð- um er lokið hefur Indverjinn Visw- anathan Anand (2.786) besta vinn- ingshlutfallið þar eð hann hefur einn vinning af einum mögulegum eftir sigur á Veselin Topalov (2.757) í annarri umferð en sá hef- ur sama vinningafjölda eftir að hafa lagt Michael Adams (2.741) að velli í fyrstu umferð. Kasparov, Peter Leko (2.749), Rustam Kas- imdzhanov (2.678) hafa einnig einn vinning eftir að hafa teflt tvær skákir en heimamaðurinn Franc- isco Vallejo Pons (2.686) hefur hálfan vinning eftir eina skák á meðan Adams hefur sama vinn- ingafjölda eftir eina skák. Þrátt fyrir að hinn blóðheiti Luis Rent- ero sé á staðnum virðist sami jafn- teflisandinn svífa yfir vötnum eins og hefur verið undanfarin ár. Unglingameistaramót Reykjavíkur hefst í dag Í dag, laugardaginn, 26. febrúar, fer Unglingameistaramót Reykja- víkur fram í húsakynnum Tafl- félags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 14 og áætlað er að því ljúki kl. 18. Það er opið öllum 15 ára og yngri en teflt verður eftir Monrad-kerfi þar sem umhugsun- artíminn verður korter á skák. Vegleg verðlaun eru í boði og hóflegt gjald er tekið af hverjum keppanda. Emil Sutovsky sigrar í Moskvu SKÁK Moskva AEROFLOT-SKÁKHÁTÍÐIN 14.–24. febrúar 2005 Morgunblaðið/Ómar Emil Sutovsky Sigurður Daði Sigfússon HELGI ÁSS GRÉTARSSON daggi@internet.is FRÉTTIR FYRIR skömmu gaf Eimskip 10.000 börnum í St. John’s á Nýfundna- landi endurskinsmerki. Jóhann V. Ólafsson, forstöðumaður Eimskips í St. John’s, hafði frumkvæði að gjöf- inni, en eitt það fyrsta sem hann tók eftir þegar hann tók til starfa í St. John’s fyrir þremur árum, var að þar notuðu engin börn endurskins- merki. „Þessi gjöf Eimskips hefur vakið mikla athygli í St. John’s og hefur kallað fram miklar umræður um umferðaröryggismál á Nýfundna- landi. Fulltrúar frá umferðaryf- irvöldum og lögreglu í St. John’s hafa komið fram í fjölmiðlum þar sem þeir þökkuðu þetta frumkvæði Eimskips og vonuðu að þessi gjöf Eimskips yrði til þess að notkun endurskinsmerkja yrði í framtíð- inni bæði sjálfsögð og eðlileg,“ seg- ir í frétt frá Eimskip Rótarýklúbbur í St. John’s hafði milligöngu um afhendingu end- urskinsmerkjanna sem var í nánu samstarfi við skólayfirvöld í borg- inni, umferðaryfirvöld og lögreglu. Jóhann V. Ólafsson, forstöðumaður Eimskips í St. John’s, lengst til hægri, afhendir fyrsta endurskinsmerkið. Gáfu börnum á Nýfundna- landi endurskinsmerki Páll er Matthíasson Rangt var farið með nafn Páls Matthíassonar, sérfræðings í geð- lækningum, í blaðinu í gær. Páll er meðal fyrirlesara á vísindaþingi Geð- læknafélags Íslands á Akureyri. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT FÉLAG áhugamanna um tóbaks- varnir á Íslandi heldur opinn fund í húsi Krabbameinsfélags Íslands í Skógarhlíð 8 næstkomandi sunnu- dag klukkan átta. Efni fundarins verða: Fjölgun meðlima og stefnu- mörkun til framtíðar. Félag áhuga- manna um tóbaksvarnir á Íslandi var stofnað 1. janúar árið 2000. Í stjórn þess sitja Guðjón Bergmann og Baldur Sigurðarson sem báðir hafa látið til sín taka í tóbaksvarn- arumræðunni hér á landi, segir m.a. í fréttatilkynningu. Stefnumál félagsins eru tvö: 1. Við viljum ekki að börnin okkar reyki. 2. Við viljum að allir hafi að- gang að reyklausu andrúmslofti. „Félagsmenn munu starfa að stefnumálum félagsins með því að safna nýjustu upplýsingum um skaðsemi reykinga, skrifa greinar í blöðin, safna stuðningi málsmetandi aðila í þjóðfélaginu og halda fyr- irlestra við öll möguleg tækifæri. Félagið mun einnig standa fyrir söfnun fjár til auglýsinga svo að auka megi meðvitund almennings um tóbaksreykingar,“ segir í frétta- tilkynningu. Halda opinn fund um tóbaksvarnir LOKIÐ er gagngerum breytingum á verslun Krónunnar við Bíldshöfða sem miða að því að gera verslunina aðgengilegri fyrir viðskiptavini. Í tilefni þess verður fjöldi vöruteg- unda á tilboðsverði og klukkan 14 í dag, laugardag, verður sýnt atriði úr Ávaxtakörfunni. Klukkustund síðar mæta Svalakarlarnir á svæðið og sprella. Karlarnir verða aftur á ferð- inni á sunnudaginn, auk þess sem Halla hrekkjusvín lætur sjá sig. Allir sem koma í Krónuna á Bílds- höfða nú um helgina eiga möguleika á því að vinna 100.000 króna vöruút- tekt í versluninni. Endurbætt Krónuverslun við Bíldshöfða KRISTBJÖRG Kristmundsdóttir, blómaþerapisti og jógakennari, held- ur námskeið laug- ardaginn 5. mars, kl. 10 -17, sem ber yfirskriftina „Að blómstra með ís- lenskum blóma- dropum“. Krist- björg kennir um íslensku blóma- dropana, Vitund I, hvernig gott er að nota þá, hvernig þeir virka og hvernig þeir tengjast orkustöðvunum. Fjallað verður um orkustöðvarnar, orku- brautirnar og hvernig ýmis líðan, hegðun og samskipti hefur áhrif á þær. Farið verður í hugleiðslu, jóga og slökun. Námskeiðið verður haldið í Púls- inum ævintýrahúsi. Nánari upplýs- ingar fást á heimasíðunni pulsinn.is. Námskeið um blómadropa Kristbjörg Kristmundsdóttir Í ÁLYKTUN sem samþykkt var á að- alfundi Félags grunnskólakennara er því fagnað að forseti Íslands hafi ákveðið að stofna Íslensku mennta- verðlaunin. Í ályktuninni er því jafn- framt fagnað „að ráðamenn þjóðar- innar skuli í hátíðaræðum sínum við áramót ræða um mikilvægi skólasam- félagsins fyrir uppeldi og þroska barna í landinu. Brýnt er að hlúa að skólastarfi í landinu, skapa sátt um það starf og sýna það í verki. Þjóð- arsátt verður að ríkja um skólastarfið þar sem allir leggja sitt af mörkum. Jafnframt lýsir fundurinn yfir ánægju sinni með þá ákvörðun for- seta Íslands að stofna Íslensku menntaverðlaunin og telur þau hvatn- ingu fyrir skólafólk, kennara, nem- endur og aðra til að efla skólastarf enn frekar.“ Fagna umræðu um skólamál
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.